Morgunblaðið - 19.06.1988, Síða 20

Morgunblaðið - 19.06.1988, Síða 20
20 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 1988 Rabarbari Þegar ég var að alast upp, var lítið sem ekkert til af ferskum ávöxtum, en foreldrar mínir ræktuðu mikinn rabarbara. Við systkinin þrifumst vel, urðum stór og sterk þrátt fyrir mikla rabarbaraneyslu, og var það ekki fyrr en ég komst til fullorðinsára, sem ég heyrði að rabarbari væri óhollur, þó er í honum bæði ávaxtasykur og málmsölt, en einnig oxalsýra, sem hindrar nýtingu kalks. En mér finnst rabarbari góður og bý til margt úr honum, og þegar hann kemur upp snemma sumars, tek ég hann fram yfír innflutta ávexti. íslendingar gera ekki Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON margt annað við rabarbarann en búa til úr honum sultu, en áður var hann mikið nýtt- ur í súpu og grauta. í erlend- um matreiðslubókum skipar hann háan sess og er metinn að verðleikum.. Það undarlega er, að plöntufræðilega tilheyrir ra- barbari grænmeti en ekki ávöxtum. Plantan er upp- runnin í Kína, en var ræktuð í Rússlandi fyrir 3.000 árum og þá sem lækningaplanta, en þar eins og í Kína voru rætumar nýttar til lækninga. Rabarbari er ræktaður um alla Norður-Evrópu, og er hann auðveldur í ræktun og þarf ekki hátt hitastig. Ef við gefum honum örlítinn áburð, helst mykju, og sting- um upp í kringum hann, fáum við góða uppskeru. Bestur er rabarbari snemma sumars og þá þarf líka minni sykur í hann, og allra Ijúf- fengastir em hvítu hnúðarnir neðst á leggjunum, sem ég kallaði alltaf pemr í mínu ungdæmi. Móðir mín skar þessa hnúða af og matreiddi eins og niðursoðna ávexti. Sú uppskrift mun komin frá frk. Helgu Sigurðardóttur, en í þá daga var ekki mikið um niðursoðna ávexti, en þetta er í líkingu við þá og raunar fínnst mér það miklu betra og með ís eða þeyttum ijóma er þetta hreint lostæti. Rabarbara-„perur“ 500 g rabarbarahnúðar 2V2 dl sykur rifínn börkur af hálfri sítrónu V2 kanilstöng 2 dl vatn 1. Setjið vatn, sykur og kanil- stöng í pott. Sjóðið við hægan hita í 10 mínútur. Hafið víðan pott. 2. Setjið sítrónubörk út í.. 3. Skerið hnúðana af rabar- baranum, þvoið og snyrtið. Setjið í löginn í pottinum. Sjóðið við hægan hita í 10 mínútur. 4. Kælið. Meðlæti: Þeyttur ijómi eða ís. Rabarbara-„perur“ með marengs 500 g rabarbarahnúðar, soðn- ir eins og segir hér að ofan. 3 eggjahvítur 2 dl sykur 50 g möndlur eða hnetur 1. Setjið soðna rabarbara- hnúðana í eldfasta skál. Takið kanilbörkinn úr 2. Þeytið eggjahvítumar, setj- ið sykurinn smám saman út í og þeytið vel á milli. 3. Setjið marengsinn yfir ra- barbarann í skálinni. 4. Saxið möndlumar eða hnet- umar og stráið yfir. Fyllingin: 1 kg rabarbari IV2 dl vatn 150 g sykur 2 blöð matarlím 150 g makarónukökur 9. Þvoið rabarbarann og ske- rið í litla bita. 10. Sjóðið saman vatn og sykur og setjið rabarbarann út í. Setjið ekki alla í í einu. Heldur takið þá sem soðnir eru upp úr og bætið síðan í pottinn. 11. Leggið matarlímið í bleyti í kalt vatn í 10 mínútur. 12. Sjóðið löginn af rabarbaran- um niður þar til hann er IV2. Takið áður allan rabarbara upp úr leginum. 