Morgunblaðið - 19.06.1988, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 19.06.1988, Blaðsíða 16
16 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 1988 Skipt í annan Föstudagurinn 25. september bætti upp alla okkar erfiðleika, ófærð og óveður til þessa. Dyngju- jökull, Dyngjufjöll og Herðubreið t birtust í gljáfægðu sólskini og tindr- andi snjóflekkir lýstu upp Holu- hraunið og svarta sandana. Að sumri til er svæðið sunnan Öskju dularfullt og framandi og núna í vetrarbyijun var það eins og ferða- lag um aðra stjömu að aka hér um á fimm litlum bílum. Við störðum djúpt snortin á þennan óendanleika. Jafnvel Siguijón, sem verið hafði þögull alla ferðina, fékk málæði, enda kominn á heimaslóðir. Við gátum nú kastað frá okkur vélsleðagöllunum, sem við höfðum vakað og sofið í undanfama daga, ” og eftir allt hjakkið og spólið var 20 kílómetra ökuhraði líkastur flug- ferð. Aurbleyta fremur en straumur olli okkur áhyggjum, þegar við fikr- uðum okkur yfir Jökulsá á Fjöllum, hveija kvíslina á fætur annarri. Við náðum þó yfír án þess að til vand- ræða kæmi. Þegar nóttin skreið yfir skálann í Kverkfjöllum bauð náttúran upp á eftirrétt í framhaldi af kræsingum dagsins. Við gátum í rúman klukku- tíma séð himininn lýsast upp af stórbrotnari norðurljósasýningu en við höfðum áður upplifað. Bjartar kórónur og geislar kvikuðu um him- ininn. Aðeins þeir, sem ferðast um óbyggt hálendið, eiga von á slíku. Vonbrigði Það er erfitt að búa jeppa þannig út, að hann sé jafnfær í jöklaferðir Hinir illræmdu farartálmar Kreppa og Kverká voru meinlitlir í haust- frostinu. Uppi á Fagradalsfjalli heyrðust skyndilega flugvélardrunur. Eftir að jeppamir höfðu í skyndi troðið flugbraut settist vélin þar hjá þeim. Þarna reyndist vera Ómar Ragnarsson á ferð. Snæfell, drottning Austurlands. Við Sauðafell norðan Snæfells kom olíubíll frá Essó til móts við leiðangurinn til að birgja hann upp af eldsneyti fyrir síðasta áfang- ann. Jökulsá í Fljótsdal var eins og hafsjór yfir að líta. Það vora viðbrigði að koma niður í Fljótsdalinn eftir tvær vikur á gróðursnauðu hálendinu. Jafnvel í rigningarsudda náði Mjóifjörður ekki að dylja stórbrotna fegurð sína. Jeppaflotinn fikrar sig út með Húsgöflum í mynni Mjóafjarðar. Á Dalatanga var fé komið heim á tún. Takmarkinu náð eftir 17 daga ferð yfir landið endilangt frá vestri til austurs. Vitinn yst á Dalat- anga. og vatnabusl. Á jökli skiptir öllu, að bíllinn sé sem léttastur en í vatnsstraumi getur hið gagnstæða skipt sköpum. Við vorum með allan útbúnað til að sulla í vötnum, loftbarka og jafn- vel björgunarvesti. En jafnvel stærstu ámar, Kreppa og Kverká, rétt náðu að guslast upp á húddið og aðeins léttasti Nissan-bíllinn flaut lítillega. í Grágæsadal vorum við að bijót- ast upp Fagradalsfjallið til að kom- ast yfir í Brúardali, þegar ka.ll barst frá frímerkjasafnara. Þetta var sú gerð frímerkjasafnara, sem safnar frímerkjastórum flötum um landið þvert og endilangt til að lenda flug- vél sinni á, öðru nafni Ómar. Við tróðum flugbraut þarna uppi á fjall- inu, sem Omar bætti í safn sitt stuttu síðar eftir að hafa athugað aðstæður vel í lágflugi. Sól var að setjast, þegar hann . flaug burt á ný. Drottning Austur- lands, Snæfellið, blasti nú við í fjólu- bláum roða í austri. Við ókum niður með Jökulsá á Brú um kvöldið og þótt komin væri mið nótt beið okk- ar