Morgunblaðið - 10.06.1988, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 1988
B 7
HVAÐ
ERAÐ
GERAST?
og eina í Reykjavík. Auk þess hefur hann
tekið þátt í samsýningum á Akureyri,
Húsavík og í Reykjavík. Á listkynningunni
eru 12 verk, 5 akrílverk unnin á striga og
7 teikningar með bleki á pappír. Verkin
eru öll unnin á árunum 1987 og 1988.
Kynningin er í Alþýðubankanum á Akur-
eyri Skipagötu 14og lýkur 1. júlí.
Gallerí Allrahanda
Akureyri
Gallerí Allrahanda er til húsa að Brekku-
götu 5 á Akureyri. Þar er opið á föstudög-
um eftir hádegi og á laugardögum fyrir
hádegi. Galleríið er á efri hæð og eru
þar til sýnis og sölu leirmunir, grafík,
textíl-verk, silfurmunir, myndvefnaður og
fleira.
Ferðalög
Upplýsingamiðstöð
Upplýsingamiðstöð ferðamála er með
aðsetur sitt að Ingólfsstraeti 5. Þar eru
veittar allar almennar upplýsingar um
ferðaþjónustu á (slandi. Opið er mánu-
daga tilföstudaga kl. 8.30-19.00, laugar-
daga kl. 8.30-16.00 og sunnudaga kl.
10.00-14.00. Síminn er 623045.
Útivera
Hana nú
Vikuleg laugardagsganga Frístunda-
hópsins Hana Nú í Kópavogi verður laug-
ardaginn 11. júní. Lagt veröur af stað frá
Digranesvegi 12 kl. 10.00. Markmið
göngunnarersamvera, súrefni og hreyf-
ing. Nýlagað molakaffi. Allireru velkomnir.
Útivist
Á sunnudaginn verður fyrsta dagsferð
sumarsins í Þórsmörk. Lagt verður af
stað kl. 8 og stansað í Mörkinni 3-4 klst.
Sama dag veröur 15. ferð strand-
göngunnarílandnámi Ingólfs. Kl. 10.30
verður gengiö frá Stóru-Sandvík að Há-
leyjabungu. Kl. 13.00 verðurgengiðfrá
Valahnúk að Háleyjabungu. Brottför frá
BSl, bensínsölu (í Hafnarfirði við Sjó-
minjasafnið 15 mín. síðar). Helgarferðir
eru í Þórsmörk og til Vestmannaeyja.
Ferðafélag íslands
Helgarferð til Þórsmerkur verður farin á
föstudagskvöld. Laugardaginn 11. júní
kl. 09 veröurfarin dagsferð um söguslóö-
ir Njálu. Dr. Haraldur Matthíasson rifjar
upp Njálu fyrir þátttakendur og sögustað-
ir verða heimsóttir. Tvær gönguferðir
verða sunnudaginn 12. júní, sú fyrri kl.
10 og er þá gengin gömul þjóðleið um
Leggjabrjót frá Svartagili í Þingvallasveit
í Botnsdal. Gangan tekur 6-7 klst. Kl. 13
sama dag er gengið að hæsta fossi
landsins, Blym í Votnsdal. Miðvikudaginn
15. júníersíðasta, ókeypis, kvöldferðin
í Heiðmörk og er brottför kl. 20 frá Um-
ferðarmiðstöðinni.
Viðeyjarferðir
Hafsteinn Sveinsson er með daglegar
ferðir út í Viöey og um helgar eru ferðir
allan daginn frá kl. eitt. Kirkjan í Viðey
er opin og veitingar fást í Viðeyjarnausti.
Bátsferðin kostar 200 krónur.
Hreyfing
Keila
í Keilusalnum i Öskjuhlið eru 18 brautir
undir keilu. Á sama stað er hægt að
spila billjarð og pínu-golf. Einnig er hægt
að spila golf í svokölluðum golfhermi.
Sund
í Reykjavík eru útisundlaugar í Laugar-
dal, við Hofsvallagötu og við Fjölbrauta-
skólann í Breiðholti. Einnig eru útisund-
laugar á Seltjarnarnesi, á Varmá og við
Borgarholtsbraut i Kópavogi. Innisund-
laugar á höfuðborgarsvæðinu eru við
Barónsstíg og við Herjólfsgötu í Hafnar-
firði. Opnunartima þeirra má sjá i dag-
bókinni.
