Morgunblaðið - 29.05.1988, Side 3

Morgunblaðið - 29.05.1988, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. MAÍ 1988 B 3 í gufuvél, verð að fá gufuvél. Það er hæpið að mér takist að fá hana hér á landi, helst í einhverri gam- alli síldarbræðslu en það eru full- stórar vélar. Ég hef reynt að fá gufuvél í Noregi. Ég held áfram að reyna, það er varla búið að henda öllum. Gufuvélamar voru svo víða, t.d. í nýsköpunartogurunum. Gufuvélar eru alltaf vinalegar og hljóðlátar, bara þytur en engin háv- aði. Lætin í díesel-vélunum þreyta mann miklu meir en gufuvélar- þytur. Hvort ég ætla að safna toghler- um? Ég efast _um það. Hef varla pláss fyrir þá. Ég fékk annars hlera gefínn síðastliðinn vetur, hafði sjálfur smíðað hann. Skipstjórinn sagði að ég ætti að stilla honum upp, því þetta væri tímamótahleri og mikið verið fískað með þessari hleragerð. Ég held nú samt varla að mínar framleiðsluvörur séu enn orðnar safngripir. Skipalíkön._ Ég hætti aldrei að safna þeim. Ég á tíu núna og það era mörg á leiðinni. Eitt er af göml- um norskum línubát og annað af sænskri skútu. — Og myndir. Ég lét taka eftir gömlum myndum sem Konráð Hjálmarsson stórkaupmaður á Nes- kaupstað hafði átt. Eg get þvi mið- ur ekki sýnt myndimar núna því tollurinn vill skoða þær gaumgæfi- lega og verður ekki búinn að því fyrr en í næstu viku.“ Enn veiðivon Blaðamaður Morgunblaðsins innti Jósafat eftir því hver hefði verið stærsti „aflinn" hingað til? Hann benti á að það væri alltaf matsatriði. Það væri algengt að menn kölluðu gamla hluti ,jáma- drasl“ en oft væri þama á ferðinni nánast „hreint gull“. T.a.m. hefði Hraðfrystistöðin látið hann fá allt dótið úr brúnni á togaranum Guð- mundi Júní frá Þingeyri sem Einar ríki átti á sinni tíð. Sinnuleysi manna gagnvart gömlum hlutum og véladóti hefði fram á vora daga verið mikið, t.d. hefðu austur á landi gamlar vélar verið notaðar í uppfyllingar eða bólverk. Það væri hægt að segja margar sorgarsögur af afdrifum gamalla minja en samt væri víða enn veiðivon. Á einum stað á lands- byggðinni væra ómetanlegar minjar urðaðar í jörðu. Jósfat aftók með öllu að upplýsa hvaða minjar væri hér um að ræða og hvar þær væra. „Það kemur í ljós þegar ég hef grafið þær upp.“ Jósafat Hinriksson var spurður hvort hann væri í samkeppni við Sjóminjasafnið í Hafnarfirði? „Nei, nei, langt í frá. Það er nóg pláss fyrir mitt safn, — og þótt fleiri væra.“ Að endingu var Jósafat inntur eftir því, hve hár aðgangseyririnn yrði í safnið? „Ég hef ekkert hugs- að út í það. En til að byija með vil ég ekki rakka inn. Ég vil halda upp á 25 ára afmæli fyrirtækisins og svo hef ég gaman að því að atast í þessu." Útgerðarmaður frá Sandgerði náði þessum vélsima úr skipi sem strand- aði við Reykjanes og gaf Jósafati. SPOEX PSORIASISSJÚKLINGAR Ákveðin er ferð fyrir psoriasissjúklinga 21. ágúst nk. til eyjarinnar Lanzarote á heilsu- gæslustöðina Panorama. Þeir, sem hafa þörf fyrir slíka ferð, snúi sér til húðsjúkdómalækna og fái vottorð frá þeim. Sendið það merkt nafni, heimilisfangi, nafn- númeri og síma til Tryggingastofnunar ríksins, Laugavegi 114, 3. hæð. UMSÓKNIR VERÐA AÐ HAFA BORIST FYRIR 24. JÚNÍ. TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS. FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fjölskyldudeild Fósturheimili óskast fyrir 11 ára dreng til að a.m.ktveggja ára. Æskilegt er að heimilið sé í Reykjavík eða nágrenni. Nánari upplýsingar gefurÁslaug Ólafsdóttir félagsráðgjafi í síma 685911 alla virka daga. ^hBÍLTÆKI^K í alla bíla... af ýmsum stærbum og gerbum, auk allskonar Iiátalara, magnara, loftneta (m.a. rafdrilin), margskonar tónjafnara, kraftmagnara, hljóbdeila og fleira og fleira ! Bíltækin kosta frá kr.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.