Morgunblaðið - 20.09.1987, Page 5

Morgunblaðið - 20.09.1987, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1987 B 5 Átt þú spariskírteini ríkissjóðs, sem eru innleysanleg núna ? íhugaðu stöðuna vel því nú hafa vextirnir hækkað og eru allt að 8,5% umfram verðtryggingu < co Það cru einkum tvær ástæður fyrir því að spariskírteini ríkissjóðs eru ein öruggasta og arðbærasta sparnaðarleiðin sem völ er á í dag. í fyrsta lagi hafa vextir af spariskírteinum ríkissjóðs hækkað og eru nú allt að 8,5% umfram verðtryggingu. Með því að fjárfesta í spariskírteinum ríkissjóðs getur þú tryggt þér háa raunávöxtun í langan tíma — hvernig sem árar. Þú tekur enga áhættw og öryggið er þín megin í öðru lagi er ekki hægt að hugsa sér örugg- ara og traustara sparnaðarform en spariskír- teini ríkissjóðs. Þeim fylgir engin áhætta og ríkissjóður tryggir þér að vextirnir lækka ekki meðan á lánstímanum stendur. Ertu enn í vafa? Þú getur valið um spariskírteini sem greið- ast í einu lagi eftir 2 ár með 8,5% raunvöxtum á ári, eða spariskírteini sem greiðast í einu lagi eftir 4 ár með 8,0% raunvöxtum á ári. Einnig áttu kost á hefðbundnum spariskírteinum með 6 ára binditíma og 7,2% raunvöxtum á ári, en sem hægt er að láta standa í allt að 10 ár. Þann- ig getur þú rúmlega tvöfaldað höfuðstólinn á tíu árurn. Fjárfesting sem laðar að Þegar þú ávaxtar sparifé þitt skaltu hafa í huga, að spariskírteini ríkissjóðs eru tekju- og eignaskattsfrjáls á sarna hátt og sparifé í bönkum og bera auk þess ekkert stimpii- gjald. Þau eru innlent lánsfé og draga því úr erlendri skuldasöfnun og stuðla þannig að bættum hag þjóðarinnar. Af öllu þessu er Ijóst, að spariskírteini ríkis- sjóðs eru ein vænlegasta leiðin í dag til ávöxt- unar á sparifé þínu. Spariskírteini ríkissjóðs færðu í Seðlabanka íslands og hjá löggiltum verðbréfasölum, sem eru m.a. viðskiptabankarnir, ýmsir sparisjóðir, pósthús um land allt og aðrir verðbréfamiðlarar. RÍKISSJÓÐUR ÍSIANDS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.