Morgunblaðið - 29.05.1988, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. MAÍ 1988
°B 5
Morgunblaðið/RAX
Þegur leiðtogarnir skildu eftir Reykjavíkurfundinn er ekki hægt
að segja þá hafa verið í sjöunda himni. Litið var á fundinn sem
skipbrot afvopnunarsamninga risaveldanna og menn hinir svartsýn-
ustu. Síðar kom á daginn að árangur fundarins var mun meiri en
talið var og er Washington-sáttmálinn áþreifanlegt dæmi þess. Samn-
ingurinn fól í sér upprætingu skamm- og meðaldrægra kjarnorku-
flauga og er fyrsti afvopnunarsamningur ríkjanna. Fram að því
höfðu vígbúnaðarsamningar Bandaríkjanna og Sovétríkjanna falist
í takmörkun á frekari vígvæðingu.
Eftlr skamma'viðdvöl f Helslnkl f Finnlandi, mun Ronald Reagan
Bandarfkjaforseti vera fjóra daga f Moskvu. Hér gefur aö líta nokkrra
af þeim stööum, sem forsetlnn mum helmsækja f feröinni.
■ Sendiherrabústaður Banda-
ríkjanna, en þar munu
Reagan-hjónin dvelja. ■ U<^r
_ ,, . flestiropin-
berir fundir
ræðu á þnðjudag. fr
■ Á miðvikudagskvöld munu
leiðtogamir fara á ballettsýningu.
■ Reagan heimsækir------
klaustur á mánudag
.\noheöu(< l ...-•x-
• m.......................................... ' —
Helsióki
■m
(% 'i.ÞJóW 0 i /'J
tr-l.t_____.gy.:/:;:.:.:/____
Forsetinn og frú hans ferðast til
Moskvu um Helsinki.
Forsetafrúin fer auk þess í
sérstaka ferð til Lenmgrad.
L*
Moskva
sovÉT-
RlKIN
mmm
■“Kænugaróur -V'""'
KRGN / Morgunblaölö/ AM
Dagskrá
Moskvufundarins
Sunnudagur
29. maf
Mánudagur
30. maí
Reagan kemur til Moskvu um kl. 14.30 og tekur Andrei
Gromyko, forseti Sovétríkjanna, á móti honum á
Vnúkova-flugvelli. Mikhaíl Gorbatsjov tekur
opinberlega á móti Reaoan f sal heilags Georas f
Kremlarhóll og munu baöir leiótogar segja nokkur orö
vió tækifærió. Ekkert er ráögert um kvöldið.
Klukkan 10.00 halda leiótogarnir fyrsta formlega fund
sinn í Katrínarsal í Kreml. Reagan snæöir svo
hádegisveró í Spaso-húsi (bústaö bandaríska
sendíherrans) og heimsækir Danílov-klaustriö aö því
loknu. Eftir það nefst annar fundur hans meö
Gorbatsjov. Síðar um daginn mun Reagan hitta
sovóska andófsmenn í Spaso-húsi. Um kvöldiö
halda Gorbatsjov-hjónin opinberan málsverö innan
Kremlarmúra.
Þriðji fundur leiðtoganna hefst klukkan 10.00 í
einkaskrifstofu Gorbatsjovs. Um hádegiö snæöir
Reaaan með sovéskum myndlistamönnum,
rithöfundum og kvikmyndagerðarmönnum f
Rithöfundahöllinni. Klukkan 16.00 heldur Reagan
ræóu f Moskvuháskóla, sem sjónvarpað veröur beint
til Bandarfkjana og Sovétríkjanna. Reagan-hjónin
bjóöa til kvoldveröar í Spaso-húsi.
uu.j.j__________Fjórði og síðasti fundur leiötoganna, en Nancy
iwieviKudagur pjeagan eyö>ir deginum f Leníngrad. Um kvöldiö sjá
’■ iunl leiötogarmr ballett-sýningu I Bolshoi og er Reagan
aö þvT loknu boöiö til einkakvöldveröar í sveitasetri
Gorbatsjovs.
