Morgunblaðið - 14.06.1988, Side 7
jBorsnnÞfatiia /ÍÞRÓTTtR ÞRWJUDAGUR 14. JÚNÍ 1988
B 7
Ruud Gullit.
Gullit
dýrasti
knatt-
spymu
maður
Evrópu
HOLLENDINGURINN Ruud
Gullit, sem leikur með AC
Mflanó, er talinn dýrasti
knattspyrnumaðurinn, sem
tekur þátt í Evrópukeppni
landsliðs í V-Þýskalandi.
Hann er metinn á 560 millj.
ísl. króna.
Spánveijinn Emilio
Butragueno, sem leikur
með Real Madrid, er næstur á
blaði - þessi 24 ára sóknarleik-
maður, er metinn á 459 millj.
kr. ftalinn Gianiuca Viaili, sem
leikur með Sampdoría, er metinn
á 439 millj. kr.
Þetta kemur fram í Sport-Bild.
í grein sem ítalinn Antonio Cali-
endo, sem hefur mjög góð sam-
bönd hjá ítölskum félögum,
skrifar.
Spánveijinn Michel, sem skrif-
aði undir nýjan átta ára samning
við Real Madrid, sama dag og
Spánveijar unnu Dani, er í
fímmta sæti á listanum yfir tutt-
ugu dýrustu knattspymumenn-
ina. Hann er metinn á 304 millj.
kr. í fimmta sæti kemur Ronald
Koeman, vamarleikmaðurinn
skotfasti hjá Eindhoven, sem er
metinn á 304 millj. kr. Félagi
hans Gerald Vanenburg er
metinn á 189 millj. kr., eins og
Olaf Thon, Bayem Munchen
og Sovétmennirnir Sawarow,
Protassow og Belanow, sem
leika allir með Dynamo Kiev.
Jttrgen Klinsmann hjá Stuttg-
art, er metinn á 162 millj. kr.
Gary Lineker, Barceiona,
JUrgen Kohler, Köln, Johnny
Bosman, Meeelen, Marco van
Basten, AC Mílanó og Woif-
gang Rolff, Leverkusen, eru
metnir á 141 millj. kr.
John Bames, Liverpool, er
metinn á 117 millj. kr. og þá
koma Winter, Ajax og danski
leikmaðurinn Flemming Povls-
en, Köln, sem em metnir á 94
millj. kr. í tuttugusta sæti kem-
ur Irinn David Kelly, Walsall,
sem er metinn á 67 millj. kr.
WM
Reuter
Rasmussen varði
vítaspyrnu og fékk
svo á sig klaufamark
Spánverjar skoruðu mjög umdeilt rangstöðumark
stemmningin er ekki eins mikil og
áður. Sören Lerby, Michael Laud-
rup, Morten Olsen og Preben Elkjær
Larsen leika ekki eins vel og þeir
gerðu í Evrópukeppninni í Frakkl-
andi og heimsmeistarakeppninni í
Mexikó," sagði Ottó Rehhagel,
þjálfari v-þýska meistaraliðsins
Werder Bremen.
Munoz ánægður
„Við lékum vel gegn Dönum," sagði
Miguel Munoz, þjálfari Spánverja,
sem var mjög ánægður með leikinn.
Þegar hann var spurður um rang-
stöðumark Butragueno, sagði hann:
„Ég sá ekki að hann hafi verið rang-
stæður. Þið verðið að spyija línu-
vörðinn. Markið var gullfallegt.“
„Erum ekki með eins gott líð
ogáðuri*
„Þegar ég sá atvikið í sjónvarpinu,
þá sá ég að Butragueno var allt
að tveimur metrum fyrir innan vöm
okkar þegar hann fékk knöttinn.
Hann var rangstæður. Það eru
dómarinn og línuverðimir sem
dæma. Við tökum þessu mótlæti
eins og sannir íþróttamenn. Við
getum ekki breytt dómum eftir á,“
sagði Sepp Piontek, þjálfari danska
landsliðsins, sem var ekki ánægður
eftir leikinn. „Leikmenn mínir léku
ekki eins og ég óskaði eftir fyrir
leikinn. Þeir voru ekki nægilega
klókir. Við vorum með leikinn í
okkar höndum fyrstu tuttugu mín.,
en féllum einu sinni ofan í gömlu
í gryfjuna - sofnuðum á verðinum
í sóknarákafanum og Spánveijar
bmnuðu fram í skyndisókn og skor-
uðu mark í sinni fyrstu sókn. Ég
er ósáttur við úrslitin. Það hjálpar
ekkert að segja að leikurinn hefði
átt að enda með jafntefli.
Við verðum að horfa í augu við það
að við erum ekki með eins gott lið
núna og við vorum með í Mexikó
fyrir tveimur árum og í Evrópu-
keppninn í Frakklandi fyrir fjórum
árurn," sagði Sepp Piontek.
