Morgunblaðið - 21.04.1988, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 1988
27
Það er hyldýpi á milli nágrann-
anna og elskendanna Tony og
Tyan í „Kinversku stúlkunni".
Saga úr
Suður-
bænum
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
REGNBOGINN:
Kínverska stúlkan — „China girl“
Leikstjóri Abel Ferrara. Handrit
Nicholas St. John. Kvikmynda-
tökustjóri Bojan Bazelli. Tónlist
Joe DeLia. Aðalleikendur Ric-
hard Panebianco, Sari Chang,
James Russo, David Caruso,
Russell Wong, Judith Malina,
James Hong. Bandarísk. Westron
Pictures 1987.
Hver sá sem hefur komið til
hinna litlu borgarhverfa niðri á
Manhattan, Chinatown og Little
Italy, hlýtur að furða sig á tilveru
þeirra þar sem þau skera sig úr
umhverfínu með sfnum sjálfstæðu
og sterku einkennum sem þau halda
sökum einstakrar tryggðar þessra
innflytjendahópa við venjur og siði
„gamla landsins". Um þá fjallar
„Kínverska stúlkan", er ítalskur
piltur og kínversk stúlka fella hugi
saman mætast stálin stinn.
Myndin á sér óteljandi fyrir-
myndir í bókmenntum og kvik-
myndum en kunnust og næst er
West Side Stoiy, nema hér er öldin
önnur. Milli ungmennanna af þjóð-
arbrotunum ríkir gagnkvæmt hatur
en hinir eldri hafa með sér þegj-
andi samkomulag að kássast ekki
uppá hvors annars jússur. Þegar
þessar hefðir eru brotnar, Paneb-
ianco og Chang fara að skjóta sér
saman, Kínamenn byggja matsölu-
stað í Little Italy — sem kínverskir
gangsterar ætla sér svo að „vemda"
í ofanálag, þá sýður uppúr. Og hér
er ekki farið útí neitt Vesturbæjar
„búggí-vúggí", heldur em átökin
blóði drifin, gegnsýrð hatri.
Það er engin sérstök reisn yfir
Kínastúlkunni, aldrei til þess ætl-
ast, hér er um frekar ódýra fram-
leiðslu að ræða. Ætlunin að gera
heldur metnaðarfulla afþreyingar-
mynd sem hefur tekist með láði.
Bakgmnnurinn er einstaklega for-
vitnilegur og nýttur til hins ýtrasta.
Reynt að varpa ljósi á hinar sterku
og örlagaríku hefðir þjóðarbrotanna
og þá ekki síst þá tvíræðu siðfræði
sem ríkir hjá báðum. Það er umtals-
verður kraftur í leikstjóm Ferrara
sem áður hefur gert litlar, laglegar
spennumjmdir. Upptökustaðimir
nýtast honum vel, leikaramir skila
vel sínu — Panebianco virðist eiga
framtíðina fyrir sér — myndin í
heild góð og eilítið öðmvísi afþrey-
ing.
A þríðja þúsund utanlándsferðir
á75þúsund-og _
40 þúsund krónur hver.;
adeins dregpir úr
seldum miöum
CHEVROLET Monza SL/E
d l\i: 540 þiisund
MAZDA 323 Sedan GIX
d l\i: 560 þúsund
TOYOTA Corolla 1300XIZ
■í l\i: 560 þilsimd . f
tTI DVAIARHEIMILIS ALDRAÐRA
Eflum stuðning við aldmða.
Miði á mann fynr hvem aldmðan