Reagan-hjónin halda morgunmóttöku fyrir
Hmmtuaagur bandaríska starfsmenn f Moskvu. Kveójuathöfn er
)unl haldin f Katrfnarsal í Kreml, en aö henni lokinni fljúga
forsetahjónin áleióis til Lundúna, þar sem Reagan
mun eiga fundi með Margaret Thatcher og Elísabetu
II. Bretadrottningu.
Þriðjudagur
31. maf
Föstudagur
3. júnf
Reagan heldur ræöu um .framtíö samskipta austurs og
vesturs", hittir forsætisráöherra Japans og flýgur heim
til Washington.
á landi. Sáttmáli í þessa veru var
undirritaður við hátíðlega athöfn í
Hvíta húsinu þann 8. desember.
Langdræg kjarnorkuvopn
Á Reykjavíkurfundinum voru
einnig kynntar nýjar hugmyndir um
fækkun langdrægra kjamorku-
vopna, sem samningamenn risa-
veldanna hafa rætt linnulítið á
fundum sínum í Genf. (Þessar við-
ræður eru í daglegu tali nefndar
START-viðræður, Strategic Arms
Reduction Talks). í raun virðist
staðan í þessum viðræðum lítið
hafa breyst frá Reykjavíkur-fundin-
um. Nú líkt og þá setja Sovétmenn
það sem skilyrði fyrir slíkum samn-
ingi að jafnframt verði samið um
takmarkanir geimvama, en svo sem
alkunna er rann Reykjavíkur-fund-
urinn út í sandinn er Gorbatsjov
setti fram þessa kröfu, sem var
með öllu óaðgengileg fyrir Reagan
forseta. Lítið miðaði í samkomu-
lagsátt á Washington-fundinum
einkum vegna deilna um svonefnd
„undirmörk" eða leyfilega samsetn-
ingu kjamorkuheraflans eftir að
samið hefur verið um helmings-
fækkun langdrægra lgamorku-
vopna.
Þá er greinilegt að Sovétmenn
vilja tryggja sér ákveðið neitunar-
vald gagnvart áætlunum Banda-
ríkjamanna um tilraunir með vam-
arkerfí í geimnum. Hafa þeir lagt
til að báðir aðilar skuldbindi sig til
að virða ABM-samninginn frá árinu
1972 um takmarkanir gagneld-
flaugakerfa í tíu ár auk þess sem
hafnar verði nýjar viðrseður um
þann „vanda“ sem stafí af slíkum
vamarkerfum eftir að samið hafí
verið um helmingsfækkun lang-
drægra kjamorkuvopna. Náist ekki
samkomulag verði hvorum aðila
frjálst að fara sínu fram varðandi
ABM-samninginn og samninginn
um fækkun langdrægra kjamorku-
vopna. Þannig hafa Sovétmenn enn
á ný sett það sem skilyrði fyrir
samningum að jafnframt verði
kveðið á um takmarkanir geim-
vama þó svo orðalaginu hafí lítil-
■lega verið breytt frá því sem áður
var.
30-35 prósent fækkun
Á Reykjavíkur-fundinum náðu
þeir Reagan og Gorbatsjov um það
samkomulagi að stefnt skyldi að
því að fækka kjarnaoddum í lang-
drægum kjamorkuvopnum þannig
að þeir yrðu ekki fleiri en 6.000
hjá hvom risaveldinu um sig. Áður
höfðu samningamenn orðið ásáttir
um að fækka burðartækjum (þ.e.
landeldflaugum, kafbátaeldflaug-
um og sprengjuflugvélum) í 1.600.
Vert er að benda á að samkomulag
hefur einnig náðst um talningar-
reglur að því marki að telja beri
sprengjuflugvél búna svoköliuðum
„SRAM-flugskeytum“ (Short
Range Attack Missile) og/eða fall-
sprengjum með kjamorkuhleðslum
sem einn kjamaodd. í raun merkir
þetta að heildarfjöldi leyfilegra
kjarnaodda verður hærri en 6.000
þar sem ein sprengjuflugvél gæti
borið allt að 24 „SRAM-flugskeyti“.
Á Washington-ftindinum urðu risa-
veldin einnig ásátt um að stýri-
flaugar búnar kjamorkuhleðslum í
skipum og kafbátum skyldu ekki
taldar með i leyfílegum hámarks-
fjölda kjamaodda ef samið yrði um
takmarkanir þessa hluta heraflans.
