Morgunblaðið - 27.08.1987, Qupperneq 8
8 C
MORGUNBLAÐIÐ, VlDSKIPn/AIVINNULÍF FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1987
Frumkvöðlar II
„Rás 2“ stjómað af
tölvu og einum starfsmanni
Darrel H. Clark útvarpsmaður ársins 1986 í New Hampshire segir frá stöð sinni
eftir Stefán Halldórsson
FRÆGUSTU frumkvöðlarnir
eru yfirleitt þeir sem hafa komið
fram með eitthvað alveg nýtt,
hafa verið á undan sinni samtíð
og séð fyrir hvað yrði vinsælt
og eftirsótt meðal neytenda.
En frumkvöðlar hafa oft og ekki
síður náð árangri með því að vinna
úr hugmyndum annarra, veita þjón-
ustu á annan og betri hátt en áður
hafði tíðkast. Frumkvöðullinn, sem
þessi grein fjallar um, rekur litla
útvarpsstöð í New Hampshire.
Hann fann ekki upp hljóðvarps-
tæknina, né heldur kom henni á
framfæri í heimaríki sínu. En hann
lagði sig fram um að veita hlustend-
um sínum betri þjónustu en þeir
höfðu áður notið, reyndi að reka
útvarpsstöðvar betur en tíðkast
hafði á þessum slóðum. Á_ síðasta
ári var hann útnefndur „Útvarps-
maður ársins 1986 í New Hamps-
hire“ í viðurkenningarskyni fyrir
framlag sitt til útvarpsrekstrar í
ríkinu.
Darrel H. Clark rekur úrvarps-
söðina W-TSL í West Lebanon í
New Hampshire. Svæðið sem út-
sendingamar ná til er jafnan nefnt
Upper Valley-svæðið. Þar eru fjórir
smábæir, nánast í hnapp, með
5—12 þúsund íbúa hver, og síðan
nokkur þorp og sveitahéruð í ná-
grenninu. Ibúafjöldinn er um 55
þúsund manns eða minna en helm-
ingur af íbúaflölda Stór-Reykjavík-
ursvæðisins. Tvær stórar stofnanir
setja mjög mark sitt á svæðið og
eru langstærstu vinnuveitendumir:
Dartmouth-háskólinn og Mary
Hitchcock-sjúkrahúsið. Þama er
einnig mikill fjöldi smáfyrirtækja
og mikil atvinna, raunar skortur á
vinnuafli, og því er velmegun á
svæðinu og uppgangur hefur verið
mikill á undanförum árum. Og fjöl-
miðlar njóta góðs af, mikið er
auglýst og margt er að gerast í
bæjariífínu.
Sex útvarpsstöðvar
á minna svæði
en Reykjavík
En stöð Clarks, W-TSL, situr
ekki ein að auglýsingakrásunum. Á
þessu svæði voru til skamms tíma
fímm útvarpsstöðvar, og auk þess
sjónvarpsstöð, tvö dagblöð, viku-
blað og eitt tímarit, auk þess sem
gefnir eru út reglulega sérstakir
auglýsingabæklingar um veitinga-
staði og ýmiss konar bæklingar
handa ferðamönnum, auðvitað með
auglýsingum. í janúarmánuði sl.
bættist sjötta útvarpsstöðin í hóp-
inn, er Clark færði út kvíarnar og
hóf útsendingar á annarri rás, sem
nær yfír talsvert stærra svæði með
um 100 þúsund íbúum. Nýja stöðin
er forvitnileg um margt fyrir Islend-
inga, því að hún er dæmi um
tæknivæðinguna í útvarpsrekstri í
Bandaríkjunum: tölvustýrðar út-
varpsstöðvar.
En rekjum fyrst feril Clarks og
forsöguna að nýju stöðinni.
