Morgunblaðið - 14.06.1988, Side 8

Morgunblaðið - 14.06.1988, Side 8
8 B DterginfiMftfófe /ÍÞRÓTTIR ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 1988 F V ■ SOVÉSKI leikmaðurinn Gennadi Litowschenko getur ekki leikið með sovéska liðinu gegn Irlandi, þar sem hann fékk að sjá sitt annað gula spjald í EM í leikn- um gegn Hollandi. Fjórðir aðrir leikmenn sovéska liðsins fara í leikbann, ef þeir fá gult spjald i EM. Það eru þeir Vassilji Rats, Sergej Alejnikow, Oleg Kuznetsow og Alexander Micliailitschenko. Nokkrir leikmenn annara landsliða voru einnig með gult spjald í poka- horninu, þegar þeir komu til V- Þýskalands. Það eru: Gianluca Vialli, Ciro Ferrara og Alessandro Altobelli, Italíu, Niall Quinn og John Aldridge, Irlandi og John Bosmann, Hollandi. ■ SÖREN Lerby hefur sagt nei við ítölsk félög, sem hafa óskað eftir að hann kæmi til þeirra. Eitt félagið er Róma. Lerby segist vera ánægður hjá Eindhoven í Hollandi og hann vilji ekki leggja það á eigin- konu sína og tvo syni að fara að flytja aftur. Lerby lék með Bayern Miinchen og Mónaók áður en hann fór til Eindhoven. ■ FRANZ Beckenbauer ætlar að láta Rudi Völler, framherja v-þýzka landsliðsins, vera í byijun- arliðinu gegn Dönum, í dag þrátt fyrir slaka frammistöðu gegn Itölum. Völler hefur ekki náð að sýna sitt rétta andlit eftir að hann fór frá Werder Bremen til ítalska liðsins Róma síðasta haust. ■ MATTHIAS Herget, , vam- armaðurinn v-þýzki, er ekki í náð- inni hjá Franz Beckenbauer eftir leikinn gegn Itölum. Beckenbauer sagði, að mistök eins og Herget hefði sýnt þegar ítölum tókst að skora, ættu ekki að eiga sér stað hjá svo leikreyndum manni. Reynd- ar sagði hann um liðið í heild, að það þyrfti greinilega að læra nokk- ur undirstöðuatriði í varnartækni. ■ ÍRAR unnu ekki einungis sig- ur á Englendingum á Neckar- leikvanginum í Stuttgart á sunnu- daginn. Að morgni leikdagsins mættust í knattspymuleik blaða- menn þeir, frá löndunum tveimur, sem staddir em í V-Þýskalandi til að fylgjast með liðum sínum, á æfingavelli VfB Stuttgart við hlið Neckar-leikvangsins. Þeir írsku, með Bob Hennessy fréttamann Morgunblaðsins í Englandi, í farar- broddi (!) sigruðu þá ensku 2:1. „Ég náði að vísu ekki að skora, en við unnum. Það skipti mestu,“ sagði Bob á sunnudaginn. Trevor Bro- oking, fyrrum leikmaður West Ham og enska landsliðsins, sem nú starfar sem sjónvarpsþulur, skoraði mark enska liðsins. I SOVÉSKA landsliðið dvelur á sama stað allan tímann sem Evr- ópukeppnin í V-Þýskalandi stend- ur yfir. Liðið dvelur í Nellingen- Ruit íþróttaskólanum í útjaðri Stuttgart og er ástæðan sú, að sögn Valery Lobanovsky, þjálfara liðsins að undanúrslitin fara fram í borginni. Sovéska liðið er það eina, af þeim átta í keppninni, sem ekki ferðast um og dvelur í þeim borgum sem leikið er í hverju sinni heldur ferðast til og frá leikstað. A sunnudaginn fór liðið frá Stuttgart til Kölnar, það mætir því írska í Hannover og því enska í Frank- furt. ■ NIKITA Simonian er örygg- isfulltrúi landsliðs Sovétmanna á keppninni. Hann er fyrrum marka: kóngur í liði Spartak Moskvu. í kringum íþróttaskólann, sem liðið dvelur í, er há girðing og fjöldi vestur-þýskra öryggislögreglu- manna fyrir utan. A föstudaginn var Simonian spurður á blaða- mannafundí, hvort leikmennirnir gætu farið eitthvað út fyrir íþrótta- svæðið. „Já, þeir geta það ... en þeim er ekki leyft það.“ ROPUKEPPNI m LANDSLIÐA 1988 SOVÉTMENN geta þakkað markverði sínum, Rinat Dassajev, fyrir sigurinn á Hollendingum íB-riðli Evrópu- keppninnar. Hollendingar sóttu mun meira, en flestar sóknir þeirra strönduðu á so- véska markverðinum. í upphafi síðari hálfleiks tókst svo Sovét- mönnum að skora, úr skyndi- sókn, og markið réði úrslitum. Þessi lið eru talin með þeim skemmtilegustu í keppninni og var búist við góðum leik. En Hollendingar tóku leikinn strax í sínar hendur og langtímum saman máttu Sovétmenn gera sér það að góðu að veijast þungum sóknum Hollendinga sem voru dyggilega studdir af 40.000 stuðningsmönn- um. Hollendingar fengu þó ekki mörg færi í fyrri hálfleik. Dassajev varði vel skot frá Ronald Kóeman af löngu færi og hann sá einnig við Ruud Gullit sem komst í gegnum sovésku vömina. Fallegt mark Rats