Morgunblaðið - 27.08.1987, Side 10
10 €
MORGUNBLAÐIÐ, VIÐSKIPn/AIVINNUlÍF FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1987
Erlent
Sænsk stórfyrirtæki búa
sér sína eigin framtíð
eftir Áke Sparring
FYRIR skemmstu var frá skýrt,
að sænska stórfyrirtækið Asea
og svissneska fyrirtækið Brown
Boveri hefðu sameinast og þar
með er ljóst, að stærsta raforku-
fyrirtæki í heimi er í höndum
Evrópumanna. Með 100.000
starfsmenn og ársveltu upp á
100 milljarða sænskra króna er
fyrirtækið í fararbroddi jafnt í
raforkuvinnslu sem raforku-
flutningi. Eru helstu keppinaut-
ar þes vestur-þýska fyrirtækið
Simens, japanska fyrirtækið
Hitachi og bandaríska fyrirtæk-
ið General Electric.
Viðræður um sameiningu fyrir-
tækjanna stóðu aðeins í sex vikur
og þykir það ekki langur tími þeg-
ar um er að ræða jafn viðamikið
og flókið mál. Enn á þó eftir að
ganga frá ýmsum lausum endum
áður en af sameiningunni verður
að fullu en að því er stefnt fyrir
árslok.
Eignaraðild að nýja fyrirtækinu,
Asea-Brown Boveri, skiptist til
helminga milli stofnendanna og
yfirmaður þess og aðalforstjóri
verður Percy Barnevik frá Asea,
sá maður úr sænskri stjómenda-
stétt, sem mestrar virðingar nýtur
um þessar mundir. Talsmenn fyrir-
tækisins verða tveir, hvor úr sinni
áttinni, og höfuðstöðvamar í Sviss,
Hollandi eða Englandi. Umsvifin
munu koma til með að aukast í
öllum löndum Vestur-Evrópu og
Asea-Brown Boveri ætlar að leggja
sérstaka rækt við sín sérevrópsku
einkenni. Fjölþjóðasvipurinn á að
einskorðast við Evrópu sjálfa og
samkeppnin við önnur iðnfyrirtæki
að fara fram á jafnréttisgrundvelli.
Norðurlöndin hafa löngum verið
heimamarkaður Asea og eftir sam-
eininguna styrkti það enn stöðu
sína með því að kaupa upp Elekt-
risk bureau í Noregi, stærsta
fyrirtækið, sem þar var í einka-
Noregur:
Batnandi
afkoma hjá
Statoil
HAGNAÐUR af rekstri STATO-
IL, norska ríkisolíufélagsins,
nam 4,3 miUjörðum n.kr. (nær
25 milljörðum ísl. kr.) á fyrri
helmingi þesssa árs og er það
40% aukning miðað við sama
tímabil í fyrra. Skýrði Willy Ols-
en, talsmaður fyrirtækisins frá
þessu í síðustu viku.
Þessi aukni hagnaður er fyrst
og fremst að þakka hærra olíuverði
og meiri olíuframleiðslu. Jafnframt
jókst enn markaðshlutdeild fyrir-
tækisins í Noregi, Svíþjóð og
Danmörku og er hún nú um 18%.
Statoil rekur um 1.600 bensín-
stöðvar í þessum þremur löndum.
Á síðasta ári jókst markaðshlutdeild
fyrirtækisins verulega í Danmörku,
er það keypti þar 400 bensínstöðvar
og eina olíuhreinsunarstöð af Esso.
Er markaðshlutdeild Statoil nú um
20% þar í landi.
Haft var eftir Willy Olsen, að
gert væri ráð fyrir auknum hagnaði
Statoil í heild fyrir þetta ár, enda
þótt óvissa varðandi olíuverð í
framtíðinni gerði það erfítt um vik
að segja nákvæmlega fyrir um þró-
unina á þessu sviði.
663
Asea/
BB
Svíþjóð,
Sviss
ASEA/BB: SAMEINAST í FYRSTA SÆTI
Tíu stærstu framleiðendur raforkubúnaðar í heimi; Ársvelt-
an 1986 í milljörðum króna
Veltan í sölu raforkubúnaðar
]
449 449 449
Siem- Hitachi General
ens Japan Electric
V- Banda-
Þýska- rikjun-
land um
| Helldarvelta 1
663
1006
1348
1626
363
West-
ing-
house
Banda-
rikjun-
um
492
321 CGE Frakk- landi
278 Mitsu- bishi Japan 150 AEG
235 Toshiba Japan V- Þýska- landi
7
535 j í 578 920 1235)
eigu. Af sameiningunni má skilja,
að eigendur Asea hafí talið norr-
æna markaðinn of lítinn fyrir
framtíðarumsvifín. Staða Brown
Boveri hefur verið sterkust í Mið-
og Suður-Evrópu en auk þess hef-
ur það náð nokkurri fótfestu á
mörkuðum utan Evrópu þar sem
Asea hefur aftur á móti átt erfítt
uppdráttar.