Ýmislegt
Rútudagur — BSÍ
Umferðarmiðstöðin gengst fyrir Rútudegi
laugardaginn 11. júni. Þar fer fram ferða-
. -fc,
EF ÉG VÆRI ÞÚ
í tengslum vlð Llstahátfð sýnlr ÞjóðlelkhúslA á litla svlð-
Inu nýtt fslenskt verk eftir Þorvarð Helgason, Ef ág
vasri þú, f leikstjórn Andrósar Slgurvinssonar. Ef ég
v»ri þú eru sögur nokkurra kvenna sem sagðar eru f
þremur samtengdum myndum. Upphaflega var verkið
fjórlr einþáttungar frá hendi höfundar, en elnn þátturinn
er f uppsetnlngu Andrósar notaður sem forlelkur, mllli-
kaflar og eftirleikur. Þmttirnlr heita: Morgunleikfimi,
Mors et vlta, Tvftal eftlr náttmál og Geirmundur Hrafn
Karlsson. í hverjum þmtti fara tvmr leikkonur með aðal-
hlutverkln.
kynning og rútusýning og eru það um
30 aðilarsem kynna starfsemi sína. Rútu-
dagurinn hefst kl. 10og stendurtil kl.
18. Fjöldi skemmtiatriöa verða og má
þar meöal annars nefna að Jón Páll dreg-
ur rútu og Sykurmolarnir koma fram.
Bíóin í borginni
BÍÓBORGIN
Björgum rússanum ★ ★
Mynd um vináttu skipreka rússa
og þriggja, amerískra stráka, kem-
ur á hárréttum tíma þíðu í samskift-
um stórveldanna. Boðskapurinn um
vináttu og bræðralag þjóðanna er
skýr en melódramað heldur útblásið
og væmið. — ai.
Veldi sólarinnar ★ ★ ★
Framsækin og metnaðarfull, en
Spielberg kannski fullhátíðlegur á
hæstu nótunum. Konfekt fyrir aug-
að — síður eyrað — og hinn ungi
Christian Bale er eftirminnilegur í
erfiðu aðalhlutverki. Mynd fyrir
vandláta. — sv.
Sjónvarpsfréttir ★ ★ ★ '/2
Einstaklega skemmtileg og mein-
fyndin rómantísk gamanmynd um
fólk í sjónvarpsfréttum þar sem
meiru máli skiptir að velja rétt bindi
við jakkafötin en skrifa góða frétt.
Holly Hunter, William Hurt og Al-
bert Brooks fara á kostum og James
L. Brooks leikstýrir af smekkvísi,
skynsemi og hugsun sem er sannar-
lega dýrmæt í því skelþunna
skemmtanafári sem imbinn heldur
sífellt að fólki. — ai.
Fullt tungl ★ ★ ★
Töfrandi rómantísk gamanmynd frá
Norman Jewison með Cher í aðal-
hlutverkinu. Myndin fjallar um Ást-
ina með stórum staf og Cher er
ómótstæðileg. — ai.
HÁSKÓLABÍÓ
Einskis manns land ★ ★
Athyglisverður smákrimmi sem
nær sér á strik í atriðum sem sýna
kvöl þess sem finnur jörðina brenna
undir sér á einskismannslandi. Din-
tótt, endaslepp, en ber leikstjóran-
um þess glöggt vitni að hann á
eftir að gera betur. — sv.
STJÖRNUBÍÓ
Að eilífu? ★ ★
Unglingar verða foreldrar, sem
skapar bæði unglinga- og foreldra-
vandamál eins og gengur. Rokkí
og karate leikstjórinn John G.
Avildsen tekur sér frí frá hasarnum
til að Qalla um mannlegar tilfinn-
ingar og vandamál og Molly Ring-
wald stendur sig vel í óskahlut-
verki. — ai.
Dauðadansinn ★ ★ V2
Norman Mailer hefur grimmt gam-
an af að filma sína eigin skáldsögu
með Ryan O’Neal í kynlífs- og
morðmálum í þungskýaðri sveit-
inni. Sannarlega kjaftshögg á
amerískan hversdagleika. — ai.
Illur grunur ★ ★ ★
Hæggeng á köflum og rokkar á
milli drama, spennu og ástarsögu,
en kostir hennar sem spennumynd-
ar hafa vinninginn. — sv.
BÍÓHÖLLIN
Lögregluskólinn 5 ★
Lögregluskóla-myndirnar eru fyrir
krakka sem finnst það fyndið ef
einhver missir niður um sig bræk-
umar. Húmorinn er ræfilslegur og
leikurinn skrípalegur en vinsældim-
ar ótrúlegar. — ai.
