Morgunblaðið - 14.06.1988, Side 2

Morgunblaðið - 14.06.1988, Side 2
2 B fttsrgmiftlðMft /ÍÞRÓTTIR ÞRIDJUDAGUR 14. JÚNÍ 1988 Gunnar Jónsson mHÉWF FOLX ■ STEINAR Adolfsson, leik- maðurinn efnilegi hjá Val og Arnar Bjarnason, leikmaður með KA, skoruðu sín fyrstu mörk í 1. deildar- keppninni í gærkvöldi. I GUÐJON Þórðarson, þjálfari KA, klæddist búningi Akureyrar- liðsins í fyrsta skipti í gærkvöldi. Guðjón, sem kom inn á sem vara- maður rétt fyrir SigmundurÓ. leikslok gegn Völs- Steinarsson ungum, lék alls 212 tóksaman j deiidarleiki fyrir Skagamenn - síðast 1986. Guðjón lék fyrst með Skagamönnum fyrir sextán árum, 1972. ■ GUNNAR Jónsson kom Skagamönnum á bragðið gegn Víkingum. Það voru þá liðin sjö ár síðan hann skoraði síðast fyrir Skagamenn - í leik gegn Þór, 1981. Gunnar var markahæsti leik- maður Skagamanna það ár, með 7/1 mörk. I ÞAÐ má fara allt aftur til annarar umferðar 1987, til að sjá að Valsmenn hafi skorað meira en þijú mörk í leik. Þá unnu þeir stór- sigur, 7:1, yfir Keflavíkingum. ■ HLYNUR Birgirsson varð fyrstur Þórsara til að skora mark gegn Valsmönnum í Reykjavík í sjö ár. Bjarni Sveinbjömsson skoraði síðast, 1981, þegar Þórsar- ar máttu þola stórtap, 1:6. Til gam- ans má geta að Hilmar Sighvats- son, sem skoraði mark gegn Þór í gærkvöldi, skoraði einnig gegn Þór, 1981. 1 Jón Gunnar Borgs ■ JÓN Gunnar Bergs skoraði sitt fyrsta mark fyrir Val í sex ár í 1. deild, þegar hann skoraði stórglæsilegt mark gegn Þór í gærkvöldi. Jón Gunnar skoraði síðast gegn ísafirði 1982. Hann gekk síðan til liðs við Breiðablik og skoraði tvö mörk í 1. deild fyrir Biikana 1984. ■ GUNNAR Jónsson setti fímmtugasta markið í 1. deild í ár, þegar hann skoraði fyrsta mark Skagamanna gegn Vikingum. ■ SNÆVAR Hreinsson, leik- maður Völsungs, varð fjórði leik- maðurinn í 1. deild í sumar, til að vera rekinn af leikvelli. Snævar fékk einnig að sjá rauða spjaldið í fyrra, eins og þeir Pétur Péturs- son, KR, Daníel Einarsson, Keflavík og Kristján Olgeirsson, Völsungi, sem hafa fengið að sjá „rautt" í sumar. KNATTSPYRNA / ÍSLANDSMÓTIÐ 1. DEILD (SL-DEILD) Islandsmeistaramir í gang í síðari hálfleik Draumur Þórsara að vinna Val loks í Reykjavík varð að engu VALSMENN sýndu mikinn styrk, seiglu og kraft er þeir unnu ekki aðeins upp tveggja marka forskot Þórs frá því í fyrri hálfleik heldur bættu um betur og sigruðu örugglega með tveggja marka mun. Þar með gerðu Valsmenn draum Þórsara um að vinna Val í Reykjavík að engu, en Þór hef- ur aldrei unnið Val í Reykjavík frá því þeir léku fyrst í 1. deild 1978. Þórsarar voru mun betri í fyrri hálfleik, börðust vel og náðu mörgum ágætum sóknum. Sérstak- lega upp kantana þar sem vamar- ^■■■■1 menn Vals voru oft Vatur sofandi á verðinum. Jónatansson Fyrsta marktæki- skrifar færi Þórs kom á 8. mínútu er Guð- mundur Valur komst einn í gegn en skaut beint í fangið á Guðmundi markverði. Hlynur meðtvö Síðan var komið að kafla Hlyns Birgissonar. Hann kom Þór yfír á 32. mínútu er hann skoraði með viðstöðulausu skoti eftir að hafa fengið boltann út við markteig hægra megin frá Siguróla. Hann bætti síðan öðru marki við fyrir leikhlé og var það sannkallað draumamark. Hann fékk boltann rétt fyrir utan vítateig Vals lék á vamarmann og skoraði með ban- anaskoti uppundir vinkilinn hægra megin. Þess má geta að þetta eru fyrstu mörkin sem Þór nær að skora gegn Valsmönnum í Reykjavík síðan 1981. Valsntenn yflrspiluðu Þórsara í sfðari hálfleik Það var eins og annað Valslið léki síðari hálfleik. Það hreinlega yfír- spilaði Þórsara, sem virtust ekki þola mótspymuna og má segja að þeir hafi grafíð sína eigin gröf með lélegum vamarleik. Steinar Adólfsson skoraði eftir að- eins fimm mínútur