Morgunblaðið - 29.05.1988, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 29.05.1988, Qupperneq 16
16 B MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR. 29- MAÍ 1988 FERÐALANGARNIR Ingvar bflvirki og Hafþór leiðangursstjóri. Jón kvikmyndastjóri og Bruce flugstjóri. Guðmundur bílstjóri. Páll og Þórarinn kvikmyndagerðarmenn. Arni ljósmyndari. urðum loks að láta undan þeim kröfum, þegar hann gat sannað, að ekki væru aðrir Vestmanneying- ar í hópnum. Græjurnar Við höfðum sett markið á föstu- daginn 11. september. Þá skyldu bflamir fullfrágengnir og tilbúnir til brottfarar. Það skýtur skökku við, að þjóð- flokkurinn, sem fyrstur fékk til umráða akfæran veg á íslandi, skuli þjást öðrum fremur af jeppaáráttu. Það verður ekki iitið fram hjá Suð- umesjunum, þegar finna skal hent- uga jeppa til að aka öfuga leið yfir ísland. Tveir bflanna komu því það- an, aðrir tveir komu úr Reykjavík og einn frá Egilsstöðum. Samtals fimm bflar af' gerðunum Nissan Patrol og Toyota Landkrúser og Hælúx. Þetta vom vel búnir bflar, upp- hækkaðir með spilum, dísilvélum, flestum hugsanlegum gerðum tal- stöðva og ýmist giænýir eða svo dekraðir, að ekki þurfti neinar stór- breytingar á þeim. Þó þurfti að taka undan þeim inniskóna og setja Snæfellsnes. Flugvélin var því rifin í sundur í snatri í flugskýlinu í Mosfellssveit og sett á toppinn áður en haldið var vestur. Ekki bytjaði það glæsilega. Eins og nafnið gefur tii kynna er Öndverðames eins vestarlega á Snæfellsnesi og landið nær. Þangað liggur troðningur að gulum leiftr- andi vita. Nesið tók á móti okkur með ágripi af íslenskri veðurfræði, roki, kulda og rigningarúða frá hafinu. Við tókum stefnuna 88 gráður i austur og lögðum af stað. Því aust- ar, sem leið okkar lá, þeim mun greinilegri voru ótíðindin. Veturinn hafði haldið innreið sína strax fyrstu nóttina og málað fjöllin hvít. „Reynið ekki að gera áætlanir, það er ekki hægt á hálendinu," var sennilega besta heilræðið, sem við fengum í nestið. Það getur haustað á vorin og vorað á haustin. í fyrra hafði sumarið enst fram í nóvem- ber, nú var veturinn skollinn á 15. september. Ef snjóað hefði á jöklin- um væm bflamir allt of þungir. Vorum við of seint á ferðinni, voru áætlanir okkar vonlausar? Utlitið var ekki gott Þótt enn væri miður september var náttúran orðin vetrarleg þegar komið var upp úr byggð. f Martine landfræðingur. Gunnar bQstjóri. Bára bústýra. Siguijón bílstjóri. Selskapsmærin Valkyija. í staðinn dekk af stærðinni frá 33 til 40 tommur. Það þurfti að koma fyrir síma og skiptiborði í samræmi við tíðarandann og smíða sterkar grindur fyrir flugvélina ef svo skyldi fara, að henni þyrfti að kippa á toppinn. Fjaðrabúnaður var styrkt- ur, áttavitar og lóranstaðsetningar- tæki stillt og flugradíó keypt svo hægt yrði að hafa samband við von Richthofen. Sá siðastnefndi var í óðaönn alveg fram á síðustu mínútu að bæta við eldsneytisgeymum á fisið, rífa mótorinn í sundur og setja hann saman aftur og koma fyrir Gufunesstöð, svona ef allt annað skyldi bregðast. Lokaátakið var að kaupa eða snikja fatnað á mannskapinn, vara- hluti, mat, sem dygði til jóla og eldsneyti, sem komið var fyrir á Hveravöllum og í Nýjadal. Það fór helgi í þennan lokaundir- búning og því var það ekki fyrr en mánudaginn 14. september, sem við lögðum af stað vel útbúin og sennilega allt of vel útbúin með allt frá björgunarvestum til blysa og með kortabækur, 100 metra kaðal, linubyssu og logsuðutæki, planka og drullutjakka. En maður veit jú aldrei. Það haustaði snemma í vor Það var þungbúið, þegar við héld- um upp, það þungbúið, að Bruce von Richthofen taldi óráðlegt að leggja fljúgandi af stað vestur á Við lögðum á ráðin í heita pottin- um á Húsafelli um kvöldið. Það yrði að létta bflana, að minnsta kosti að losa þá við flugvélina. Um nóttina var henni því raðað saman á ný. Veður hafði ekkert breyst um morguninn, milli skúra gátum við þó reynt flugvélina og komið henni í loftið. Hún var tilbúin, en við ákváðum að biða til næsta dags í von um að aðstæður skánuðu til ferðar yfir Langjökul. Á föstudagsmorgni eru aðstæður ekki betri, en tíminn leyfir ekki lengri bið. Við verðum að leggja af stað upp Kaldadal í snjóhvítri þoku. Hafþór er fremstur. Þegar hann hefur lagt að baki brú, sem verður á vegi okkar, týnir hann veginum, bfllinn hallast, skellur á hliðina og síðan á toppinn. Þakið leggst saman og húddið einnig, loft- netaskógurinn kubbast f sundur og Hafþór skríður út með brotna öxl. Bfllinn er greinilega stórskemmdur og ég kemst að þeirri niðurstöðu í þokunni, að leiðangrinum sé lokið. Ég kynni sárþjáðum leiðangurs- stjóranum þessa skoðun mína. Hann var að ljúka við að velta fyr- ir sér bflnum í orðsins fyllstu merk- ingu, samt lítur hann á mig furðu lostinn. En áður en hann nær að svara mér, sviptir Langjökuii af sér þokunni. Það er brostið á snarvit- laust sólskin. Textí: Jón Björgvinsson Myndir: Ámi Sæberg

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.