Morgunblaðið - 13.09.1987, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. SEPTEMBER 1987
B 11
Hótel Selfoss:
Byrja með stórkabarett 3. okt.
Samningur staðfestur við nýja aðila
Selfossi.
NÝIR rekstraraðilar Hótels Sel-
foss ætla að breikka markað
hótelsins, ná til fleiri aðila og
þannig að auka framboð á
skemmtunum í hótelinu. Þannig
hyggjast þeir meðal annars ná
meiri veltu og hagstæðum
rekstri. 3. október fer af stað
stórkabarett í hótelinu með
Ladda, Eddu Björgvinsdottur og
Júlíusi Brjánssyni.
Samningur við nýja rekstrarað-
ila, Ara Pál Tómasson og Guðmund
I. Gunnlaugsson, var staðfestur í
bæjarstjóm í gær. Þeir hafa stofnað
hlutafélag, G.O.M.A. hf., um rekst-
urinn. Ari Páll verður hótelstjóri og
annast daglegan rekstur og
skemmtanastjóri verður Ólafur Þór-
arinsson hljómlistarmaður. Hljóm-
sveitin Karma verður aðalhljóm-
sveit hússins. Búið er að ráða allt
fast starfsfólk hótelsins til starfa
frá 1. október.
í starfsemi hótelsins verður að-
aláherslan á vetuma á skemmtanir
og á sumrin á hótelreksturinn. Að
sögn Ara Páls hótelstjóra og Ólafs
Þórarinssonar skemmtanastjóra
hafa þegar borist pantanir fram í
tímann og mikið er um fyrirspumir
frá starfsmannahópum á höfuð-
borgarsvæðinu um skemmtanir og
gistingu. Sig. Jóns.
Bók um líf-
verur og að-
skotaefni
í matvælum
Iðnskólaútgáfan hefur gefið
út bókina Matvæli, fersk eða
feyruð. Þessi bók er þýdd úr
dönsku af Aðalsteini Geirssyni
og Önnu Gísladóttur. Kaflarnir
í bókinni eru fjórtán og er hver
kafli sjálfstæður.
' í frétt frá útgefanda segir m.a.:
„I bókinni er margvíslegur fróðleik-
ur um matarsjúkdóma, greint er frá
þeim umhverfísþáttum sem ráða
starfsemi gerla og annarra örvera
í matvælum, hvemig örverur berast
í matvæli og hvemig unnt er að
draga úr tjóni af völdum þeirra.
Bókin er handa öllum þeim sem
meðhöndla matvæli."
Á frummálinu heitir bókin
„Levnedsmiddelhygiejne" og er eft-
ir Grete Bertelsen, Charlotte Rasch
og Elin Kirkegaard. Hún kom fyrst
út árið 1981 og önnur útgáfa endur-
skoðuð þremur árum síðar. Við
þýðingu bókarinnar var stuðst við
báðar útgáfumar.
Erling Ólafsson dýrafræðingur,
Sigurður Richter dýrafræðingur og
Þorkell Jóhannesson lásu yfír ein-
staka kafla í bókinni.
Heimspeki-
námskeið
fyrir börn
Heimspekiskólinn mun ásamt
Heimspekistofnun Háskóla ís-
lands, bjóða börnum fæddum
1976 og 1977 að sækja heimspek-
inámskeið nú í vetur.
Notað verður námsefni sem
heimspekingurinn Mattew Lipman
hefur samið fyrir þennan aldurshóp,
en í því er lögð áhersla á að efla
rökvísa og gagnrýna hugsun.
Námsefnið er sett fram sem skáld-
saga þar sem segir frá bekkjar-
félögum sem velta eðli hugsunar
fyrir sér. Tekið er á margvíslegum
spumingum sem upp koma og
byggist námskeiðið aðallega á um-
ræðum um þær.
Fyrirhugað er að í hverjum hóp
verði 12-16 nemendur, sem hittast
tvisvar í viku, klukkutíma í senn.
Leiðbeinandi verður dr. Hreinn
Pálsson.
Námskeið verða haldin á tveim
stöðum í vetur, í húsnæði Háskól-
ans og í Menningarmiðstöðinni
Gerðubergi. Kennsla hefst 21. sept-
ember og henni lýkur 11. desember.
Fríkirkjan í
Reykjavík:
Ferming’arstörf
að hefjast
FYRSTI fermingartíminn í
Fríkirkjunni í Reykjavík á þessu
hausti verður laugardaginn 19.
september ki. 14.00.
Böm sem fædd eru árið 1974
byija þá að ganga til prestsins til
þess að fermast á vori komanda.
Væntanleg fermingarböm eru beð-
in að hafa með sér Nýja testamenti,
fermingarkverið „Líf með Jesú“,
stílabók og penna.
315 LÍTRA
545 LÍTRA
1fi5 LÍTRA
stjörnu frystigaeði. Stórt hrað-
jlf. Hitastilling meö orkuspar-
[illingu. Hraðfrystihnappur. Sil
im.MÁL: 60x86,5x64,5
945 LÍTRA
450 LÍTRA
1 geymslukarfa
• 4ra stjömu frystigæði.
Stórt hraðfrystihólf. Hitas
orkusparandi stillingu. H1
Kistansituráhjólum.
MÁL: 81 x 86,5 x 64,5 cm.
330 LÍTRA
Stórt h raöfrystihólf.
• 4ra stjörnu f ry
2 geymslukörfur
stillingu. Hraðfrystihnappur.
MÁL: 134,5 x CC," - aA
ig með orkusparandi
Rennur á hjólum.
88,5 x 64,5 cm.
.ÐERUM.ÐUÐVmSt^W
tiqæði. Ein stór geymsluskuffa.
meðlokiaöframan.Oflug
tillir, affrystingarskuffa, stillan-
60 x 160 x 60 cm.