Morgunblaðið - 18.02.1988, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1988
9
Eigendur
Spariskírteina
Ríkisjóðs
athugið!
Einingabréf Kaupþings hafa
nú þegar sannað ótvírætt gildi
sitt og stöðugleika sem arðbær
fjárfesting. Viðbendum eigend-
um Spariskírteina Ríkissjóðs á
að við tökum spariskírteini
sem greiðslu fyrir önnur
verðbréf. Með því að fjárfesta í
Einingabréfum tryggirðu þér
hámarksávöxtun, lágmarks-
áhættu og að auki er féð ætíð
laust til útborgunar.
Einingabréf Kaupbings hf.
eru öryggissióður binn og
binna um ókomin ár.
SOLUGENGI VERÐBRÉFA ÞANN 18. FEBRÚAR
Einingabréf 1
Einingabréf 2
Einingabréf 3
2.665,-
1.551,-
1.663,-
Lifeyrisbréf
1.340,-
SS 85-1
SÍS 85-1
Lind hf. 86-1
Kópav.
11.823,-
20.069,-
11.303,-
11.453,-
HKAUPÞ/NG HF
Húsi verslunarínnar • sími 68 69 88
Tíminn og vondir kommúnistar
í umræðum manna á meðal kemur það á stundum upp, að ef
til vill gefi það ekki rétta mynd af stjórnmálabaráttunni, að al-
mennt sé hætt að tala um kommúnista. Þetta orð var á hvers
manns vörum, þegar rætt var um pólitík um miðbik aldarinnar.
Nú er jafnvel Gorbatsjov farinn að hallmæla þeim kommún-
isma, sem þá var rekinn, og vill láta kenna sig við glasnost og
perestrjoku. Hér þykir það almennt skömm að vera kenndur við
kommúnisma og eru nokkur ár liðin frá því að þeir í Alþýðubanda-
laginu báðust undan því. Þess vegna eru það tíðindi út af fyrir
sig, að Tíminn talar nú ekki öðru vísi um alþýðubandalagsmenn
í Kópavogi en sem kommúnista og ekki nóg með það heldur
„vonda kommúnista". í Staksteinum í dag er rætt um ástæðurn-
ar fyrir því.
Kæti breyttist
i reiði
Fögnuðurinn var ekki
lftíll i pólitískum herbúð-
um vinstrisinna þegar
það spurðist fyrir
nokkru, að svo kynni að
fara að SfS flyttí höfuð-
stöðvar sínar úr
Reykjavík til Kópavogs.
Var snarlega tekið til við
að reikna út tekjutap
Reykjavíkurborgar og
voru gullslegin SÍS-
merki, eins og við sj&um
stundum f sjónvarpsaug-
lýsingum, komin f augu
forráðamanna Kópa-
vogs. Svo kom reiðar-
slagið; SÍS-höfðingjarnir
ákváðu að flytja af Sölv-
hólsgötunni nokkur
hundruð metra inn á
Kirkjusand en ekki tíl
Kópavogs nema kannski
með bensfnstöð og eitt-
hvað smálegt, þó vildu
þeir halda Smára-
hvammslandi. Þá gerði
bœjarstjóm Kópavogs
sér lftíð fyrir, neyttí for-
kaupsréttar og seldi
landið sfðan helstu keppi-
nautum SÍS. Við svo búið
greip Tfminn tíl sinna
ráða og nú eru ritstjóm-
ardálkar hans lagðir
undir Smárahvamms-
málið dag eftír dag.
Kœtín hefur breyst f reiði
bæði þjá vinstri meiri-
hlutanum (úr Alþýðu-
bandalagi og Alþýðu-
flokki) f Kópavogi og
skriffinum SÍS á Tfman-
um. Og nú eru alþýðu-
bandalagsmenn í Kópa-
vogi ekki annað en
kommúnistar f ritstjóm-
ardálkum Tfmans.
Löngum hefur verið
tekist állm það innfln SÍS
og Framsóknarflokksins
hvort hreyfingin ætti að
skipa sér hægra megin
við miðju, f miðju eða til
vinstri við miðju f stjóm-
málabaráttunni. Sveifl-
umar þama á milli hafa
oft verið snöggar og stór-
ar. Af skrifum Tfmans
um landakaup SÍS er
(jóst, að blaðið lftur svo
á, að milli SÍS og vinstri-
sinnanna f Kópavogi hafi
verið pólitísk tengsl, sem
hefðu átt að tryggja SÍS
eignarhald á Sniára-
hvjtmnwbmfHni i.