Þetta þýðir að leyfílegir kjamaodd-
ar í vopnabúmm risaveldanna yrðu
að líkindum 8-9.000. Risaveldin
munu nú hvort um sig eiga 11-
12.000 kjamaodda þannig að yrði ■
gengið til samninga um helmings
fækkun langdrægra kjamorku-
vopna þýddi slíkur sáttmáli í raun
30-35 prósent fækkun!
Samsetning
kjarnorkuheraflans
Tillögur risaveldanna í viðræðum
um fækkun langdrægra kjamorku-
vopna taka eðlilega fyrst og fremst
mið af hagsmunum þeirra sjálfra.
Þær sýna ljóslega mismunandi sam-
setningu kjamorkuheraflans og þá
ólíku herstjómar- eða vamarstefnu
sem að baki býr. Þannig leggja
Bandaríkjamenn ríka áherslu á að
fá Sovétmenn til að fækka landeld-
flaugum sínum en Sovétmenn vilja
hins vegar fyrst og fremst setja
skorður við fjölda kjarnaodda í kaf-
bátum en á því sviði njóta Banda-
ríkjamenn yfírburða. Þá er Sovét-
mönnum einnig umhugað um að
ná fram verulegum takmörkunum
á fjölda langdrægra stýriflauga um
borð í skipum og kafbátum og hafa
þeir hingað til talið að semja beri
bæði um þær flaugar sem geyma
hefðbundnar sprengjuhleðslur sem
og þær sem búnar eru kjamaodd-
um. Bandaríkjamenn hafa lýst sig
reiðubúna til að semja um takmark-
anir þessara vopna ef unnt er að
ná fram samkomulagi um frám-
kvæmd eftirlits en leggjast á hinn
bóginn gegn því að það taki einnig
til flauga með hefðbundnum
sprengjuhleðslum.
Annað mjög mikilvægt atriði sem
enn er óleyst varðar hreyfanlegar
landeldflaugar og hugsanleg vopn
gegn þeim. Sovétmenn ráða nú yfír
tveimur gerðum slíkra flauga; SS-
25 sem ber einn kjamaodd og SS-
24 sem ber tíu slíka og er án nokk-
urs vafa ógnvænlegasta gereyðing-
arvopn sem smíðað hefur verið.
Bandarflqamenn eiga á hinn bóginn
enn ekki hreyfanlega langdræga
kjamorkueldflaug en lögð hafa ver-
ið drög að því að flaugum af gerð-
inni MX, sem geta borið tíu kjama-
odda, verði komið fyrir á færanleg-
um skotpöllum. Því þarf ekki að
koma á óvart að Bandaríkjamenn
hafa lagt til að hreyfanlegar land-
eldflaugar verði bannaðar með öllu
nema sýnt verði fram á að eftirlit
með fækkun þeirra sé í raun fram-
kvæmanlegt. Sovétmenn hafa ekki
viljað ljá máls á því að slíkar eld-
flaugar verði gerðar útlægar.
Almennt er litið svo á að nánast
sé útilokað að eyðileggja hreyfan-
legar landeldflaugar við upphaf
kjamorkuátaka. Að öllum líkindum
yrði svonefndum „torséðum
sprengjuþotum" (sem á ensku nefn-
ast „Stealth") beitt gegn hreyfan-
legum landeldflaugum Sovétmanna
en þessar þotur eiga að geta kom-
ist óséðar inn á yfírráðasvæði óvin-
arins þar sem þær munu ekki koma
fram á ratsjám. Bandaríkjamenn
ráðgera að koma sér upp rúmlega
130 þotum þessarar gerðar og yrði
hlutverk þeirra m.a. það að leita
uppi hreyfanlegar eldflaugar Sovét-
manna og granda þeim með fall-
sprengjum búnum kjamorkuhleðsl-
um við upphaf kjamorkuátaka.
Stýriflaugar í flugvélum
Loks má nefna að risaveldin eru
á algjörlega öndverðum meiði hvað
varðar fækkun stýriflauga í flugvél-
um auk þess sem mikið ber á milli
í umræðum um talningarreglur.
Þannig hafa Bandaríkjamenn lagt
til að íjöldi flauga, sem draga iengra
en 1.500 kílómetra, verði takmark-
aður en Sovétmenn vilja binda
drægni þeirra við 600 kílómetra.
