Morgunblaðið - 20.09.1987, Page 14
14 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1987
Textílar
fundnir íjörðu
Af málþingi við háskólann í York
í riti Hemslöjden, riti Heimilisiðnaðarstofnunarinnar sænsku,
birtist nýlega erindi, sem Elsa E. Guðjónsson, deildarsljóri í
Þjóðminjasafni íslands, flutti á norrænu þingi um skinnklæði í
Marienhavn á Alandi. Er greinin prýdd gömlum myndum í lit
af íslensku fólki í skinnklæðum og kúskinnskóm og vitnar hún
i lýsingar erlendra ferðamanna á Islandi á umliðnum öldum.
Þá flutti Elsa í sumar erindi um vefstaðinn íslenska á þingi
í York á Englandi, er nefndist Jorvik Textilsymposium 1987 og
var þriðja norður-evrópska málþingið um jarðfundna textíla sem
efnt er til. Málþing þetta sóttu alls 36 sérfræðingar - einkum
fomleifafræðingar og textilfræðingar - frá Norður Evrópu. En
veg og vanda af undirbúningi þingsins, sem var haldið við háskól-
ann í York, hafði dr. John Peter Wild, prófessor í fomleifafræði
við háskólann í Manchester og Penelope Walton, textilfræðingur
við York Archaeological Trast
Á undan sjálfu málþinginu gafst
þingfulltrúum tækifæri til að
kynna sér mikið safn af textílum
sem grafnir hafa verið úr jörðu í
London og varðveittir eru í Lon-
don Museum. Var efnt til sérs-
takrar og yfírgripsmikillar
kynningar á þeim í safninu 6.
maí, áður en haldið var til York.
Hafði stór hluti þessara muna
verið lagður fram til skoðunar og
voru þeir útskýrðir af Frances
A. Pritchard textílsérfræðingi
safnsins. Einnig var gestum
greint frá frágangi þeirra til
geymslu. Auk þess ræddu gestir
sín í milli um hina ýmsu sýningar-
gripi og gafst þama einstakt
tækifæri til þess að hlíða á skoð-
anaskipti færra sérfræðinga frá
mörgum þjóðlöndum bæði um
rannsóknaraðferðir á jarðfundn-
um textílum og um ýmis tækniat-
riði varðandi meðferð og
varðveislu, að því er Elsa sagði
er leitað var upplýsinga hjá henni
um þingið.
Þingið sóttu sérfræðingar frá
Danmörku, Englandi, Hollandi,
Irlandi, íslandi.Noregi, Póllandi,
Svíþjóð og Þýskalandi, auks eins
frá Spáni. 22 erindi voru flutt um
hin ólíkustu svið rannsókna ájarð-
fundnum textflum og búningum
og er ætlunin að allflest þeirra
verði gefín út í sérstöku ráð-
stefnuriti, væntanlega á næsta
ári. Voru umræður um hvert er-
indi, og kom þar margt fram til
frekari skýringar á viðfangsefn-
New York.
um fyrirlesaranna. Auk erindanna
sem flutt voru komu nokkrir þátt-
takendur fyrir minni háttar
sýningum á fundarstað. Fræðirit
útgefín af York Archaeological
Trust lágu frammi sem og ýmis
önnur rit er þáttakendur höfðu
með sér.
Um vefstaðinn
íslenska
Erindið sem Elsa E. Guðjónsson
flutti á fundinum fjallaði að hluta
til um nokkur veigamikil atriði
varðandi vefstaðinn íslenska.
Þótti ástæða til, úr þvi að tæki-
færi gafst , að koma þeim á
framfæri einmitt á þessum hópi
vegna ýmis konar misskilnings
sem gætt hefur meðal erlendra
fræðimanna um gerð hans og
vefnað í honum, að því er Elsa
tjáði okkur. í síðari hluta erindis-
ins var gefíð stutt yfírlit yfír
jarðfundna textfla á Islandi frá
upphafí og fram á 18. öld, ofna,
vattarsaumaða ( saumaða með
nálbragði), pijónaða og úr flóka.
Umræður að erindinu loknu
leiddu berlega í ljós, að sitt hvað
var í því sem erlendum þótti for-
vitnilegt, en höfðu ekki áður haft
spumir af, enda liggur hvorugt
efnið fyrir í heild á prenti, og um
margt hefur enn sem komið er
aðeins verið skrifað í íslenskum
ritum, sem eru lítt kunn erlendum
fræðimönnum í þessum greinum.
