Morgunblaðið - 10.09.1987, Page 16
16 B
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1987
HVAÐ
ERAÐ
GERAST?
Þeim sem áhuga hafa á að koma á framfæri efni í þátt-
inn Hvað er að gerast? er bent á að það þarf að berast
í síðasta lagi á hádegi á þriðjudögnm fyrir fimmtudaginn
þar á eftir.
Þessi fallegi Labrador myndi sóma sér vel á hundasýningunni sem
verður í Reiðhöllinni í Víðidal á sunnudaginn. Það er Hundaræktarfé-
lag Reykjavíkur sem stendur fyrir sýningunni.
Myndlist
Gallerí Borg
I Gallerí Borg við Austurvöll stenduryfir
sýning á verkum eftir Gest og Rúnu.
(Gest Þorgrímsson og Sigrúnu Guöjóns-
dóttur.). Gestur sýnir höggmyndir en
Sigrún veggmyndir unnar á glerflísar og
teikningar á japönskum pappír. Verkin
eru öll nýleg. Sýningin er opin virka daga
frákl. 10— 18ogfrákl. 14—18umhelg-
ar. Henni lýkur þriöjudaginn 15. septem-
ber.
Listasafn Háskóla
íslands
Sýning á verkum í eigu Listasafns Há-
skóla íslands hefur veriö sett upp í Odda,
nýja hugvísindahúsinu. Um er að rseöa
grafík, teikningar og málverk. Sum þess-
ara verka hafa verið keypt undanfarna
mánuði en önnureru úrfrumgjöfinni.
Aögangurerókeypis aö sýningunni en
hún er opin daglega frá 13.30— 17.00
Gallerí Grjót
Nú stendur yfir samsýning á verkum allra
meölima Gallerí Gjót. Sýningin er opin
virka dagafrákl. 12 til 18.
GalleríList
Þetta nýja gallerí er í Skipholti 50 C.
Sýnd veröa verk eftir unga og gamla lista-
menn og fjölbreytnin í hávegum höfö.
Langbrók
Textílgalleríiö Langbrók, Bókhlööustíg 2,
sýnirvefnaö, tauþrykk, myndverk, módel-
fatnaö og fleiri listmuni. Opiö er þriðju-
daga til föstudaga kl. 12—18 og
laugardaga kl. 11—14.
Norræna húsið
(andyri Norræna hússins stenduryfir
sýning tveggja Dana. Þaðeru þeir Hen-
rik Blöndal Bengtsson og Ulrik Jungersen
'sem sýna skartgripi úr gulli og silfri. Sýn-
ingunni Iýkur4. október.
Niöri er svo sýning Vilhjálms Bergs-
sonar á oliumálverkum, grafík og teikn-
ingum. Sýning hanseropinfrá 2-10 alla
daga til 20. september.
Mokka—kaffi
Gunnar Kristinsson opnar málverkasýn-
ingu I Mokkakaffi á morgun. Hann sýnir
myndir unnar meö blandaðri tækni. Sýn-
inginstendurtil 8. októberen húner
opin alla daga til klukkan 23.30.
Listmálarafélagið
í Gallerí íslensk List, Vesturgötu 17, er
samsýning Listmálarafélagsins. Þareru
sýnd verk 14 þekktra listamanna. Þetta
er sölusýning meö því fyrirkomulagi aö
kaupendur verka geta tekiö þau strax
meö sér heim og eru þá önnur sett upp
í staðinn. Listamennirnir sem sýna eru:
Karl Kvaran, Pétur Már, Bragi Ásgeirs-
son, Ágúst Petersen, Jóhannes Jóhann-
esson, SigurðurSigurösson, Björn Birnir,
Kristján Davíösson, Guömunda Andrés-
dóttir, Hafsteinn Austmann, Gunnarörn,
Einar Þorláksson, Valtýr Pétursson og
Elías B. Halldórsson. Sýningineropin
mánudaga til föstudaga frá kl. 09.00 til
17.00. Henni lýkur 20. september.
Svart á Hvrtu
Nýlega opnaöi í Gallerí Svart á Hvítu við
Óöinstorg sýningu á grafík- og vatnslita-
myndum Helga Þorgils Friöjónssonar.
Sýningin er opin alla daga nema mánu-
daga frákl. 14—18 og stendurtil 20.
september.
Hafnargallerí
Laugardaginn 12. september opnar i
Hafnargallerí sýning á olíumálverkum
Guðbjargar Hjartardóttur. Aögangur er
ókeypis. Sýningin er opin á venjulegum
verslunartíma. Henni lýkur 17. septem-
ber.
Gullni haninn
Á veitingahúsinu Gullna hananum eru
Þingvallamyndir Sólveigar Eggerz til sýn-
is. Myndirnar eru landslag og fantasíur
frá Þingvöllum, unnar meö vatnslitum og
olíukrít. Þær eru allar tll sölu.
