Morgunblaðið - 25.10.1987, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. OKTÓBER 1987
C 23
Þessir hringdu ...
Frjálst fiskverð
til góðs
S.J. hringdi:
„Mikið hefur verið talað um
fískverð að undanfömu og þá
verðhækkun sem orðið hefur á
fiski vegna tilkomu uppboðsmark-
aða. Sumum finnst svo mikið um
þetta að þeir vilja leggja niður
frjálst fískverð. Menn gleyma þá
alveg þeirri jákvæðu þróun sem
markaðimir hafa haft á gæðamál-
in, verðið ræðst nú fyrst og fremst
af því ástandi sem fískurinn er í
við löndun og verður það til að
sjómenn leggja mikið á sig til að
geta landað fyrsta flokks físki.
Þetta kostar þá mikla vinnu og
er ekkert óeðlilegt þó þeir njóti
góðs af. Ég tel fíjálst fískverð til
góðs.“
Casioúr
Þrettán ára gamall drengur týndi
nýju svörtu Casio Data Bank úri
þriðjudaginn 13. október í Voga-
skóla eða næsta nágrenni. Urið
keypti hann fyrir sumarkaupið
sitt. Skilvís fínnandi hringi í síma
685273.
Sliguð umferð-
armerki
Kópavogsbúi hringdi:
„Ég vil vekja athygli á slæmu
ástandi umferðarmerkja í Kópa-
vogi. Víða um bæinn em um-
ferðarmerki skökk og á nokkrum
stöðum liggja þau alveg flöt. Það
er trassað að laga þetta og ættu
þeir sem eiga að sjá um þessi
mál að taka sig á.“
Kúnststopp
Bára hringdi og spurðist fyrir
um hvort einhver aðili hér í
Reykjavík tæki að sér að kúnst-
stoppa smágöt á fötum.
Um starfsréttindi presta
Til Velvakanda.
Prestur skrifar:
Nýlega var því slegið upp á for-
síðu Morgunblaðsins, að prestar
hefðu ekki réttindi til að kenna
kristinfræði í skólum. Það er vissu-
lega staðreynd, að engu máli skiptir
hvort prestur hefur réttindi til að
kenna í skóla eða ekki, vegna þess
að skólayfirvöld reyna sífellt að
sniðganga kennsluréttindi manns,
sem er prestur, ekki síst þess, sem
hefír ekki verið þjónandi í 10 ár,
þar sem þjóðkirkjuyfirvöld hafa
hvorki haft vilja né getu til að nýta
prestinn til eins eða neins á akri
Drottins.
Það er ótrúlegt en satt, að í heil
10 ár hefír sá er þetta ritar þurft
að snapa verkavinnu hingað og
þangað til lífsframfæris, vegna þess
að ekkert starf hefír boðist í sam-
ræmi við menntun.
Hvað hefír presturinn eiginlega
brotið af sér kynni einhver að
spyija? Sannarlega ekkert, nema
það, að senda lausnarbréf frá einu
prestakalli og leyfa sér síðan að
kæra það að ekki fékkst nema eins
mánaðar uppsagnarfrestur í stað
þriggja mánaða samkvæmt réttind-
um og skyldum opinberra starfs-
manna. Sóknarprestinum var
þannig beinlínis neitað um að fá
að hætta við að hætta.
Það virðist ekki skipta neinu fyr-
ir ráðafólk skóla- og kirkjumála þó
að viðkðtnandi prestur og kennari
sé atvinnulaus í sínu fagi. Honum
er bent á að nóg atvinna sé í landinu
og hann skuli bara fara að vinna í
físki eða kjöti eða þá að Iæra á
tölvu til að komast í sæmilega skrif-
stofuvinnu.
Aðalatriðið fyrir þessa háu
stjómarherra á hveijum tíma virðist
vera, að nágrannaprestar lausa
brauðsins missi ekki aukabitann og
að réttindalausi kennarinn fái að
kenna áfram út á einhver námskeið
síðar. Nú er einnig svo komið, að
tekið er að panta stöður hjá ráðn-
ingarherrunum allt að heilu ári áður
en prófum er lokið og er þá ljóst,
að auglýsing þeirra gefur öðrum
engan raunverulegan rétt til starfa.
Er annars ekki tímabært fyrir okk-
ar rúmgóðu þjóðkirkju að koma upp
sérstakri atvinnumiðlun fyrir guð-
fræðinga og presta og jafnvel
kennara á miðjum aldri með eldri
prófréttindi?
Að lokum er fyrirspum til
menntamálaráðuneytisins. í maí sl.
greiddi ég kr. 750 til að fá stað-
festingu á réttindum mínum til að
teljast grunnskólakennari en það
plagg hefír ekki borist mér ennþá.
Já, það er aldeilis munur að heita
séra Jón en ekki bara Jón á íslandi
nútímans.
Litir, tónar og raiuimenning
Til Velvakanda.
