Morgunblaðið - 14.06.1988, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 14.06.1988, Blaðsíða 16
NBAPUNKTAR ■;<.jna.i:<cni.iMqi:<n;«rí=fic.j:in.w Bill Fitch, þjálfari Houston Rockets, var rekinn í síðustu viku Brown til Spurs? LARRY BROWN, þjálfari Kans- as háskólaliðsins sem vann háskólakeppnina ívor, hefur nú verið boðin þjálfarastaðan hjá San Antonio Spurs, sem Pétur Guðmundsson leikur með. Brown hefur að sögn ver- ið boðinn langtímasamningur og mun fá í sinn hlut 700.000 dali á ári í grunnlaun ef hann tekur starfið að sér. Brown hefur verið mjög eftir- sóttur af NBA-liðunum, en hefur ekki viljað yfirgefa Kansas. Brown sagðist á sunnudag hafa fengið tilboð frá Spurs, en neitaði hvorki né játaði sögusögnum um að hann væri þegar búinn að taka tilboðinu. Fréttamenn CBS-sjónvarpsstöðvarinnar sögðu að forráðamenn San Antonio hefði sagt að þetta mál myndi ganga í gegn einhverja næstu daga. Gunnar Valgeirsson skrifar Fitch rekinn frá Houston Bill Fitch, þjálfari Houston Roc- kets, var rekinn í síðustu viku og á laugardag var Don Chaney ráðinn í hans stað. Fitch tókst ekki að koma liði sínu áfram í úrslitakeppn- inni nú og hefur Akeem Olajuwon, miðhetji Houston, lýst yfir megnri óánægju sinni með liðið. Chaney þjálfaði áður hjá Los Angeles Clipp- ers og binda menn miklar vonir við hann í Houston. Matur frá mömmul „Magic" Johnson fékk heldur betur gleðifregnir þegar hann mætti í leikinn gegn Detroit á sunnudag. Johnson hafði boðið foreldrum sínum á leikinn, en þau búa í Mic- higan-fylki (Detroit er í Michigan). Móðir hans tók sig til og kom með tvo pappakassa fulla af heimatil- búnum mat handa syni sínum. Jo- hnson bað móðir sína að geyma að opna kassana þar til leikmenn færu til leiks í síðari hálfleik. A meðan Lakers-liðið tók Detroit í kennslu- stund í seinni hálfleik, tók frú Jo- hnson sig til og opnaði kassana góðu með kjúkligaréttum, kartöf- lusalati, tertum og öðru góðgæti. Hún lagði þetta á borð fyrir leik- menn Lakers og kunnu þeir vel að meta þetta. Johnson sagði: „Félög- um mínum veitir ekkert af heimatil- búnum mat þessa fimm daga sem við verðum hérna i Detroit.“ IÞROIUR „Galdur" Johnson óstödvandi „Magic“ Johnson frábær þegar Los Angeles sigraði Detroit í þriðja leik liðanna LIÐ Los Angeles Lakers er heldur betur komið af stað í úrslitum NBA-deildarinnar eftir slakan fyrsta leik gegn Detroit Pistons. Á sunnudag var þriðji leikur liðanna í Detroit, en liðin höfðu unnið sitt hvorn leikinn í Los Ange- les. Lakers-liðið spilaði þenn- an leik mjög vel og sigraði verðskuldað 99:86. Það var fyrst og fremst stórleikur „Magic“ Johnson sem skóp þennan sigur Lakers. Jo- hnson stjórnaði ieik liðsins frábærlega og áttu bakverðir Pistons í miklum erfiðleikum með hann í leiknum. Mikill hiti var í Silverdome- höllinni í Detroit á sunnu- dag og við upphaf leiks var 32 gráðu hiti niður við leikvöllinn. Hitinn virtist ekki Gunnar angra leikmenn V algeirsson neitt að ráði í fyrri skrifar hálfleik, sem var mjög jafn og vel leikinn af báðum liðum. Staðan eftir fyrsta leikhluta var 23:21 fyrir Lakers og liðið hafði eins stigs forystu í hálfleik, 47:46. Lakers