Morgunblaðið - 29.05.1988, Síða 18

Morgunblaðið - 29.05.1988, Síða 18
18 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. MAÍ 1988 TOM SELLECK Erfitt hlutskipti að vera kyntákn,, Selleck ásamt meðleikurum sínum í Magn- um P.I., þeim Larry Manetti og Roger Mos- ley. Stór, dökkhærður og bangsaleg- ur bandarískur leikari með mik- ið yfirvaraskegg." Eitthvað á þessa leið er Tom Selleck lýst í einu upp- flettiritinu um kvikmyndaieikara, og þykir mörgum lýsingin eiga nokkuð vei við. Tom Selleck hefur stundum verið kallaður „hinn nýi Clark Gable Hoilywood", og víst er að hin tlu þúsund aðdáendabréf, sem hann fær í viku hverri, undirstrika vel þær vinsældir sem hann nýtur á meðal almennings. Hann var eit sinn kos- inn kynþokkafyllsti karimaður í heimi, og fyrir leik sinn í sjónvarps- þáttunum „Magnum P.I.“ fær hann meira en tvö hundruð milljónir króna á ári hveiju. Hann hefur einnig leik- ið fáein hlutverk harðjaxla í kvik- myndum sem notið hafa nokkurra vinsælda, en mestrar hylli á þeim vettvangi hefur hann samt notið fyrir leik sinn í kvikmyndinni „Þrír 'menn og bam“, sem sýnd hefúr verið hér á landi við geysimikla aðsókn. í raunveruleikanum er Tom Selleck frekar þögull, hæverskur og ja&vel feiminn maður. Hann á stundum erfítt með að koma fyrir sig orði, en tjáir sig þó á fágaðan og sannfærandi hátt. „Ég hef aldrei verið mikið fyrir að láta á mér bera,“ viðurkennir Tom Selleck, „Og það er erfitt hlut- skipti að vera talinn kyntákn. Þegar aðdáendumir þyrpast að, þá reyni ég alltaf að leita að nálægustu und- ankomuleið." Selleck er fæddur 29. janúar 1945 í Detroit. Hann er sonur fasteigna- ’sala, og ólst að mestu leyti upp í Los Angeles, þar sem hann ieitaði eftir frama sem hafnaboltaleikari, en fékk skólastyrk við háskólann í S- Kalifomíu fyrir getu sína í körfu- knattleik. Ekki sóttist honum námið við háskólann vel, og hætti hann fljótlega og fór að reyna fyrir sér sem fyrirsæta í sjónvarpi, en leiklist- arferil sinn hóf hann með því að leika í sjónvarpsauglýsingum. Hann komst síðan á samning hjá kvik- myndaveri, og fékk nokkur minni- háttar hlutverk í fyrstu. Það var ekki fyrr en eftir að hann hafði leikið í sjónvarpsmynd með James Gamer, að raunverulegur ferill hans hófst. Farið var að gera sérstaka sjónvarpsþætti um persón- una sem hann lék í þessari mynd, en það var einmitt einkalögreglan Magnum. Samstundis nutu þættim- ir geysiiegra vinsælda, og Tom Selleck varð stjama á einni nóttu. Til þess að vinna að þáttunum, sem nú hafa verið framleiddir í átta ár samfleytt, þá varð Selleck að hafna aðalhlutverkinu í „Leitinni að týndu örkinni", ásamt aðalhlutverkum í ýmsum öðmm kvikmyndum. Hann lék þó í þremur kvikmjmdum, þegar því varð við komið vegna sjónvarps- þáttanna, en engin þeirra náði þó verulegum vinsældum. Það var ekki fyrr en í Kvikmynd- inni“Þrír menn og bam“, sem það kom greinilega í ljós að hann hafði alla þá hæfíleika sem þarf til að prýða stjömu á breiðtjaldinu. „Ég held að þetta hafí verið mitt besta hlutverk til þessa. Það er í rauninni ekki hægt að leika á móti smábami, heldur verður maður bara að sjá hvað skeður og bregðast síðan við því,“ segir hann. Tom Selleck á einn stjúpson frá Tom Selleck ásamt Jillie Mack eiginkonu sinni. Hér er Tom Selleck í hlut- verki sfnu í kvikmyndinni vinsælu „Þrír menn og bam“. hjónabandi sínu með leikkonunni Jacki Ray, en á einnig