Darrel H. Clark hefur átt allan
sinn feril sem útvarpsmaður í New
Hampshire, einu af fámennustu
ríkjum Bandaríkjanna. Hann byrj-
aði sem plötusnúður og þulur,
gerðist síðan auglýsingasölumaður
og vann sig upp þar til hann var
orðinn útvarpsstjóri í bænum
Keene. Fyrir níu árum færði hann
sig um set og tók við stjóm stöðvar-
innar í West Lebanaon. Þetta er
dæmigerð smábæjarstöð, sendir út
á AM-rás (miðbylgju), sem í eina
tíð var aðalhljóðvarpsbylgjan í
Bandaríkjunum, en hefur í seinni
tíð mjög farið halloka í samkeppn-
inni við stöðvar á FM-bylgju.
„AM-stöðvamar duttu í gildru
er FM-stöðvamar komu til sögunn-
ar. FM-stöðvar urðu mjög vinsælar
á sjöunda áratugnum, fluttu nýja
popptónlist og útsendingin var
hreinni og hljómgæði meiri en menn
höfðu áður kynnst," segir Clark.
„Útvarpsstöðvamar fóru að byggja
upp þennan nýja miðil, létu AM-
stöðvamar reka á reiðanum og
sögðu: „AM er búið að vera, fólk
er hætt að hlusta.“ — En þetta er
ekki rétt. Við höfum sannað það
hér og við munum ekki falla í sömu
gildruna."
Fagmennska og góð
fréttaþj ónusta
„AM-stöðinni hefur gengið mjög
vel,“ segir Clark. „Mín stefna, sem
hefur alltaf skilað okkur stórum
hluta hlustendahópsins, hefur verið
að leggja áherslu á fagmennsku og
góða fréttaþjónustu. Stöðin sem ég
vann hjá áður var ein af þeim fyrstu
í New Hampshire sem höfðu frétta-
mann í fullu starfí og þegar ég tók
við stjórn hennar bætti ég öðmm
fréttamanni við, sem var einsdæmi.
Hér var einn fréttamaður, er ég
kom 1978, og ég bætti strax öðmm
við. Nú emm við með þijá frétta-
menn í fullu starfi og einn íþrótta-
fréttamann. Þetta er eina stöðin á
svæðinu sem er með fastráðinn
veðurfræðing í hlutastarfí og sú
þjónusta hefur aukið mjög hróður
okkar. Við leggjum mikla áherslu
á fréttir af svæðinu, emm eina stöð-
in sem útvarpar reglulega frá
íþróttakappleikjum bæjanna íjög-
urra, við emm með bestu lands-
mála- og erlendar fréttir sem völ
er á (frá CBS-útvarpskeðjunni) og
við flytjum daglega pistla og frétta-
þætti Paul Harvey, sem er vinsæl-
asti útvarpsmaður Bandaríkjanna.
Allt þetta hefur gert þessa stöð
mjög vinsæla."
En Clark var ljóst frá upphafi,
að AM-stöðin ein var ekki nóg, og
eitt af fystu verkum hans var að
sækja um leyfi fyrir FM-stöð. Leyf-
ið fékkst þó ekki fyrr en eftir átta
ára baráttu, og m.a. samdi Clark
við tvo aðra umsækjendur um að
draga sig í hlé gegn greiðslu. FM-
stöðin tók til starfa 12. janúar sl.
og státar af mestu hljómgæðum
allra stöðva á Upper Valley-svæð-
inu. „Búnaðurinn var allur sá besti
sem við höfðum efni á að kaupa,"
segir Clark.
Tölva stjórnar átta
segulbandstækjum
Hjarta nýju stöðvarinnar — eða
öllu heldur heili — er tölvubúnaður
sem sér um alla útsendingu og kem-
ur mannshöndin þar ekki nærri
nema til að skipta um segulbands-
spólur og að mata tölvuna á
dagskrárforritum. Þessi búnaður
kostaði um 1,6 milljónir ísl. króna.
