Morgunblaðið - 04.09.1987, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1987
49
þjálfun fótgönguliða, sem ég þó
hef, þar sem ég á námsárum mínum
fok þátt í mörgum æfmgurn í mis-
munandi landslagi, bæði sumar og
veltur. Ég get hiklaust fullyrt að-
nefndar aðfarir þjálfa ekki nema
fyrirlitningu. í framhaldi af þessu
er ekki úr vegi að spyrja þig um
þekkingu þína sem fótgönguliða á
starfssviði vamarliðsins hvers hlut-
verk er gagnkafbátahemaður (anti
submarine warefare). í ljósi þess
að þér er falið að fylgjast með æf-
ingum og búnaði vamarliðsins.
Ég viðurkenni fúslega vanþekk-
ingu mína á því hvemig maður
kemur sér áfram í íslenska embætt-
ismannakerfinu eða öllu heldur
þann viðbjóð sem ég hef á því að
notfæra mér pólitísk ættartengsl
mér til framdráttar. Báðar þessar
leiðir lágu mér þó opnar og fékk
ég á sinum tíma tilboð frá sitjandi
ráðherra sem ég lét ónotað í þessu
sambandi. í hemum var það
frammistaða manns sjálfs og ekk-
ert annað sem réði því hve langt
maður komst. Nærtækt dæmi um
pólitíska spillingu í mannaráðning-
um var það þegar fyrrverandi
landbúnaðarráðherra Noregs kom
syni sínum framhjá diplómataskóla
í utanrríkisráðuneytið. Mæltist
þetta illa fyrir af samstarfsmönnum
sem orðið höfðu að fara í gegnum
nálaraugað en gleymdist þar til
herra Treholt varð uppvís að njósn-
um. Pólitísk spilling er alls staðar
til en hvergi er hún eins almenn
og gegnsæ og á íslandi. Þetta full-
yrði ég án öfundar, og er í raun
fáránlegt að saka mig um hana,
en það hafa aðrir gert. Því að slíkar
lágkúrulegar tilfinningar hefur ekki
maður, sem án nokkurra fyrirheita
að heiman gefur átta ár úr lífí sínu
í menntun og þjálfun í þágu ætt-
landsins og það án þess að kaupa
sig úr hemum. Hvemig færi fyrir
NATO ef menn tækju upp á því í
stómm stfl.
Um „ósannindamann"
Það má skilja á málflutningi
þínum að þú hafir getað afsannað
það sem ég held fram í máli land-
helgisgæslunnar. Ég krefst þess að
þú gerir það opinberlega. Lítils
frumleika gætir, ef þú þarft að
endurtaka upphrópamir Helga
Hallvarðssonar. Honum var boðið
að gera grein fyrir sínu máli í Kast-
Ijósþætti með mér, en þáði ekki.
Hvað varðar máleftialega umræðu
um vamar- og öryggismál verður
fyrst að skilgreina þessi hugtök
hvort fyrir sig og hætta að kalla
allt það sem ekki fellur að geðþótta
og tilfinningum ómálefnalegt.
Um metnað og virðingn
Metnaður minn hefur aldrei
gengið út á það að trana mér fram
fyrir mér menntaðri og hæfari
menn og skil ég vel að þetta standi
nokkuð f þér. Svo vikið sé að lítils-
virðingu, þá vil ég sem maður sem
náð hefiir „kapteinlöytenant"-
gráðu í konunglega norska sjóhem-
um, ráðleggja þér, fyrrverandi
„löytenant" Amór Sigurjónsson, að
hætta að láta birta myndir af þér
í viðhafnarbúningi norska land-
hersins og sýna þar með lítilsvirð-
ingu í ljósi þess hvemig viðskiptum
þínum við hann lauk.
XXX
Athugasemd vegna eftirmála
ritstjóra Morgunblaðsins við
grein frú Sigurlaugar Bjarna-
dóttur í blaðinu 25. ágúst síðast-
liðinn.
Það ber að harma að ritstjórinn
skuli hafa orðið fyrir ámæli fyrir
að leyfa birtingu greinar undirritaðs
um Landhelgisgæsluna. Þar sem
ég ætíð skrifa undir nafni ber ég
einn ábyrgð á því sem birtist eftir
mig og vil ég biðja þá sem gagn-
rýnt hafa birtingu greinarinnar að
snúa sér til mín í stað þess að reyna
að ritskoða Morgunblaðið og ráðast
að ritstjóra þess að ósekju. Honum
er ekki ætlandi að kunna skil á öll-
um þeim málefnum sem tekin eru
fyrir af hinum ýmsu aðilum í blað-
inu. Nú er ekki hægt að skilja
eftirmála ritstjóra öðmvísi en að
hann geti hrakið efnisatriði greinar
minnar, sýnt fram á að hún eigi
ekki við rök að styðjast. Bið ég
hann hér með að gera það allra
málsaðila vegna, því að almenning-
ur hefur ekki enn séð óyggjandi
niðurstöðu.
