Morgunblaðið - 04.09.1987, Blaðsíða 1
80 SIÐUR B
198. tbl. 75. árg.
FOSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1987
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Persaflói:
Iranarráðast
á ítalskt og
japanskt skip
Manama, Bahrain, AP, Reuter.
LEST skipa frá Kuwait hóf sigl-
ingu suður eftir Persaflóa undir
vernd bandarískra herskipa í
gær. Spenna jókst enn á flóanum
eftir að íranar gerðu árásir á
skip frá Ítalíu og Japan.
Iranar gerðu árásir á japanska
olíuflutningaskipið Nisshin Maru og
ítalska gámaskipið Jolly Rubino
með hríðskotabyssum og flugskeyt-
um. Japanar lýstu yfír því að þeir
ætluðu ekki að senda skip inn á
flóann næstu daga vegna árásar-
innar.
ítalska stjómin kemur saman í
dag til þess að ræða ástandið á
Persaflóa og í gær mótmælti hún
árásinni á Jolly Rubino harðlega
við stjómvöld í Teheran. Eftir þessa
árás hefur þrýstingur á stjóm Gio-
vanni Goria um að ganga í lið með
Bretum og Frökkum og senda tund-
urduflaslæðara á Persaflóa aukist.
Afríkuríkið Burundi:
Valdarání
fjarveru
forsetans
Kigali, Reuter.
FORSETA Afríkuríkisins Bur-
undi, Jean-Baptiste Bagaza
ofursta, var steypt af stóli í gær.
Forsetinn var á ráðstefnu
frönskumælandi ríkja í Quebec i
Kanada, en hann hraðaði sér
heimleiðis þegar fréttist af valda-
ráninu.
í útsendingu ríkisútvarpsins í
Bujumbura, höfuðborg Burundi,
sagði að nýr leiðtogi væri tekinn
við, Pierre Buyoya majór. Ekki var
hægt að ná fjarskiptasambandi við
Bumndi í gær og bárust engar
fregnir af mannfalli.
I útvarpinu var tilkynnt að
Bagaza, sem komst til valda eftir
að hafa steypt stjóm landsins af
stóli með fulltingi hersins árið 1972,
hefði verið leystur frá öllum skyldu-
störfum sínum. Auk þess að vera
forseti var hann yfírmaður hersins
og leiðtogi stjómarflokksins. Öllum
ráðherrum Bagaza var einnig steypt.
Símamynd/Ragnar Axelsson
VIGDÍSI Finnbogadóttur forseta íslands var vel fagnað er hún kom
í opinbera heimsókn til Færeyja i gær. Á myndinni sjást Atli P.
Forseti Islands í Færeyjum
Dam lögmaður, Vigdis Finnbogadóttir forseti og Sólva Dam ganga
frá Tinganesi tÚ þinghússins. Frásögn af heimsókninni er á bls. 28.
Kohi um Pershing lA-flaugar Vestur-Þjóðverja:
Hefðu tafið afvopnunar-
samkomulag um þrjú ár
Bonn, Moskvu, Reuter, AP.
Helmut Kohl, kanslari Vestur-
Þýskalands og leiðtogi kristi-
legra demókrata (CDU), sagði í
gær að ákvörðun sin um að eyði-
leggja Pershing lA-flaugar
vestur-þýska flughersins, hefði
komið í veg fyrir að samkomulag
risaveldanna um meðaldrægar
og skammdrægar kjarnorku-
flaugar drægist um þijú ár.
Franz Josef Strauss, leiðtogi
bróðurflokks kristilegra demókrata,
er enn æfur af bræði vegna þess
að Kohl tilkynnti að sér fomspurð-
um að flaugamar yrðu eyðilagðar
ef risaveldin næðu samkomulagi.
Mathias Rust afpláni
átta ár í vinnubúðum
Moskvu, Bonn, Reuter.