Þegar rœtt er um fjár-
málasviptíngar og SÍS
með þeim hættí, flð SÍS-
höfðingjum sámar, vi(ja
þeir starfa undir þeim
merkjum, að SÍS sé f
raun félagslegt afl og
fjöldahi-eyfing, þar sem
peningar séu bara auka-
atriði. Nú þegar rætt er
um landakaup SÍS f fé-
lagshyggjubænum Kópa-
vogi kallar Tfminn SÍS
„fjölmennustu sjálfs-
bjargarsamtök almenn-
ings f þessu Iandi“.
Tfminn fer ekki leynt
með ástæður reiðinnar
fyrir hönd „sjálfsbjarg-
flraflmtflkflnni>“; „Og eins
og hér væri ekki nóg að
gert þá urðu kratamir
og kommúnistamir endi-
lega að bfta hausinn af
skömminni með þvf að
færa einum helsta full-
trúa einkaverslunar á
höfuðborgars væðinu,
Hagkaupum, þetta Iand &
silfurfatí. Var einhver að
tala um að kratar og
kommar segðust stund-
um vilja efla samvinnu-
rekstur f landinu?"
SÍS og komm-
únisminn
Hugleiðingar Tfmans
um Smárahvammsmálið
verða ekki lesnar á ann-
an veg en þann, að hann
lftí á SÍS sem pólitísk
samtök, sem blaðið hefur
hingað tíl talið eiga sér-
staka samleið með kröt-
um og kommúnistum, að
minnsta kostí ef þessir
kratar og kommúnistar
sitja f bæjarstjóra Kópa-
vogs. í fyrradag hvatti
Tfminn fulltrúa krata og
kommúnista f bæjar-
stjóminni til að rifja upp
grundvallarþættí jafnað-
arstefnunnar og sósíal-
ismans. Taldi Tfminn að
sala Smárahvamms-
landsins til annarra en
SÍS hefði sannað, að
vinstrisinnarnir f bæjar-
stjóra Kópavogs hefðu
„kolfallið á þessu prófl f
þeim pólitísku kennisetn-
ingum sem þeir gefa sig
annars út fyrir að vera
fulltrúar fyrir.“ Og
Tfminn fer ekki leynt
með, hvað varð þeim að
falli:
„Aranguyinn er sá að
helstí keppinautur sam-
vinnufélagsins á höfuð-
borgarsvæðinu hefur
náð undir sig eftirsókn-
arveiðustu verslunarlóð
þessa svæðis, sem sam-
vinnufélagið áttí áður.
Svona lagað hefðu al-
mennilegir og sannir
kommúnistar af gamla
skólanum aldrei látíð
henda sig. Allir vita að
kratar eru f seinni tíð
orðnir að hreinum fijáls-
hyggjumönnum. Og
kommarnir f Kópavogi
eru greinilega lfka orðnir
haldnir af heldur vond-
um kommúnisma nú orð-
ið.“
Æskilegt væri að f tíl-
efni af þessum reiðilestri
lýstí Tfminn því fyrir les-
endum sfnum hvernig
kommúnistarnir, sem
hikuðu ekki við að dýrka
Stalfn opinberlega,
reyndust SÍS á árum áð-
ur, þegar hringurinn var
að færa út kvfarnar. Taki
Tfminn tíl við að birta
úr „leyniskýrslum" SÍS
um þessi mál, lesendum
til fróðleiks og vinstri-
sinnum f valdastöðum til
eftirbreytni, skal ekki
standa á Staksteinum að
koma þeim boðskap á
framfæri við fleiri en þá,
sem enn lesa Tfmann.
BY
Rafmagns
oghoncl-
lyftarar
Liprir og
handhægir.
Lyftigeta:
500-2000 kíló.
Lyftihæð upp í
6 metra.
Mjóar aksturs-
leiðir.
Veitumfúslega
allarupplýsingar.
UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN
BÍLDSHÖFÐA W SÍML6724 44
BORGARAFUNDUR
íbúar í Hvassaleiti, Háaleiti,
Fossvogi, Bústaðahverfi og
Blesugróf!
Miðvikudaginn 24. febrúar 1988 kl. 20.30,
mun Borgarskipulag Reykjavíkur efna tií
borgarafundar í samkomusal Réttarholts-
skóla.
Á fundinum verða kynnt drög að hverfa-
skipulagi fyrir borgarhluta 5 þ.e. Hvassaleiti,
Háaleiti, Bústaðahverfi, Fossvogshverfi og
Blesugróf.
Hverfaskipulag er unnið í framhaldi af nýju
aðalskipulagi fyrir Reykjavík. í því er fjallað
sérstaklega 'um húsnæði, umhverfi, umferð,
þjónustu og íbúaþróun og áhersla lögð á hvar
breytinga er þörf og hvar þeirra er að vænta.
Á fundinum verður óskað eftir ábendingum
og athugasemdum frá íbúum. Virk þátttaka
íbúa er ein af forsendum fyrir góðu skipulagi.
BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR Borgartúni 3, sími 26102 105Revkjavik