Góður aðgangur að nýjum
mörkuðum er ein af ástæðunum
fyrir sameiningunni en reyndin er
sú, að í flestum löndum eru innlend
raforkufyrirtæki tekin fram yfír
útlend. Samkeppnin milli raforku-
fyrirtækja í iðnríkjunum hefur því
átt sér stað í litlu iðnríkjunum og
í þriðja heiminum.
Önnur ástæða fyrir sameining-
unni er ávinningurinn af aukinni
hagræðingu en bæði fyrirtækin,
sem að henni standa, hafa verið
að framleiða sömu vöruna.
Þriðja ástæðan og kannski sú
veigamesta snýst um rannsóknir
og þróun. í Qárhagsáætlun Asea-
Brown Boveri er gert ráð fyrir sex
milljörðum sænskra króna og á
rannsóknastofum þess vinna sam-
tals 12.000 manns. Ekki mun
heldur af veita því í þessum iðnaði
snýst nú allt um ofúrleiðarana og
í þeim efnum á það ekki við, að
þeir síðustu verði fyrstir.
Viðbrögðin I Svíþjóð
Asea er þriðja stærsta fyrirtæki
í Svíþjóð, aðeins Volvo og Elektroi-
ux eru stærri, og hefur stundum
staðið fremst í ýmissi rannsókna-
starfsemi. Það má því búast við,
að menn bregðist við með ýmsum
hætti þegar það hættir að vera
ilsænskt. Raunar getur ekki af því
arðið nema með samþykki ríkis-
stjórnarinnar, sem í fyrstu var
dálítið á báðum áttum. Vafalaust
mun hún setja sín skilyrði fyrir
sameiningunni en ekki er líklegt,
að hún komi í veg fyrir hana.
Stéttarfélögin, sem við sögu
koma í starfsemi Asea í Svíþjóð,
eru ekki alls kostar ánægð með
þróun mála en ætla þó ekki að
beita sér gegn sameiningunni. í
Svíþjóð fá starfsmennimir fulltrúa
í stjóm fyrirtækjanna en með sam-
einingunni hverfur þessi réttur og
um hann verður ekki samið. íhlut-
unarréttur sænska ríkisins mun
einnig minnka. Þótt Asea verði
áfram með alls kyns starfsemi í
landinu mun yfírstjómin sjálf verða
utan seilingar og getur flutt fram-
leiðsluna úr einu landinu í annað
eftir geðþótta. Það vandamál hefur
komið upp í þessu sambandi, að
Brown Boveri hefur 2.000 starfs-
menn í Suður-Afríku en sam-
kvæmt sænskum lögum er
fyrirtækjum bannað að íjárfesta
þar.
P.O. Edin, áhrifamikill hagfræð-
ingur hjá sænska alþýðusamband-
inu, er einn af þeim, sem eru
andvígir sameiningu fyrirtækj-
anna. Sagt er, að hann hafi viljað,
að Asea keypti Brown Boveri og
það er jafnvel eftir honum haft,
að betra hefði verið, að Brown
Boveri keypti Asea en að fyrirtæk-
in sameinuðust. Segir hann, að
með sameiningunni hverfi fyrir-
tækin út í alþjóðlegt tómarúm án
fastra tengsla við eitt ákveðið land
og verði þróunin þessi með önnur
fyrirtæki endi það með því, að
ríkisstjómir geti ekki haldið fram
sjálfstæðri atvinnustefnu. Asea-
Brown Boveri muni geta stundað
framleiðsluna þar sem það er hag-
kvæmast með tilliti til skatta og
áhrifa verkalýðsfélaganna.
Óttinn við einangrun
Augljóst er, að nokkur togstreita
er á milli ríkisins, sem vill geta
haft áhrif á fyrirtækin, og þeirrar
samkeppnisaðstöðu, sem stórfyrir-
tækjunum er nú búin. Sænsku
stórfyrirtækin óttast að einangrast
þegar Evrópubandalagið verður að
einum inannlandsmarkaði og þau
hafa líka áhyggjur af Bandaríkja-
markaði þar sem vemdarstefnunni
vex stöðugt fiskur um hrygg. Þess
vegna ríður þeim svo á að komast
inn fyrir múrana og þurrka af sér
sveitamannssvipinn. Asea er" að
reyna að aðlagast breyttum að-
stæðum, þannig að á það verði litið
sem innlent fyrirtæki á hveijum
stað.
Svíar gera sér grein fyrir þess-
um vanda og stórfyrirtækin
sænsku, sem hafa raunar verið
nokkuð svo fjölþjóðleg um hríð,
hafa rúma 30 milljarða sænskra
króna handbæra til að kaupa upp
fyrirtæki. Og það hafa þau gert.
Elektrolux er með nokkrum stórum
kaupum' orðið heimsins stærsti
framleiðandi ýmissa heimilistækja
og Volvo hefur keypt vörubílaverk-
smiðju í Bandaríkjunum og er auk
þess stærsti meðeigandi General
Motors í verksmiðju, sem framleið-
ir stóra flutningabíla. Ericsson,
sem er kunnast fyrir símtækja-
framleiðslu, hefur keypt sig inn í
frönsku MATRA-samsteypuna,
sem eins og Ericsson framleiðir
skiptiborð og símstöðvar. Þannig
náði Ericsson fótfestu í Frakklandi
og Evrópubandalaginu. Swedish
Match ... osfrv. Listinn er langur,
mjög langur.