Lítið yrði úr okkur án sólarinnar
sem næst er. Að vísu skína á okkur
ótal sólir á heiðri nóttu, en það
skin er dauft og í því skini mundi
yfirborðshiti jarðar fljótlega fara
Hafið úti-
ljósin
logandi
Blaðberar Morgunblaðsins
óska að koma því á framfæri
að þar sem nú er orðið er dimmt
á morgnana getur verið erfíð-
leikum bundið að komast að
dyrum húsa þar sem ekki loga
útiljós. Sérstaklega á þetta við
i húsasundum þar sem götulýs-
ingar nýtur ekki við. Em það
vinsamleg tilmæli blaðbera að
fólk hafí útiljósin logandi þar
sem aðstæður eru með þessum
hætti.
niður undir algjört núllmark. En
mjög er hægt að njóta fegurðar litlu
fjarlægu sólanna. Og ekki er það
verra að mörgum þeirra fylgir líf
sem gefur því er þeirri næstu til-
heyrir ekkert eftir. Sé starað út í
óravíðan geim verður gleðin um
sameiginlegan anda allra alheima
mjög sterk, ásamt þeirri fullvissu
að til eru þær fjarlægðir sem hel-
sjúk menning fær aldrei brúað.
Sólin, þessi undurfagra vits-
munavera, hefur hröð og flókin
efnaferli sem hver um sig stendur
í þúsundir ára. Geimfarar segja
sólina bláa séða utan úr geimnum,
en hún ergul séð frájörðinni. Geisl-
amir sem andrúmsloftið tók í sig
lita himininn og fíöllin. Sólarljósið
samanstendur af bylgjum mismun-
andi tíðni og eru þar í grunnlitir
regnbogans sem allir aðrir litir eru
samsettir úr. Fleiri eru bylgjur sól-
arljóss sem við sáum ekki, en sé
tíðni þeirra breytt, getur lítilmótleg
jurt eins og arfí skartað fegurstu
blómum.
Skíni þessi mesti huggari heims
á tár augnahára koma fram ótal
litabönd sem vefjast hvert um ann-
að. Má glögglega sjá þetta í
skreytilist fjarlægrar þjóðar.
Bönd má lita á ýmsa vegu, lita-
fíöldinn skiptir þúsundum og svo
má auka á fíölbreytnina með því
að setja hnúta á böndin og hafa
þau mismunandi löng. Auglýsendur
tala um tónaliti og er það ekki eins
fíarstæðukennt og ætla mætti í
fyrstu, því dæmalaust mun það
ekki að er fóik skynjar liti heyri
það fallegt lag.
Strengir píanós eru sagðir um
240, enda talið fullkomnast hljóð-
færa. En tónar sem mannseyrað
nemur eru um 24.000 þegar best
lætur, en um 13.000 á fimmtugum
manni og þykir gott engu að síður.
Slitrur einar eru eftir af hámenn-
ingu ljóss, lita og tóna. Ótrúlega
fallegar listaskreytingar öreiga á
hátíðum. Tónar sérstæðrar fegurð-
ar sem leynir sér ekki, þó dauða-
drukkinn hljóðfæraleikari sé að
velta út af eða bam að ná fyrstu
tónum sínum úr flautu.
Það þarf mikinn kraft og fyrir-
höfn ef yfirgnæfa á eitthvað, eða
hví datt einhveijum peningasnillingi
það í hug að drösla heilli óperuhöll
yfir ægifagurt torleiði Andesfíalla?
Var samanburðurinn honum eitt-
hvað í óhag? Þoldi menning þjóðar
Kólumbusar ekki samanburðinn
eftir allt saman?
Bjarni Valdimarsson
Úrval af vinsælu barnaskón-
um frá portúgalska
fyrirtækinu
JIE
komnir aftur
Henta vel fyrir íslenska barnafætur,
enda mælum við með þeim heilshugar_
Skórnir sem myndin er af fást í hvítu,
rauðu og bláu.
St. 18-24.
Póstsendum.
Domus Medica,
Egilsgötu 3, Kringlunni,
Sími: 18519. Sími: 689212.
1$
9»—sn»ora
VELTUSUNCH 1
21212
SOVÉSKIR DAGAR MÍR1987
LISTAFÓLK FRÁ
HVÍTARÚSSLANDI
Fjölbreytt efnisskrá í söng, hljóðfæraleik og þjóð-
dönsum á eftirtöldum samkomum og tónleikum:
Hótel Selfoss:
Miðvikudaginn 28. okt. kl. 20.30. Sovéskir dagar
settir. Ávörp, Guðmundur Daníelsson les upp,
söngur, hljóðfæraleikur, þjóðdansar. Aðgangur
ókeypis og öllum heimill.
Heimaland Vestur-Eyjafallahreppi:
Föstudaginn 30. okt. kl. 21.00.
Tónleikar og danssýning.
Hlégardur Mosfellsbæ:
Laugardaginn 31. okt. kl. 16.00.
Tónleikar og danssýning.
Menntaskólinn við Hamrahlíð
Reykjavík:
Sunnudaginn 1. nóv. kl. 15.00. Minnst 70 ára af-
mælis októberbyltingarinnar og þjóðhátíðardags
Sovétríkjanna. Ávörp og skemmtiatriði. Aðgangur
öllum heimill.
Þjóðleikhúsið:
Mánudaginn 2. nóv. kl. 20.00. Tónleikar og dans-
sýning af fullri lengd og við bestu aðstæður.
Aðgöngumiðar seldir og afgreiðddir til MÍR félaga
í húsakynnum félagsins á Vatnsstíg 10.
Missið ekki af fjölbreyttri og góðri skemmtun.
Stjórn MÍR.