óvænt hreindýraveisla og nætur- gisting hjá Einari bónda á Brú, þegar þangað kom. Víð fengum þær fréttir, að Hrafnkelsdalur væri ófær en við tókum lítið eftir því, þegar við ókum hann í suður á leið okkar í Snæ- fell. Það var að færast yfir vonsku- veður á ný og Snæfellsskálinn hrist- ist og skókst í öskuroki um kvöldið. Það lætur ekki að sér hæða hálend- ið á þessum árstíma: Við náðum talstöðvarsambandi við Bruce, flugmanninn okkar, sem setið hafði veðurtepptur á Hvera- völlum í viku. Flugferð hans þangað inneftir í samfloti með okkur hafði á stundum litið glæfralega út. Það hefði verið óðs manns æði að halda áfram á slíku fisi við þau veðurskil- yrði, sem ríkt höfðu síðan. Þar eð litlar líkur voru á batnandi veðri og 250 kílómetra flug yfir óbyggðir skildi okkur nú að, sáum við ekki annan kost en hætta við þá tilraun að fljúga vélinni yfir landið. Þetta voru mikil vonbrigði fyrir okkur og ekki síst Bruce, sem yrði nú að leita færis að fljúga yfir Kjöl suður á Flúðir. Fleira varð til að valda okkur vonbrigðum þetta kvöld. Það upp- götvaðist, að við höfðum skilið eftir mikilvægar filmur við „flugvöllinn" á Fagradalsfjalli fyrir sólarhring. Við óttuðumst að þær fykju út í bláinn ef þær voru þá ekki þegar foknar í þeim 10 vindstigum, sem nú næddu um óbyggðirnar. Þórar- inn og Guðmundur „buðust“ því til að fara og ná í þær um nóttina á meðan við hin gæddum okkur á ljúf- fengu fjallalambi. Þetta var.yfír 200 kílómetra torfæru að fara og furðu- legt, að menn leggi annað eins á sig fyrir einn viskípela. Og reyndar ennþá furðulegra, að þeir skyldu finna það sem þeir leituðu að uppi á fjalli í hávaðaroki og nætur- myrkri. Niður til sjávar Það voru viðbrigði eftir tvær vik- ur á gróðursnauðu hálendinu að koma niður í Fljótsdalinn. Við tók- um því á okkur krók inn í Hallorms- staðaskóg til að þreifa á tijánum. Essó hafði sent olíubíl til móts við okkur langleiðina inn í Snæfell. Við gátum þannig birgt okkur vel upp fyrir síðasta áfangann. Siguijón hafði fullyrt, að Jökulsá á Fljótsdal yrði enginn farartálmi. Við áttum bágt með að trúa honum, þegar við sáum gripinn. Þetta var straum- harður hafsjór yfir að líta og einir 40 til 50 metrar yfir á hinn bakk- ann. En Siguijón vissi hvað hann söng. Áin var ekki eins djúp og hún virtist og botninn þama rétt ofan við flúðimar var sléttur. Við kom- umst yfir án erfiðleika og héldum niður að Lagarfljóti. Á Egilsstöðum biðu okkar höfð- inglegar móttökur, veisla og lúxus- gisting í sumarhúsum hjá Hlyn og Eddu í Miðhúsum. En endamarkinu var ekki náð og því lögðum við enn af stað á þungskýjuðum morgni niður í Mjóafjörð, sem skartaði sínum fegurstu rigningarskúrum á þessum þungskýjaða morgni. Jafn- vel í sliku veðri birtist stórfengleg náttúra Qarðarins með þverhnýpt- um hengiflugum og hvössum þús- und metra háum fjallstindum. Við ókum gegnum skriðurnar norðan megin íjarðarins. Vegurinn sveigði í norður þegar út úr firðinum kom og fylgdi Dalsfjallinu út að vitanum á Dalatanga. Við vorum komin alla leið, rúma 800 kílómetra, á 17 dögum á fimm bílum með 11 manns og einn hund innanborðs. Við lofuðum að taka aldrei upp á svona vitleysu aftur, en úr því það heyrði enginn til okk- ar er ekkert víst að við stöndum við það ... (Kvikmynd um leiðangurinn „88o í austur" verður frumsýnd innan skamms.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.