Morgunblaðið - 11.07.1987, Síða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 1987
í ÞINGHLÉI
STEFÁN
FRIÐBJARNARSON
Stjórnarskipti:
Það er morgun-
dagurinn sem
skiptir máli
Allra hagur að sameiginleg vanda-
mál og verkefni verði vel leyst
Ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar
er sezt að völdum, rúmlega 70
dögum eftir kosningar. Stjómar-
mjmdun hefur ekki tekið lengri
tíma frá 1971 talið. Þó er mjótt
á munum. Þrisvar á þessum tíma
tók stjómarmyndun langleiðina í
samatíma: 1974,1978 og 1979.
Stjómarmyndunin var erfiðari
en jafnan áður. Engir tveir flokk-
ar höfðu þingmeirihluta saman
eftir að talið hafi verið upp úr
kjörkössunum. Raunar engir þrír
heldur nema að Sjálfstæðisflokk-
urinn væri með í myndinni.
Fjölgun og smækkun þingflokka
gerði stjómarmyndun flóknari,
erfiðari og tímafrekari. Það var
ekki breyting til hins betra.
Þetta er fjórtánda ríkisstjóm
lýðveldisins. Þorsteinn Pálsson er
yngsti forsætisráðherra þess,
tæplega fertugur. Ásgeir Ásgeirs-
son (forsætisráðherra 1932) og
Hermann Jónasson (1934) vóm
árinu yngri þegar þeir settust á
þennan valdastól. Meðalaldur ráð-
herra í þessari ríkissjóm er og
lægri en verið hefur.
II
Á lýðveldistímanum hafa setið
fímm tveggja flokka stjómir. Þær
hafa yfirhöfuð setið út heilt
kjörtímabil. Sem fyrr segir höfðu
engir tveir flokkar þingstyrk til
stjómarmyndunar nú.
Sú stjóm, sem nýmynduð er,
er sjöunda fjölflokkastjóm lýð-
veldisins, þ.e. stjóm sem þrír
flokkar eða fleiri standa að. Eng-
in slík stjóm hefur lifað heilt
kjörtímabil á fyrrgreindu tímabili
(en einu sinni verður allt fyrst).
Meðalaldur fjölflokkastjórna hér
á landi er um það bil hálft
kjörtímabil. Tvær minnihluta-
stjómir hafa og setið í skamman
tíma.
Sú ríkisstjóm sem lengst hefur
setið og bezt hefur vegnað er við-
reisnarstjómin, samstjóm Sjálf-
stæðisflokks og Alþýðuflokks,
sem var við völd í 11 ár
(1959-1971) undir forsæti Ólafs
Thors, Bjama Benediktssonar
(lengst af) og Jóhanns Hafstein.
Sömu flokkar standa að núver-
andi ríkisstjóm, að Framsóknar-
flokknum viðbættum. Þessir þrír
flokkar stóðu saman að ríkisstjóm
1947-49 undir forsæti þáverandi
formanns Alþýðuflokksins, Stef-
áns Jóhanns Stefánssonar.
III
Það gekk ekki þrautalaust að
koma þessari ríkisstjóm saman.
Þannig liggur mikil vinna - brú-
arsmíð á milli sjónarmiða - að
baki stjómarsáttmálanum. Og val
ráðherra var og þingflokkum eins
konar þrautaganga um Þrengsla-
skarð, enda framboð ráðherraefna
meira en eftirspumin. En svo hef-
ur fyrr við borið án meiriháttar
jarðhræringa.
Svartsýnir segja að átök um
stefnu og ráðherra, sem að baki
eru (vonandi), bendi ekki til þess
að stjómarskútan fái óskabyr á
þeirri siglingu, sem framundan
er. Það sé heldur ekki góðs viti
að þeir, sem leysa eigi úr vanda-
málum margs konar, sem að
þjóðinni steðja, mæti þreyttir á
vaktina.
Líklegra er þó að það vinnulag
stjómarflokkanna að leysa
ágreiningsmálin fyrirfram greiði
götu stjómarinnar. Og vegames-
tið, vönduð og vel unnin stefnu-
mörkun, lofar góðu.
Ekki þarf ríkisstjómin að óttast
stjómarandstöðuna, svo veik-
burða og sundurþykk sem hún er.
Samanburður stjómar og stjóm-
arandstöðu er ríkisstjóminni mjög
í vil. Uggurinn í bijósti stjómar-
sinna, ef einhver er, snýr ekki að
stjómarandstöðunni, síður en svo,
heldur stjómarflokkunum sjálf-
um, hvort nægilega vel takist til
um heimilishætti og fjölskyldus-
ambúð í stjómarráðinu - og
þingflokkum stjómarinnar. En við
megum heldur ekki gleyma því
að það hefur aldrei verið mynduð
fjölflokkastjórn hér á landi án
slíks uggs.
IV
Pjölflokkastjómir byggja á
málamiðlun þar sem allir, sem að
stjóminni standa, hafa gefíð
nokkuð eftir. Og reynslan ein
getur lagt réttlátt mat á ríkis-
stjóm. Þar af leiðir að allar
ríkisstjórnir eiga rétt á nokkmm
reynslutíma áður en almenningur
kveður upp endanlega dóma.
