Morgunblaðið - 19.06.1988, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 19.06.1988, Qupperneq 2
2 B MÖRGUNBLAÐÍÐ, SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 1988 Áburðarflugið flýtir endurheimt landgæða 30 ár frá fyrsta áburðarflusinu í Gunnarsholti Sclfossi. _________________________________ FYRSTA áburðarflugið á vegum lndgræðslunnar var farið frá Gunnarsholti 14. júni 1958. Þessi veigamikli þáttur i landgrseðslu- starfinu stendur því á 30 ára tíma- mótum um þessar mundir. Fyrsta flugvélin bar einkennisstafina TF-KAZ og bar 300 ldló af áburði i hverri ferð. Nú er burðargeta vélanna 5 tonn. Það átti áer nokk- urn aðdraganda að farið var að dreifa áburði og frsei með flugvél- um. Nú er áburðardreifingin orðin fastur og ómissandi liður i starf- semi Landgræðslunnar. 1958 var dreift 320 tonnum af áburði með einni flugvél en i ár verður 1500 tonnum dreift með tveimur flug- vélum. í afmælisriti Landgræðslunnar sem bráðlega kemur út í tilefni 80 ára afmælis stofnunarinnar ritar Stefán H. Sigfússon grein um land- græðsluflugið. Þar rekur hann sögu þessa flugs og tilkomu vélanna sem ekki var baráttulaust. Þegar hafíst var handa við að rækta upp sanda og mela á Rangár- völlum 1947 og 1948 kom brátt í ljós að þörf var á stórvirkum tækjum til' uppgræðslu og áburðardreifíngar Morgunblaoið/Sigurður Jönsson Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri og Árni Gestsson forstjóri Gló- bus hf. fyrir framan landgræðsluflugvélina Pál Sveinsson. Atak í landgræðslu: Það þurfa allir að legsiast á eitt Selfossi. V—7 <« „Ég hef séð hvaða þrekvirki þessi stofnun hefur unnið,“ sagði Arni Gestsson forstjóri Glóbus hf. þeg- ar hann kynnti Átak til land- græðslu. Hann sagði þetta átak til að aðstoða Landgræðsluna i veiga- miklu starfi. Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri sagði mikið verk að vinna. Þó stór landsvæði væru örfoka þá sagði hann það ekki óvinnandi að græða þau upp að nýju. „Og það mun takast," sagði hann. Þegar svipast er um á jörðinni Gunnarsholti þar sem aðsetur Land- græðslunnar er þá má sjá gífurlegan árangur. Fyrir 60 árum var Gunnars- holt ein stór eyðimörk, tún sandi orpin og fólkið að flýja. Nú er þar gróið land í sókn. Landgræðslustarfið hefurbyr „Það flármagn sem fæst í gegnum átakið mun nýtast sem bein viðbót við það sem fæst á fjárlögum. Við höfum tæki og aðstöðu til að nýta það vel,“ sagði Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri. „Við vonumst til að þetta átak leiði af sér aukna fræðslu og kynn- ingu á störfum Landgræðslunnar og þörfina fyrir aukna gróðurvemd og uppgræðslu. Ég vona að þetta fram- tak þeirra átaksmanna verði fjárveit- ingavaldinu hvatningtil að auka fjár- veitingar til Landgræðslunnar. Landgræðslustarfíð nýtur núna verulegs byrs og þjóðin er að verða meðvitaðri um ástand gróðurs í landinu. Það vilja æ fleiri taka þátt í landgræðslustarfinu á einn eða annan hátt, ýmist með beinni þátt- töku í fræ- og áburðardreifingu, söfnun birkifræs eða með beinum Ijárframlögum til þessa átaks sem við vonum að verði veruleg. Við vitum auðvitað ekki hvað kem- ur út úr þessu verkefni fíárhagslega en vonum að sem flestir sjái sér fært að taka þátt í átakinu á einn eða annan hátt. Ég tel að 80 ára starfsemi Land- græðslunnar sýni að við höfum yfir að ráða tækni og þekkingu til að endurheimta fyrri landgæði. Verkið er viðamikið og það mun ekki takast á næstu áratugum nema allir íslend- ingar Ieggist á eitt rneð Landgræðsl- unni að greiða myndarlega inn á skuld okkar við landið." -Sig. Jóns. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Áhöfn Páls Sveinssonar í áburð- arflugi nýlega. Davíð Henstock flugvirki efstur í stiganum, Sverrir Þórólfsson flugmaður og Hafsteinn Heiðarsson flugmaður neðst. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Kristín Aðalsteinsdóttir fram- kvæmdastjóri Átaks f land- græðslu með merki verkefnisins. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Landgræðsluflugvélin Páll Sveinsson leggur af stað í áburðarflug. en til voru í landinu á þeim tíma. Auk þess að auka afköstin var einn- ig nauðsynlegt að geta sáð í hraun og önnur svæði sem venjuleg tæki komust ekki yfír. Áhugamenn um aukna ræktun bentu á nauðsyn þess að fá áburðar- flugvél til þessa viðamikla starfs. Agnar Kofoed Hansen, þáverandi flugmálastjóri, benti í grein á glæsi- leg dæmi frá Nýja Sjálandi um ár- angur áburðarflugs. Runólfur Sveinsson, þáverandi sandgræðslu- stjóri, skrifar í 50 ára afmælisrit Sandgræðslunnar um undirbúning að flugvélakaupum og fullyrðir að svo viðamikið verkefni sem sand- graeðslan verði ekki unnin án flugvél- ar. í sama riti hvetur Bjöm Pálsson flugmaður til þess að flugvél verði tekin í þjónustu sandgræðslunnar eins og gerst hefði hjá öðrum þjóð- um. Margir aðrir hvöttu til þess að ríkið keypti flugvél til þessara verk- efna. Hið opinbera skipaði nefnd í málið sem komst að þeirri niðurstöðu að kostnaður við kaup á vél væri of mikill. Fyrsta áburðarvélin var skráð vor- ið 1958 og hlaut einkennisstafína TF-KAJ. Hún var í eigu flugskólans Þyts og flutt til landsins af Loftleið- um án endurgjalds. Vélin fór síðan Morgunblaðið/Sigurour Jónsson Landgræðsluflugvélin Páll Sveinsson dreifir áburði yfir Haukadals- heiði. í fyrsta áburðarflugið 14. júní sama ár og þá var fjárveitinganefnd Al- þingis boðið austur í Gunnarsholt. Eftir þá heimsókn var innflutnings- leyfí veitt fyrir vélinni eftirá, en hún var keypt á miklum haftaámm. Árið eftir keypti Þytur aðra sams konar vél og var hún skráð 25. júní 1959 og fékk einkennisstafina TF- KAZ. Hún var keypt vegna þess að fyrri vélin laskaðist. Þáttaskil urðu í áburðarfluginu þegar Ingólfur Jónsson, þáverandi landbúnaðarráðherra, heimilaði kaup á báðum vélunum sem voru báðar notaðar til ársins 1966 en það ár brotlenti TF-KAJ og TF-KAZ var ekki flughæf. Þá var keypt ný vél TF-TÚN. Hún bar 500 kíló og var notuð til 1982. Þá var keypt önnur vél sem hafði sömu einkennisstafi og gat borið 800 kíló. Hún gjöreyði- legðist í brotlendingu í júlí 1987. Þá var keypt vélin TF-TÚN sem nú er í notkun. Hún getur borið 1 tonn af áburði og fræi. Gjörbreyting með Douglasinum Á fundi félags íslenskra atvinnu- flugmanna 1971 var gerð einstök samþykkt um að bjóða fram sjálf- boðavinnu við áburðarflug. _ Þetta varð til þess að Flugfélag íslands samþykkti að gefa Landgræðslunni Douglas DC 3 vélina sem nú erí notkun og hlotið hefur heitið Páll Sveinsson. Tilkoma hennar