Morgunblaðið - 19.06.1988, Síða 6

Morgunblaðið - 19.06.1988, Síða 6
6 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 1988 - LISTAHÁTÍÐ wm REYKJAVÍK Debra Vanderlinde GREIN: HALLDÓR HANSEN Debra Vanderlinde er nafn sem fæstum íslendingum er kunnugt enn sem komið er, en ég spái að það verði á hvers manns vörum eftir lokatónleika Listahátíðar í kvöld, 19. júní. Á þeim tónleikum mun Debra Vanderlinde syngja „Exultate jubilate" eftir Mozart og hina sjaldheyrðu en vandasömu aríu Ófelíu úr óperunni „Hamlet" eftir Ambroise Thomas. Ef við lítum á verkefnin fyrst, þá samdi Mozart „Exultate jubil- ate“ fyrir „kastrat" og þá nánar tiltekið Venanzio Rauzzini árið 1772 og var verkið frumflutt 16. janúar 1773. Það er samið í þeim „bravura" stíl, sem einkenndi ítalska kirkjutónlist á átjándu öld- inni. Nú er það næriindantekning- arlaust flutt af söngkonum, enda tíð kastratanna löngu liðin. Hvað varðar óperuna Hamlet, þá samdi Ambroise Thomast hana fyrir Parísaróperuna eftirt samnefndu leikriti Williams Shakespeares og var hún frumflutt á Parísaróper- unni 9. mars 1868. Hlutverk Ófelíu varð flótt eftirsótt af fremstu söng- konum heims í lok 19. aldarinnar og ber þar fyrst að enfna sænsku söngkonuna Christina Nilsson, sem frumflutti hlutverkið einnig söng- konur á borð við Adlinu Patti, Marcellu Sembrich, Nellie Melba, Emmu Calvé og Amelitu Galli- Curci, sem allar sungu sig til frama í þessu hlutverki vestan hafs sem austan. Christina Nilsson setti Parísarborg á annan endann með söng sínum, ekki hvað síst með flutningi á einföldu sænsku þjóð- lagi, sem Ambroise Thomas fléttar inn í magnaða kólóratúraríu, þann- ig að þjóðlagið vitnar á sinn hátt um hið dýpsta og einlægasta í sál Ófelíu en flúrsöngurinn lýsir því, hvemig Ófelía er að truflast á geðs- munum og segja skilið við raun- veruleika, sem er henni ofviða. Bæði þessi verk eru samin fyrir kólóratúrrödd, sem spannar mjög vítt svið og þekkir enga tæknilega örðugleika, heldur getur leikið sér fyrirhafnarlaust upp og niður eftir tónsviðinu og blómstrar fyrst til muna á hæsta tónsviðinu, sem er flestum söngvurum illaðgengilegt eða óaðgengilegt með öllu. Þessi söngmáti var feiknarlega vinsæll á síðari hluta nítjándu aldarinnar og framan af þeirri tuttugustu og áherzlan var þá á raddfegurð og yndisþokka ljúfra, skærra og um fram allt sveigjanlegra tóna, en minna lagt upp úr raddþrótti sem slíkum eða litauðgi í raddblænum. Söngmátinn er vafalítið nætur- galabarkanum eðlilegri en þeim mannlega og víst er að sumum hefur þótt þessi söngmáti skilja eftir lítið svigrúm fyrir mannlegar tilfínningar. Það er því þeim mun merkilegra, 100 ára afmæli á í dag Guðrún Elísabet Jónsdóttir. Hún er fædd 19. júní 1888, í Sandlækjarkoti í Gnúp- veijahreppi, Árnessýslu, dóttir hjón- anna Margrétar Eiríksdóttur og Jóns Bjamasonar. Hún ólst upp ásamt 7 systkinum, 5 systrum og tveim bræð- rum, á reglusömu velmegunarheimili á þeirrar tíðar mælikvarða, við al- geng sveitaheimilisstörf og heimilis- iðnað eins og hann gerðist bestur. Hún lærði herrafatasaum í einn vet- ur á klæðskeraverkstæði Áma og Bjama í Reykjavík, og matreiðslu hjá Ingibjörgu Jónsdóttur í matsölu- húsinu Bárunni. 