Morgunblaðið - 12.01.1988, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1988
55
Takið frunikvæðið stelpur
Til Velvakanda.
Nú að undanfön.u hafa nokkrar
stúlkur skeiðað fram ritvöllinn og
hallmælt okkur karlmönnum, hefur
aðalmálið verið léleg frammistaða
okkar karlmanna á skemmtistöð-
um. Þær hafa kvartað undan því
að við séum korter fyrir þijú gæjar
og að við sýnum þeim ekki áhuga
fyrr en rétt fyrir lokun skemmti-
staða. En nota bene, þetta á aðeins
við um fáa stráka, við hinir, sem
förum hægt í sakimar, verðum yfir-
leitt alltaf útundan, þannig er það
með mig t.d. Ég vil kynnast viðkom- ■
andi stelpu dálítð áður en ég fer á
fjörumar við hana og einhvem veg-
inn fer það ailtaf þannig að þær
virðast telja mig furðulegan eða
vitlausan ef ég fer ekki fram á það
við fyrstu sýn að fá að sofa hjá
þeim. Og oft fer það þannig að ég
sé þær skömmu síðar með einhvem
sem fer hraðar í þetta en ég.
Þessar stúlkur sem hafa verið
að skrifa um þessi mál að undan-
fömu hafa talað um að þær hafi
skipst á símanúmerum við strákana
og síðan hafa þær beðið eftir því
að þeir hringdu. En ekki hefur
áhuginn verið mikill hjá stelpunum
ef þær hafa ekki viljað hringja sjálf-
ar, því kannski biðu þeir einnig
heima eftir því að þær hringdu.
Ekki hafa þeir heldur kjark, áræði
eða áhuga á þvi að bjóða strákunum
upp í dans snemma kvölds heldur
bíða þær til kl. 02.45 eftir því að
þeir komi. Nú á dögum jafnréttis-
baráttu er ég dálítið hissa á því að
þær skuli vera að kvarta og kveina
yfir því að við karlmenn skulum
ekki vera eins og forverar okkar
sem riðu á vaðið og óðu yfir lækinn
og buðust til að aðstoða við mjaltir
eða yfírsetu yfír lömbum til að
kynnast heimasætunum á næstu
bæjum. Því alltaf var það hlutverk
karlmannanna til foma að stíga
fyrsta, annað og þriðja skrefíð til
að efna til kynna við kvenfólkið.
Þið viljið komast til áhrifa í þjóð-
félaginu, fá sömu laun og við en
þið viljið ekki reyna að efna til
kynna við karlmenn að fyrra bragði.
Stelpur sýnið nú þroska og próf-
ið að stíga fyrsta skrefíð. Ef þið
teljð að við séum ekki nægilega
viti bomir til að umgangast ykkur,
reynið að kenna okkur það. Við
elskum ykkur, það er bara spurning
hvort þið elskið okkur.
Trítill
Tónlistargagnrýni
Heiðraði Velvakandi.
I Morgunblaðinu 29. desember
síðastliðinn var grein eftir Sigurð
Þór Guéijónsson. Fyrirsögnin var
„Viðræður við vagnstjóra í akstri
bannaðar". Þetta er ekki fýrsta
grein Sigurðar um þetta efni. í
fyrstu má álykta sem svo, að um
slæman vana sé að ræða, en þetta
gæti orðið að kæk hjá tónlistar-
gagnrýnandanum ef ekkert væri
að gert. Það vill undirritaður með
öllum tiltækum ráðum koma í veg
fyrir. Auðvitað em gagnrýnistörf
þess eðlis að þegar búið er að gagn-
lýna fyrir sig, þá hættir sumum til
að fara að gagnrýna fyrir aðra.