sitt fyrsta mark í 1. deild. Hann fékk sendingu frá Val Valssyni inn fyrir vöm Þórs og afgreiddi boltann snyrtilega í homið fjær af stuttu færi. Hilmar Sighvatsson jafnaði fyrir Val úr vítaspymu sem dæmd var á Nóa Bjömsson er hann fékk boltann í hönd eftir skalla frá Jóni Gunnari Bergs. Valur-Þór 4 : 2 Valsvöllur, Í8land8mótið - 1. deild, mánudaginn 13. júní 1988. Mörk Vals: Steinar Adólfsson (50.), Hilmar Sighvatsson (66. v.), Ingvar Guðmund88on (72.) og Jón Gunnar Begs (88.). Mörk Þóra: Hlynur Birgisson (32. og 41. mín.). Gult spjald: Ekkert. Dómari: Guðmundur Stefán Marías- son 7. Línuverðir: Þórður Ólafsson og Sveinn Sveinsson. Áhorfendur: Fékkst ekki upp gefið. Lið Vals: Guðmundur Baldursson, Þorgrímur Þráinsson, Siguijón Kristj- ánsson, Magni Blöndal Pétursson, Jón Grétar Jónsson (Jón Gunnar Bergs vm. 61. mín.), Steinar Adólfsson, Guðni Bergsson, Hilmar Sighvatsson, Valur Valsson, (Baldur Bragason vm. 80. mín.), Ingvar Guðmundsson, Tryggvi Gunnarsson. Lið Þóre: Baldvin Guðmundsson, Birg- ir Skúlason, Nói Bjömsson, Kristján Kristjánsson (Páll Gíslason vm. 70. mín.), Einar Arason, Halldór Áskels- son, Júlíus Tryggvason, Siguróli Kristj- ánsson (Sveinn Pálsson vm. 51. mín.), ólafur Þorbergsson, Hlynur Birgisson. LEIKMAÐUR HELGARINNAR Steinar Ingimundarson „STEINAR er dæmigerður skorari, þefar uppi öll mark- tækifæri og skorar grimmt. Hann hefur staðið sig vel með Leiftri og er verðugur leik- maður helgarinnar, sagði Lár- us Loftsson, þjálfari U-16 og U-18 landsliðanna, um Stein- ar Ingimundarson. Steinar, sem er 19 ára, hóf að leika með Leiftri í 2. deild í fyrra, en lék einn leik með KR í 1. deild árið áður. í yngri flokkun- um var hann jafnan markakóngur og hann heldur uppteknum hætti Steinar Inglmundarson. með Leiftri — hefur gert öll mörk liðsins í 1. deild. „Það var sterkur leikur hjá Stein- ari að fara til Leifturs. Hann var fastamaður i landsliðinu skipað leikmönnum 16 ára og yngri, en síðan kom lægð og því þurfti hann að fara til annars félags til að rífa sig upp, sem hann hefur nú gert. Eg hef mikla trú á Steinari. Hann hefur öðlast mikla reynslu með Leiftri, vill standa sig og á örugg- lega eftir að koma inn í tuttugu og eins árs landsliðið fyrr en seinna," sagði Lárus. Morgunblaðid/Július í Ieiknum í gærkvöldi. Það Birgir Skúlason, hinn eitilharði vamarmaður Þórs, Tryggvl Gunnarsson með knöttinn sem sækir að honum. Ingvar Guðmundsson kom Vals- mönnum yfír með marki frá víta- teig eftir að boltinn hafí borist út til hans úr þvögu við Þórsmarkið. Jón Gunnar Bergs gerði svo útslag- ið er hann skoraði stórglæsilegt mark rétt fyrir leikslok. Hann fékk sendingu frá Siguijóni frá hægri inn í vítateiginn tók boltann snyrtilega niður, snéri sér við og þrumaði efst í homið fjær. Sannarlega góður endir á góðum hálfleik íslands- meistaranna. „Þetta var kaflaskiptur leikur. Fyrri hálfleikur var mjög slakur að okkar hálfu, leikmenn vora sofandi og Þórsarar nýttu sér það. Síðari hálf- leikur var allur annar og er ég mjög ánægður með hann. Ef við leikum næstu leiki eins og í síðari hálfleik óttast ég ekki úrslitin," sagði Hörður Heigason, þjálfari Vals. „Við misstum tökin á þessu í seinni hálfeik. Fengum á okkur tvö klaufa- mörk strax í byijun og náðum ekki að vinna okkur út úr því. En við eram alls ekki búnir að segja okkar síðasta, við fengum ekki nema þijú stig úr fyrstu fjóram leikjunum í fyrra og þetta getur ekki farið nema upp á við úr þessu,“ sagði Nói Bjömsson, fyrirliði Þórs. P Steinar Adólfsson, Val, Hilm- ar Sighvatsson, Val, Ingvar Guðmundsson, Val, Jón Gunnar Bergs, Val, Hlynur Birgisson, Þór, Birgir Skúla- son, Þór.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.