Gallerí Hallgerður
Kristján Kristjánsson sýnir í Gallerí Hall-
geröi, Bókhlöðustíg 2,20 Collages
(klippi)-myndir og ber sýningin yfirskriftina
„DreamsThat Money Can Buy". Efni
myndanna er sótt i heim drauma og
veruleika. Sýningin, sem er sölusýning,
er opin frá 2—6, og henni lýkur 13. sept-
ember.
Eden
Gunnar Þorleifsson opnaöi nýlega mál-
verkasýningu í Listamannaskálanum í
Eden. Sýningin er opin alla daga frá kl.
9.00 - 23.00. Henni lýkur 21. september.
Þrastarlundur
í Þrastarlundi sýnir Unnur Svavarsdóttir
yfir 20 myndir, Ákrýl og Pastel. „Af fing-
rum fram" er nafn sýningarinnar og er
tilkomiö vegna þess aö myndirnar koma
af sjálfu sér eöa ósjálfrátt. Þetta er 14.
einkasýning Unnar. Sýningin stendurtil
20. september.
ísafjörður
Laugardaginn 12. september klukkan 16
opnar Margrét Árnadóttir Auðuns sýn-
ingu á verkum sínum í Slunkaríki á
ísafiröi. Margrét er menntuö i Toulouse
og París. Þetta er fyrsta einkasýning
hennar en hún hefur áöur tekið þátt í
samsýningum hér og í Frakklandi. Sýn-
ingin stendur til mánaöamóta.
Barnagaman
Tívolí í Hveragerði
í Tívoli er alltaf eitthvaö nýtt aö gerast.
Nýlega opnaði þar kaffiteria en þaöan
geta gestir virt svæðiö fyrir sér. Tívolí er
opiö virka daga frá 13—22 og um helgar
frá 10-22.
Tónlist
Duus—hús
Djassunnendur eiga á visan aö róa þar
sem Heiti potturinn í Duus er. Þar er
leikinn lifandi djass á h'-erju sunnudags-
kvöldi kl. 9.30.
Félagslíf
Hundasýning
Hundasýning Hundaræktarfélags
Reykjavíkur veröur í Reiöhöllinni í Víöidal
á sunnudaginn. öivind Asp veröur dóm-
ari en hann hefur réttindi til aö dæma
öll hundakyn. Sýningin hefst klukkan
9.00 meö dómum á íslenska fjárhundin-
um. Aörar tegundir fylgja svo á eftir.
Fyrirtæki veröa með kynningar á hunda-
vörum og Hundaræktarfélagiö og
sérdeildir þess kynna starfsemi sína.
Félagsmenn sjá um veitingasölu. Dag-
skránni lýkur meö því að úrslit veröa
tilkynnt klukkan 17.30 og mun Davíö
Oddson, borgarstjóri afhenda verölaun í
úrslitakeppni um besta hund sýningar-
innar. Sýnendureru beðnirað mæta
klukkustund fyrir dóm og verða sýningar-
númer og -skrár afhentar í andyrinu.
Ferðalög
Upplýsingamiðstöðin
Upplýsingamiöstöð feröamála er meö
aösetur sitt aö Ingólfsstræti 5. Þar eru
veitta allar almennar upplýsingar um
feröaþjónustu á (slandi. Opiö er daglega
frá klukkan 8.00-20.00 og síminn er
623045.
Útivist
Um þessa helgi eru tvær helgarferöir á
vegum Útivistar. Haustlitaferö í Þórsmörk
veröur farin á föstudagskvöldiö klukkan
20.00. Aö venju ergist í Útivistarskálan-
um í Básum. Gönguferöir veröa viö allra
hæfi.
Fariö er til Vestmannaeyja á föstudags-
kvöldiö klukkan 19.30. Hægt eraövelja
um flugferö eöa skipsferð. Svefnpoka-
gisting. Gönguferöirveröa um Heimaey
meö kunnugum fararstjóra og fariö verö-
ur í Bátssiglingu í kring um eyjuna.
Fritt er fyrir börn yngri en 7 ára en fyrir
7-15 ára greiðist hálft gjald.
Þrjár dagsferöir veröa farnar sunnudag-
inn 13. september. Klukkan 8.00 er
haustlitaferö í Þórsmörk. Fariö veröurl
Bása og dvaliö þar í 3-4 klukkustundir.
Verð er 1000 krónur. Klukkan 9.00 er
Línuvegurinn - Öræfin heilla. Ekinn verö-
ur Línuvegurinn af Kaldadalsvegi noröan
Skjaldbreiöar um Hlööuvelli aö Gullfossi.
Verö er 1000 krónur. Klukkan 13.00 er
Maríuhöfn - Búöarsandur. Minjar um
forna kauphöfn skoöaöar. Kræklinga-
tínsla og létt ganga viö Laxárvog. Fritt
erfyrir börn í fylgd með fullorönum. Ath.
Þaö þarf ekki aö panta í dagsferöir. Nán-
ari upplýsingar fást á skrifstofunni Gróf-
inni 1, síminn er 14606 og 23732.