hefur gjörbreytt allri aðstöðu til áburðar og frædreifíngar. Flugfélagið gaf einnig mikið af þeirri vinnu sem þurfti til að framkvæma breytingar á vélinni. Burðarmagn Douglas-vélarinnar er 4 tonn í hverri ferð. Flugþol henn- ar er það mikið að unnt er að ná til fleiri staða en áður var. Meðal- flugtími hennar á tonn er 7 mínútur en 12 mínútur á tonnið hjá minni vélinni. Douglasinn flýgur á dreifíng- arsvæði innan 50 til 60 kflómetra íjarlægðar frá hleðslustað en sú minni, TF-TÚN, flýgur yfirleitt ekki lengra en 10 til 15 kílómetra flug. Áukin fjárráð Landgræðslunnar með „Þjóðargjöfínni" 1974 urðu til þess að auka mjög áburðardreifingu með flugvélum. Árin 1975—1980 var dreift um þijú þúsund tonnum á ári. Upp úr 1980 var dregið úr fjár- magni til Landgræðslunnar og í fyrra var dreift 1599 tonnum. í ár er fyrir- hugað að dreifa 1500 tonnum. - Sig. Jóns. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson. Árni Gestsson, forstjóri Glóbus hf. og einn forsvarsmanna Átaks í Landgræðslu afhendir Sveini Runólfssyni fyrsta framlagið í nafni átaksins. Verðum að stöðva gróðureyðinguna Þrjar milljómr hektara örfoka frá landnámi Selfossi. LÍKLEGT er að engin þjóð á jarðríki hafi glatað jafn stórum hluta af upphaflegum gróðurlend- um sínum á sögulegum tíma og Islendingar. Ætla má að þrjár milljónir hektara hafi orið örfoka frá landnámi og allstór hluti þess gróðurs sem eftir stendur er f óviðunandi ástandi. Gróður og jarðvegseyðing er talið alvarleg- asta umhverfisvandamálið hér á landi. Þetta kemur fram f tilkynn- ingu frá þeim aðilum er standa fyrir Átaki í landgræðslu, sem unnið verður að næstu þijú ár. „Við verðum að stöðva þá gróður- eyðingu sem enn á sér stað, stækka gróðurríkið með uppgræðslu og gera landið blómlegra til búsetu. Við eig- um ekki að sætta okkur lengur við þá tötrum klæddu ásýnd sem við blasir svo víða um land. Varðveisla og endurheimt landgæða verður að vera forgangsverkefni. Fjármunir hafa hins vegar verið af skomum skammti og allt of hægt gengur miðað við umfang þeirra vandamála sem við er að etja,“ segir í tilkynn- ingu átaksmanna. Þar segir ennfremur að með nú- verandi aðferðum, flármagni og framkvæmdahraða megi ætla að það geti tekið 1—2 þúsund ár að græða upp helming þess lands sem orðið hefur örfoka frá landnámi. Þá er hvorki reiknað með náttúrulegri sjálfgræðslu né frekari eyðingu. Allt fé sem safnast í nafni Átaks í landgræðslu mun renna beint til Landgræðslu ríkisins. Öll áburðar- og frædreifíng í nafni verkefnisins verður á friðuðu landi innan land- græðslugirðinga. Landgræðslan hefur yfír að ráða tækjabúnaði til umfangsmikillar dreifingar á áburði og fræi úr lofti. Munar þar mest um áburðarflugvél- arnar Pál Sveinsson og TF Tún. Þær munu í ár sinna áburðar- og frædreif- ingu um landið. Það endurspeglar áhuga almennings á landgræðslu að það eru atvinnuflugmenn sem fljúga Páli Sveinssyni, Douglas DC 3 flug- vél Landgræðslunnar, í sjálfboða- vinnu. Það sem helst hvetur menn til átaks í landgræðslu er sá árangur sem náðst hefur í landgræðslustarf- inu á síðustu árum. Sá árangur sýn- ir að með meira fjármagni má ná gífurlegum árangri í þessu efni. - Sig. Jóns.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.