Morgunblaðið - 19.06.1988, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 19.06.1988, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 1988 ° B3 7 Þaö er um að gera aö vera nokkuÖ skotheldur Rætt við Ara Gísla Bragason Það liggnr jafnan í loftínu eilítíl eftirvænting þegar von er á bók eftír nýjan höfund. Menn sem áhuga hafa á skáldskap velta gjarnan fyrir sér hvað hin- um nýja leikmanni á ritvellinum liggi á hjarta og ná sér í bókina til að kynna sér það. Svo eru þeir sem safna bókum, þeir sem eru forvitnir, þeir sem hneyksl- ast og loks þeir sem láta sér á sama standa. Menn líkja stund- um tilurð og útkomu ritverks við fæðingu og vafalaust má finna vissa hliðstæðu með þess- um atburðum. Eitt er þó ólíkt með þessu tvennu, það þykir best fyrir börn að fæðast þegar sumarið fer i hönd, enda eru fæðingar oft flestar að vorlagi og fram á sumar. Það þykir hins vegar best fyrir bækur að koma út þegar veturinn fer í hönd, enda koma flestar bækur út á haustin og fram undir jól. Þessa dagana er að koma út ný ljóðabók eftir Ara Gísla Braga- son, og er það hans fyrsta bók. Þeir sem eitthvað velta fyrir sér andlegum hræringum ungra manna í Reykjavík um þessar mundir kannast við Ara Gísla, vita að hann yrkir ljóð, var í Menntaskólanum í Reykjavík, þeir sem gerst telja sig þekkja til mála segja að hann sé þess konar maður sem vinir leita uppi til að deila með hörmum sínum. Við mæltum okkur mót á Mokkakaffi á Skólavörðustíg og Ari kom með handritið að ljóða- bókinni með sér. Ég settist við að lesa. Ljóðin voru ekki í réttri röð en það kom ekki að sök. Að lestri loknum gengum við Ari saman inn Bergstaðastræti til að geta spjallað saman í næði. Við námum staðar þar sem áður var bamaheimilið Ós og settumst þar á útidyratröppur og létum ekki á okkur fá þó eigandi hússins ræki upp stór augu. Ari er fæddur í Reykjavík 3. mars 1967, sonur hjónanna Nínu Bjarkar Ámadóttur og Braga Kristjónssonar og ólst upp í Þing- holtunum og seinna í Vesturbæn- um. Hann fór semma að velta fyrir sér ljóðum og ljóðagerð. „Ég byijaði að yrkja um það leyti sem ég var í áttunda og níunda bekk í Hagaskóla," segir Ari, þegar ég spyr hann um upphafið. „Þetta gerðist í tengslum við skólablað sem ég og nokkrir félagar mínir vorum með. Ég hélt áfram að yrkja, oft í einhveiju samhengi við ýmiskonar útgáfur skólablaða eða pistla, og við uppákomur. Þegar frá leið orti ég til að koma á framfæri myndum sem ég hafði gaman af að draga upp. Ég kynnti mér snemma verk Jóhanns Siguijónssonar og Jó- hanns Jónssonar og seinna Noet Coward, ég er mjög hrifinn af honum. Jóhannamir tveir eru enn- þá fyrir mér aðalmennimir í íslenskum skáldskap. Fyrstu yrk- isefni mín vom „unglingsbömmer- ar“, ímyndað þunglyndi á köflum. Nú skipar ástin stóran sess enda er ég líklega á þeim aldri.“ Ari gefur mér spyijandi homauga um leið og hann segir þetta. Það næðir um okkur þar sem við sitj- um á tröppunum og ég dreg jak- kann betur uppí háls um leið og ég spyr Ara hvort hann sé þung- lyndur. „Hreint ekki,“ svarar hann. „Frekar léttlyndur held ég. Flest af því fólki sem ég þekki og fæst við að yrkja er fremur léttlynt, tekur sjálft sig hæfilega alvarlega, kannski kemur maður lika þunglyndinu af sér í ljóðun- um.“ Ari segir mér að hann eigi um hundrað ljóð eftir sig og hafí valið úr því í bókina. „Mikið af þessu er náttúrlega msl en ég vann út úr búnkanum um 40 ljóð sem ég birti í bókinni, ég er nokk- uð sáttur við þessi ljóð, þó nokkur séu reyndar gömul.“ Ari gefur sjálfur út bók sína og segir mér að það sé töluvert vafstur í kringum slíkt, „en engin ijárhagsleg áhætta," segir hann. „Ég þarf að selja milli 50 og 100 eintök til að útgáfan standi á sléttu. En ég stefni eitthvað að- eins hærra. Ég geri ráð fyrir að selja bókina sjálfur á götum, í húsum og eitthvað í búðum." Ég spyr Ara hvort honum þyki ekkert erfitt að birta hugsanir sínar á prenti. Nei, honum fínnst það ekki. Segist enda ekki gefa allt upp og vera hæfilega var um sig. „Maður á nokkur leyndarmál ennþá," segir hann og brosir. Ég spyr hvort hann lesi mikið. „Tölu- vert,“ svarar hann en fínnst hann þó ekki lesa nóg, og bætir við: „Ætli ég sé ekki meira „bíófrík“.