Baby Boom ★ ★ ★
Ágæt siðfræði inn við beinið, þó er
eins og allir viðkomandi séu með
glýju í augum yfir bandaríska
gróðadraumnum. En ádeilan á
mannlega þáttinn nær í gegn, ekki
síst fyrir sannfærandi kraft stór-
leikkonunnar Diane Keaton, og
Sam Shepherd stendur orðið fyrir
hinn sanna bandaríska bústólpa.
— sv.
Þrír menn og barn ★ ★ ★
Þrír piparsveinar taka að sér sex
mánaða gamla stúlku í þessari
bráðskemmtilegu og indælu gam-
anmynd sem byggð er á frönsku
myndinni „Trois hommes et un
couffin". Tom Selleck er senuþjóf-
urinn. — ai.
Aftur til baka ★ V2
Döngunarlítill draugagangur þar
sem handritshöfundar koma öllu í
algjörar ógöngur. Heldur veikburða
leikhópur kann fátt til bjargar.
— sv.
Fyrir borð ★ ★ V2
Létt, brosleg en vantar sterkari
brodd. Hawn er ætíð skemmtileg á
að horfa, en mætti að ósekju vera
kröfuharðari á handritin. — sv.
Hættuleg fegurð ★ ★ ★
Formúlan gengur fimavel upp, ekki
síst fyrir tilstuðlan Whoopi Gold-
bergs sem á hér sinn langbesta
gamanleik. — sv.
Spaceballs ★ ★ ★
Mel Brooks gerir grín að stjömu-
stríðs- og öðmm geimvísindamynd-
um, framhaldsmyndum, leikfanga-
gerð og sölubrögðum í Hollywood
á sinn frábærlega geðveikislega
máta. — ai.
REGNBOGINN
Lúlú að eilífu ★ ★
Dularfullt púsluspil sem engan veg- •
inn gengur upp. Schygulla er fuil
armæðuleg í aðalhlutverki en marg-
ar uppákomurnar ganga upp og eru
skemmtilega grá- glettnar. Best
tekst kvikmyndagerðarfólkinu upp
í meinháðsku atriði þegar átómatí-
skar metsölu „skáldkonur", a la
Steel, Krantz, Collins og Co em
teknar á beinið. — sv.
Hann er stúlkan mín ★
Brendan Behan orti „því hver er
hvað og hvað er hver“ o.s.frv., en
hér em hvorki hann né Billy Wilder
á ferðinni. Lunkin hugmynd leysist
upp í geyspa. — sv.
Sumarskólinn ★ V2
Carl Reiner hefur verið skemmti-
legri og fijórri en í þessari sumar-
mynd um leikfimikennara sem verð-
ur að kenna enska málfræði á sum-
amámskeiði. Fátt fyndið en margt
kjánalegt. — ai.
Hetjur himingeimsins ★
Að slepptum hriplekum söguþræði,
síðustu mínútunum og Dolph Lund-
gren í hlutverki Garps, má hafa
gaman af Mattel-leikföngunum.
— ai.
Síðasti keisarinn ★ ★ ★ V2
Epískt stórvirki. Efnið og kvik-
myndagerðin með ólíkindum
margslungin. Síðasti keisarinn er
næsta óaðfinnanleg að allri gerð
og hefur kvikmyndaárið 1988 með
glæsibrag. — sv.
Metsölubók ★ ★
Brian Dennehy og James Woods
eru ólíkir en góðir saman í þessari
Wambaugh-legu félagamynd.
Vondi gæinn á líka að vera góði
gæinn en það gengur ekki upp í
þessu tilfelli. Victoria Tennant er
algjörlega .út á þekju. — ai.
LAUGARÁSBÍÓ
Martröð um miðjan dag ★
Einskonar nútímavestri, kryddaður
yfirgengilegu ofbeldi og gæti verið
framleiddur af Libby’s, slíkur er
tómatsósuausturinn! Útbrunnir
leikarar í engu stuði en furðu góð-
um átakaatriðum bregður fyrir.
— sv.
Aftur til L.A. ★ ★
Cheech Marin sýnir á sér glænýja
hlið vímulausra elskulegheita í þess-
ari að mörgu leyti ágætu gaman-
mynd um ólöglega innflytjendur í
Mexíkó. Marin er þokkalegur leik-
ari og það má hafa gaman af mynd-
inni hans. — ai.
Hárlakk ★ ★ V2
Óvenju háttvís Waters í dansmynd
frá sjöunda áratugnum. Eftirsjá og
meinfyndni dæmafáss kvikmynda-
gerðarmanns, sem nú verður að
líkindum farið að taka alvarlega.
— sv.