Morgunblaðið - 13.09.1987, Side 16

Morgunblaðið - 13.09.1987, Side 16
16 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. SEPTEMBER 1987 Landmælingar íslands hafa starfað sem sjálfstæð stofnun í 30 ár. Samt voru þeim ekki sett lög til að starfa eftir fyrr en 1985 og var þar um að ræða rammalöggjöf, en um skipulag og starfshætti stofnunarinnar skyldi kveðið nánar á um í reglugerð. Þar á meðal skyldu vera ákvæði um að þeir aðilar sem stunda landmælingar og kortagerð hafi samráð sín á milli í vinnubrögðum og skipulagi mælinga og kortagerðar. Þetta síðasttalda reglugerðarákvæði og frumkvæði að slíku samráði vegur þungt á metum varðandi starfsemi Landmælinga íslands og er eitt þeirra atriða sem markar tímamót í sögu landmælinga á Islandi, að sögn Agústar Guðmundssonar forstjóra Landmælinga Islands. „Hagkvæmni er okkur aðalatriði“ — segir Ágúst Guðmundsson, forstjóri Landmælinga íslands ÍT il i 11 nf ■ ■ 2j ■ 2 ii [ i| Ágíist Guðmundsson, forstjóri. Ljósmynd/KGA Blaðamaður Morgun- blaðsins fór á fund Ágústar á dögunum til að leita upplýsinga um þessa merku stofnun. Eftir slíka kynnisferð blandast varla nokkrum hugur um að þarna eru viðhöfð hin vönduðustu vinnubrögð og stuðlað að aukinni samþættingu verkefna og samvinnu allra aðila sem á þessum vettvangi starfa. III. kafla laganna um Landmæl- ingar Islands segir m.a.: Verkefnin eru: 1. setning staðla fyrir landmæl- ingar og kortagerð og gerð land- fræðilegra og staðfræðilegra grundvallarmælinga til kortlagn- ingar á íslandi... 2. taka loft- mynda vegna landmælinga, kortagerðar eða annarrar tækni og vísindalegra nota... 3. útgáfa al- mennra korta af Islandi... 4. endurskoðun útgefinna korta Land- mælinga Islands í þeim tilgangi að kortin sýni sem réttasta mynd af landinu. 5. söfnun, varðveisla og skráning fjarkönnunargagna. 6. söfnun upplýsinga um ömefni og staðsetningu þeirra í samráði við ömefnastofnun. Samkvæmt skipuriti heyra Land- mælingar Islands undir samgöngu- ráðuneytið og skiptist stofnunin í 4 deildir: Pjarkönnunardeild, korta- deild, mælingadeild og skrifstofu. Pjarkönnunardeild annast loft- myndatöku fyrir kortagerð stofnun- arinnar og aðra aðila og sér m.a. um framleiðslu loftmynda fyrir not- endur. Kortadeild ber ábyrgð á undir- búningi, endurskoðun, prentun og útgáfu korta sem stofnunin hefur tekið inn á kortagerðaráætlun. Mælingadeild annast landfræði- legar og staðfræðilegar mælingar til kortalagningar á Íslandi og skrif- stofan annast almenn skrifstofu- störf. Stöðugildi stofnunarinnar em tuttugu og tvö. Helstu kort af íslandi standa enn að hluta á þeim gmnni sem lagður var með kortagerð Dana er hófst um síðustu aldamót. Danska herfor- ingjaráðinu var falin framkvæmdin og þar af leiðandi kom nafngiftin „ herforingj aráðskort". Þama sýndu Danir stórhug gagnvart íslendingum, vinnubrögð þeirra einkenndust af nákvæmni og vandvirkni eftir þeirra tíma mæli- kvarða og haustið 1920 var lokið mælingum á */8 hluta landsins. Árið 1928 var Geodætisk Institut sett á stofn í Danmörku og leysti sú stofnun herforingjaráðið af hólmi. Mælingum á vegum þeirra aðila lauk að mestu haustið 1939 og komu síðustu kortin út árið 