Markið
umdeilda
Emilio Butragueno
sést hér senda
knöttinn fram hjá
Throel Rasmussen,
markverði Dana.
Butragueno var
greinilega rang-
stæður þegar hann
fékk knöttinn.
„Verðum með í baráttunni"
Frank Stapleton, fýrirliði Irlands, var fjallhress eftir sigurleikinn
gegn Englandi. „Við verðum með í baráttunni um Evrópumeistar-
attitlinn. Fyrir EM voru við ekki nefndir á nafn þegar rætt var um
þá sem væru sigurstranglegastir," sagði Stapleton, sem á við meiðsli
að stríða á læri.
írar leika gegn Sovétmönnum á morgun. „Við erum bjartsýnir fyrir
leikinnm, því að við höfum náð góðum árangri gegn liðum frá Austan-
tjaldslöndunum," sagði Stapleton.
Throel Rasmussen.
Reuler
Knötturinn sést hér fara yfir Rasmussen og í netið, eftir aukaspymu Rafael
Gordillo.
Spán veijar skoraðu úr fyrstu
sókn sinni
Spánveijar skoruðu sitt fyrsta mark
eftir aðeins fimm mín. Morten
Olsen, fyrirliði danska landsliðsins,
var þá of seinn að fara fram, þann-
ig að ekki tókst að veiða Michel í
rangstöðugildru. Hann komst einn
inn fyrir vöm danska liðsins og
sendi knöttinn til Ricardo Gallego,
sem renndi knettinum síðan aftur
til Michel, sem skoraði - 1:Ö.
Michael Laudrup svaraði síðan fvrir
Dani með þrumuskoti, eftir að hafa
leikið vamarmenn spánska liðsins
grátt. Á 35. mín. var dæmd víta-
spyrna á John Sivenbæk, sem felldi
Michel. Það var Michel sjálfur sem
tók vítaspymuna. Honum brást
bogalistin og Rasmussen varði.
Butragueno skoraði síðan annað
mark Spánveija á 53. mín. Hann
var á auðum sjó langt fyrir innan
vöm danska liðsins og átti auðvelt
með að skora. Gordillo setti þriðja
markið, 3:1, með fallegu skoti úr
aukaspyrnu, Undir lokin náðu Dan-
ir að minnka muninn í, 2:3. Flemm-
ing Povlsen skallaði knöttinn glæsi-
lega í netið - knötturinn fór á
stöngina, efst upp í markhominu á
marki Spánveija og þaðan í netið.
Danir gerðu síðan harða hríð að
marki Spánvetja, en án árangurs.
TROEL Rasmussen, mark-
vörður danska landsliðsins, var
í sviðsljósinu í Diisseldorf, þar
sem Danir máttu þola tap, 2:3,
fyrir Spánverjum. Rasmussen
byrjaði vel og varði vítaspyrnu
frá Michel, en síðan fékk hann
mjög klaufalegt mark á sig.
Hann stóð út í miðjum mark-
teig og mátti horfa á eftir knett-
inum fara yfir sig, eftir auka-
spyrnu Rafael Gordillo, sem
sendi knöttinn með „banana-
skoti" af 30 m færi - yfir
danska varnarmúrinn og yfir
Rasmussen. Knötturinn hafn-
aði rétt fyrir neðan þverslánna.
Danir vom ekki sáttir við annað
markið sem Spánveijar skor-
uðu, en Emilio Butragueno var
rangstæður þegar hann fékk knött-
inn og skoraði. „Spánveijar unnu
sanngjaman sigur, þrátt fyrir að
þeir skomðu rangstöðumark, 2:1,
og einnig mjög ódýrt mark, 3:1.
Danska landsliðið er ekki það sama
og áður - baráttuandinn og
Spánn - Danmörk
3 : 2
Evrópukeppni landsliða í knattspymu.
Hannover 11. júnl 1988.
Mörk Spánveija: Michel (5 mín.),
Emilio Butragueno (53.) og Rafael
Gordillo (67.).
Mörk Dana: Michael Laudrup (25.)
og Flemming Povlsen (84.).
Dómari: Albert Thomas, Hollandi.
Gul spjöld: Tomas og Camacho, Spáni.
Áhorfendur: 60.000.
Spánn: Ándoni Zubizarreta, Tomas,
Manucl Sanchis, Genar Andrinua, Jose
Antonio Camacho (Miguel Soler 46.
mín.), Ricardo Gallego, Victor, Michel,
Rafael Gordillo (Martin Vazquez 87.
mín.), Emilio Butragueno og Jose
María Bakero.
Danmörk: Troels Rasmussen, Sören
Busk, Marten Olsen (Lars Olsen 66.
mín.), Ivan Nielsen, John Sivebæk,
John Helt (John Jansen 46. mín.), Jan
Heintze, Sören Lerby, Michael Laudr-
up, Preben Elkjær Larsen og Flemming
Povlsen.