Sænskur stóriðnaður, sem hefur
jafnan verið fljótur að nýta sér
nýjustu tækni, er öflugur á evr-
ópska vísu en frammi fyrir nýjum
efnahagsheildum er Svíþjóð eins
og hvert annað kotbýli. Framtíð
fyrirtækjanna, vöxtur þeirra og
þróun, er undir því komin, að þau
verði æ minna sænsk og meiri
heimgangar í Evrópubandalaginu
og í Bandaríkjunum.
Svíþjóð gengur hugsanlega aldr-
ei í Evrópubandalagið en sænsku
stórfyrirtækin eru hins vegar að
verða sér úti um sína eigin aðild.
Höfundur er fyrrum for-
stöðumaður Sænsku utanríkis-
málastofnunarinnar.
Viðskiptajöfnuður Noregs hag-
stæður vegna hærra olíuverðs
HÆRRA olíuverð og aukin
framleiðsla á olíu og jarðgasi í
Noregi höfðu í för með sér, að
viðskiptajöfnuður landsins varð
hagstæður í júlí, en hann hafði
verið óhagstæður í langan tima.
Jákvæðar hagtölur í manuðin-
um leiddu jafnframt í ljós, hve
háðir Norðmenn eru orðnir olí-
unni. Aukning varð þó einnig í
útflutningi í hefðbundnum at-
innugreinum.
Vöruskiptajöfnuður Noregs
varð hagstæður um 338 millj. n.
kr. (um 1.970 ísl. kr.) í mánuðin-
um, en hann var neikvæður um
2,5 milljarða n. kr. í júlí í fyrra.
I lok júlímánaðar nú var greiðslu-
jöfnuður landsins orðinn óhag-
stæður um 4,5 milljarða n. kr.
fyrir þetta ár en á sama tíma í
fyrra var hann óhagstæður um
6,3 milljarða n. kr.
Jákvæðari þróun nú er að
nokkru rakin til minni eftirspumar
innanlands, sem kemur m. a. fram
í því, að 37% færri nýir bílar höfðu
verið skráðir á þessu ári miðað við
sama tíma í fyrra.
Haft var eftir hagfræðingi
Christianiubankans, eins stærsta
banka Noregs, að þessar tölur
bentu til 4-5% samdráttar í innan-
landsneyzlu í heild. Talið er, að
hærri vextir eigi verulegan þátt í
þessari þróun, þar sem þeir hafi
Lækkandi olíuverð
vegna offramboðs OPEC
OFFRAMLEIÐSLA á olíu í að-
ildarríkjum OPEC hefur vaxið
á ný og verið meiri að undanf-
örnu en allt frá því í fyrrasum-
ar. Talið er, að nú í ágúst hafi
framleiðsia þeirra numið 19,7
millj. tunnum á dag, sem er
meira en 3 millj. meira en opin-
bert framleiðsluhámark þeirra,
en það er nú 16,6 millj. tunnur
á dag.
Þetta hefur haft þau áhrif, að
olíuverð er tekið að lækka á ný
eða allt að því um 2,50 dollara frá
því sem það komst hæst fyrir
skömmu og það þrátt fyrir spennu
þá, sem ríkt hefur á Persaflóa.
Nú er talið mjög ólíklegt, að
OPEC-ríkin eigi eftir að hækka
olíuverðið hjá sér um 2 doliara upp
í 20 dollara á tunnu á fyrirhuguð-
um fundi sínum í desember, eins
og áformað hafði verið.
Lækkun olíuverðs að undanf-
örnu er þegar farin að hafa áhrif
sums staðar. Þannig lækkuðu
hlutbréf í olíufyrirtækjum í síðustu
viku bæði í Kanada og Noregi.
leitt til minni eftirspurnar eftir
lánsfé. Líklegt er þó, að enn muni
langur tími líða, unz varanlegur
hagstæður viðskiptajöfnuður í
Noregi náizt á ný og að viðskipta-
jöfnuðurinn verði enn um sinn
háður sveiflum í olíuverðinu.
Góð afkoma
hjá Tandy
HAGNAÐUR hjá bandaríska
fyrirtækinu Tandy jókst um
23% á fyrstu fimm mánuðum
þessa árs, en þá jókst sala
fyrirtækisins um 14%. Tandy
er eitt stærsta fyrirtæki
Bandaríkjanna í raftækja-
framleiðslu. Eins og er þá á
fyrirtækið gott gengi þó ekki
sízt að þakka framleiðslu á
einkatölvum og hefur nú um
25% af tekjum sínum af sölu
þeirra.
Tandy er stærsti framleiðandi
Bandaríkjanna í svokölluðum IB-
M-samhæfðum tölvum. I síðasta
mánuði hóf fyrirtækið framleiðslu
á ýmsum nýjum tegundum einka-
tölva, þar á meðal á 32 bita
einkatölvu, sem á að vera það
ódýr, að hún geti veitt nýjustu
IBM-tölvunum harða samkeppni.