Morgunblaðið - 19.06.1988, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 19.06.1988, Qupperneq 10
88ei intn. .ei HUOAair/uua ,aiOAjanuDíiov. MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 1988 Félagar í Jöklarannsóknafélag- inu í íshelli sem er um 100 metr- um undir jökii á Grímsfjalli. Jarðhiti hefur myndað hvelfing- una. insúlínspraiitima í j öldaferðum Jón Sveinsson. Morgunblaðið/KGA GÓÐ heilsa er gulli betri segir máltækið, en fáir leiða hugann að því fyrr en eitthvað bjátar á. Fyrir 25 árum var Jón Sveinsson á fyrsta ári í menntaskóla. Hann hafði lést óeðlilega og var alltaf þyrstur. Hann leitaði því læknis og í ljós kom að hann var með sykursýki. Síðan hefur hann þurft að sprauta sig með insúlíni á hveijum degi. Jón er þó ákveðinn í að láta sjúkdóminn ekki aftra sér frá þvi að lifa sem eðlilegustu lífi. Samt lifir hann þó að vissu leyti óvenjulegu Iífi — ekki vegna sjúkdómsins heldur vegna þess að hann dvelur oft uppi á jöklum starfs síns vegna. Jón er rafmagnstæknifræðingur og vinnur á Raunvísindastofnun Háskólans meðal annars við mælingar á jöklum. Jöklarnir eiga greinilega hug hans allan því hann er líka félagi í Jöldarannsóknafélaginu. élagar mínir og samstarfsmenn í jöklaferðunum vita hvemig ástatt er fyrir mér og taka fullt tillit til þess í öllum okkar sam- skiptum. Það er nauðsynlegt að þeir viti takmörk mín og hvað hugsanlega gæti kom- ið fyrir,“ sagði Jón þegar blaðamað- ur Morgunblaðsins hitti hann að máli á dögunum. „Ég hef sem betur fer aldrei orðið ósjálfbjarga eða upplifað neitt sem ég hef ekki ráðið við sjálfur í sambandi við sjúk- dóminn.“ Jón segist ekki hafa fundið fyrir sykursýkinni að öðru leyti en því að hann hafði lést og var síþyrstur, eins og áður segir. Honum datt ekki í hug að hann væri með sykur- sýki, en hélt að þetta stöðuga vatns- þamb væri bara ávani. „Það var meiri háttar áfall að uppgötva að ég var með sykursýki. Það hlýtur að vera þannig hjá hveij- um þeim sem lendir í þessu. Þetta var mjög óvænt." Mikill þorsti er algengasta ein- Jón og Helga Haraldsdóttir kona hans á Hvannadalshnjúki. kennið á insúlínháðri sykursýki. En sykursýki er í raun og veru tvenns konar. Annars vegar sykursýki sem kemur fram hjá eldra fólki og þarf það þá ekki að sprauta sig með ins- úlíni, heldur passa upp á mataræðið og nota töflur. Hins vegar sykur- sýki hjá ungu fólki sem stafar af því að insúlínframleiðslan í brisinu bregst. Þá þarf sjúklingurinn að fá insúlínsprautur tvisvar til fjórum sinnum á dag. Minnsta málið að sprauta sig „Það er minnsta málið að sprauta sig,“ segir Jón. „Það er kannski erfitt svona til að byija með, en þegar frá líður og ýmsir aðrir erfíð- leikar sem fylgja sjúkdómnum koma oft fram þá er sprautan minnsta málið, enda eru nú til góð áhöld til þessara hluta." Talið er að um 2000 íslendingar hafí sjúkdóminn, en þar af eru 400 háðir insúlíni. Hjá ungu fólki leyna einkenni sjúkdómsins sér ekki og koma þau oftast frekar skyndilega. Sykursýki er fyrst og fremst öld- runarsjúkdómur og eldra fólk getur gengið með insúlínóháða sykursýki árum saman án þess að hafa hug- mynd um það. Einkennin eru lítil og stundum finnst sjúkdómurinn vegna þess að sjúklingurinn leitar læknis af öðrum ástæðum, sem oft eru afleiðingar sykursýki. Dæmi um þetta er skemmd á augum og æða- kerfi, en þeir sem hafa sykursýki geta orðið blindir skyndilega. Jón lenti sjálfur í því fyrir skömmu. Hann var að beygja sig og hnerraði í þeirri stöðu. Við það sprakk eitthvað í öðru auganu. Hann segist hafa verið orðinn stein- blindur að tveimur tímum liðnum, en nú hefur þetta jafnað sig aftur að nokkru leyti. — Hefur meðferð sykursjúkra breyst frá því að þú fékkst sjúk- dóminn? „Já það hefur margt breyst og raunar má segja að ég hafi vitað ósköp lítið um þennan sjúkdóm fyrstu tólf til þrettán árin sem ég hafði hann — hveijir væru fylgi- Með Helga Björnssyni jarðeðlisfræðingi á Grímsfjalli sumarið 1987. kvillar hans og hve mikilvægt mat- aræði er. Ég var á sífelldu flakki á þessum árum og hafði sama lækninn aldrei nema í stuttan tíma í einu. Þegar sykursýkin uppgötvaðist átti ég eftir þijú ár í menntaskóla á Akureyri. Þá bjó ég í tvö ár austur á landi og eftir það í eitt ár í Reykjavík. Loks lá leiðin til Þránd- heims í Noregi og þar bjó ég í þijú ár. í Noregi kynntist ég fyrst sam- tökum sykursjúkra og á fyrirlestrum hjá þeim heyrði ég fyrst um hversu þýðingarmikið rétt mataræði er. Það er ekki nóg að fá insúlín því maður verður að halda reglu á mataræðinu svo blóðsykurinn sveiflist ekki til og frá. Nú til dags er lögð áhersla á allt aðra hluti en fyrir 20 árum og margt sem vitað er um nú var ekki þekkt þá. Til dæmis var undantekning að fólk væri látið sprauta sig oftar en einu sinni á dag. Nú er þetta gert tvisvar til íj'órum sinnum á dag til að blóðsykurinn sé í meira jafnvægi. Fræðslan hefur aukist gifurlega og það tel ég koma í veg fyrir að sykursýkissjúklingar einangrist. Því meiri fræðslu sem maður fær og vitneskju um sjúkdóminn og hegðan hans þeim mun betur getur manni liðið. Það er sagt að þetta sé einn af fáum sjúkdómum sem sjúklingur- inn á að vita sem mest um.“ Samtök sykursjúkra voru stofnuð hér á landi 1971 og segir Jón þau hafa breytt miklu fyrir sykursjúka. Fyrsta markmið þeirra var að koma á reglubundinni læknisfræðiþjón- ustu við sykursjúka sem gerðist með stofnun göngudeildar sykursjúkra 1974. Eftir að fólk er einu sinni

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.