Sovétmenn voru öllu ákveðnari í síðari hálfleik og leikur þeirra var skipulagðari. Sterk vöm og langar og nákvæmar sendingar á fram- heijana færðu þeim nokkur færi. Belanov komst einn í gegn, en Breu- kelen varði mjög vel. En skömmu síðar náðu Sovétmenn forystunni er Vasily Rats skoraði með þrumu- skoti í bláhomið, frá vítateigshomi. Hollendingar áttu þó hættulegri sóknir. Koeman átti tvö mjög góð skot, en Dassajev náði að blaka boltanum yfir þverslána og hann lék sama leikinn er Jan Wouters reyndi að lyfta boltanum yfir hann. Sovétmenn, með níu leikmenn úr liði Dynamo Kiev, léku vel, en áttu þó lengst af í vök að veijast. Dassajev var besti maður liðsins þrátt fyrir að hafa byijað leikinn illa og Sovétmenn geta þakkað hon-, um sigurinn. „Vöm okkar var sterk“ „Við vissum hvemig Hollendingar myndu leika og eina ráðið var að beita skyndisóknum. Ég var óán- ægður með fyrri hálfleikinn. Vömin var þó í lagi, en sóknin var ekki nógu beitt,“ sagði Valery Lobanov- sky, þjálfari sovéska landsliðsins. „Ég var ánægðari með síðari hálf- leikinn, ekki aðeins vegna þess að við skoruðum, heldur af því að sókn- ir okkar voru góðar og árangursrík- ar. Við hefðum getað skorað fleiri mörk.“ Sovétríkin - Holland 1 : 0 Evrópukeppni landsliða í knattspyrnu. Köln 12. júní 1988. Mark Sovétmanna: Vasilij Rats á 54. mín. Dómari: Dieter Pauly, V-Þýskaland. Gul spjöld: Litowtschenko og Khidjat- ullin, Sovétríkin. Áhorfendur: 60.000. Sovétrikln: Dassajev, Bessonov, KhidjatuIIin, Kuznetsov, Demyanenko, Litowtschenko, Zavarov (Sulakvelidze 89. mín.), Rats, Mikhailichenko, Bel- anov (Aleinikov 80. mín.)og Protasov. Holland: Hans van Breukelen, Adrie van Tiggelen, Frank Rijkaard, Ronald Koeman, Jan Wouters, Gerald Vanen- burg (Marco van Basten 59. mín.), Berry van Aerle, Amold Miihren, Ruud Gullit, John Bosmann og John van’t Schip. Rinat Dassajev, átti mjög góðan leik í marki Sovétmanna. Hollendingar léku einstaklega vel, en þegar komið var að markinu gekk ekkert upp hjá þeim. Háar sendingar þeirra báru ekki árang- ur, en þó héldu þeir áfram að reyna. Gullit var mjög frískur og skapaði oft hættu og Koeman átti góð skot frá vítateignum. „Mikil vonbrigði" „Við urðum fyrir miklum vonbrigð- um eftir að hafa leikið svo vel í fyrri hálfleik. Við höfum verið í miklu uppáhaldi hjá fjölmiðlum og það var búist við miklu. Það var því mikil pressa á okkur," sagði Rinus MichelSj þjálfari hollenska landsliðsins. „Ég get ekki kvartað yfir frammistöðu leikmanna. Þeir stóðu sig vel í þessum erfíða leik. Sovétmenn léku sterka vöm og fundu svar við leik okkar." Reuter Vassilji Rats sést hér spyma knett- inum frá Ruud Gullit með hjólhesta- spymu. Það var einmitt Rats sem skoraði sigurmark Sovétmanna gegn Hollendingum. v.: ... . Óeirðaseggir áberandi TALSVERT hefur verið um ólæti í ýmsum borgum V- Þýzkalands samfara Evrópu- keppninni i knattspyrnu. Vestur-þýzka lögreglan hefur þurft að hafa mikil afskipti af fylgismönnum liðanna, einkum enskum enskum áhorfendum. Enskir og írskir ólátaseggir lentu í áflogum á sunnudags- morgun fyrir leik þjóðanna í Stuttgart og handtók lögreglan þá íjörutíu og fjóra. Eftir leikinn skeyttu þeir ensku skapi sínu á hveiju sem fyrir varð og urðu nokkrir vegfarendur fyrir meiðsl- um af þeirra sökum. Þeim ensku lenti einnig saman við v- þýzka óaldaflokka en lögreglan kom fljótlega á vettvang og skakkaði leikinn. ólætin lýsa sér einkum í áflogum, innbrotum og skemmdarverkum. Meirihluti þeirra hundrað, sem settir hafa verið í varðhald, er Englendingar. Brezkur stjómar- erindreki sagðist harma athæfi landa sinna en benti á að hér væri aðeins um lítinn hluta þeirra ensku áhorfenda, sem fylgdust með keppninni og brezk og v-þýzk stjómvöld myndu gera allt hvað þau gætu til að koma í veg fyrir ólæti. Enskir áhorfendur eru ekki þeir einu, sem hafa verið með ólæti. Hollenzkir, írskir, ítalskir, danskir og þýzkir ólátaseggir hafa einnig komið við sögu hjá v-þýzku lög- reglunni, sem kappkostar að hafa allt í röð og reglu eins og Þjóðveij- um er tamt. Reuter Knötturinn í netinu hjá Englendingum. I Ray Houghton hafði skallaði knöttinn í netið. Dassajev fórá kost- um í markinu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.