Morgunblaðið - 13.09.1987, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 13.09.1987, Blaðsíða 6
6 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. SEPTEMBER 1987 Nýtt úr heimi efnafræðinnar Friedrich Augnst Kekulé fékk hugmyndina um lögun bensen- mólekúlsins þegar hann dreymdi sex apa sem dönsuðu i hring og héldu í fæturna á hver á öðrum. (1) sýnir eina kúlulagaða s-rafeindadreifingu og þrjár ilangar p-rafeindadreifingar (als sexangar). (2) sýnir flata, þríhyming- slagaða sp(2)-rafeindadreifingu, sem myndast þegar s-rafeinda- dreifing tengist tveimur p-rafeindadreifingum. Eftir stendur ein p-raf eindadreif ing. Nýjustu rannsóknir vísindamanna i Bandaríkjunum benda til þess að bensenhringnum verði best lýst með því að gera ráð fyrir þvi að tengslin á milli kolefnisatómanna séu tU skiptis einföld og tvöföld, þar sem tvöföldu tengslin eru í laginu eins og bananar. Vlsindi______________ Sverrir Ólafsson Það er ekki á hveijum degi að vísindamenn grípa til gamalla og að því er virðist úreltra hugmynda til að skýra niðurstöður athug- anna sinna. Slíkt gerðist þó nýlega á sviði þeirrar greinar efnafræð- innar sem fæst við rannsóknir á efnatengslum atóma. I tveimur greinum, sem birtar voru í virtum vísindatímaritum í október síðast- liðnum og í júlí nú í ár, eru leidd að því rök að vísindamenn þurfi að endurskoða hugmyndir sínar um eðli kolefnistengsla. Bensenmólekúlið, CeHö sem samanstendur af sex kolefnisa- tómum (C) og sex vetnisatómum (H), hefur lengi verið fræðilega þenkjandi efnafræðingum nokkur ráðgáta. Það var Friedrich Aug- ust Kekulé (1829—1896), prófess- or í efnafræði við Háskólann í Berlín, sem fyrstur setti fram hugmyndina um það að kolefnis- atóm bensenmólekúlsins væru bundin saman í sexhymta, lokaða keðju. Sagt er að þessi hugmynd hafi fyrst kviknað hjá honum eft- ir tvo drauma sem hann dreymdi. í þeim fyrri sá hann snák sem beit í endann á sjálfum sér og snerist í hringi, en í þeim síðari birtust honum sex apar sem döns- uðu í hring og héldu í fætuma á hver öðmm. Kekulé hugsaði sér að tengslin á milli kolefnisatómanna í keðj- unni væm til skiptis einföld og tvöföld, þijú einföld og þijú tvö- föld. Síðar fundu efnafræðingar út að allar hliðar bensenmólekúls- ins vom jafn langar þ.e. það virtist fullkomlega jafnhliða sexhyming- ur. Erfiðlega gekk að samræma þessa staðreynd tilgátu Kekulé, því hún gerði ráð fyrir því að tvíbundnu hliðarnar væm styttri en þær einbundnu. Einnig reynd- ist erfítt að samræma hugmynd- ina um tvöföld efnatengsl þekktum staðreyndum um hvarf- gimi bensenmólekúlsins. Upp úr þessu fóm efnafræðing- ar að hugsa sér efnatengsl bensenmólekúlsins sem sambland einfaldra og tvöfaldra efna- tengsla. Uppistaða einfaldra efnatengsla em tvær rafeindir, sem bundin atóm skipta á milli sín, en þegar um tvöföld efna- tengsl er að ræða em rafeindirnar fjórar. Samblönduð efnatengsl höfðu það í för með sér að ekki var lengur hægt að tileinka ákveðnum efnatengslum tvær eða Qórar rafeindir, heldur dreifðust þær jafnt um allan hringinn. Sagt er að rafeindirnar séu óstað- bundnar. Þessar nýju hugmyndir styrkt- ust í sessi við framkomu skammtakenningarinnar á þriðja áratug þessarar aldar og hafa æ síðan verið ríkjandi á meðal efna- fræðinga, sem hafa beitt þeim með góðum árangri. í október síðastliðnum birtu David Cooper frá Háskólanum í Liverpool, Joseph Gerratt frá Háskólanum í Bristol og Mario Raimondi frá Háskólanum í Mílanó grein þar sem greint er frá niðurstöðum sem