Ríkisstjóm Þorsteins Pálsson-
ar, sem nú hefur verið mynduð,
er tvímælalaust skársta niður-
staðan í þeirri stöðu, sem talin
var upp úr kjörkössunum í endað-
an aprílmánuð síðastliðinn. Allir
aðrir kostir, sem staðan bauð upp
á, vóm verri kostir.
Mergurinn málsins á líðandi
stund er ekki sá að horfa alfarið
um öxl, eyða tíma og orku í karp
um atburði, sem em að baki, held-
ur horfa fram á við , til þeirra
verkefna sem takast þarf á við.
Það er morgundagurinn sem máli
skiptir.
Við hönnum sjálf sem einstakl-
ingar og heild okkar morgundag.
Og við skulum horfa bjartsýn til
þess morgundags, sem er í mót-
un. Ef einhver hallæriskór kýs að
kyija sinn svartagallssöng þá hafi
hann rétt til þess. En meirihlutinn
ræður ferð. Það er aðall lýðræðis-
ins.
Hvort sem við emm sátt eður
ei við aðdragandann að nýrri ríkis-
stjóm fara hagsmunir þjóðarinnar
og hennar saman. Það er okkur
í hag að henni takist ætlunarverk
sitt:
* að ná verðbólgu niður á svip-
að stig og í helztu viðskipta- og
samkeppnislöndum okkar
* að ná jafnvægi í viðskiptum
við útlönd
* að minnka erlendar skuldir
sem hlutfall af þjóðartekjum
* að eyða ríkissjóðshalla á
þremur ámm
* nýsköpun atvinnulífsins og
bætt almenn lífskjör.
* varðstaða um stjómarfars-
legt, efnahagslegt og menningar-
legt fullveldi þjóðarinnar.
Við hljótum að óska ríkisstjórn-
inni farsældar. Störf hennar em
unnin í okkar þágu. Það em fyrst
og síðast okkar hagsmunir að
vandamál og verkefni samfélags-
ins verði farsællega leyst.
Selfoss:
Byggðasafn Arnes-
sýslu opnað eftir
endurskipulagningu
Selfossi.
BYGGÐASAFN Árnessýslu var
nýlega opnað eftir gagngera
endurskipulagningu og er nú
opið á hverjum degi klukkan 14
til 17 og einni klukkustund betur
um helgar.
Þegar safnið var opnað aftur
eftir að hafa verið lokað í þijú ár
gaf sýslunefnd Ámessýslu safninu
nýja tölvu til skráningar á munum.
Hildur Hákonardóttir er safnvörður
og sagðijt hún eiga þá ósk að Sel-
fyssingar og aðrir endumýjuðu
kynni sín af safninu. Hún sagði
marga koma þangað með upplýs-
ingar um gamla muni, sem hún
sagði mjög kærkomið.
Að undanfomu hefur verið unnið
að því á vegum safnsins að setja
upp víðs vegar á Selfossi steinstytt-
ur sem Ragnar Bjamason frá
Öndverðamesi gaf Selfosskaupstað.
Styttur þessar em af fólki úr at-
vinnulífi fyrri tíma. Stytturnar hafa
, undanfarin ár verið í geymslu en
verða nú settar upp á ýmsum stöð-
um. Við fjölbrautaskólann hefur
verið komið fyrir trésmið með ham-
ar og fyrirhugað er að á móti honum
við gangstíginn standi prestur og
eiga þeir að tákna það að í skólan-
um sé um að velja verklegar brautir
og bóknámsbrautir. Hildur Hákon-
ardóttir sagði umgengni í grennd
við styttumar mjög góða og auðséð
að fólk tæki þeim vel.
Af munum á byggðasafninu má
nefna píanóið úr Húsinu á Eyrar-
bakka, en sagt er að hljómlistin
hafl borist um Suðu.i land frá þessu
píanói, og Bakkatunnumar sem
geymdu hið fræga Bakkabrennivín.
Gullsmíðaverkstæði Odds Oddsson-
ar í Regin á Eyrarbakka er á
Strákamir kunnu vel að meta styttuna af reið- . ... Mor?unb|a,M/SiKurður Jónsson
manninum, en hún stendur við byggðasafnið. Hildur Hákonardóttir við steinstyttu af fólki að
binda heybagga.
safninu og bókbandsáhöld Ingi-
mundar Guðmundssonar, bónda í
Efri-Gróf og á Eyrarbakka. Auk
þess má nefna Kolviðarhólskas-
sann, þar em munir sem Skúli
Helgason gróf upp á Kolviðarhóli
þegar torfgólf gamla sæluhússins
þar var hreinsað. Þá em á safninu
ýmsir munir úr atvinnusögu sýsl-
unnar með ágætum skýringartext-
um.
I húsnæði byggðasafnsins em
einnig íslenska dýrasafnið, lista-
verkasafn, meðal annars með
myndum eftir Ásgrím Jónsson, út-
skurðarsafn og sýningarsalur, allt
opið hveijum sem vill.
— Sig. Jóns.
u “ u ^