13. Bræðið matarlímið í heitum leginum. 14. Hrærið matarlímslöginn út í rabarbarabitana. Þejrtið í þannig að rabarbarinn fari í mauk. 15. Myljið makrónukökumar gróft í lófanum og setjið yfir botninn. 16. Hellið rabarbaramaukinu yfir. Látið stífna í kæliskáp í 2-3 klst. Meðlæti: ís eða þeyttur ijómi. 5. Hitið bakaraofn í 130- 140oC. Setjið skálina í miðjan ofninn. Meðlæti: ís. Rabarbararúlla (bökuð í sneiðum) Byijið á að útbúa lög til að hella yfir kökuna. 2 dl flórsykur safi úr V2 sítrónu IV2 dl vatn 1. Setjið flórsykur, sitrónusafa og vatn í pott. Látið sjóða þar til sykurinn er vel uppleystur. Sjóðið þá áfram í 2 mínútur. 2. Kælið og geymið. Deigið: 250 g hveiti 3 tsk. lyftiduft 125 g smjör eða smjörlíki 40 g haframjöl u.þ.b. IV2 dl mjólk 3. Setjið hveiti og lyftiduft í skál. 4. Skerið smjörið smátt og myljið saman við. 5. Setjið haframjöl út í og svo mikið af mjólkinni að þetta verði mjúkt en ekki klístrugt deig. 6. Fletjið deigið út á hveitistr- áðan smjörpappír. Þetta á að vera u.þ.b. 30x20 smf Fyllingin: V2 kg rabarbari 75 g púðursykur « 1 tsk. kanill IV2 dl rúsínur .25 g brætt smjör 7. Þvoið rabarbarann 0g ske- rið í þunnár sneiðar. Sétjið í skál ásamt rúsínum. 8. Blandið saman kanil og púðursykri og setjið út í. Rúllan: 9. Smyrjið helrhingi smjörsins yfir útflatt deigið. 10. Setjið rabarbarafyllinguna á og vefjið þétt upp á lengdina. 11. Skerið rúlluna í 8 þykkar sneiðar. 12. Setjið rúllurnar á smurt eld- fast mót eða kökumót. Setja má bökunarpappír inn í mótið. Gætið þess að rúllurnar snúi rétt, þann- ig að þetta líti út eins og snúðar. 13. Smyrjið rúllurnar með því sem eftir var af brædda smjör- inu. 14. Hellið sítrónuleginum yfir. 15. Hitið bakaraofn í 200°C, blástursofn í 180°C. Setjið mótið í ofninn og bakið í 25-30 mínút- ur. Meðlæti: ís eða þeyttur ijómi. Rabarbarakaka Deigið: 100 g hveiti 100 g maizenamjöl 150 g smjör eða smjörlíki 1 egg 1 msk. kalt vatn. 1. Setjið hveiti og maizena- mjöl í skál. 2. Skerið smjörið smátt og myljið saman við. 3. Setjið vatn og egg út í og hnoðið samfellt deig. 4. Geymið deigið í kæliskáp í 2 klst. 5. Fletjið deigið út og leggið á botninn og upp með börmunum á bökunarmóti. 25 sm í þvermál. 6. Pikkið deigið með gaffli. 8. Kælið botninn. Rabarbarakaka með ha- framjöli V2 kg rabarbari eða rabar- barahnúðar 50 g rúsínur rifinn börkur af 1 appelsínu 100 g flórsykur 75 g smjör 100 g hveiti 75 g haframjöl. 1. Smyijið eldfasta djúpa skál, helst með flötum botni. 2. Þvoið rabarbarann og ske- rið í mjög þunnar sneiðar. 3. Setjið rúsínur, appelsínu- börk og 1 dl sykur saman við rabarbarann. Hrærið saman. 4. Setjið rabarbarann í ská- lina. 5. Setjið hveiti í skál, myljið smjörið saman við þar til þetta verður komótt. 6. Setjið haframjöl og 1 dl af flórsykri saman við hveit- ið/smjörlíkið. 7. Stráið deigmolunum jafnt yfir rabarbarann í skálinni. Þrýs- tið niður. 8. Hitið bakaraofn í 190°C, blástursofn í 170°C. Setjið ská- lina neðarlega í ofninn og bakið í 35-40 mínútur. Meðlæti: Þeyttur ijómi eða jógúrt hrærð út með hunangi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.