Morgunblaðið - 19.06.1988, Side 12

Morgunblaðið - 19.06.1988, Side 12
12 8 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGÚft 19. JÚNÍ 1988 Flakið dregið upp og skoðað: skugginn sem fylgir Kennedy W gTwk B H C—- H M H H pH H j, Ma ii v JHL lÆtil^ .P sp^’ Ke / r> 1 ° • Edward Kennedy: þungar ásak- anir Mary Jo Kopechne: fór með Joseph Gargan: frændinn sem Kennedy úr veizlunni rýfur þögnina á Chappaquiddick? Frændi Edwards Kennedys rýfur þögnina Sumarbústaðurinn, slysstaðurinn og feijuhöfnin á Chappaquiddick: „sorg... ótti... efasemdir... þreyta...“ — og sektarkennd MARGT hefur verið á huldu um það sem gerðist þegar Edward „Teddy" Kennedy öldungadeildarmaður ók svartri Oldsmobile-bifreið út af hrörlegri brú á Chappaquiddick-eyju við Þorskhöfða (Cape Cod) í Massachusetts fyrir 19 árum og 28 ára gömul kona, sem var með honum í bílnum, Mary Jo Kopechne, drukknaði. Var hann drukkinn? Ætlaði hann að bera víurnar í hana? Reyndi hann að hylma yfir slysið? Reyndi hann að múta fjölskyldu hennar til að þegja? Tók lögreglan þátt i samsæri með honum? etta eru aðeins nokkrar þeirra spuminga, sem málið hefur vakið og skýr svör hafa ekki fengizt við, en nú hefur frændi Kennedys og lögfræðingur, Joseph Gargan, rofið þögnina. Og ef trúa má því sem hann heldur fram í væntanlegri bók, Senatorial Privilege (Þinghelgi) eftir Leo Da- more, hefur Kennedy villt um fyrir lögreglunni, blöðunum og almenn- ingi í öll þessi ár og beitt miklum áhrifamætti ættar sinnar til að þegja málið í hel. Bókin svarar ekki öllum spum- ingum, en Gargan mun m.a. halda því fram að Kennedy hafi hugsað upp ráðagerð um að ljúga til um hver hefði ekið bílnum, ekki virzt hafa áhuga á að bjarga Kopechne og ekki hirt um að tilkynna slysið í tæpa 10 tíma vegna skeytingar- leysis. Gargan leggur á það áherzlu að ef Kennedy hefði verið sam- vizkusamari og gert eitthvað fyrr kynni Kopechne að vera á lífi enn þann dag í dag. Þótt bókin komi ekki út fyrr en eftir nokkra daga hefur m.a. verið skýrt frá staðhæfingum Gargans í brezka blaðinu Sunday Times, sem hér er m.a. stuðzt við. Fjölskylda Kennedys hefur þegar vísað ásök- unum hans á bug og það kemur ekki á óvart. Útiveizla Eins og vikuritið Newsweek benti á í upphafi virtist það sem kom fyrir Kennedy, sem þá var 37 ára gamall, áþekkt mörgum atvikum, sem voru skráð í lögregluskýrslur á hveiju kvöldi á þessum árstíma: „Maður ók stúlku heim síðla kvölds eftir veizlu í sumarbústað. Hann tók ekki eftir brú á vegi, sem hann var lítt kunnugur, og bíllinn steyptist fram af brúnni." En það sem gerði málið einstakt var að í hlut átti „öldungadeildarmaður á uppleið, að 10 klukkustundir liðu frá því slysið varð og þar til hann tilkynnti það og að vitað var að samstarfsmenn hans höfðu haft áhyggjur af því að hann væri of drykkfelldur og kvenhollur." Sex ógiftar stúlkur höfðu átt hugmyndina að útiveizla því að yrði haldin á Chappaquiddick um sömu helgi og hefðbundin kappsigling átti að fara fram í Edgartown á granneyjunni Martha’s Vineyard. Þær höfðu allar starfað fyrir Ro- þert Kennedy, bróður Edwards og Johns heitins forseta, þegar hann barðist fyrir því að verða valinn forsetaframbjóðandi demókrata áð- ur en hann var myrtur, 6. júní 1968. Leiðir þeirra skildu, en þær höfðu þrisvar sinnum áður haldið sams konar „partí“ til að hitta aftur fyrri starfsfélaga. Ein þeirra, Esther Newberg, fékk Gargan, sem var hjálparhella Kennedy- fjölskyldunnar, til að skipuleggja veizluna á Chappaqu- iddick. Hann tók á leigu sumarbú- stað á eyjunni, útvegaði stúlkunum gistingu í Edgartown, áfengi og mat í veizluna og útvarpstæki til að hægt yrði að hlusta á tónlist. Kennedy var boðið og fjórum mönn- um öðrum: Jack Crimmins, sem var bílstjóri Kennedys í hjáverkum, Paul Markham, lögfræðingi hans í Boston, Ray LaRosa, fv. kosninga- starfsmanni og gömlum siglingafé- laga Kennedys, og Charles Tretter, lögfræðingi hans og kosningaráð- gjafa. Veizlan fór fram föstudaginn 18. júlí 1969 eins og ráð hafði verið fyrir gert, en gestirnir virtust eitt- hvað niðurdregnir. Gargan man að Kennedy fór með Kopechne um kl. 11.50 e.h. til að ná í feijuna til Edgartown. Hann hafði tekið þátt í siglingakeppninni (hann varð níundi) og kvaðst vera þreyttur, en Mary Jo var kvöldsvæf. Hinir gest- imir misstu af síðustu feijunni og létu fyrirberast í sumarbústaðnum. Daginn eftir sögðu stúlkumar að enginn veizlugestanna hefði verið áberandi dmkkinn. „Það hefur orðið slys í bók Leós Damore segir Gargan að skömmu eftir miðnætti hafi La- Rosa komið fram í eldhús og til- kynnt að Kennedy vildi tala við hann. Þegar Gargan kom út sá hann Kennedy í aftursæti eins af bílunum, sem stóðu fyrir utan. „Það hefur orðið hræðilegt slys,“ sagði Kennedy. „Bíllinn fór út af brúnni niðri í fjöru og Mary Jo er í honurn." Gargan segir: „Hann tók fram að hann hefði ekið bílnum og Mary Jo verið með honum. Hann sagði ekki hvernig slysið hefði borið að. Hann sagði aðeins: „Það hefur orð- ið slys.“ Meira þurfti ég ekki að vita. Eina hugsunin, sem komst að hjá mér, var: Farðu niður að brúnni eins fljótt og þú getur." Kennedy hafði ekki tekið eftir greinilegu umferðarmerki og beygt til hægri, en ekki til vinstri eins og hann varð að gera, ef hann hann ætlaði til fetjuhafnarinnar vestast á Chappaquiddick, gegnt Edg- artown. Því ók hann Oldsmobile- bifreiðinni eftir moldarvegi að hrör- legri trébrú á Poucha-tjöm austast á eyjunni. Seinna kvaðst hann hafa verið á um 35 km hraða, en séð brúna svo ógreinilega að bíllinn hefði steypzt fram af henni og út í tjörn. Hann komst út úr bílnum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.