Til enn frekari glöggvunar fyrir
lesendun
— Væri framburður minn lygi þá
væri hann meiðyrði;
— skýrsla var tekin af mér á ná-
kvæman og samviskusamlegan hátt
af starfsmanni RLR á einum degi
varðandi 8 atriði í greininni, ekki
annað sem ég hafði bent saksókn-
ara á og vildi ræða;
— deildarstjóri RLR sagði í DV að
„auðvitað" hefðu þeir bara yfir-
heyrt menn úr áhöfninni. Hvað sem
sjálfsagt kann að vera við það, skil
ég ekki, þar sem ég hafði bent á
utanaðkomandi aðila sem styrkt
gætu framburð minn;
— deildarstjóri RLR sagði við sama-
tækifæri að hann vildi ekki svara
hvort nokkuð í framburði þeirra
yfirheyrðu hefði stutt málflutning
minn. Aðstandandi eins af þeim sem
yfirheyrðir voru gaf sig á tal við
mig fyrir nokkru og sagði viðkom-
andi hafa stutt framburð minn en
síðar fengið bágt fyrir og orðið að
hætta hjá Landhelgisgæslunni;
— eðlilegt framhald af „niðurstöðu"
ríkissaksóknara í málinu hefði verið
málshöfðun á hendur mér fyrir
meiðyrði, þar sem mér þá gæfist
tækifæri á að standa fyrir máli
mínu, samanber 73. grein stjómar-
skrárinnar;
— nokkrir aðilar hafa haft samband
við mig gagngert til að skýra frá
eigin reynslu og boðist til að endur-
taka mér til stuðnings það sem
þeir fóru með fyrir rétti, yrði höfð-
að meiðyrðamál á hendur mér;
— ég yfírgaf Landhelgisgæsluna
án þess að standa út mánaðar upp-
sagnarfrest en skýrði 1. stýrimanni,
forstóra og starfsmannastjóra frá
ætlun minni fyrst. Enginn hreyfði
mótmælum og fékk ég fullt uppgjör
án þess að fara fram á það. Éngin
lög kveða á um einhveija skyldu
til að standa undir stjóm dmkkinna
yfirmanna;
— ríkissaksóknari vildi ekki leyfa
mér að lesa málsskjöl, gat ekki af-
sannað nokkuð af því sem ég hélt
fram en áleit ekki að um yfir-
hylmingu væri að ræða eins og ég
tel vera;
— skrif mín hafa verið túlkuð sem
alhæfingar sem er rangt þar sem
ég kynntist einnig hæfum og sam-
viskusömum starfskröftum hjá
Landhelgisgæslunni sem kenndu
mér margt sem ég var ófróður um
en hinir vom fleiri sem rýrðu heild-
armyndina. Ætla ég þeim sem ekki
stóðu sig sem skyldi að mínu mati
vart að vera dæmigerða fyrir
íslenska sjómannastétt. Ég hef ekki
ástæðu til annars en að dá hana
og virða;
— þeir sem starfa í íslenska réttar-
kerfinu em mannlegir eins og aðrir
og því ekki hafnir yfir mistök, en
reynsla mín og sú meðferð er kvört-
un mín fékk segir mér að saman-
teknum ráðum hefur verið beitt til
þess að málið færi ekki lengra en
raun bar vitni, hveijar svo sem
ástæður fyrir því hafa verið.
Verð frá kr. 89.200,- á mann
dTKMim
Ferðaskrifstofa, Hallveigarstíg 1. Símar 28388-28580.
Höfundur er sjóliðsforingi að
mennt og sérfræðingur í tundur-
duflahernaði. Hann stundarnú -
háskólanám í Bandaríkjunum.
16 DAGA ÆVINTÝRAFERÐ FRÁ 7. ■ 22. NÓVEMBER
FERÐATILHÖGUN:
Þann 7. nóvember er flogið með þotu Flugleiða sem leið liggur frá Keflavík til Orlando. í Orlando er dvalið á góðu hóteli.
borgin kónnuð og skemmtanalífið skoðað til 11. nóvember er sigling hefst. Þá er haldið til Miami á Flórída þaðan sem siglt er
af stað með hinu 23.000 tonna glæsiskemmtiferðaskipi NORDIC PRINCE sem e/ sannkallað fljótandi ævintýraland,
með næturklúbbum, spilasölum. verslunum. snyrtistofum. sundlaug. íþróttasal og mörgu fleiru. Siglt er á vit ævintýranna og næstu
10 daga er mannlífið og landslagið kannað á hinum rómantísku karabísku eyjum: Stlhomas. Antigua, Barbados, Martinique og
St. Maarten. Að lokinni ógleymanlegri siglingu er komið í höfn á Miami á Flórida laugardaginn 21. nóvember og flogið heim
til Islands sunnudaginn 22. nóvember.
íslensk fararstjórn og hægt er að framlengja ferðina að lokinni siglingu ef óskað er.