Morgunblaðið - 12.01.1988, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1988
47
takóng en ekki fleiri spaða. Þá er
hægt að trompa þriðrja hjartað í borði.
Þetta gengur ekki ef spilið er eins
og hér að ofan, enda er engin ástæða
fyrir suður að taka þá áhættu því 10
slagir eru öruggir. Suður tekur tígul-
ás í þriðja slag, spilar laufi á ás,
trompar tígul, spilar laufi á kóng,
trompar tígul, spilar laufi á drottningu
og trompar tígul með síðasta tromp-
inu. Síðan spilaif. hann laufgosa og
ef austur trompar verður trompfjark-
inn í borði 10 slagurinn. EUa er
laufgosinn þessi þýðingarmikli slagur.
Það skiptir heldur engu máli þótt
vömin trompi einhvemtímann í spil-
inu.
5)
Norður
♦ K107
V6
♦ 9763
+ Á9543
Vestur Austur
VDG1043 llllll VÁ8752
♦ 52 ♦ DG104
+ KG76 +D108
Suður
♦ ÁDG8542
¥K9
♦ ÁK8
+ 2
Suður spilaði 6 spaða eftir að hafa
opnað á 2 sterkum spöðum og síðan
stokkið í ásaspumingu við 3ja spaða
svari norðurs: Vestur spilaði út hjarta-
drottningu sem austur tók með ás og
síðan átti hann að fínna bestu vöm.
Eftir sagnir var ljóst að suður átti
langan og þéttan spaðalit, og örugg-
lega hjartakóng og tígulás. Auk þess
átti hann væntanlega annaðhvort
tígulkóng eða laufakóng til viðbótar.
Það gerir 11 slagi og baráttan stend-
ur því um 12. slaginn.
Ef suður á laufakóng, en ekki tígul-
kóng, er ljóst að sagnhafi vinnur
spilið ef kóngurinn er blankur eða
annar, því þá er hægt að gera laufið
gott. Ef laufakóngurinn er þriðji verð-
ur sagnhafí hinsvegar að gefa slag á
lauf.
Ef suður á ekki laufakóng, heldur
t.d. 2 hunda í laufi er spilið einnig
vonlaust. En hvað ef sagnhafi á spil
eins og hér að ofan?-
Ef austur spilar tígli í 2. slag tekur
sagnhafi með kóng, spilar laufí á ás,
trompar lauf, spilar spaða á tíu,
trompar lauf, og spilar spaða á kóng
og trompar lauf. Nú er síðasta- laufið
orðið gott og sagnhafi á innkomu á
spaðasjöið til að taka fríslaginn.
Við þessu getur austur gert með
því að spila trompi í 2. slag. Við það
er tekin innkoma af borðinu án þess
að sagnhafi geti nýtt sér hana og
hann getur fri'að laufið en kemst ekki
inn í borð til að taka fríslaginn.
6)
Norður
♦ KG
+ D5
♦ ÁG72
♦D8753
Vestur
♦ 10973
¥ 10864
♦ 9
+ G942
Austur
+ D8542
¥972
♦ K1085
+ 10
Suður
♦ Á6
¥ÁKG3
♦ D643
♦ ÁK6
Suður spilaði 6 grönd og fékk út
spaðatíu. Hann tók slaginn með
kóngnum og tók ás og kóng í laufi
og austur henti spaða í laufakóng.
Þá var spurt: hvemig tryggir suður
sér samninginn?
Fyrstu viðbrögð em væntanlega
að spila tígli á gosann og þá vinnst
spilið ef vestur á tígulkóng eða ef
tígullinn liggur 3-2. En hvað ef aust-
ur á tígukóng blankan eða kónginn
flórða eða fimmta?
Ef betur er að gáð sést að suður
getur séð við öllum þessum legum,
með því einfaldlega að spila tígli á
ásinn og síðan litlum tígli úr borði.
Ef tígullinn liggur 3-2 er spilið unnið;
ef kóngurinn er stakur dettur hann í
ásinn og ef austur á 4 eða 5 tígla
má hann ekki fara upp með kónginn,
þegar litlum tígli er spilað úr borði,
því þá á suður 3 tígulslagi. Suður fær
því á tígulgosann og getur síðan ró-
legur fríað laufið með því að gefa
vestri laufaslag.
Ef vestur á tígulkónginn 4. eða 5.,
sem er raunar ólíklegt, tekur hann
auðvitað tíguldrottninguna með
kóngnum. En suður getur síðan
þvingað hann í láglitunum þegar hann
tekur slagina í hálitunum. Sú þvingun
er mjög auðveld því skipting vesturs
verður ljós.
Minning:
Lillian
Fædd 3. október 1908
Dáin 2. janúar 1988
Lífið horfið! Hún er orðin nár.
