Morgunblaðið - 18.02.1988, Side 38

Morgunblaðið - 18.02.1988, Side 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1988 4' Pólstækni: Flæðivogir og fleiri nýjungar PÓLSTÆKNI hf kynnir um þess- ar mundir ýmsar nýjungar á sviði háþróaðs tæknibúnaðar fyrir fiskiðnað. Fyrirtækið hefur í nokkur ár sérhæft sig i rafeinda- vogum og flokkurum af ýmsu tagi og í samvinnu við Rekstrar- tækni og Eðalstál hafa verið hannaðar sérstakar vinnslulínur. Meðal nýjunga Pólstækni nú má nefna flæðivog, flokkara fyrir fryst og fersk flök, samvalslínu og hraðvinnslulínu. Þessi búnaður var kynntur fyrir nokkru í húsakynnum fyrirtækisins. Hraðlína Pólstækni og Rekstrar- tækni vinnur þannig, að við upphaf hennar, þar sem flökin koma tilbúin til snyrtingar, er flæðivogin stað- sett. Hún skráir þyngd flakanna um leið og þau fara yfir og með sérstöku færibandi er hægt að ráða því hve hratt flökin koma inn til snyrtingar. Snyrtilínan, sem tekur við af flæðivoginni er hönnuð af Rekstrartækni og Eðalstáli og þar fer snyrting fram með hefðbundn- um hætti. Með því að halda af- skurði úr flökunum sér og vigta hann, fínnst nýting úr snyrting- unni, en það er ein forsenda þess að hægt sé að styðjast við hóp- bónus við útreikning launa. Birgir Úlfsson, sölustjóri Pólstækni, sagði í samtali við Morgunblaðið, að flæðivogin væri byggð á sömu grunneiningu og færibanda- og flokkunarvogimar. Þetta væri al- gjör nýjung fyrir fískvinnsluna, sem væntanlega myndi leysa gömlu vo- gimar af hólmi, en með því sparað- ist mikil vinna við vigtun. Morgunblaðið hefur áður skýrt frá samvalsvél fyrirtækisins, en með henni eru fískstykki valin sam- Morgunblaðið/Sverrir Birgir Úlfsson, sölustjóri Jónas Ágústsson, markaðsstjóri og Öm Ingólfsson, tæknistjóri, við nýju flæði- vogina. ( an til pökkunar með tilliti til þyngd- ar og fjölda stykkja { pakkningu. Færibandaflokkarinn er ætlaður fyrir fryst flök eða fískstykki, eink- um frá lausfrysti. Með honum eru flökin eða fískstykkin flokkuð í 8 fíokka eftir þyngd, en hann er hægt að fá með breytilegum flokka- fjölda. Þyngdin kemur í ljós á færi- bandavog og er stykkin eru komin á ákveðinn stað, er þeim ýtt út af bandinu og í ákveðinn bakka fyrir hvem þyngdarflokk. Þegar rétt magn er komið í bakkann, hættir vélin að skila flökum í hann, þar til tómum bakka hefur verið komið í hans stað. Með þessu móti er hægt að flokka 110 til 120 stykki á mínútu. nmr Ferskar dögum saman -enda í loftskiptum__ umbúöum. Mjólkursamsalan Stórkostlegt ikrva.1 Terelyne-, jersey- og flauelsefni í miklu úrv- ali til sölu á Bergstaðastræti 43. Einnig blindföldunarvél Mauser special, overlockvél Union special og Bernina hraðsaumavél. Sími 23662. Póis-FL 95 færibandaflokkari, en hann má einnig nota til samvals fyrir pakkningar á fiski. |IUiiNilUI»li| J^latínulausaJranslstorkveikjar^^^—J G ” SKEIFUNNI 5A, SÍMI: 91-8 47 88 nnar FÆRIBANDA- MÓTORAR = HÉÐINN = VÉLAVERSLUN SÍMI 624260 SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA - LAGER raðauglýsingar ...... .............. 1 1 raðauglýsingar — raðauglýsingar Mosfellingar Kökubasar Nokkrar eldhressar sjálfstæðiskonur sjá um kökubasar, sem haldinn veröur i Kjörvali laugardaginn 20. febrúar. Komiö og kaupiö okkar frábæru kökur. Allur ágóði rennur í húsakaupasjóðinn. Nefndin. Spilakvöld Félög sjálfstæðismanna i Laugarnesi, Háaleitishverfi, Austurbæ og Noröurmýri halda spilakvöld mánudaginn 22. febrúar kl. 20.30 i Valhöll, Háaleitisbraut 1. Stjómandi veröur Þóröur Einarsson. Kaffiveiting- ar. Fjölmenniö. Stjórnirnar. Bjóöum sjálfstæöisfólki í Austurbæ og Norðurmýri akstur á spila- kvöldið. Hafið samband við skrifstofuna fyrir kl. 17.00 í síma 82900. Þórshafnarbúar - Þistilfirðingar Friörik Sóphusson, iðnaðar- og orku- málaráðherra og Halldór Blöndal, al- þingismaður, hafa viðtalstíma í félags- heimilinu Þórsveri sunnudaginn 21. fe- brúar kl. 13.00. Nánari upplýsingar gefa Björgvin Þór- oddason, Garði og Kristín Kjartansdótt- ir, Þórshöfn. Friörik Sóphusson og Halldór Blöndal efna til almenns stjórnmála- fundar í félagsheimilinu Þórsveri sama dag kl. 14.00. Fundurinn er öllum opinn. Sjálfstæðisfélagið á Þórshöfn. Spilakvöld Félag sjálfstæðismanna í Hliða- og Holtahverfi heldur spilakvöld fimmtudaginn 18. febrúar kl. 20.30 í Valhöll, Háaleitisbraut 1. Kaffiveitingar. Fjölmennum. Stjórnin. Sjávarútvegsmál og hug- myndir um fiskveiði- stjórnun Laugardaginn 20. febrúar kl. 15.00-17.00 mun Sveinn H. Hjartarson, hagfræðingur LlÚ, kynna efnið „sjávarútvegsmál og hug- myndir um fiskveiðistjórnun" og opna um- ræður. Gert er ráð fyrir frekar afslöppuðu andrúmslofti á þessu fundi þar sem málin verða rædd yfir kaffibolla og eru allir, sem láta undirstöðuatvinnuveg þjóðarinnar sig einhverju skipta, velkomnir á fundinn. Fundurinn verður haldinn, á skrifstofu Týs i Hamraborg 1, 3. hæð, Kópavogi. Stjórn Týs. 4

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.