Morgunblaðið - 13.09.1987, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 13.09.1987, Blaðsíða 22
22 B MÖRGUNBEAÐIU; SUNNUDAGUR 13.' SEPTEMBER 1987 Um næstu helgi, 18. til 20. september, verða kyrrðardagar haldnir austur í Skálholti, við altaris- göngu, bæn og þögn frammi fyrir Guði. Kyrrðardagar í Skál- holti um næstu helgi Fyrir tveimur vikum var ég að skrifa um fólk, sem átti þá djúpu þrá í hjarta sinu að kom- ast ögn afsíðis til að „vinda ofan af sér“, vera í kyrrð með sjálfu sér og kannski öðru fólki til að eyða samansaf naðri streitu og afla sér friðar til nánustu framtiðar. Varla hafði ég skrifað þær línur þegar mér bárust fregnir af sliku tæki- færi, sem boðið er til austur í Skálholti um næstu heigi, 18. til 20. september. Undirbúningsnefnd skipa þeir dr. Hjalti Hugason, séra Sigurður Árni Þórðarson rektor í Skálholti og dr. Sigurbjöm Einarsson bisk- up. Leiðbeinandi daganna verður dr. Sigurbjöm. Dögum verður skipt milli tíðagjörða, bæna- stunda, brotningar brauðsins, hugleiðinga, máltíða og útivem. Boðið er til viðtalstíma fyrir þau, sem þess óska. Ætlast er til að þögn ríki á staðnum utan sam- vemstundanna í kirkjunni, allt frá því eftir kvöldmáltíð á föstudags- kvöld til kvöldverðar á sunnudag, en þá verður þögnin rofin. Máltí- ðir verða líka kyrrðartími og leikin verður hljómlist meðan setið verð- ur að snæðingi. Kyrrðardagar em fyrir öll þau, sem vilja reyna sjálf hvað slíkt samfélag getur gefið. Þeir em ekki tilboð um meðferð eða hjúkr- un og ekki ætlaðir sérsfræðingum í innhverfum iðkunum. Þeir kre§- ast einskis af þeim, sem koma, nema þess að þau finni þrá í hjarta sínu til að njóta þess, sem boðið er til, og vænti þess að finna það í altarisgöngunni, bæninni og þögninni hjá Guði. Dagskrá laugardagsins: Til að gefa gleggri hugmynd um kyrrðardagana birti ég dag- skrá laugardagsins. 8.30 Lesmessa, altarisganga 8.30 Morgunverður 10.00 Hugleiðing. Dr. Sigurbjöm Einarsson 12.00 Hádegisbæn 12.30 Hádegisverður 13.00—15.00 Viðtalstími fyrir þau sem þess óska 15.00 Bænir 15.30 Síðdegiskaffí 16.00 Hugleiðing. Dr. Sigurbjöm Einarsson 16.30 Viðtalstími fyrir þau, sem þess óska 18.00 Síðdegisbænir 19.00 Kvöldverður 21.00 Completorium, náttsöngur Skráning og brottf ör Þeim, sem æskja þátttöku, er velkomið að snúa sér til Lýð- háskólans í Skálholti, þar sem séra Hanna María Pétursdóttir annast mótttöku af hálfu skólans. síminn er 99-6870 eða 99-6871. Fyrirspumum, ef einhveijar eru, má beina til dr. Hjalta Hugasonar í síma 686623 í Reykjavík. Farið verður til kyrrðardag- anna á föstudaginn 18. september kl. 18 frá Umferðarmiðstöðinni, en fólk getur líka komið á eigin vegum. Kyrrðardögum lýkur á sunnudag kl. 18 með kvöldverði og síðan verður haldið heim. Þeim, sem æslqa, gefst þó tækifæri á lengri dvöl í Skálholti. Biblíulestur vikunnar Sunnudagur: Post. 6.30—33 Ein í kyrrð. Mánudagur: Orðskv. 4.23—27 Varðveit hjarta þitt. Þriðjudagur: Opinberunarb. 3.20—22 Máltíð með Jesú. Miðvikudagur: Post. 2.46—47 Samfélag kristínna. Fimmtudagur: Sálm. 63.1—4 Þín leita ég, Guð. Föstudagur: Míka 7.18—20 Syndunum varpað í djúpið. Laugardagur: Jóh. 20.19—21 Friður sé með yður. Gömul og margreynd hefð í kirkjunni Dr. Hjalti Hugason aðstoðar- rektor við Kennaraháskóla íslands er einn þeirra, sem undirbúið hafa kyrrðardagana. Hann sagði að þetta væri í fyrsta skipti,- sem slíkir kyrrðardagar váéru haldnir í Skálholti og raúnar í íslenzku þjóðkirkjunni; Kyrrðardagar voru haldnir að Longumýri fyrir fáein- um" árum • undir leiðsögn Sigur- bjarnar biskups en þeir voru með öðru- sniði.