“ Hann segist hafa séð ýmislegt í kvikmyndum sem hafí seinna komið honum til góða við ljóða- gerð. „Það er nauðsynlegt að þroska sig sem mest. Þar er reynslan náttúrlega besti skólinn. Sjálfsnámið er líka gott og ekki síður einstaklingshyggjan," segir Ari. Hann segist umgangast mik- ið fólk sem fæst við að yrkja. „Þetta fólk er oft niðri í bæ, í hópi þess eru vinir og kunningar. Einstaka sinnum lesum við hver fyrir annan, mest fyrir tilviljun þó.“ Ari Gísli hætti í MR eftir fímmta bekk. „Ég varð gripinn gífurlegum námsleiða og sé ekki eftir að hafa hætt ennþá. Ég hugsa nú samt að ég drífí mig og ljúki prófínu, jafnvel í haust," segir hann. Á sumrin hefur Ari unnið hjá Flugleiðum á Keflavík- urflugvelli og Reykjavíkurflug- velli. Einnig hefur hann gert einn sjónvarpsþátt um ljóðlist og annar þáttur er fyrirhugaður, en óvíst um efni hans. „Eg er í lausa- mennsku núna,“ segir Ari. „Ég ætla að reyna að vinna eitthvað fyrir fjölmiðla í sumar án þess þó að ráða mig í fasta vinnu. Ég hef áhuga á fjölmiðlun og hef jafnvel hugsað mér að læra eitthvað sem tengist henni." Leikhús er innan áhugasviðs Ara og meðan hann var í MR gerði hann leikþátt sem sýndur var í þættinum Ánnir og appelsínur sem var á dagskrá Ríkissjónvarpsins sl. vetur. „Leik- þátturinn fjallar um kaffihúsa- prins og vin hans, taugaveiklaðan lögfræðing. Ég dró upp „kaffi- húsastemmningu" og áhrifamikið samtal milli fyrmefndra vina. — Ég hef eytt töluverðum tíma á kaffíhúsum," bætir hann við. Talið berst að ástinni og þeirri hnappheldu sem hún kemur mönnum stundum í. „Það er best að horfa á ástina í fjarlægð en nálgast hana þó stundum," segir Ari. „Reynslan hefur marg oft sýnt að það borgar sig ekki að binda sig of fljótt. Ég er raunar nýkominn úr föstu sambandi. Það hafði sínar góðu hliðar, ég slapp nokkuð heill á húfi. Það er um að gera að vera nokkuð skotheld- ur. Maður er ungur, á margt eft- ir að gera, fara út í heirn." Ari horfir þunglyndislega á gráa stéttina og okkur er báðum orðið kalt. Við stöndum upp og röltum áleiðis að Mokkakaffi til þess að fá þar í okkur hita á ný. Að lokum gefur Ari mér miða í veisluna sem hann ætlar að halda vinum og velunnurum á Café Hressó að kvöldi hins 17. júní nk. Þegar við kveðjumst fer Ari niður í bæ til að hitta kunningjana og heldur á bókarhandritinu sínu undir hend- inni. Ég horfí á eftir honum og gef í huganum höfundinum og bókinni hið eina veganesti sem mér er unnt þá stundina, óska þess að bókin njóti þess en gjaldi ekki, að koma í þennan heim um vorljósan dag. TEXTI: GUÐRÚN GUÐLAUGSDÓTTIR TOYOTA FJOLVENTLAVEUN NÝKMSLÓÐ BIL Tvfvirk titringsdempun á trissu ... TOYOTA FJÖLVENTIA VÉLAR Rismyndað brunahólf og kerti í miðju Ný hönnun - tannhjóladrifnir knastásar... Tveir knastásar, fjórir ventlar og „kross-flæðf Toyota og Qölve Enn kynnir Toyota tækninýjung á sviði fólksbíla, íjölventlavélina, sem er tvímælalaust upphaiið að nýrri kynslóö bflvéla. Þessi vél hefur 4 ventla við hvem strokk, eða alls 16, og tölvustýringu á vél og bensíninnspýtingu. Þessi búnaður eykur aíl vélarinnar, nýtir eldsneytið betur og minnkai' eyðsluna. Aðrir kostír Fjölventlavélin hefúr einnig svoneínt „breytUegt sogkerfi“. f tveggja hólfa soggrein er annað hóllið lokað við lágan snúning vélaiinnar. Við aukinn snúning eykst lofttæmi í soggreininni, sérstakur búnaður opnar hitt hólfið og eykur þar með tlæði blöndunnar tíl bmnaliólfa. Arangurinn er ótvíræður £5 Hraðari og betri bruni • Meira nýtanlegt afl Aukin sparneytni • Snarpara viðbragð Sem sagt: Háþróuð tækni... og bfil sem hæíir henni. Hvort sem ekið er hægt eða sprett úr spori, verður ánægjan af Toyota óblandin. TOVOTA Fjölventiavélin — bflvél fraintíðarinnar TOYOTA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.