Ferðafélagið
Föstudaginn 11. september eru tvær
helgarferöir á vegum Feröafélagsins og
er brottför í báðar kl. 20.00. Farið veröur
til Landmannalauga, þar sem gist er í
upphituöu sæluhúsi Feröafélagsins. Á
laugardaginn veröur ekiö inn Jökulgiliö
og gengiö til baka inn í Laugar. Jökulgi-
liö er litfagurt gil og eru fjöllin sem aö
því liggja úr líparíti og soöin sundur af
brennisteinsgufum. Jökulgiliö er einungis
fært bílum á haustin þegar vatn hefur
minnkaö í Jökulgilskvíslinni, en hún á
upptöksíníTorfajökli. Þá eraövenju
ferö til Þórsmerkur, en þar er aö finna
sérstaka haustfegurö. Gist er í Skag-
fjörðsskála - Langadal, en í honum er
góð miöstöðvarhituo og öll þægindi.
Sunnudaginn 13. septembererdagsferö
til Þórsmerkur. Þarerdvaliö í um 4
klukkustundir og fariö í gönguferöir.
Brottför er klukkan 8.00. Gönguferð á
Hlööufell veröur klukkan 9.00 á sunnu-
daginn og verður ekiö um línuveginn frá
Brunnum á Kaldadalsvegi. Klukkan 13.00
er gengið frá Höskuldarvöllum um Vigdis-
arvelli í Reykjanesfólkvangi.
Hvassahraun
Á laugardaginn klukkan 13.30 veröur
farin vettvangsferð í fjöru viö Hvassa-
hraun i Vatnsleysustrandarhreppi. Farið
verður frá gamla bílveginum skammt
sunnan Hvassahraunsbæjarins. Erlingur
Hauksson og fleiri munu kenna okkur
aö þekkja nokkrartegundirfjörudýra og
fjöruplanta og fræða okkur um þær. Erl-
ingur mun svo svara spurningum og
kynna hvar f róðleik er aö finna um lifríki
fjörunnar. Allir eru velkomnir. Þátttöku-
gjald erekkert. íbúar höfuöborgarsvæö-
isins geta nýtt sér feröir Sérleyfisbifreiða
Keflavíkurtil að komast í vettvangsferöina
og úr. Upplýsingarfástá Umferöarmið-
stööinni í síma 22300.
Hreyfing
Hestaleigur
AÖ Laxnesi i Mosfellssveit eru skipulagð-
irtveggja tima útreiöartúrar. Leiösögu-
maöur fylgir hópnum sem getur verið
allt aö 30 manna. Leigan fyrir hvern hest
er 800 krónur.
Fimm kilómetrum fyrir innan Laugarvatn
er Miðdalur Þarer hestaleigan íshest-
ar. Leigan fyrir hest í eina klukkustund
er 600 krónur en eitt þúsund fyrir tvær
klukkustundir. Leiösögumaöurermeö í
förinni.
Hestaleigan Bassi er aö Mýrarkoti á
Álftanesi Leigan er400 krónurfyrir
klukkutímann. Panta þarf sérstaklega ef
þörf er a leiðsögn um svæðiö en ekkert
aukagjald er tekiö fyrir þá þjónustu.
Keila
í Keilusalnum í Öskjuhlíö eru 18 brautir
undir keilu. Á sama staö er hægt aö
spila billjarð og pínu—golf. Einnig er
hægt aö spila golf í svokölluöum golf-
hermi.
i GoH
Á Grafarholtsvelli er Golfklúbbur
' Reykjavíkur með aðstööu. Kennari er á
staðnum og æfingasvæöi fyrir byrjendur.
í Hafnarfiröi er Hvaleyrarvöllur og Nes-
klúbburinn er meö völl á Seltjarnarnesinu.
Hlíðarvöllur er svo í Mosfellsveit. Auk
þess eru fallegir vellir í Grindavík og i
Grímsnesinu.
Sund
í Reykjavík eru útisundlaugar í Laugar-
dal, viö Hofsvallagötu og viö Fjölbrauta-
skólann i Breiöholti. Einnig eru útisund-
laugar á Seltjarnarnesi, á Varmá og viö
Borgarholtsbraut í Kópavogi. Innisund-
laugar á höfuðborgarsvæðinu eru viö
Barónsstíg og viö Herjólfsgötu i Hafnar-
firöi. Opnunartíma þeirra má sjá í
dagbókinni.
Margrét Árnadóttir Auðuns opnar á laugardaginn sýningu á verkum
sínum í Slunkaríki á (safirði. Þetta er fyrsta einkasýning Margrétar.
R O Y A L
SKYNDIBÚÐINGARNIR VV
ÁVALLT FREMSTIR
ENGIN SUÐA
Tilbúinn eftir
fimm mínútur
5 bragötegundir
Helgi Þorgils Friðjónsson sýnir nú samtímis á tveimur stöðum í
borginni, í Gallerí Svart á hvítu og á Kjarvalsstöðum. Sýningunum
lýkur báðum 21. september. Myndin er af einu verka hans.