talið er að samræmist betur kenningu Kek- ulé en blönduðu kenningunni. Þeir félagar reiknuðu heildar- orku bensenmólekúlsins með því að ganga út frá tveimur mismun- andi forsendum í samræmi við kenningarnar tvær. Niðurstöður reikninga þeirra voru þær að heildarorkan var 197 kílójúl minni á eitt mól bensens ef notast var við líkan Kekulé. Eitt mól er það magn efnisins sem hefur að geyma 6x10 sameindir. Niðurstöður þessar draga sann - arlega taum kenningar Kekulés því innan fræðilegrar efnafræði er það þekkt staðreynd að kenn- ingar sem segja fyrir um lága orku eru líklegri til að vera réttar. Vísindamennimir hafa ekki ein- skorðað reikninga sína við bensen, heldur hafa þeir reiknað út styrk- leika efnatengsla í miklum §ölda hringlagaðra lífrænna mólekúla og niðurstöðumar hafa ævinlega verið þær að kenning Kekulé hef- ur gefíð lægra orkugildi en blandaða kenningin. Reikningar þessir sem eru verulega flóknir eru einungis framkvæmanlegir með aðstoð aflmikilla tölva. Nú fyrir skömmu sögðu tveir bandarískir eðlisfræðingar við Háskólann í Pensilvanía frá niður- stöðum stærðfræðilegra athugana sem þeir gerðu á uppbyggingu bensenmólekúlsins. Niðurstöðurn- ar benda til þess að efnatengslin Linus fauung á milli kolefnisatóma bensen- mólekúlsins séu til skiptis einföld og tvöföld, þar sem tvöföldu tengslin eru í laginu eins og tveir bananar sem liggja hlið við hlið og snúa kryppurnar undan. Hugmyndin um bananalöguð efnatengsl er ekki ný af nálinni, en hún var fyrst sett fram af eðlis- efnafræðingnum fræga Linus Pauling fyrir meira en 50 árum. Hugmyndin hlaut hins vegar ekki almenna viðurkenningu þar sem fræðimenn gátu á auðveldari hátt skýrt þær staðreyndir sem þekkt- ar voru um kolefnistengsl. Linus Pauling hefur á undan- förnum árum getið sér nokkurrar frægðar fyrir mjög umdeildar hugmyndir sínar um að C-vítamín sé ekki einungis gott til vamar gegn kvefi heldur geti það einnig gegnt mjög mikilvægu hlutverki í meðhöndlun krabbameins. Það sem almenningur veit minna um er að framlag hans til skilnings okkar á efnatengslum, og þá sér í lagi þróun svokallaðrar gildis- tengjakenningar og notkunar skammtafræði, er meira en flestra annnarra lifandi vísindamanna. Linus Pauling sem er 85 ára gam- all er einn örfárra vísindamanna sem tvisvar sinnum hafa hlotið Nóbelsverðlaunin, fyrst fyrir upp- götvanir á sviði efnafræðinnar og öðru sinni fyrir störf sín í þágu friðar- og afvopnunarmála. Eitt merkilegasta framlag Pauling til efnatengslakenningar- innar byggist á svonefndri blönd- unarkenningu. Upphaflega var tilgangurinn með henni að út- skýra rúmfræðilega lögun ákveð- inna mólekúla. Rafeindadreifing einstakra kolefnisatóma getur ekki útskýrt lögun mólekúla, sem hafa að geyma kolefni. Til að mynda stefna ijögur tengsl kol- efnis við vetni innan eins metan- mólekúls CH4 út í hom rúms sem líkist einna helst gömlu mjólkur- femunum. Í ethylenmólekúlinu C2H4 hins vegar, mynda efna- tengslin á milli kolefnis og vetnis flatan þríhyrning. Kolefni býr yfir einni kúlulag- aðri rafeindabraut (réttara sagt rafeindadreifíngu) sem einkennd er með bókstafnum s og þremur ílöngum rafeindadreifingum sem einkenndar eru með p og standa homrétt hver á aðra. Samkvæmt blöndunarkenningu Pauling geta rafeindabrautimar lagst saman með mismunandi vægi til að mynda braut þ.e. rafeindadreif- ingu með réttri lögun. Bananakenning Pauling gerir t.a.m. ráð fyrir því að skýra megi efnatengsl ethylenmólekúlsins á eftirfarandi hátt. Kúlulagaða