Tölvan stýrir átta segulbandstækj-
um. Fjögur þeirra leika tónlist af
klukkustundarlöngum spólum og
§ögur tæki leika auglýsingar, frétt-
ir, veðurfregnir og önnur innskot
af snældum.
011 tónlistin kemur á spólum frá
Drake Chenault-fyrirtækinu, sem
veitir slíka þjónustu nokkur hundr-
uð útvarpsstöðvum í Bandaríkjun-
um. Lögin eru valin við hæfi
hlustenda á aldrinum frá tvítugu
til fertugs og stendur Drake Che-
nault-fyrirtækið fyrir stöðugum
könnunum á tónlistarsmekk þessa
aldurshóps til að tryggja sem best
lagaval. Clark lýsti efninu á spólun-
um: „Á einu tækinu er alltaf spóla
með nýju efni og er spiluð samfellt
í hálfan mánuð. Á öðru tækinu eru
spólur með nýlegu efni, þar höfum
við nokkrar til skiptanna og er ein
og ein endurnýjuð í einu á nokk-
urra mánaða fresti. Þriðja og fjórða
spólan eru með eldra efni, frá rokk-
árunum fram til síðustu ára. Við
eigum nokkra tugi af slíkum spólum
og þær eru leiknar til skiptis og
lítil endurnýjun fer þar farm.“
Tölvan leikur svo lög af spólunum
til skiptis — og þeir sem hlusta ein-
ungis á þessa stöð, dag eftir dag,
geta vissulega tekið eftir mynstri:
Nýjustu lögin eru alltaf leikin í
sömu röð í hálfan mánuð, en eldri
lögum skotið inn á milli þeirra af
meiri ijölbreytni. Þegar tölvan hef-
ur leikið spóluna með nýju lögunum
út á enda spólar hún hana til baka
°g byijar svo aftur á nýjan leik,
en starfsmenn stöðvarinnar skipta
um hinar spólurnar á vissum tímum
dagsins, auðvitað samkvæmt út-
skrift tölvunnar.
Beinar útsendingar
um gervihnött
Af og til fær tölvan þó frí. Þá
er tónlistarefni útvarpað beint frá
öðrum útvarpsstöðvum í Banda-
ríkjunum, m.a. í New York og Los
Angeles, og berst það efni um gervi-
hnött. Hljómgæðin eru þó nánast
alveg þau sömu og endranær, fjar-
skiptabúnaðurinn er svo háþróaður.
Báðar stöðvarnar senda út í 18
tíma á sólarhring, frá klukkan 6 á
morgnana til miðnættis. Við AM-
stöðina störfuðu áður 17 manns,
en þegar FM-rásin bættist við var
fjölgað um einn starfsmann. Hann
les fréttir, byggðar á fréttaefni
AM-rásarinnar, tekur til spólur með
tónlist hvers dags, skiptir um aug-
lýsingasnældur þegar þarf og sér
um dagskrárskráningu og mötun
tölvunnar.
FM-rásin flytur fréttaágrip tvisv-
ar á klukkustund snemma á
morgnana, í hádeginu og síðdegis
— er flestir ökumenn eru á ferðinni
milli heimilis og vinnustaðar. Auk
þess eru tíðar veðurfregnir allan
daginn. Að öðru leyti er tónlist þar
allsráðandi, einungis leikin þekkt
lög og svo til engar kynningar.
Auglýsingafjöldi er takmarkaður
á FM-rásinni, að hámarki 12 mínút-
ur eða 16 auglýsingar á hverri
klukkpstund. „Við höfum nú náð
því marki, að nánast allir auglýs-
ingatímar eru fullbókaðir, en við
munum halda fast.við þessa stefnu,
ekki fjölga auglýsingum, en hækk-
um verðið þess í stað,“ segir Clark.