25. júní 1920 giftist hún Kjartani þegar fram á sjónarsviðið kemur söngkona eins og Debra Vander- linde, sem sameinar tæknilega yfir- burði og raddfegurð 19. aldar söng- kvennanna við hæfileikann til að snerta áheyrendur og snerta djúpt. Debra Vanderlinde er með öðr- um orðum kólóratúrsöngkona með sál, kólóratúrsöngkona með hjartað á réttum stað. Hvar sem hún syngur, minnast gagnrýnendur á kvenlegan yndis- þokka og mannlega hlýju og það er ekki heiglum hent að koma þeim eiginleikum heim og saman við kólóratúrsöng, sem eðli sínu sam- kvæmt vill verða vélrænt fyrir það eitt, að hann krefst algjörrar ein- beitingar að söngtækni. En manneskjan Debra Vander- linde er hlý og það fer ekki fram hjá neinum, sem á hana hlýðir. Debra Vanderlinde hefur sungið alveg frá blautu bamsbeini og seg- . ist ekki muna þá tíð, að hún hafi ekki þráð að syngja. Hún er af tónlistarfólki komin. Móðir hennar var píanóleikari og öll systkini hennar lærðu að spila á það hljóð- færi. Debra gerði það að sjálfsögðu líka frá 4-5 ára aldri en auk þess lærði hún klarinettuleik. Meðal ánægjulegustu bemskuminningá hennar er það, þegar fjölskyldan safnaðist saman í kringum hljóð- færið og söng saman við undirleik móðurinnar. Og þegar hún stækk- aði naut hún þess í ríkum mæli að syngja bæði í kirkjukórum og skólakórum, svo að ekki sé minnst á það að syngja margraddað með skátunum, þegar þeir söfnuðust saman í kringum viðareldinn á síðkvöldum. Og skemmtilegast fannst henni þá að reyna að finna sína eigin millirödd. Tónlist hefur alla tíð haft töframátt á líf Debru Vanderlinde, töframátt, sem hún hefur ekki getað án verið. Lengi vel datt henni þó ekki í hug að líta á sjálfa sig sem efnivið í alvöru söngkonu. Hún var alltof feimin til að geta hugsað sér að verða einsöngvari og var auk þess alin upp við að finnast það vera rangt að láta á sér bera og skera sig úr hópnum. Það var því ekki fyrr en hún var búin að ljúka undirstöðunámi í skóla, að hún sneri sér alvarlega að söngnum, þó að hún syngi áfram í kórum, spilaði í hljómsveitum og lærði hitt og þetta fyrir sér í tónlist. En þá innritaðist hún í Eastman School of Music í Rochester, N.Y. og stundaði þar alvarlegt tónlistar- og söngnám í tvö ár. Því næst flutt- ist hún til New York-borgar og hélt áfram söngnámi í einkatímum og fékk auk þess tilsögn í leiklist. Náminu hefur hún haldið áfram síðan, því að hennar mati er tónlist- amámi aldrei lokið. Fnimraun sína á óperusviðinu þreytti hún sem Zerbinetta í óper- unni „ Adriadne auf Naxos“ eftir Ólafssyni í Vestra-Geidingaholti, Gnúpveijahreppi. Bjuggu þau þar til vorsins 1961 er þau seldu jörð og bú og fluttu til Reykjavíkur á Sól- vallagötu 74. 19. desember sama ár missti hún mann sinn, en bjó áfram með dætrum sínum til 1984. Síðustu fjögur árin hefur hún ver- ið í skjóli dóttur sinnar á Sólvallagöt- unni. Nú eru líkamskraftar þrotnir, en hún heldur góðu minni og skýrri hugsun. Hún hefur verið rúmföst í tæpt ár og nýtur hjúkrunar og um- hyggju dóttur sinnar og dótturdóttur. Elísabet á 3 dætur, 6 bamaböm og 8 bamabamabörn. Richard Straúss við Chautauqua- óperuna. Hún hefur sungið sig til frama á flestum þeim stöðum, sem þeir fremstu í röðum ungra banda- rískra söngvara sækjast eftir og má þar utan Chautauqua minnast á óperuna í Rochester, Virginia Opera Theater, Chattanooga óper- una, Wolf Trapps að ógleymdri New York City Center-óperunni í Lincoln Center og Kennedy Center í Washington D.C. Hún hefur og komið fram sem einsöngvari með hljómsveitum um gjörvöll Banda- ríkin. „í rauninni hef ég verið ákaflega heppin með kennara og fengið mjög góða tilsögn í söng,“ segir Debra Vanderlinde „en þó fölnar það allt við hliðina á því, sem ég hef lært af því að hlusta á plötur úr