Svo dæmi sé tekið hefur vefnaður
Bóndi og kona hans á málverki
á kirkjubekk frá því um 1700.
Þessa mynd notaði Elsa til að
sýna fótabúnaðinn, skinnskóna,
með grein sinni.
úr íslenkum kumlum úr heiðnum
sið fram að þessu aðeins lítilllega
verið borinn saman við jarðfundna
textfla í nágrannalöndum okkar,
en sumt kynni þar að veita áhuga-
verðar upplýsingar. Þannig spurði
írski þátttakandinn Elízabeth
Heckett Elsu út í hörgul um leifar
af smágerðri ullareinskeftu úr
kumli frá Granagiljum sem brugð-
ið hafði verið upp mynd af, og
taldi hún að um væri að ræða
mjög líkt ef ekki eins efni og væri
í höfuðfötum sem fundist hefðu
við 10. og 11. aldar uppgröft í
Dublin, en hvergi annars staðar
að hún vissi. Einnig má nefna að
notkun hrælsins virðist mjög óljós
ýmum þeim sem fengist hafa við
rannsóknir á vefnaði í vefstað, og
var sérstaklega óskað eftir ná-
kvæmri útlistingu á því hvemig
henni er lýst í gömlum íslenskum
heimildum.
í víkingabænum
Meðan dvalist var í York skoð-
uðu þingfulltrúar Víkingaupp-
gröftinn við Coppergate í boði
íslenskir skór úr roði með prjónaleppum. Frá Þjóminja-
safninu. Meðfylgjandi myndir
fylgdu grein Elsu Guðjónsson
um skinnklæði
Fiskimaður f skinnklæðum. Frá
leiðangri Pauls Gaimards,
París 1842
Skinnverkun með horni. Mynd-
in úr ferðabók Eggerts Ólafs-
sonar 1772.
York Archaeological Trust. Þar
hefur djúpt undir nýrri verslunar-
miðstöð verið sviðsett eftirlíking
af daglegu umhverfi og lífí manna
við Kopargötu í víkingaaldarbæn-
um Jórvík. Ennig er þar varðveitt-
ur hluti af sjálfum uppgrefínum
frá árunum 1976-1981 sem eft-
irlíkingin byggir á og komið hefur
verið fyrir með hefðbundnum
hætti fastasýningu á um fímm
hundruð markverðustu mununum
sem þar fundust. Er gestum ekið
um fyrstu tvö safnsvæðin, á því
fyrra eins og eftir götum forn-
bæjarins og hlýða á meðan á tal
bæjarbúa á íslensku og hljóð dýra
og fugla, auk þess sem þef leggur
fyrir vit manna meðal annars úr
svínastíu sem ekið er fram hjá.
Gripir á fastasýningunni - sem
gestir ganga um og skoða - eru
flestir tengdir daglegu lífí fólks-
ins. Eru þar sýnd meðal annars
búsáhöld, smíðatól, tóskapar- og
vefnaðaráhöld, leifar af klæðum
og skóm, skartgripir og vopn. I
verslun safnsins mátti sjá flöl-
breytta söluvöru. Af heldur
óvenjulegum vamingi má nefna
smábúta af jarðfundnum viði frá
vkingaöld og eftirlíkingar af
víkingaaldarmynt. Einnig var þar
mikið og að því er virtist gott
úrval bóka um efni tengt safninu:
fræðirit varðandi fomleifar York-
borgar, Islendingasögur á ensku
og bækur um víkingaöld og mið-
aldir, ýmist ætlaðar fullorðnum
eða bömum. Þá hafði tölvuöld
greinilega haldið innreið sína þar
eins og svo víða annars staðar,
því að á boðstólum voru flögur
tölvuverkefni varðandi menning-
arsögu vikingaldar í Englandi,
ætluð skólabömum til úrlausnar.
FRYSTIKISTUR
SPÁÐU í VERÐIÐ
SPÁÐU í VERÐIÐ
SPÁÐU í VERÐIÐ
SPÁÐU í VERÐIÐ
191 lítrakr. 26.891
230 lítra kr. 27.990
300 lítra kr. 29.890
350 lítra kr. 30.960
410 lítra kr. 33.960
510 lítra kr. 37.890
FÁLKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8 SÍMI 91-84670
# Innrabyrði úr
hömruðu áli
# Lok með ljósi,
læsingu, jafn-
vægisgormum
og plastklætt
# Djúpfrystihólf
# Viðvörunarljós
# Kælistilling
# Körfur
# Botninn er
auðvitað frysti-
flötur ásamt
veggjum