Morgunblaðið - 20.09.1987, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1987
B 47
frá dreifbýlinu í Suðurríkjunum,
eru með erfitt, hrokkið hár. Þegar
ég gekk í skóla höfðum við þetta
allt fyrir augunum." Hann glottir
stríðnislega. „Ég man eftir því að
hafa sagt: „Eitthvað af þessu
verður að komast í kvikmynd."
Að námi loknu í Morehouse inn-
ritaðist Lee í kvikmyndadeild New
York University Tisch School of
Art, þar sem hann var einn sára-
fárra þeldökkra nemenda. Eftir
endurgerð á The Birth of a Nati-
on, sem vakti litla hrifningu
kennaranna gerði hann síðan
mynd um rakara- og veðmangara-
stofu í Bedford-Stuyvesant hverf-
inu í Brooklyn. Fyrir þessa 45
mín. löngu mynd vann Lee nem-
endaverðlaun Bandarísku kvik-
myndaakademíunnar. En
verðlaunin færðu honum ekki at-
vinnu.
She’s gotta have It varð nánast
til af hendingu. Sumarið 1984 var
Lee að undirbúa fjölskyldudrama
um svartan sendil sem var að
verða fullveðja. En skömmu áður
en myndatakan átti að hefjast
brást fjármögnunin að nokkru
leyti svo Lee skrifaði nýtt handrit
að minna verkefni, notaði nokkra
úr leikhópnum og hóaði saman
vinum sínum sér til aðstoðar við
kvikmyndagerðina. Hann byrjaði
með 18 þús. dala styrk frá borgar-
ráði New York en stærstan hluta
kostnaðarins fjármagnaði hann
sjálfur.
í samanburði við Hollywood var
þetta framtak ógnarsmátt. Leikar-
ar og kvikmyndagerðarmenn sátu
sveittir við í 12 sumardaga við
tökur uppi á lofti yfir veitingahúsi
og loftræstingin var afleit. Mynd-
in, sem tekin var í svart/hvítu, var
síðan klippt í einstaklingsíbúð Lee
við engu skárri aðstæður. Að lok-
um var Lee orðinn svo illa stæður
að framköllunarstofan hótaði að
selja myndina á uppboði. En Lee
gat borgið myndinni og náð sam-
komulagi við Island Pictures um
dreifingu hennar í Bandaríkjun-
um. Allir þénuðu vel og Island
bauð Lee samning.
Lee hófst handa við að breyta
þriggja ára gömlu handriti, School
Daze, í söngleik og í nóvember sl.
var búið að ráða í öll störf beggja
vegna tökuvélanna. En eftir ára-
mótin var ráðamönnum Island
hætt að lítast á blikuna. Fjár-
hagsáætlunin hljóðaði upp á 4
millj. dala en augljóst var að allt
stefndi í mun hærri upphæðir en
hið smávaxna fyrirtæki taldi sig
ráða við. „Myndin færði okkur
nokkurt fé,“ segir Laura Parker,
varaforseti kvikmyndaarms fyrir-
tækisins. „Við höfðum sannarlega
áhuga á að gera myndina en vild-
um ekki virka sem hömlur á stíl
Lees." Og án bakhjarls lá Ijóst
fyrir að myndin yrði ekki að veru-
leika.
Lee tók þessu með ró. Morgun-
inn eftir fór hann að hringja í
kvikmyndaverin og þarnæsta dag
var samningurinn við Columbia
Pictures undirritaður.
Ósjaldan hefur Lee verið líkt við
Woody Allen, enda gjarnan kallað-
ur „svarti Allen" þar vestra. Það
er líka að finna sameiginleg ein-
kenni. Báðir eru leikstjórarnir
New York-búar. Báðir skrifa þeir
og leikstýra myndum sem fjalla
um þjóðernislega minnihlutahópa.
En fyrst og fremst koma þeir báð-
ir fram í myndum sína og leika
viðkvæma, málglaða elskhuga,
sem eiga kynþokkan að mestöllu
leyti gáfunum að þakka.