Hjartað stansað, bijóstið orðið kalt.
Hún, sem kunni’ að hugga sorg og tár,
hún er dáin, svona fer það alt.
Ekkert bros á blíðum móður vörum,
bleikur dauðinn heldur þar upp svörum.
Með þessum fallegu ljóðlínum
viljum við kveðja okkar ástkæru
frænku Lillian. Lillý eins og hún
var alltaf kölluð var í okkar huga
mikið meira en bara frænka, við
litum á hana eins og ömmu okkar
og vitum að hún hugsaði einnig
þannig til okkar. Hún hélt yfír okk-
ur vemdarhendi allt frá bamæsku
til fullorðinsára, var með okkur í
leik og starfí, gleði og sorg.
Með stirðum höndum og sorg í
hjarta er reynt af veikum mætti
að rita þessar línur. Kallið kom
snöggt og mikið tómarúm hefur
myndast í hjörtum okkar sem erfitt
er að fylla eða sætta sig við.
Góðu minningamar hrannast upp
og eiga þær eftir að ylja okkur um
ókomna tíma og varðveitast sem
perlur f bmnni minninganna. Við
sem höfum átt því láni að fagna,
að fá að kynnast, þekkja og elska
þessa góðu konu sem við munum
Teitson
kveðja í hinsta sinn í dag, vitum
að frá okkur verður aldrei tekið það
sem hún gaf okkur og kenndi, það
er sælla að gefa en að þiggja.
Blessuð sé minning elsku frænku
okkar Lillý. Megi hún hvíla í friði.
Sossa, Egill, Jobba,
Auður, Hilmar, Bára,
Biggi, Úlli, Lillý,
Garðar og Kristín.
Sæmundur Þóraríns-
son - Minningarorð
Fæddur 7. mars 1920
Dáinn 4. janúar 1988
Sæmundur Þórarinsson, eða
Sæmi afí, eins og við krakkamir
kölluðum hann, var fæddur og upp-
alinn í vesturbænum í Reykjavík.
Foreldrar hans vom hjónin Sólveig
Sigurbergsdóttir og Þórarinn Sæ-
mundsson.
Afi var bamgóður með eindæm-
um og vom kynni mín af honum
mjög skemmtileg. Það var alveg
sama hvenær ég kom í heimsókn,
hann var alltaf tilbúinn að eyða
með manni tíma og afi kunni að
eyða tímanum á frábæran hátt.
Hann fór oft með mig í langa
bíltúra. Stundum keyrðum við niður
á bryggju, þá var hann vanur að
segja mér nöfnin á skipunum eða
eitthvað annað sem viðkom sjónum
og stundum keyrðum við upp í sveit
og keyptum okkur ís, en ef veðrið
var vont vomm við inni. Þá sagði
hann mér sögur og svo teiknaði
hann myndir við sögumar og gaf
mér.
En fyrir nímum fimm ámm, þeg-
ar ég var tíu ára, varð afi fyrir því
TÖLVUPRENTARAR
X----------------
slysi sem varð þess valdandi að
hann gat ekki farið með okkur
krakkana í fleiri bíltúra eða sagt
okkur fleiri sögur.
Það fylgir dauðanum alltaf tregi,
jafnvel þó ég viti að afi sé kominn
á annan og betri stað þar sem lífíð
er betra en það líf sem hann lifði
hér seinustu æviárin.
Blessuð sé minning hans, megi
hann hvfla í friði.
Sæunn Huld Þórðardóttir
M IÐNTÆKNISTOFNUN
Eftirtalin námskeið verða haldin á
næstunni hjá Iðntæknistofnun:
Fræðslumiðstöð iðnaðarins
25.-30. jan. Flísa- og steinlögn. Haldið hjá Rannsóknastofnun
byggingariðnaðarins. Ætlað múrurum. Flísalögn. Við-
gerð, fúgur. Steinlögn. Terrassolögn. Staðlar. Heilbrigð-
ismál. 30 kennslustundir.
1 .-5. feb. Steypuskemmdir. Haldið hjá Rannsóknastofnun bygg-
ingariðnaðarins. Steypuskemmdir, eðli og orsakir.
Greining skemmda. Viðgeröiráfrostskemmdum, alkali-
skemmdum o.fl. Sprautusteypa. Viðgerðir með fljótandi-
steypu.Verk- og efnislýsingar. Fyrirlestrar, verkefni og
skoðunarferð. 60 kennslustundir.
2.-4. feb. Gluggar og glerjun. Ætlað húsasmiðum. Haldið hjá
Rannsóknarsofnun byggingariðnaðarins. Gluggar:
Gluggaefni, gagnvörn. Lögun, stærðirog gerðirglugga.