1944. Samhliða úrvinnslu mælinganna var unnið að endurteikningu kort- anna, prentun og útgáfu og það verk unnið allt í Danmörku enda Loftmynd í lit af Járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga. Myndin byRKÍnKarstigi- tekin árið 1979. Verksmiðjan á Loftmyndafilma frá árinu 1949 sem hefur eyðilagst vegna ófull- kominna geymsluaðstæðna. Innrauð litmynd af Járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga einnig tekin 1979. Gróður kemur fram sem rauður litur á myndinni. Inn- rauðar myndir eru aðallega notaðar við gróðurrannsóknir. ekki vélakostur eða fagmenn til þess háttar hér. Þrátt fyrir sambandsslitin 1944 var haldið áfram útgáfu íslands- korta í Danmörku til ársins 1959 íslendingum að kostnaðarlausu. Auk Landmælinga íslands hafa Orkustofnun og Landsvirkjun stundað mælingar og kortagerð hér á landi m.a. í tengslum við virkjan- ir á hálendinu og sama er að segja um sveitarfélög og einkaaðila. Góð og nákvæm kortagerð er ein undirstaðan fyrir framförum í nútímaþjóðfélagi. Grundvöllur hag- sældar og velferðar þjóðfélags er að eiga góð og nákvæm kort til að byggja á áætlanir og framkvæmdir. Kortagerð Dana hér verður að telj- ast eitt merkasta framlag þeirra til íslendinga. Almenningur hefur ef til vill ekki gert sér grein fyrir mikil- vægi þessarar vinnu en vonandi á hún vaxandi skilningi að fagna. Þetta kom m.a. fram í samtali við Ágúst Guðmundsson forstjóra. Hann sagði ennfremur að öll vinnubrögð hjá Landmælingum ís- lands væru samkvæmt ýtrustu kröfum nútímans og unnið með tækjum sem gæfu miklu meiri ná- kvæmni en gilt hefði þegar Danir unnu sitt merka verk. Sem dæmi mætti nefna að þá var álitið að einn aukastafur nægði í mælitölur — nú væru gerðar kröfur um þijá til fjóra. Mælingar og kortagerð hér á landi fara að nokkru leyti fram hjá öðrum stofnunum Ágúst lagði líka áherslu á að ekki væri tilhneiging til þess innan stofnunarinnar að gera Landmæl- ingar íslands að stóru ríkisbákni. Miklu frekar væri lögð áhersla á að kaupa þjónustu frá öðrum opin- berum stofnunum eða einkaaðilum. Sem dæmi um þessi viðskipti er t.d. að Verkfræðistofan Hnit hf. vinnur nú að mælingum og útreikn- un grunnkorta af SV-landi. Samn- ingur er um flugvélaleigu við Flugstöðina hf. vegna loftmynda- flugs. Þyrluflug hefur Landhelgis- gæslan og Flugþjónusta Albínu Þórðarson framkvæmt. Samstarf er nú við Ömefnastofnun um ör- nefnasetningu korta. Nokkrir aðilar að grunnkortagerðinni koma þar inn með sitt vinnuframlag t.d. Orkustofnun með allar mælinga- og útreikningavinnu af Fljótsdals- héraði, Rannsóknarstofnun land- búnaðarins með hluta af landgrein- ingavinnu af þeim svæðum sem nú eru gerð grunnkort af. Að síðustu má nefna að öll kortaprentun er boðin út. Landmælingar íslands leggja höfuðáherslu á að standa að sam- nýtingu og samræmingu slíkrar vinnu þannig að hún komi heildinni til góða. — „Við fáum til liðs ýmsa aðila í þessu skyni," sagði Ágúst, „og þá er gerður samstarfssamningur um framkvæmdir og kostnað. Nú eru t.d. í gangi þijú verkefni sem flokkast undir slflca samvinnu. Þar er unnið að grunnkortum í mæli- kvarðanum 1:25.000.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.