Morgunblaðið - 11.07.1987, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 1987
43
3. GREIN
alþjóðlega keppni um skipulag
borgar þeirrar sem verða skyldi
höfuðborg Astralíu. Canberra varð
ekki höfuðborg hennar fyrr en árið
1927, þangað til hafði það verið
Melbourne.
Borgin einkennist mikið af hring-
laga formum. Milli þessara ávölu
hæða er sjálft skipulag hennar í
hringjum. Miðhringurinn er mið-
bærinn en síðan koma aðrir hringir,
úthverfin þar fyrir utan. Allt er
þetta kerfi síðan tengt saman með
vegakerfi sem vandi getur verið að
rata í. A.m.k. er auðvelt að lenda
í að aka hring eftir hring vegna
þess að maður hefur tapað af réttri
beygju út úr einhverjum hringnum.
Eitt kvöldið eyddum við heilli
klukkustund í að fínna leið úr einum
af þessum hringjum.
I Canberra er mjög fallegt þing-
hús en verið að byggja annað mjög
sérkennilegt sem er að miklu leyti
byggt inn í hól og á að valda sem
minnstri umhverfisröskun. Það er
gert til að nálgast hin upprunalegu
náttúruverndarsjónarmið frum-
byggjanna. Þau sjónarmið voru þó
af ólíkum toga þeim sem nútíma-
maðurinn er að reyna að tileinka
sér. Frumbyggjarnir báru skilyrðis-
lausa virðingu fyrir móður náttúru
og áttu engra hagsmuna að gæta
með að raska henni. En nútímamað-
urinn er að reyna að grípa í skottið
á sjálfum sér eftir alla eyðilegging-
una.
Þar er einnig mikil bygging sem
er minnisvarði til heiðurs og minn-
ingar um Astrala sem fórust í
heimsstyrjöldunum fyrri og síðari.
Það er áhrifamikið og dapurlegt að
skoða svörtu spjöldin með nöfnum
þessara manna. Hugsa um allt það
líf sem þeir áttu að njóta, börnin
sem þeir áttu að eignast og gagnið
sem þeir hefðu gert þessari ungu
þjóð. Stór hluti þessara manna
væri líklega enn á lífi ef þessir
stríðsglöðu menn hefðu ekki att
þjóðum sínum út í slíka vitfirringu
sem stríð er.
Sérstakt einkenni á þessari fal-
legu borg er hve nýjar allar bygg-
ingarnar eru. Engin bygging
borgarinnar er frá síðustu öld.
Stöðuvatnið í borginni, sem gert
er af mannahöndum og ber nafn
hönnuðarins Burley Griffin, setur
mjög mjúkan og fallegan svip á
umhverfið. Lág fjöll, mikill gróður
og stílhreinar byggingar eru það
sem gleður augað er siglt er á vatn-
inu og nærliggjandi ám. í friðsælum
runni í hálftíma siglingu frá mið-
bænum rís hvít og falleg bygging
upp úr gróðurríku umhverfinu. Þar
býr breska konungsíjölskyldan er
hún heimsækir Canberra.
Er við höfðum siglt á ánni geng-
um við í hinum fallega garði sem
liggur að vatninu.
Milli blómstrandi japanskra
kirsubeijatrjáa blasti við minnis-
varði um Captain Cook. Líkan af
hnettinum þar sem leið hans var
merkt inn á. Úti í vatninu er gos-
brunnur, einnig til minningar um
landkönnuðinn. Bunan slær mildri
umgjörð um húsin sem standa öðr-
um megin bakkans og trén sem
slúta víðs vegar niður að vatninu
undirstrika friðsemd þessa um-
hverfis. Frá vatninu sjást helstu
byggingar borgarinnar, allar nýjar
og stílhreinar. Dómshúsið, lista-
safnið og þinghúsið eru þar á
meðal. Stofnanir sem þjóna eiga
allri þjóðinni.
Tveir menn sitja með veiðistöng,
böm leika sér á seglbrettum á vatn-
inu, en samt er eins og tíminn
standi í stað. Allt er svo hljótt, það
er eins og enginn vilji trufla óendan-
lega friðsæld augnabliksins.
Víða í borginni gefur að líta fal-
lega gosbrunna. Það er eins og
mýkt vatnsbununnar dragi úr þeim
neikvæðu áhrifum sem há hús vilja
hafa á mannfólkið. Á aðalgöngu-
götunni er hringekja sem hefúr ofan
af fyrir yngstu kynslóðinni.
Blómagarðurinn í Canberra hef-
ur að geyma alla flóru Ástralíu.
Þar er auðvelt að gleyma sér og
Minnisvarði um Cook kaftein.
verða að blómálfi. Einn dagur dug-
ar engan veginn til að hoppa á
milli allra þessara undursamlegu
tijáa og blóma sem þar er að fínna
og eiga það sameiginlegt að vaxa
villtar einhvers staðar í þessu
víðáttumikla landi.
Hrifnæmur blómálfur dáleiðist
auðveldlega milli þessara litríku
blómstrandi tijáa og blóma, þar sem
sérkennilegir fuglar hafa fundið sér
samastað og kallast á í felum milli
skjólsælla greina.
I listasafninu kennir ýmissa
grasa. List frá mörgum löndum.
Mest hreif hún mig þó list frum-
byggjanna, svo upprunaleg og
náttúrleg, í beinum tengslum við líf
þeirra í landinu.
Frá turninum og útvarpsmastr-
inu á Svarta fjalli sést yfir alla
Sjá næstu síðu