Morgunblaðið - 11.07.1987, Síða 48
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 1987
A V
48
fclk í
fréttum
Karlakórinn Heimir syngur fullum hálsi uppi á einu hæsta húsi í Reykjavík.
Skín við sólu — uppi á háhýsi
Skín við sólu Skagafjörður"
hljómaði ofan af einu hæsta
húsi í Reykjavík, Austurbrún 2, og
siðan hvert lagið af öðru. Þama var
kominn Karlakórinn Heimir úr
Skagafirði, á leið austan úr Homa-
fírði og heim í Skagafjörð eftir vel
heppnaða söngför. Höfðu þeir áður
sungið í Langholtskirkju fyrir nær
fullu húsi áður en þeir héldu austur.
Kórfélagar voru að koma frá
Gullfossi og Geysi og veitti ekki af
hressingu áður en haldið var áfram
"norður. Það sáu systkinin frá
Syðra-Vallholti fyrir og buðu öllum
hópnum til síðdegisboðs á Austur-
brún 2\ þar sem ein systirin,
Ástríður, býr á 14. hæð. En í því
húsi er efst uppi salur til afnota
fyrir íbúana í litlum íbúðum hússins
og opið út á þak.
Einn bróðirinn, Gunnar, er bóndi
í Syðra-Vallholti og syngur að sjálf-
sögðu í kómum eins og aðrir
bændur í Skagafírði. En Skagfírð-
ingar eru kátir og söngelskir, sem
kunnugt er. Bændur sælcja æfíngar
í kómum tvisvar í viku, þegar þeir
hafa lokið bústörfum kl.9 á kvöldin.
Stjómandi er Stefán Gíslason í Mið-
húsum. Og undirleikara hafa þeir
frá Bretlandi, Katharine Seedel,
sem einnig kenndi í tónlistarskólan-
um í Varmahlíð og spilar undir hjá
blandaða kómum, Rökkurkómum.
Henni líkaði svo vel við Skagfírð-
inga að hún sagðist ætla að koma
aftur næsta vetur. Þar sem ekkert
píanaó var á þakinu góða dró einn
kórmanna bara fram harmóniku.
Fjögur systkini frá Syðra-Vall-
holti eru búsett í Reykjavík, Ásgeir,
Ástríður, Sigurður og Ingibjörg,
sem bauð gestina velkomna fyrir
hönd systkinanna. Þau telja sig
fyrst og fremst Skagfírðinga og
vildu sýna heimamönnum þá sömu
gestrisni og rausn sem tíðkaðist
heima í Skagafírði þegar þau voru
að alast upp í Syðra-Vallholti, og
tíðkast enn.
Ingibjörg Gunnarsdóttir frá Syðra-Vallholti, býður kórinn velkominn
fyrir hönd systkina sinna búsettra í Reykjavík, Ástríðar, Ásgeirs og
Sigurðar.
Stjórnandi karlakórs-
ins, Stefán i Miðhús-
um, kveður undirleik-
arann, Katharínu
Seedel, en þarna
skildu leiðir og hún
var að halda heim til
Bretlands.
\
Útitónleikar
í Hamborg
Um síðustu helgi voru haldnir útitónleikar í Hamborg í Þýska-
landi þar sem fímm hljómsveitir komu fram. Um 60 þúsund
áhorfendur voru viðstaddir tónleikana sem vöktu mikla lukku.
Tina Turner er komin yfir fimmtugt en alltaf jafn hress á sviðinu.
Söngvarinn Joe
Cocker var meðal
þeirra sem fram
komu á tónleikun-
um í Hamborg um
helgina.
Annie Lennox, söngkona hljómsveitarinnar Eurithmics kom fram
á bleiku bijóstahaldi.
wehOt>?far brjóta
tæknimúrínn!
Höfóar til
.fólksíöllum
starfsgreinum!
SÓLCOtA
Gos með öllu!