tekur völdin Los Angeles byijaði þriðja leik- hlutann af miklum krafti og aug- ljóst að þjálfari liðsins, Pat Riley, hafði lesið hressilega yfir sínum mönnum í hálfleik, þrátt fyrir ágætan leik liðsins. James Worthy byijaði með því að skora átta fyrstu stigin í síðari hálfleik og kom Lakers níu stigum yfir, 55:46. Lið Lakers var nú komið í mikinn ham. Vömin var geysi- sterk og „Magic“ Johnson stjóm- aði hverju hraðaupphlaupinu af öðru sem gaf körfu. Þegar þriðja leikhluta lauk hafði Lakers náð 15 stiga forystu, 78:64, og hafði liðið því unnið leikhlutann með 31 stigi gegn 18. Þessari forystu tókst Detroit aldrei að ógna í síðasta leikhlutanum, þrátt fyrir ágætan leik Isiah Thomas og flestir hinna 38.000 áhorfenda fóru vonsviknir heim. Þjálfara Detroit, Chuck Daly, var vísað af leikvelli þegar fimm mínútur voru til leiksloka fyrir að mótmæla dómi, en þá voru úrslit leiksins þegar ráðin. Liöin Lið Los Angeles spilaði þennan leik mjög vel sem heild. A.C. Gre- en átti sinn besta leik í úrslita- einna helst upp úr. Liðið var nokk- uð jafnt í fyrri hálfleik, en í þeim síðari réðu leikmenn lítið við and- stæðingana. Thomas skoraði 20 af 40 stigum liðsins í seinni hálf- leik og var eini leikmaðurinn sem spilaði þann hálfleik vel. Thomas var stigahæstur Detroit með 28 stig og Dantley kom næstur með 14. Lykillinn að sigri Lakers var að leikmönnum tókst vel upp að ná fráköstum við eigin körfu. Þetta gerði það að verkum að liðinu tókst að ná mörgum hraðaupp- hlaupum. Reynsla Los Angeles kom vel í ljós í þessum leik, en Detroit hafði sett mikla pressu á Lakers með því að vinna fyrsta leik liðanna. Nú er ljóst að Lakers geta ekki tapað þessari keppni í Detroit, en þar fara nú næstu tveir leikir fram. í ham James Worthy, sem hér skorar, átti enn einn stórleikinn fyrir Lak- ers, skoraði 24 stig, þar af 12 í þriðja leikhlut- anum. Frábær „Magic" Johnson var besti maður vallarins, skoraði 18 stig, átti 14 stoðsendingar og náði 6 fráköstum. Hvað eftir annað sendi hann knöttinn eins og byssukúlu í gegnum vörn Detroit á fría sam- heija, sem ekkert þurftu annað að gera en leggja knöttinn í I körfuna. keppninni, skoraði 21 stig og var mjög sterkur í vöminni. Hann fékk uppreisn æru í þessum leik eftir að Adrian Dantley hafði far- ið mjög illa með hann í fyrsta leik liðanna. Abdul-Jabbar var mjög traustur bæði í vöm og sókn og skoraði 12 stig. James Worthy átti enn einn stórleikinn fyrir Lak- ers, skoraði 24 stig, þar af 12 í þriðja leikhlutanum. Besti maður vallarins var þó „Magic" Johnson sem skoraði 18 stig, átti 14 stoð- sendingar og náði 6 fráköstum. Hefur hann átt betri leiki tölu- lega, en í þessum leik lék hann frábærlega og kom vöm Detroit mjög oft í mikil vandræði. Hvað eftir annað sendi hann knöttinn eins og byssukúlu í gegnum vörn Detroit á fría samheija, sem ekk- ert þurftu annað að gera en leggja knöttinn í körfuna. Var augljóst að hann kunni vel við það að vera kominn heim aftur, en Johnson er uppalinn og spilaði alla sína skólatíð í Michigan-fylki. Hjá Detroit stóð Isiah Thomas LOTTO: 1 21 24 26 29

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.