hljóm- plötusafni mannsins míns og á því að tala við hann um það, sem við höfum verið að hlusa á saman." Og þetta ætti engan að undra, sem til þekkir, því að eiginmaður Debru Vanderlinde er hinn þekkti gagn- rýnandi New York Times, Will Crutchfield, sem er algjör sjór af fróðleik um allt er lýtur að tónlist. Á þessu segist Debra Vander- linde hafa kynnst ógrynnis ósköp- um af söngvurum, bæði frægum og ekki svo frægum, sem sungu af afburðartækni og kunnu að framleiða hreina, tæra og und- urfagra tóna, jafnframt því sem þeim var lagið að tjá sig af sak- lausri sönggleði sem er í flestu gjör- ólík því, sem við eigum að venjast nú. Hún telur að söngvarar á borð við Amelitu Galli-Curci, Pol Plan- gon, Fernando de Lucia, Conchita Supervia, Maria Ivogún, Elisabeth Schumann og Mattia Battistini hafi haft á sig djúpstæð áhrif. Sér- hver þessara söngvara hafa ekki einungis sungið af afburðatækni, heldur hafí hver um sig átt sér sinn sérstæða og mjög svo persónulega stfl. „Mér er fátt ljúfara en að tala um það, sem hefur haft sterk áhrif á listamannsferil minn. Við getum vel kallað það innblástur. Það er af mjög miklu að taka. Ég minnist Mary Martin í „Peter Pan“ og „Sound of music", sem hreif mig upp úr skónum, þegar ég var bam. Og svo þess hvemig Cynthia Greg- ory dansaði í „Svanavatninu" (það mætti í raun kalla það kólóratúr dans og sannar að enginn þarf að skammast sín fyrir að njóta þess til hins ýtrasta að leika sér að tæknilegri getu). Og svo voru það flauelstónarnir hennar Galli-Curci, hin svo til fullkomna tækni og ómengaða raddfegurð . . . tækni- legur töframáttur Joan Suther- land .. . hvemig ég heillaðist, þeg- ar Hildegard Behrens söng „Todes- verkúndung" í Valkyijunum, sem ég sá fyrir tveim árum á Metra- politan ópemnni. .. Hvernig Jon Vickers söng Otello, Canio og Pars- 100 ára afmæli: Guðrún E. Jónsdóttir Morgunblaðið/Þorkell Sópransöngkonan Debra Vanderlinde ásamt manni sinum Will Crutchfield og dótturinni Victoriu 4 mánaða. ifal. Það heyrist á sjálfri röddinni, hvílíkur andans maður hann er og hvemig hann gefur sig allan í því, sem hann tekur sér fyrir hend- ur . . . Hvernig Tito Schipa söng „Le plus beau moment du jour“ og Claudia Muzio „O del mio amato ben“ ... hvernig Souzay söng „La Barcheta" .. . hvernig Paderewski lék næturljóð í F-dúr eftir Chop- in .. . ástríðuþrunginn, sem bar uppi söng Fischer-Dieskaus á þrennum tónleikum, sem ég heyrði nýlega í New York og minntu mig á það, að ljóðið er eitthvað það háleitasta sem til er í listrænni tján- ingu... hvemig Betty Milder syngur ballöðurnar sínar. Hún syngur aldrei eitt aukatekið orð sem er ekki borið uppi af drama- tískri lífsreynslu — það er eins og tjáningin taki undir sig stökk í hennar eigin fijóa hugmyndaheimi og hitti áheyrandann beint í mark ... Og svo var það Kabuki- uppfærsla, sem gaf mér nákvæm- lega þá liti og myndir sem ég þurfti á að halda til að túlka ljóð eftir Massenet, sem ég syng.. .Og svo er það önnur sinfónínan eftir Rakhmanínov, sem minnir mig allt- af á, að það hlýtur að vera einhver von fyrir heim, þar sem slík tónlist heyrist. . . og svo er það „Ich bin der. Welt abhanden gekommen" eftir Mahler og nærri hvaða tónlist sem vera skal eftir Schubert. Allt þetta hefur tekið sér varanlega bólfestu innan í mér. . . það hefur snert mig í hjartastað og í því er innblásturinn fólginn. Aðspurð viðurkennir Debra Vanderlinde að hin létta sópran- rödd hafí ekki alltaf átt uppi á pallborðið í