Mig gmnar að þessi gagnrýni á
tónlist í strætó sé einmitt þess eðl-
is, að gagmýnandinn, Sigurður
Þór, sé orðinn ofnæmur fyrir tónlist
og geti ekki notið góðrar ferðar
með strætó vegna þess að hann fer
ósjálfrátt að gagnrýna tónlistina
sem þar er spiluð, og fínnst þá
auðvitað að hann sé enn í vinnunni
en fái ekkert borgað fyrir. Og auð-
vitað þarf hann ekki síður en aðrir
að fá borgað, því ég trúi því ekki
að Sigurður Þór sé svo tregur að
hann geti ekki náð bílprófi, eins og
hann segir sjálfur. Ég trúi miklu
fremur að gagnrýni Sigurðar gefí
bara svo lítið af sér, sérstaklega
ef gagnrýni hans fer að mestu fram
í strætó sem hann fær svo ekkert
fyrir, og útkoman sé svo sú að
hann á hvorki fyrir bílprófi né bíl.
En kæri Sigurður, að öllu gamni
slepptu, öryggi þitt í strætó er jafn-
vel tryggt, þó spilaðar séu fagrar
melódíur undir. Ég fullyrði að akst-
ur og músík fara einkar vel saman,
enda er staðreyndin sú að í öllum
samgöngutækjum em hljómtæki,
strætisvögnum, langferðabif-
reiðum, lestum, flugvélum,
Ieigubifreiðum, sendibifreiðum,
og fleira gæti ég talið. Auk þess
em í mörgum bifreiðum sjónvarps-
tæki, sem munu þó einkum ætluð
farþegum, að minnsta kosti meðan
á akstri stendur.
Kæri Sigurður Þór Guðjónsson,
vilt þú vera svo góður að beina
gagnrýni þinni inná arðbærari
brautir. Músikin í strætó gefur ekk-
ert af sér fyrir þig.
Vagnstjóri nr. 91 hjá SVR.
Til sjómanna
Sjómenn: Á neyðarstundu er ekki tími til lestrar. Kynnið ykkur því
í tíma hvar neyðarmerki og björgunartæki em geymd. Lærið með-
ferð þeirra.
ir hringdu . . .
góður sjónvarps-
þáttur
Óli Hilmar Jónsson hringdi:
„Ég vil koma á framfæri þökkum
til sjónvarpsins fyrir þáttinn Huldir
heimar sem var sýndur á nýársdag.
Tímasetningin var afar heppileg
fyrir-þetta efni, þvf trúin á huldar
vættir er jafn gömul þjóðinni. Von-
andi fáum við að sjá meira af slíku
um eigin þjóð og trú í stað erlends
léttmetis. Þeir sem að þættinum
stóðu eiga skilið heiður og þakkir."
Kristalsviðgerðir
Spurt var hvar hægt væri að fá
gert við skemmda kristalsmuni í
Velvakanda hinn 7. janúar. Svavar
Gunnarsson hefur tekið að sér
slíkar viðgerðir og er hægt að hafa
samband við hann í síma 79366
eftir kl. 18 virka daga.
Þá tekur Gleriðjan hf. Höfðatúni
4 að sér viðgerðir á glermunum.
Sfminn þar er 11386.
Kettlingur
Fallegur átta vikna kettlingur
fæst gefíns. Upplýsingar í síma
34573.
Tannréttinga-
gómur
Bama tannréttingagómur fannst
í Skátabúðinni nokkru fyrir jól. Við-
komandi getur haft samband við
afgreiðslufólk Skátabúðarinnar.
Glæsileg karlmannaföt
tekin upp um áramót. Dökktvíhneppt
sniðfyriryngri menn, einnig klassísk snið.
Verð kr. 8.900,- og 9.900,
AndrCSy Skólavörðustíg 22, sími 18250.
3 ódýrar lausnir
Breidd 2.0 metrar. Lengd 2.50 metrar. Hæð 2.30
metrar. Verð 38.000.
Breidd 5.0 metrar. Lengd 10 metrar. Hæð 2.65
metrar. Verð
Breidd 7.5 metrar. Lengd 10 metrar. Hæð 3.30
metrar. Verð 258.000.
Húsin eru byggð úr heitgalvaniseraðri stálgrind
og klædd með níðsterkum, eldþolnum plastdúk.
Hluti af þakinu er gegnsær og húsin eru fest með
jarðspjótum.
Gisli Jónsson & Co hf.
Sundaborg 11. Sími 686644.