Þessi margtuggði samanburður
fer fyrir bijóstið á Lee. Hann seg-
ir fyrirmyndir sínar í kvikmynda-
heiminum Kurosawa, Scorsese og
Gordon Parks. „Woody Allen,
hann getur gert mynd um Man-
hattan — þar sem helmingur
íbúanna er svartur eða latínskur
— án þess að hafa svo mikið sem
eina þeldökka persónu innanborðs.
Svo er ég spurður hversvegna ég
noti ekki hvíta í mínum myndum.
Enginn spyr Kurosawa hvenær
hann ætli að nota aðra en jap-
anska leikara. En um svartan
kvikmyndagerðarmann segja þeir
að hann sé kynþáttahatari og að-
skilnaðarseggur því hann notar
ekki hvítt fólk.“
Framleiðslufyrirtæki Lees, sem
heitir því frumlega nafni Forty
Acres and a Mule, er nú með bæki-
stöðvar sínar í nýtískulega
uppgerðri slökkvistöð, þar sem
hann er önnum kafinn þessa dag-
ana við að fínpússa School Daze
í sitt éndanlega form. Að lang-
flestu leyti hefur frægðin ekki
stigið honum til höfuðs. Þegar
hann er í New York ferðast hann
með neðanjarðarlestum, eins og
fyrri daginn, á ekki einu sinni bíl.
Hann er þegar farinn að búa sig
undir þá tíma þegar nýja brumið
er farið af honum. Hann segir:
„Eftir fyrstu myndina umvefur
fólkið þig, eftir þá næstu áttu von
á að áhorfendur og gagnrýnendur
liggi í leyni fyrir þér. Þeir eru
þess reiðubúnir að stilla þér upp
frammi fyrir aftökusveitinni."
Lee hefur nú í hendi sér tæki-
færi til að vinna stærri sigur —
eða verða fyrir fyrsta áfallinu. En
framtíðin skelfir hann ekki. „Mér
finnst ég vera góður kvikmynda-
gerðarmaður og þessi mynd á eftir
að gera það gott, hvað sem öðru
líður," segir hann. „Ég held ég
eigi eftir að gera myndir það sem
ég á eftir ólifað. Og þær eiga að
fara batnandi."
Heimild: The NY Times Maga-
zine, 9. ágúst 1987.
Píanó — flyglar
STEINWAY 6 SONS
Á
GROTRIAN-STEINWEG
Einkaumboð á Islandi
Pálmar ísólfsson & Pálsson sf.
Pósthólf 136, Reykjavík.
Símar: 30392 — 13214 — 11980
JÓRUNN KARLSDÓTTIR
ELDHU SKROKURINN
Hollusta
kartaflna
Okkur er ljóst að kartöflur á matskeið og látið eitt egg renna
hafa mikið næringargildi, en
hvers vegna? Ekki er mjög
mikið af eggjahvítuefni (pró-
teíni) í kartöflum, en þar sem
við borðum kartöflur svo til
daglega, kemur hvitan okkur
að góðu gagni.
Kartöflur eru ríkar af mjölva
(sterkju), sem er helzta forða-
sykra plantna. Margir telja
kartöflur of fitandi, en sú er
ekki raunin. Við borðum að
meðaltali varla meira en 200
grömm af kartöflum á dag, og
þetta magn gefur okkur
150-160 kaloríur. Til saman-
burðar má benda á að sama
magn af vinarbrauði gæfi okk-
ur nærri sexfalt fleiri hitaein-
ingar.
Það bezta við kartöflumar
er að úr þeim fáum við C-
vítamín, ekki sízt þar sem við
borðum kartöflur reglulega allt
árið. Kartöfiur era að visu mis-
munandi C-vítamínríkar eftir
árstiðum, en jafnvel þegar
minnst er - á vorin - fáum við
10 mg. af C-vítamini úr hverj-
um 100 gr. af kartöflum. Svo
fáum við B-vítamín og málm-
sölt (járn og kalk) úr kartöflun-
um, sem er einnig þýðingarmik-
ið vegna þess að við borðum
þær að staðaldri.