von á erf- ingja með núverandi eiginkonu sinni, sem heitir Jillie Mack og var dansari í söngleiknum „Cats“. Henni giftist hann á síðastliðnu ári, en þau hittust fyrst í London árið 1983. Tom Selleck er á móti eiturlyfja- neyslu og fóstureyðingum, og er mikill aðdáandi Reagans forseta. Aðal áhugamálið er hafnabolti. „Þær fáu frístundir sem ég á í einkalífinu nota ég í rólegheitum, og dunda þá helst við það að smíða húsgögn og gera upp antíkhús- gögn,“ segir kyntáknið Tom Selleck. MYNDLIST Tolli heldur einka- sýningu í Kóreu Morgunblaðið/Ámi Sœberg Þoriákur Kristinsson, myndlistamaður. of Al*p|f 809 -g-H [^i MniEWIH HHH'fsJHS «b SH.M e «. «•«■«« MVIH'WNU hhs»h».*h««*#hss »s nmiiu.HUH *** ■ ♦*! H> MH 4SM *«■ ftoe ». sooo. “*"'••• ■**•" »«wt* •*« «•*•» *■«•«■ •**«>■ 1:*." I2**1 *’,*° "*" ,a « •>i*** ■* ««• sas m* «•« ■•.•*•>» Mis ... a.i. «■• ni|. *U1HU • *•• ■• ■••■ • •■««•■■'- •a« ***•• rra. —lml imtaamm. •n HMI ■■.■•in* *****•«••>***--- “*• «»««. •nou* *• .«•«•• •*•. ‘V Umfjöllunin í kóreska dagblaðinu um væntanlega einkasýningu Tolla f Seoul. Nýlega barst Fólki í fréttum í hendur dagblað frá Seoul í S-Kóreu, og þar sem ekki fór á milli mála, að í þvi var ljósmynd af málverki eftir mjmdlistamanninn Tolla (Þorlák Kristinsson), ásamt einhverri umfjöllun um listamann- inn, þá vakti það óneitanlega for- vitni um það, hvað væri þama á seyði. Að lokinni nákvæmri textarýni með aðstoð sérfræðinga kom í ljós, að listamaðurinn er að fara að opna málverkasýningu í Seoul á hausti komanda. Að fengnum þessum upp- lýsingum þótti ærin ástæða til þess að hafa samband við Tolla sjálfan, og inna hann eftir nánari upplýsing- um um þennan viðburð. „Þetta er einkasýning sem ég held þama í miðborg Seoul, í gall- eríi sem heitir Yoon, og leggur megináherslu á að sýna framsækna nútímalist, og þá helst eftir kóreska listamenn," sagði Tolli. „Sýningin kemur til með að standa frá 14.-23. september í haust, og er búin að eiga sér langan aðdraganda, eða næstum því fjögur ár, en að baki svona nokkru liggur alltaf geysileg undirbúningsvinna. “ Aðspurður sagði Tolli, að ekki væri neitt samband á milli mál- verkasýningarinnar og ólympíuleik- anna, en setningarathöfn þeirra verður einmitt í Seoul þann 17. sept- ember. Það væri einungis tilviljun að svo hitti á, að þessa tvo merki- sviðburði bæri upp á sama tíma. Þar sem þetta er að öllum líkind- um í fyrsta skipti, sem íslensk menn- ing er kynnt í Kóreu, þá vakna spumingar um það, hvemig það hafí komið til að Tolli sýnir málverk sín þar. Ástæðuna sagði hann fyrst og fremst vera þá, að um langt skeið hafi hann haft nána samvinnu við kóreskan mjmdlistamann að nafni Bong Kyou-In, sem var samtímis honum á listaskóla í Vestur-Berlín, og hefðu skapast sambönd í Seoul fyrir hans tilstilli. Þeir félagar hafa sýnt saman víða um heim, til dæm- is í Frakklandi, Þýskalandi og víðar, en Bong Kyou-In mun halda einka- sýningu hér á landi í sumar. Sagði Tolli að kóreskir listamenn væru í nánum tengslum við fram- sækna listamenn á vesturlöndum, þar sem þeir hafá margir hveijir stundað nám þar, og áhugi fyrir framsækinni list væri talsverður í S-Kóreu, eftir því sem hann best vissi. Síðustu einkasýningu sína hélt Tolli á Sauðárkróki í mars síðast- liðnum, og er óhætt að segja að það sé stórt skref stigið frá Sauðárkróki til Seoul.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.