raf- eindadreifíng kolefnisatómsins tengist tveimur ílöngum p-raf- eindadreifingum, en við það verður til flöt, þríhymingslöguð rafeindadreifing, sem einkennd er með tákninu sp(2) ásamt einnig óblandaðri p-rafeindadreifíngu. Sérhvert kolefnisatóm getur nú tengst tveimur vetnisatómum fyr- ir tilstuðlan sp(2) blandaðrar brautar, en sín á milli tengjast kolefnisatómin þannig að þriðja sp(2) brautin blandast þeirri p- braut sem enn er fijáls á sitthvoru kolefnisatóminu. Við þetta verða til tvær jafngildar brautir sem líkjast tveimur banönum eins og áður sagði. Þrátt fyrir það að hugmynd Paulings sé snjöll tókst henni ekki að skýra nokkrar þekktar stað- reyndir úr efnafræði ethylen- mólekúlsins. Þegar ethylen hefur efnahvörf við ákveðin efni virðist hlutverk kolefnistengslanna ekki jafngilt, annað þeirra virðist virk- ara en hitt. Þetta samræmist illa hugmyndum Paulings, að því er virðist. Nokkmm ámm eftir að Pauling setti fram sína kenningu þróaði þýski efnafræðingurinn Erich Hueckel aðrar hugmyndir um eðli kolefnistengslanna. Hueckel gekk einnig út frá gildistengjakenning- unni, en gerði einungis ráð fyrir mismunandi blöndun gilda þ.e. rafeindabrauta. Líkan þetta er einfaldara og því tekst einnig bet- ur að skýra ýmsar þekktar staðreyndir en kenningu Paulings, sem gerði það að verkum að það varð vinsælla á meðal efnafræð- inga. Það er líkan Hueckels sem nú er kennt í flestum framhalds- skólum. Hvað sem þessu líður verður það líkan að teljast harla gott sem kemst næst því að segja fyrir um rétta orku efnatengsla og sem stendur benda reikningar ýmissa starfshópa vísindamanna til þess að samtenging kenningar Kekulé og bananalíkans Paulings nái bestum árangri. Engum dettur í hug að enn sé ljóst orðið hvert sé hið eina og sanna líkan (ef svoleiðis lagað er yfirhöfuð til) og því hafa eðlisefnafræðingar, sem komast vilja til botns í bensen- mólikúlinu, um ýmislegt að hugsa á næstunni. Enn síður dettur mönnum í hug að skammtakenn- ingin og stærðfræðiapparat hennar séu röng, en augljóst er að niðurstöðumar þarfnast skýr- ingar sem í augnablikinu liggja ekki augljóslega fyrir. Hljóðverið Gnýr opnað í Reykjavík FYRIR skömmu var opnað nýtt hljóðver í Reykjavik og ber það nafnið Gnýr. Það er fyrirtækið Hljóðmynd h/f, sem rekur Gný og er hljóðverið til húsa við Holtaveg. Að sögn aðstandenda fyrirtæk- isins er hljóðverið nú búið 8-rása segulbandstæki og 24-rása hljóð- blöndunarborði (mixer). Borðið er af gerðinni Soundtrack og er „midi-tengt“, en þannig má tengja það við hverslags tæki 0g tól önn- ur. Er m.a. fyrirhugað að nýta þennan kost með því að tölvu- tengja hljóðblöndunarborðið, en með því verður öll vinna við það fljótari og markvissari, auk þess sem alls konar nýir möguleikar bjóðast fyrir vikið. Aðstandendur Gnýs sögðust gera ráð fyrir því að hljóðverið. yrði einkum nýtt á tvo vegu; ann- ars vegar til auglýsingagerðar 0g hins vegar bjuggust þeir við að Gnýr yrði vinsæll til prufuupptöku, þar sem hljóðverið væri smærra og um leið ódýrara en mörg önnur. Morgunblaðifl/KGA í Gný er margvíslegur tækja- kostur eins og títt er í hljóðverum. Auk margvíslegra hljóðferlistækja em þar einnig hljóðfæri og má nefna stafrænt píanó frá Roland, Yamaha DX7 hljóðgervil og „sampler" svokallaður, en með honum má taka upp hverskonar hljóð og leika það síðan af hljóm- borði sem hljóðfæri væri. Sigurður Ingi Ásgeirsson, aðal- upptökumaður Gnýs, við hljóð- blöndunarborðið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.