Nú þegar við getum fengið
nýuppteknar og gómsætar kart-
öflur, fínnst ef til vill sumum
óþarfí að gera eitthvað annað og
meira en að sjóða þær. En það
hafa ekki allir sama smekk, sem
betur fer. Þessvegna ætla ég að
þessu sinni að gefa ykkur nokkrar
uppskriftir þar sem kartöflur eru
þungamiðjan.
(mynd nr. 1)
Kartöflufat með eggj-
um, f .4:
2 smátt saxaðir laukar, 1 rif
saxaður hvítlaukur, 75 gr. skinka,
8-10 soðnar kartöflur (miðlungs),
salt+pipar, 4 egg, 2 dl. ijómi,
IV2 dl. rifinn ostur, 2 matsk. sax-
aður graslaukur.
Látið laukinn og hvítlaukinn
krauma við vægan hita í smjöri
eða olíu. Skerið skinkuna í smá
feminga. Afhýðið kartöflumar,
skerið þær í sneiðar og látið í
smurt eldfast fat til skiptis með
skinkunni og lauknum. Kryddið
með salti og pipar.
Gerið 4 „dældir" með botninum
í hveija dæld.
Þeytið ijómann létt og blandið
saman við hann ostinum og gras-
lauknum, og hellið þessu yfír
kartöflufatið.
Sett í miðjuna á 200 gráðu
heitum ofni og gegnbakað í um
20 mínútur. Mjög gott að bera
hrásalat með.
Kartöflugratin með
skinku og eplum.
1 kg. kartöflur, 3 dl. mjólk, 1
matsk. smjör, salt og pipar, 4
sneiðar skinka, 1 súrt epli (niður-
sneitt).
Afhýðið og sjóðið kartöflumar.
Meijið kartöflumar með kartöflu-
stappara eða pressu. Þynnið með
mjólkinni. Setjið smjörið saman
við, og salt og pipar eftir smekk.
Setjið 3/4 af kartöflumaukinu í
smurt eldfast fat, og þar ofan á
skinku- og eplasneiðamar. Sprau-
tið því sem eftir er af kartöflum-
aukinu yfír. Bakað í 225 gráðu
heitum ofni þar til maukið er orð-
ið fallega brúnt og eplin mjúk.
KartöflulummuiY
Afhýðið 10 meðalstórar kart-
öflur og rífíð þær á rifjámi. Þeytið
1 dl. af mjólk lauslega með 1
eggi, 2 matsk. hveiti, salti og pip-
ar. Hrærið rifnu kartöflunum
saman við.
Bræðið smjörlíki á pönnu, setjið
kartöfluhræmna með skeið á
pönnuna og steikið lummumar
ljósbrúnar báðum megin. Úr þessu
fást um 10 lummur, og em þær
bomar fram t.d. með steiktu bei-
koni.
Gratineraöar kartöfl-
ur.
1 kg. frekar litlar soðnar kart-
öflur, 2 dl. kaffíijómi, 3 eggja-
rauður, 150 gr. rifinn ostur
(Óðals), múskat, salt og pipar eft-
ir smekk.
Afhýðið kartöflumar (má nota
þær með hýðinu á) og látið í botn-
inn á smurðu eldföstu fati. Hrærið
saman eggjarauðumar, ijómann
og rifna ostinn, og hellið yfir kart-
öflumar. Látið i um 225-250
gráðu heitan ofn (í miðju) í um
15 mínútur.
Borið fram ijúkandi heitt með
grófu brauði og smjöri, eða með
kjötbollum eða kjötbúðingi.
POTT-
ÞETTAR
AGOÐU
Aliar RING bílaperur
bera merkið ©
sem þýðir að þær
uppfylla ýtrustu
gæðakröfur E.B.E.
RING bílaperurnar
fást á bensínstöðvum
Sketfungs