Auglýsingar í 20
mínútur á klukkustund
Auglýsingamagn á AM-rásinni
er svipað því sem gerist hjá flestum
útvarpsstöðvum í Bandaríkjunum,
allt upp í 18—20 mínútur á hverri
klukkustund og engin takmörk á
einingafjölda. Tónlist er vissulega
aðalefni þeirrar rásar líka, en á viss-
um tímum dags er engin tónlist
leikin: Á bestu hlustunartímunum,
frá klukkan 6 til 9 á morgnana, í
eina klukkustund í hádeginu og
aðra klukkustund síðdegis er ein-
ungis flutt fréttaefni. Þá eru á
hverri klukkustund tveir staðar-
fréttatímar, aðrir tveir með lands-
mála- og erlendum fréttum, tveir
íþróttafréttatímar, veðurfregnir
3—4 sinnum, og einnig fréttaskýr-
ingaefni og pistlar frá Paul Harvey
og CBS-keðjunni og efni unnið af
fréttamönnum stöðvarinnar. — Á
öðrum tímum dags eru fréttir og
veðurfregnir fluttar tvisvar á
klukkustund, þó sjaldnar á kvöldin,
þegar útsendingar frá íþróttaleikj-
um eru yfirleitt á dagskrá.
Oll tónlist AM-stöðvarinnar er
af segulböndum frá Drake Che-
nault-fyrirtækinu eða kemur um
gervihnött frá öðrum stöðvum. Út-
varpsstöðin hætti að nota hljóm-
plötur fyrir tveimur árum. Þulir
stjórna öllum útsendinum AM-
stöðvarinnar og kynna tónlistina og
annað efni. Engir tæknimenn starfa
við upptökur eða útsendingar og á
kvöldin og um heglar er einungis
einn starfsmaður í útvarpshúsinu:
Þulur sem stjórnar tveimur rásum
(með aðstoð tölvu).
Veltan 40 milljónir
króna
Clark segir að velta rásanna
tveggja fari yfir 40 milljónir króna
á þessu ári og hafi meira en þrefald-
ast frá árinu 1978, er hann tók við
stjórn útvarpsstöðvarinnar. Auglýs-
ingaverð er mishátt efir árstíma og
eftirspurn, hæst fyrir jólin. Allar
auglýsingar eru leiknar af snæld-
um, hálf eða ein mínúta að lengd,
og bera auglýsendur allan kostnað
af gerð þeirra. Að lágmarki eru þær
leiknar fjórtán sinnum og í sumar
er meðalverð um 500 krónur fyrir
hálfa mínútu, en magnafsláttur er
veittur fyrir fleiri birtingar. Að sögn
Clarks gengur auglýsingasala vel,
því að kannanir hafa sýnt að báðar
stöðvarnar eru með stærsta hlust-
endahópinn, hvor á sinni bylgju.
Alþjóða hug'mynda-
banki útvarpsmanna
Darrell Clark ætlar ekki að láta
staðar numið í endurbótum og
markaðssókn:
„Ég er félagi í samtökum 100
útvarpsstöðva um allan heim — The
International Broadcasters Idea
Bank (Alþjóða hugmyndabanka út-
varpsmanna). Sérhver stöð sendir
hinum 99 stöðvunum fréttabréf
mánaðarlega og segir þeim hvað
hún er að fást við, hveijar eru nýj-
ungarnar o.þ.h. Þetta er mjög
gagnlegt, enda eru 65 stöðvar á
biðlista til inngöngu.
Mér finnst stundum að stjórnend-
ur útvarpsstöðva sem þjóna
fámennum svæðum leggi sig ekki
nóg fram. Þeir hugsa: „Ég þjóna
litlum markaði, þess vegna getur
dagskráin verið fábrotin", og þeir
reyna ekki að sýna fagmennsku.
En hvers vegna ætti ég að láta
smæð markaðarins hindra mig? Mín
stöð getur verið eins góð og hvaða
stöð sem er á stærri markaði — og
kannski betri. Ef unnt er að fá
starfsmennina til að hugsa líka á
þennan hátt, þá er hálfur sigurinn
unnin. Þetta er mín stefna og hún
virkar."