- Dr. Sigurbjörn verður líka leiðbeinandi þessara kyrrðar- daga og það er áhugahópur um starf af þessu tagi, sem annast þá í samvinnu við Lýðháskólann í Skálholti, sagði dr. Hjalti. Eru slíkir kyrrðardagar ekki aldagamalt fyrirbæri í kirkj- unni? Jú, þetta er þrautreynt erlend- is. Svíar og Finnar eru reyndastir í þessu á Norðurlöndum og hafa sótt hugmyndir sínar til anglík- önsku kirkjunnar og hún aftur til kaþólikka. Þetta er þess vegna mjög alkirkjuleg hugmynd en framkvæmd í hverri kirkju fyrir sig. Hver þeirra þróar hana lítið eitt í sína átt. Við vonum að fram- hald verði á þessu starfi eftir þessa kyrrðardaga nú í Skálholti. Vitið þið hverjir sækja helzt slíka samveru, þar sem til henn- ar hefur verið boðið? Dr. Hjalti Hugason aðstoðar- rektor er í hópi áhugamann- anna, sem undirbúa kyrrðar- dagana. Það hefur verið kannað, t.d. í Svíþjóð. Það kom í ljós að það var fyrst og fremst fólk úr heilbrigðis- stéttum og fólk, sem vann að ýmsum félagsmálum. Þetta sam- veruform höfðar til fólks, sem starfar að virkum félagsstörfum og þarfnast hvíldar frá þeim um stund. En við viljum höfða til sem flestra og vonumst eftir þátttöku frá fólki á breiðu sviði. Ut úr brimsogi í morgunmund fyrr í vikunni heimsótti ég dr. Sigurbjörn Einarsson biskup til að spyija hann um kyrrðardagana, sem eru í vændum. Og sá dagur allur varð mér sjálfri kyrrðar- dagur í öllu annríki sínu. Dr. Sigurbjörn sagði: Boðið er upp á tækifæri handa þeim, sem vilja draga sig í hlé eða fara í hvarf í bili. SkálhoÍtsstáður er kjörinn til þess að vekja til hljóðlátrar íhugunar. Þar líður þeim vel, sem vilja vera einir með sjáifum sér. Menn þúrfa að vera einir með sjálfum sér einhveijar stundir og daga. Það er mikið um ærustu í nútímanum og meira en nóg af hávaða, mikið framboð af afþreyingarefni, sem oftast skilur lítið eða ekkert eftir, ekki einu sinni hvíld eða slökun. Og vinnuá- lag er mikið hjá mörgum, kapp- hlaup við klukkuna. Menn gefa sér ekki tóm til að staldra við, siaka á spennunni og hugsa. Þetta leiðir til streitu eins og alkunnugt er. Það er vaxandi skilningur á því að menn komi sér út úr straumi eða brimsogi hins daglega lífs. Og þetta er í boði þessa daga í Skálholti. Það er ekki bara ein- vera og þögn, sem boðið er uppá. Dagskráin er borin upp af sameig- inlegri trúariðkun. Einvera og þögn eru ekki takmark í sjálfu sér heldur leið að marki eða for- senda. Mörgum virðist það óþægilegt að vera ein með sjálfum sér. Einsemd og einvera getur auðvitað verið böl ef það stafar af ytri aðstæðum, ef menn eru dæmdir til einsemdar. Það er hins vegar reynzla fyrir því að menn geta við slíkar aðstæður fundið þroskaleiðir, sem þeir höfðu ekki hugmynd um áður. Mörgum þykir gott að leita til öræva og njóta þar hinnar djúpu þagnar. En hvert sem maður leitar og hvar sem maður er þá hefur maður sjálfan sig með sér. Við spjöllum um stund um mis- muninn á þessum kristnu kyrrðar- dögum og því, sem boðið er upp á í innhverfum iðkunum. Við förum svo oft yfir lækinn til að sækja Dr. Sigurbjöm Einarsson bisk- up verður leiðbeinandi kyrrð- ardaganna. vatnið, segir dr. Sigurbjöm. En sameiginlegt með kristinni trú og ýmsu því, sem t.d. indversk trúar- brögð kenna er auðvitað það að við leitum eftir því að vekja per- sónuleikann eða hjartað eins og það heitir á kristnu máli. Þar em uppsprettur lífsins eins og segir í helgu orði. í þeim skilningi er það lindaraugað, sem tekur við að- streymi Drottins. í fylgsnum hugans reynum við ekki að mæta sjálfum okkur heldur Guði. Það er bæn. Og bæn er óhugsandi án innri kyrrðar. Slík kyrrð getur ríkt í háreysti og umsvifum ef maður hefur þjálfað sig á þann veg, ef bæn er manni eiginleg og uppistaða í sálarlífinu. En það er nauðsynlegt að geta lokað úti hávaðann í kringum mann, sveigja athyglina inn á við, þar með til móts við Guð. En Guð kristinna manna beinir okkur út fyrir sjálf okkur. Hann stefnir ekki að því að loka okkur fyrir lífinu í kringum okkur, fyrir náunganum og þörfum hans. Þvert á móti. Við þurfum að vera ein með honum marga stund. En hann minnir okkur alltaf á að við höfum skyldum að gegna við sköpun hans og ekki bara við okkar eigin sál. En án þess að leggja rækt við sína eigin sál gagnast maður ekki öðrum. í-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.