ísetning. Endurbætur o.fl. Glerjun: Efnisfræði glers.fúgu-
efni. ísetningaraðferðir og viðgerðir á einangruna-
rgleri. 18 kennslustundir.
15.-17. feb. Hljóðeinangrun. Unnið af starfsmönnum Rannsókna-
stofnunar byggingariðnaðarins og haldið þar. Undir-
stöðuatriði. Hljóðísog og einangrun. Hljóðeinangrun
steinsteyptra húsa, timburhúsa.einingahúsa.Endur-
bætur á eldri húsum. -Einkum ætlað iðnaðarmönnum,
einnig gagnlegt hönnuðum og húseigendum. 18
kennslustundir.
15. feb. Niðurlögn steinsteypu. Haldið hjá Rannsóknastofnun
byggingariðnaðarins. Eiginleikar steinsteypu. Niðurlögn
og aðhlynning. Iblöndunarefni. -Ætlað þeim sem fást
við niöurlögn og meðferð steinsteypuábyggingarstað. 8
kennslustundir.
Sjálfvirknideild
25.-27. jan. Örtölvutækni I. Grundvallarhugtök örtölvutækninn-
ar. Hvernig vinnur örtölvan? Kynning á forritun á
véla- og smalamáli 8088 örgjörvans. Hagnýt forritun-
ardæmi. 30 kennslustundir.
Rekstrartæknideild
25.-30. jan. Stofnun og rekstur fyrirtækja. Ætlað konum. Haldið
á kvöldin og fyrir hádegi á laugardegi. Námskeiðinu er
ætlaö að auka skilning þátttakenda á því hvað atvinnu-
rekstur útheimtir, hvað þarf aðathuga og hvað þarf að
varast.
Verkstjórnarfræðslan
18.-19. jan. Verktilsögn og vínnutækni. Farið er yfir skipulagöa
verktilsögn, móttöku nýliða og starfsmannafræðslu,
vinnuvistfræði, líkamsbeitingu við vinnu.
20.-21. jan. Stjórnun breytlnga. Farið yfir stjórnun breytinga,
hvernig er unnið að breytingum. Starfsmannaviðtöl,
hvernig virkja má starfsmenn til að leysa vandamál o.fl.
22.-23. jan. Verkefnastjórnun. Undirstaða verkefnastjórnunar.
Hlutverk verkefnisstjóra, myndun verkefnishópa, vöru-
þróunarverkefni o.fl.
25.-26. jan. Framlelöslustjórnun. Farið er meðal annars yfir undir-
stöðuatriði í framleiöslustjórnun, innkaup o.fl.
27.-28. jan. Gæðastjórnun. Farið er meðal annars yfir hvað eru
gæði og hvernig er best að viöhalda þeim. Gæðaeftirlit
með hráefni o.fl.
29.-30. jan. Undlrstaöa vinnuhagræðingar. Farið er yfir undir-
stöðu vinnuhagræðingar á vinnustöðum og helstu
hjálpartæki.
25.-26. jan. Verkáætlanir. Haldið á Akureyri. Farið er yfir undir-
stöðu í áætlanagerð og verkskipulagningu, CPM-fram-
kvæmdaátælun, Gantt-áætlun á mannafla og aðföngum.
22.-23. jan. MULTIPLAN-forrit og kostnaðaráætlanir. Haldiöá
Austurlandi. Farið er yfir undirstööur áætlanagerðar
með PC-tölvu, kennd notkun á töflureikiforritinu MULTI-
PLAN.
Vinnuvélanámskeið
Námskeið fyrir stjórnenöur þungavinnuvéla.
20.30. jan. Haldið í Reykjavik.
2.-12. feb. Haldiðá Egilsstöðum.
Námskeið i Reykjavik eru haldin i húsakynnum Iðntæknistofnunar, nema
annað sé tekið fram.
Nánari upplýsingar og innritun hjá stofnuninni i sima (91) 68-7000,
Fræðslumiðstöð iðnaðarins i sima (91) 68-7440 og Verkstjórnarfræðsl-
unni i síma (91) 68-7009.
Geymið auglýsinguna.
Funda- og veislusalur
Hötel Lindar
Veislu-, funda, og ráðstefnusalur
fyrir allt að 100 manns,
Allar veitingar.
Kjörinn staður við öll tækifæri.
Þægilegt, persónulegt og rólegt
yfirbragð.
••
011
tækifæri:
• FUNDIR
• RÁÐSTEFNUR
• VEISLUR
• ERFIDRYKKJUR
e AFMÆLI
Göðar
aðstæður:
e Myndbandstæki
• Skyggnusýningavél
• Myndvarpi
• Tjald
• Tússtöflur
• Flettitöflur
• Ljósritun
• Telex
HÖTEL UMV
RAUÐARÁRSTÍG 18 - 105 REYKJAVÍK
SÍMI 623350