Morgunblaðið - 27.08.1987, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 27.08.1987, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, VIÐSKIPn/AIVINNULÍF PIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1987 C 11 Vörusýningar Stjónnumr- hæfni má læra Kunnur bandarískur sálfræðingur held- ur námskeið hér á landi Dr. Thomas Gordon, kunnur bandariskur sálfræðingur, er væntanlegur hingað til lands í fyrstu viku septembermánaðar í boði „Samskipta: fræðslu og ráð- gjafar sf.“. Föstudaginn 4. september verður haldin náms- stefna fyrir yfirmenn og stjórn- endur Sambands íslenzkra samvinnufélaga, þar sem dr. Thomas Gordon kynnir hug- myndir sínar um stjórnun og aðferðir sem unnt er að beita í samskiptum við starfsmenn. Námsstefnan stendur í sex stund- ir, frá kl. 9 til 15. Dr. Thomas Gordon hefur um 25 ára skeið staðið fyrir námskeið- um fyrir ýmsa hópa fólks; foreldra, kennara, unglinga og stjórnendur fyrirtækja og stofnana, þar sem kenndar hafa verið leiðir til farsæll- ar og áhrifaríkrar stjómunar og mannlegra samskipta. Hann hefur skrifað 4 bækur um þessi mál. Ein þeirra, „Parent Effectiveness Training", P.E.T., sem fjaliar um leiðir til að gera foreldra hæfari til að fást við for- eldrahlutverkið, kemur senn út í íslenskri þýðingu hjá Almenna bókafélaginu. Hún varð metsölubók í Bandaríkjunum, þar sem rúmlega hálf önnur milljón eintaka hennar hefur selst. Hinar bækumar, sem fjalla m.a. um þjálfun í starfshæfni kennara og starfshæfni leiðtoga og stjómenda, hafa einnig vakið óskipta athygli, að því er segir í frétt frá Samskiptum. Á námskeiðum sínum beitir dr. Thomas Gordon sérstökum aðferð- um til að kenna eftirfarin atriði: — að fá fólk til að vinna með þér, en ekki aðeins fyrir þig. — fá fólk til að vinna sjálfstætt, svo stjórnandi fái meiri tíma til að hugsa, skipuleggja og stjóma. — slökun, svo stjómandi njóti sam- skipta við aðra á vinnustað eða heima fyrir en einangrist ekki. — að meta vinnu annarra án þess að það skapi andstöðu. — gera fundi árangursríkari og fá Vörusýningar MUnchen Parie Köln Díisseldori •-10. _--------- AUTUMN GIFT FAIR Gjafavörusýnlng London •-IX. saptawhar LEIPZIGER MESSE Lelpzig Alþjóöleg haustaýnlng Frankfurt 11-13. _---------- LONDON MIDSEASON Tiakufatnaöur London London London 13-1«. JUNIOR FASHION FAIR Bamafatnaður London Munchen 1- T. ISPO — Sportvörur og fatnaöur •.- a. ________ MODEINFANTE, Bamafatnaöur •- a. ------------ SPOGA — Iþróttavörur 9. asgtambar IGEDO — Tlskufatnaður 10.-30. IAA — BHar og varahlutlr 13-1B. LONDON PRET — Tlskufatnaður 13-1«. MAB — Ttskufa tnaöur karia 7. < MODE WOCHE—Tlakufatnaöur 10-1B. ahlöhar ANUGA — Matvaalasýning fijóar hugmyndir frá samstarfs- hópnum. — fá samstarfshópa til að vinna saman og leysa úr „óleysanleg- um“ ágreiningi. — forðast með árangri of mikla stjómsemi og of mikla eftirgefni. — að hafa meiri áhrif á eigin yfir- menn. Reynslan af námskeiðum dr. Thomasar Gordon sýnir, að yfirleitt er unnt að draga verulega úr valda- baráttu, auka afköst og framleiðni og bæta samskipti stjórnenda og starfsfólk, segir einnig í fréttinni. Hópferð á málm iðnaðarsýningu MALMTÆKNIDEILD Iðn- tæknistofnunar íslands hefur ákveðið að standa fyrir hópferð á málmiðnaðarsýninguna EMO 87, sem haldin verður í Mílanó á Ítalíu dagana fjórtánda til tuttugasta og annan október. EMO málmiðnaðarsýningin er haldin á tveggja ára fresti og er stærsta og viðamesta sérsýningin fyrir málmiðnaðinn. Þar em sýnd hefðbundin málmiðnaðartæki jafnt sem tölvustýrð tæki og fjöl- hæf framleiðslukerfi fyrir málm- iðnað. Fjöldi sýnenda er alls um 2000 frá 40 löndum og er 98% af vélamarkaðnum til sýnis og kynningar á EMO málmiðnaðar- sýningunni. Farið verður frá Keflavík þann 13. október og flogið í gegnum Kaupmannahöfn til Mílanó. Flogið verður heim þann 22. október. Fararstjóri verður Jónas G. Jón- asson vélaverkfræðingur hjá Iðntæknistofnun. Þáttaka til- kynnist til Iðntæknistofnunar Islands eða Samvinnuferða. Köln Vörusýnlngareni okkarsérfag. Haföu samband semfyrst. BFERÐA.. Cc+itud MIÐSTODIIM Tccn/zi AOAISIHA II ‘J - HfYK IAVIK - I. i 8 1 3 J Vébæðhg bætir afkomu Hraðfleyg tækniþróun, minnkandi vinnuafl í iðnaði, auknar kröfur um gæði og framleiðni og fleiri haldgóðar ástæður krefjast þess að framleiðslufyrirtæki vélvæðist á hagkvæman og fullkominn hátt. Vélvæðing er kostnaðarsöm, en getur skipt sköpum þegar stefnt er að bættri afkomu. Þegar menn hyggja að fjármögnun langtímafjárfestinga í atvinnulífinu, borgar sig að huga vel að lánamöguleikum. Megin- tilgangur Iðnþróunarsjóðs er að stuðla að alhliða uppbyggingu atvinnulífs, með fjármögnun meiriháttar fjárfestinga. Sjóðurinn er traust lánastofnun, sem m.a. leggur áherslu á arðsemi fjárfestinga. Eitt af þeim verkefnum sem sjóðurinn fjármagnar er vélvæðing atvinnulífsins. Möguleikamireru margir. Lánshlutfall er t.d. sveigjanlegt og tekur mið af fjárþörf traustra og vel rekinna fyrirtækja. Lántaki hefur áhrif á hvort gengistrygging láns er t.d. í USD, DEM, GBP eða miðast við aðra gjaldmiðla, ef sérstakar ástæður koma til vegna sérþarfa fyrirtækisins. Gengistrygging getur enn- fremur verið sambland gjaldmiðla til að dreifa gengisáhættu. Við höfum langa reynslu og þekkingu á fjármögnun fjárfestinga með sveigjanlegum lánsformum, sem reynt er að fella sem best að fjárþörf traustra fyrirtækja. Hafðu samband við starfsmenn Iðnþróunarsjóðs þegar þú gerir framtíðaráætlanir um uppbyggingu og fjárfestingu í atvinnurekstrinum. Iðnþróunarsjóður býr yfir þekkingu til að leysa fjármögnunarvanda þinn. IÐNÞROUN ARS J OÐUR Kalkofnsvegi 1,101 Reykjavík - sími (91) 69-99-90

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.