Morgunblaðið - 27.08.1987, Blaðsíða 6
6 C
MORGUNBLAÐIÐ, VDDSKIFTI/AIVINNUIÍF FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1987
SIS
Sambandið og kaupfélögin með hærri
tekjur 1986 en ríkissjóður
- eftir Óla Björn Kárason
Á SÍÐASTA ári námu tekjur
Samband íslenskra samvinnufé-
laga 15.516 milljónum króna.
Kaupfélag Eyfirðinga, KEA,
velti 6.221 milljón króna og eru
þá talin með samstarfsfyrirtæki
þess. Önnur kaupfélög veltu alls
um 15.200 milljónum króna. Olíu-
félagið hf. sem er að meirihluta
í eigu Sambandsins velti 3.539
milljónum króna. Heildarvelta
Sambandsins, kaupfélaganna,
Olíufélagsins og nokkurra sam-
starfsfyrirtækja SIS var um
43.400 milljónir króna eða um
rúmlega 180 þúsund krónur á
hvem Islending. Til samanburð-
ar má geta að heildartekjur
ríkissjóðs á síðasta ári námu
rúmlega 38.200 milljónum króna.
Það kemur víst fáum á óvart að
umsvif Sambandsins og kaupfélag-
anna séu mikil. Tölurnar hér að
ofan eru þó alls ekki tæmandi, þar
sem mörg fyrirtæki í eigu sam-
vinnuhreyfingarinnar eru ekki talin
með, en þær gefa ákveðna vísbend-
ingu. Annar mælikvarði á stærð
Sambandsins eru heildareignir þess.
í árslok 1986 námu þær 7.762 millj-
ónum króna. Útlán Samvinnubank-
ans, Iðnaðarbankans og Verziunar-
bankans í lok síðasta árs námu alls
7.658 milljónum króna. Þessir
bankar hefðu því ekki getað fjár-
magnað eignir Sambandsins í
sameiningu. Og þess má geta að
aðeins veltufjármunir SÍS námu
46% af heildarútlánum þessara
þriggja einkabanka.
I heild var niðurstöðutala efna-
hagsreiknings kaupfélaganna
14.112 milljónir í lok 1986. Heildar-
eignir Olíufélagsins 1986 voru
2.610 milljónir króna. Heildareignir
Sambandsins, kaupfélaganna og
Olíufélagsins voru samkvæmt þessu
um 24.484 milljónir króna. Og enn
ber að taka fram að þessar tölur
eru ekki tæmandi.
Eigriir í fyrirtækjum
Samkvæmt ársreikningi Sam-
bandsins 1986 var verðmæti hluta-
bréf í samstarfsfélögum 1.496
milljónir króna. Þá á SÍS 75 milljón-
ir króna í öðrum fyrirtækjum og
um 121 milljón króna í sameignar-
félögum og stofnsjóðum samvinnu-
félaga. Alls 1.692 milljónir króna
eða tæplega 22% af heildareign.
Stærsta kaupfélagið, KEA, er
lítill eftirbátur Sambandsins. Það á
7,6 milljónir í stofnsjóðum, 527
milljónir í hlutabréfum og eignar-
hlutir í öðrum fyrirtækjum eru
bókfærðir á 108 milljónir króna.
Alls um 643 milljónir króna eða
17,6% af niðurstöðutölu efnahags-
reiknings. KEA á m.a. hlutafé í
Olíufélaginu hf., bókfært á 121
milljón, Samvinnubankanum, bók-
fært á 17,7 milljónir, Samvinnusjóði
Islands, bókfært á 10,6 milljónir
króna, Landflutningum, bókfært á
2,9 milljónir króna og Samvinnu-
ferðum bókfært á 120 þúsund.
Olíufélagið hf. á hlutabréf í dótt-
urfyrirtækjum fyrir 182 milljónir
króna og í öðrum fyrirtækjum fyrir
18 milljónir króna. Samvinnutrygg-
ingar gt., stærsta tryggingarfélag
landsins, á um 82 milljónir króna í
öðrum félögum, þar á meðal í Olíu-
félaginu, Samvinnubankanum,
Samvinnuferðum, Samvinnusjóði
íslands, Meitlinum og Búlandstindi.
Samvinnubankinn á 14,5 milljónir
í hlutabréfum og stofnsjóðum. Þar
af á bankinn 30% í fjármögnunar-
leigufyrirtækinu Lind ásamt
Samvinnusjóði (30%) og Banque
Indosuez (40%).
SÍS meö 18,8%
útflutnings
Á liðnu ári flutti Sambandið út
vörur fyrir 8.449 milljónir króna. í
heild nam útflutningur okkar ís-
lendinga 44.968 milljónum króna,
þannig að hlutur Sambandsins var
18,8%. Þyngst í útflutningi SÍS
vegur 6.972 milljóna króna útflutn-
ingur Sjávarafurðadeildar. Sem
Tíu þúsund króna
tékkaábyrgð
Við höfum hækkað tékkaábyrgð okkar
verulega. Nú ábyrgjumst við aila tékka,
sem útgefnir eru af eigendum Alreikninga og
almennra tékkareikninga að upphæð
kr. 10.000,- án þess að bankakort sé sýnt.
® iðnaðarbankitin
-riúPim k>anK\
I
I .
I'