seinni tíð, þótt pendúll- inn virðist vera að snúast aftur. „Satt að segja hefur öll fágun í raddmenningu átt undir högg að sækja. Ljóðatónleikar hafa til dæm- is ekk( verið eins vinsælir og þeir vom. Áheyrendur em orðnir vanir klunnalegum og hávaðasömum ópemsöng, þar sem söngvarinn hefur annað hvort mikla en ekki að sama skapi fallega rödd, eða þá litla rödd, sem hann reynir að belgja til hins ýtrasta, þannig að raddfegurð hverfur eins og dögg fyrir sólu. Í augnablikinu er eins og radd- menning sé á undanhaldi — góður söngur er sjaldheyrðari en var fyr- ir ekki svo löngu. En það væri dásamlegt að sjá þetta snúast við, því að mig langar til að trúa því, að góður söngur sé hluti af vest- rænni menningu, sem eigi eftir að halda áfram að næra mannkynið andlega." „Já, þú spyrð mig um ráð til ungra söngvara. Ég held, að það em mestu máli skiptir, sé að ná tæknilegu valdi á röddinni sjálfri til þess að söngnemandinn geti síðan notað þetta vald til að tjá sig í söng. Lærið „bel canto“ lærið að syngja með fallegri, óbrotinni línu — lærið að syngja trillur og hrein, tær hlaup. Lærið að syngja fallega veikt ekki síður en sterkt og reynið að ná valdi á að syngja á öllum styrkleikagráðum þar á milli. Þið skuluð ekki vara að beijast við að reyna að syngja sterkar en rödd- inni er eðlilegt, því að þá hættir tónninn að blómstra og verður mattur og ljótur. Og að því kemur að söngvarinn getur ekki sungið öðmvísi en á fullu og röddin missir stöðugleikann. Lærið að hlusta og reynið ekki að koma ykkur undan því að móta fallegar laglínur, nota smekkvíst „mbato" og syngja fal- legar melódíur. Hlustið á hvemig söngvarar fyrri tíma sungu, því að þá var söngmennt sennilega miklu meir lifandi hefð en nú er. Og umfram allt, verið ekki hrædd að spyija og hættið ekki að spyija fyrr en þið fáið svör, sem þið emð ánægð með.“ „Hérna á Listahátíð ætla ég að syngja skreytta útgáfu af „Exult- ate Jubilate" sem ég hef haft mjög gaman af að læra. Eins og þú veist er maðurinn minn sérfróður um sönghefðir fyrri tíma. Við kynntum okkur saman, hvemig Mozart skreytti aríu eftir J.S. Bach, sem minnir mjög á fyrstu aríuna í „Exultate Jubilate". Og svo fómm við líka fyir það, hvernig hann skreytti aríu í ópemnni „Lucio Silla“, sem sungin var af sama söngvara og fmmflutti „Exulate". Með tíð og tíma langar mig til að læra að skreyta 18. aldar tónlist á sama hátt og þeirra tíma söngvarar gerðu. Þeir skreyttu samkvæmt innblástri augnabliksins og vom því aldrei eins frá einum flutningi til annars. Mér finnst eins og þessi afstaða sé vel til þess fallin að blása lífí í tónlist, sem annars gæti hætt til að verða óinnblásinn lestur á dauðum nótum, ef til vills sam- vizkusamlega útfærður en lífvana. Arían úr Hamlet höfðar hins vegar til mín fyrir það, að hún gefur mér tækifæri til að syngja ástríðufulla, dramatíska tónlsit inn- an þess ramma sem léttri kólórat- úrrödd er eðlilegt. Ég elska rómantíska tónlist, þar sem „mbato“ og „portamento" bætist við leiftureðli flúrsöngsins.“ Og loks lýsir Debra Vanderlinde ánægju sinni yfir að vera komin til íslands. í för með henni er eigin- maður og kornung dóttir, Victoria, sem er ekki nema nokkurra mán- aða gömul og í sinni fyrstu utan- landsferð. Ég fyrir mitt leyti vil bjóða fjöl- skylduna velkomna til landsins og þykist þess fullviss, að tónleikarnir 19. júní eigi eftir að verða eftir- minnileg lyftistöng fyrir Listahátíð.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.