Samningamenn Bandaríkjastjómar
hafa lagt til að talningarreglan
verði sú að miðað verði við sex
flaugar í hverri sprengjuþotu. Sov-
étmenn vilja hins vegar að miðað
verði við þann fjölda sem hver gerð
sprengjuþotna getur borið og yrði
þá að jafnaði gert ráð fyrir 20 flaug-
um í hverri þotu. Þama ber gífur-
lega mikið á milli sem sést best á
því að verði t.d. gert ráð fyrir 900
stýriflaugum um borð í herþotum
mættu Bandaríkjamenn hafa til-
tækar 150 sprengjuþotur yrði mið--
að við þeirra talningarreglu. Sov-
éska talningarreglan kvæði hins
vegar á um að þotur þessar mættu
ekki vera fleiri en 45.
Eftirlit
Næðu risaveldin samkomulagi
um þau flóknu deiluefni sem hér
hafa verið tíunduð ætti enn eftir
að semja um framkvæmd eftirlits.
Menn eru almennt sammála um að
gildi Washington-sáttmálans um
upprætingu meðal- og skamm-
drægra kjamorkueldflauga á landi
felist ekki síst í skýrum og afdrátt-
arlausum eftirlitsákvæðum hans.
Var það áberandi eftir fundinn í
Washington að menh töldu að þau
ákvæði gætu verið mikilvægur
vegvísir í viðræðum um fram-
kvæmd eftirlits með fækkun lang-
drægra kjamorkuvopna. Þess ber
að gæta að Washington-samningur-
inn kveður á um algera útrýmingu
tiltekinna vopnakerfa en í viðræð-
um um langdrægu vopnin er ein-
ungis verið að tala um fækkun
þeirra. Á þessu tvennu er regin-
munur því eftirlit er sýnilega mun
auðveldara í framkvæmd ef samið
er um algera upprætingu tiltekinna
eldflauga. Einmitt þetta réð afstöðu
Atlantshafsbandalagsins eins og
kom greinilega fram á fundi ut-
anríkisráðherra aðildarríkjanna í
júní á síðasta ári.
í umræðum um framkvæmd eft-
irlits með Washington-sáttmálan-
um á Bandaríkjaþingi hefur komið
fram að bandaríska leyniþjónustan
telur sig ráða yfír nauðsynlegum
tækjabúnaði til að haida uppi full-
nægjandi eftirliti. Hins vegar hafa
bandarískir sérfræðingar sagt að
þróa þyrfti nýjan og fullkomnari
búnað til að halda uppi eftirliti í
samræmi við samkomulag um
fækkun langdrægra kjamorku-
vopna. Þótt tillögur um fram-
kvæmdaatriði hafí eftir því sem
best er vitað ekki verið lagðar fram
mun vera gert ráð fyrir eftirliti á
staðnum líkt og í Washington-
samningnum en bersýnilega verður
mun erfíðara að skjalfesta fram-
kvæmd þess þar sem hér er um
gerólíkan vopnabúnað að ræða í
flestu tilliti.
Tvíhliða samskipti
Gera má ráð fyrir því að á
Moskvu-fundinum verði gerðir
smærri samningar sem fyrst og
fremst verða til þess fallnir að auka
traust í samskiptum risaveldanna.
Að líkindum verður undirritað skjal
sem skuldbindur basði ríkin til að
skýra frá eldflaugaskotum í til-
raunaskyni yfír landi með ákveðn-
um fyrirvara. Þá er hugsanlegt að
gengið verði frá samkomulagi um
eftirlit með friðsamlegum kjam-
orkutilraunum neðanjarðar. Raunar
gerðu risaveldin með sér sáttmála
í þessa veru í maímánuði árið 1976
en hann hlaut ekki staðfestingu
öldungadeildar Bandaríkjaþings líkt
og samningurinn um takmarkanir
kjamorkutilrauna neðanjarðar, sem
gerður var tveimur ámm áður. Loks
bendir margt til þess að undirritað
verði plagg þar sem tíundaður verði
sá árangur sem hingað til hefur
náðst í viðræðum um fækkun lang-
drægra kjamorkuvopna. Banda-
rískir embættismenn hafa hingað
til verið tregir til að skjalfesta það
sem áunnist hefur en eftir því sem
næst verður komist hafa þeir nú
fallist á þessa kröfu Sovétmanna.
Sjá næstu siðu.