SÆKJANDI i málinu á hendur
Vestur-Þjóðveijanum Mathias
Rust, sem lenti á Rauða torginu
í Moskvu 28. mai, fór fram á það
í gær að hann yrði dæmdur til
átta ára nauðungarvinnu fyrir
að bijóta alþjóðlegar reglur um
flugumferð, „meinfýsinn rudda-
skap“ og að fljúga yfir sovésku
landamærin i leyfisleysi.
„Hann er ruddamenni," sagði
Vladimir Andreyev. Rust viður-
kenndi að hann væri sekur er
réttarhöldin yfir honum hófust á
miðvikudag, en dró hluta af yfírlýs-
ingu sinni til baka: „Þetta var ekki
ruddaskapur."
Áður en saksóknarinn lauk máli
sínu andmælti Rust vitnisburði, þar
sem fram kom að hann hefði sagt
við viðstadda á Rauða torginu að
hann hefði lent þar til gamans.
Kristilegu flokkamir í Vestur-
Þýskalandi sögðu að refsingin, sem
saksóknarínn krefðist, væri allt of
þung fyrir „heimskulegt strákapar".
I yfírlýsingu flokka Franz Josef
Strauss og Helmuts Kohl sagði að
Þjóðveijar væru slegnir óhug og var
skorað á sovéska dómstóla að refsa
Rust í samræmi við brot hans.
í leiðara dagblaðsins Die Welt
sagði að átta ára nauðungarvinna
fyrir hrekk væri utan marka þess,
sem hægt væri að sætta sig við,
jafnvel í kommúnistaríki.
Strauss sagði í viðtali við þýska
sjónvarpið að hann hefði komist að
því að Kohl hefði ekki tekið ákvörð-
unina um Pershing 1A flaugamar
af eigin rammleik, heldur eftir að
hafa ráðfært sig við Hans-Dietrich
Genscher utanríkisráðherra, sem
hefur ásamt flokksbræðrum sínum
úr röðum frjálsra demókrata (FDP)
margítrekað að flaugamar eigi ekki
að standa í vegi fyrir samkomulagi.
Sagði Strauss að greinilegt væri
að stjómin í Bonn væri að brotna
undan þrýstingi frá Moskvu: „Kohl
ætti að ráðfæra sig við þá, sem em
vinir hans í raun, en ekki aðeins
herra Genscher."
Gennady Gerasimov, talsmaður
sovéska utanríkisráðuneytisins,
sagði í gær að yfírlýsing Banda-
ríkjamanna um að þeir ætli að
fjarlægja kjamaodda þá, sem hægt
er að búa Pershing lA-flaugamar
með, þegar stjómvöld í Bonn hafí
eyðilagt þær, væri óljós og loðin.
Sagði Gerasimov að orðalagið
„§arlægja“, sem Phyllis Oakley,
talsmaður bandaríska utanríkis-
ráðuneytsins, notaði í yfírlýsingu á
miðvikudag, þyrfti skýringa við:
„Phyllis Oakley sagði eitthvað um
að íjarlægja. Okkur er ekki ljóst
hvort hún á einnig við að þessir
kjamaoddar verði upprættir. Ef
þeir verða fjarlægðir frá Vestur-
Þýskalandi falla þeir undir vopna-
kerfi Bandaríkjamanna," sagði
Gerasimov og virtist þar eiga við
að samkomulag um upprætingu
meðaldrægra og skammdrægra
flauga hlyti þá einnig að ná til
þeirra.
Voru Hess boð-
in völd í A-
Þýskalandi?
París, Reuter.
ÞÝSKUR sagnfræðingur, Werner
Maser, segir frá því í viðtali við
Le Figaro í morgun að Sovétmenn
hafi látið Rudolf Hess lausan úr
Spandau-fangelsinu í Berlín nótt
eina árið 1952 og boðið honum
valdastöðu i Austur-Þýskalandi.
Maser segir að Otto Grotewohl,
þáverandi forsætisráðherra A-
Þýskalands, hafi sagt sér að Hess
hefði verið sleppt að undirlagi Jósefs
Stalín. Hess stóðst freistinguna og
var þá fluttur aftur í fangelsið.