Morgunblaðið - 22.06.1988, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 1988
31
Tékkóslóvakía:
Jakes líkir stefnu sinni
við hugmyndir Dubceks
París, Reuter.
MILOS Jakes, leiðtogi Tékkósló-
vakíu, segir að stefnu sinni megi
líkja við stefnu Alexanders Dub-
ceks, sem steypt var af stóli eft-
ir innrás Sovétmanna í Tékkósló-
vakíu árið 1968, en hann hyggist
hins vegar beita ððrum leiðum
til að fá henni framgengt. Jakes
segir í viðtali sem birtist i
franska dagblaðinu L’Humanite
í gær að helsti lærdómurinn sem
draga megi af „vorinu í Prag“
sé sá að kommúnistaflokkurinn
megi ekki „missa tökin á þróun-
inni.“
„Enginn munur er á stefnu um-
bótasinnanna í janúar 1968 og til-
Botswana:
Gaborone, Botswana. Reuter.
lögum okkar nú,“ segir Jakes í við-
talinu. „Sú leið sem þeir kusu til
að fá henni framgengt er hins veg-
ar ólík þeirri sem við kjósum nú,“
bætir hann við.
Jakes segir að umbótastefna
Míkhaíls Gorbatsjovs Sovétleiðtoga
ryðji brautina fyrir breytingar í
Tékkóslóvakíu og að stjómvöld í
Prag hyggist fyigjast grannt með
flokksráðstefnunni í Moskvu í
næstu viku. „Umræðurnar þar
munu auka þekkingu okkar á
ástandi og þróun kommúnismans," .
segir Jakes. Hann bætir þó við áð
umbætumar í Tékkóslóvakíu verði
öðmvísi en í Sovétríkjunum. „Við
hyggjumst þróa kommúnismann
frekar, gera hann skilvirkari efna-
hagslega, nútímalegri, réttlátari,
öflugri og meira aðlaðandi," segir
Jakes.
Jakes tekur þó fram að þessar
umbætur komist ekki á sjálfkrafa
og þær mæti andstöðu og skilnings-
leysi meðal vissra afla í þjóðfélag-
inu. „Vissar venjur, hefðir og hug-
myndir halda velli,“ bætir hann við.
Jakes hefur hampað umbóta-
stefnu Gorbatsjovs, glasnost og
perestrojku, síðan hann hefur verið
við völd, en vestrænir stjómarerind-
rekar benda þó á að hann hafi tek-
ið þátt í hreinsunum innan tékk-
neska kommúnistaflokksins eftir
innrás Sovétmanna árið 1968. Jak-
es hafi verið ábyrgur fyrir því að
70.000 fijálslyndir stuðningsmenn
Dubceks vom reknir úr flokknum
og 350.000 flokksskírteini vom
gerð ógild um tíma. Þá hefur eftir-
lit tékknesku lögreglunnar með
andófshópum aukist síðan Jakes
komst til valda og árásum á þá í
opinberum fjölmiðlum hefur fjölgað
um leið og 20 ára afmæli innrásar-
innar í ágúst 1968 nálgast.
Tveir suður-afrískir
skemmdarverka-
menn handteknir
YFIRVÖLD í ríkinu Botswana,
sem á landamæri að Suður-
Afríku, skýrðu frá því í gær að
óvopnuð lögreglusveit hefði
komið sveit suður-afrískra
skemmdarverkamanna á óvart
á stað u. þ. b. átta km frá höfuð-
stað landsins, Gaborone. Mönn-
unum, þrem hvítum og tveim
svörtum, tókst að flýja á brott
i Iögreglubíl eftir að hafa skotið
á lögreglumennina og sært einn
lifshættulega. Bíllinn fannst
seinna yfirgefinn nálægt landa-
mærunum. Tveir hvítir menn,
sem tengdust hópnum, náðust
er þeir reyndu að komast yfir
landamærin.
Skömmu eftir skotbardagann
sprakk sprengja í höfuðborginni,
Gaborone. Ekki var tilkynnt um
neinn mannskaða af völdum
sprengingarinnar en bíll eyðilagð-
Noregur:
Brundtland
tilnefnd til
friðarverð-
launa Nóbels
Ósló, Reutcr.
GRO Harlem Brundtland, for-
sætisráðherra Noregs, er í hópi
þeirra 68 einstaklinga og 19
stofnana sem tilnefnd hafa ver-
ið til friðarverðlauna Nóbels að
sögn heimildarmanna í Ósló en
þar verður verðlaununum út-
hlutað í október. Astæðan er
framlag hennar til umhverfis-
mála en Brundtland var á
síðasta ári í forsæti nefndar á
vegum Sameinuðu þjóðanna um
umhverfismál.
Brundtland hefur lagt fram til-
lögur varðandi umhverfisvanda-
mál í þriðja heiminum og vill að
stuðlað verði að framtaki íbúanna
sjálfra á litlum, skýrt afmörkuðum
svæðum. Ekki hefur verið upplýst
hver tilnefnir forsætisráðherrann
en þess má geta að meðal keppina-
uta hennar eru Reagan Banda-
ríkjaforseti og Gorbatsjov, leiðtogi
Sovétríkjanna. Eru þeir tilnefndir
vegna samningsins um eyðingu
meðaldrægra kjamaflauga sem
staðfestur var fyrir skömmu.
ist og gluggarúður brotnuðu. Yfir- >
völd hafa ekki upplýst hvort tengsl Italía:
hafi verið milli atburðanna tveggja
en segja að skemmdarverkamenn-
imir hafi ætlað sér að vinna hermd-
arverk í höfuðborginni.
Suður-afrískir hermenn hafa oft
gert áhlaup inn fyrir landamæri
Botswana í leit að skæruliðum
Afriska þjóðarráðsins, ANC, og
hafa 23 fallið í árásunum, aðallega
Kommúnistar velja sér nýjan
leiðtoga eftir kosningaófarir
Botswana-menn, en stjómvöld
hafa fram til þessa ekki reynt að
snúast til vamar.í mars síðastliðn-
um brenndu Suður-Afríkumenn
hús í úthverfí Gaborone og skutu
fjóra af íbúum þess til bana.
Enda þótt Botswana sé mjög
háð Suður-Afríku efnahagslega
hafa stjórnendur þess neitað að
gera samning um öryggismál við
Suður-Afríku og forseti landsins,
Quett Masire, hefur sakað Suður-
Afríkumenn um hermdarverk,
„Vandamál aðskilnaðarstefnu
stjómvalda í Suður-Afríku verða
ekki leyst með árásum yfír landa-
mærin, morðum á saklausum,
óbreyttum borgurum eða óvopnuð-
um lögreglumönnum. Við fordæm-
um enn sem fyrr þessi hermdar-
verk suður-afrískra stjómvalda,"
sagði forsetinn í gær.
Rómarborg, Reuter.
ÍTALSKIR kommúnistar, en
flokkur þeirra er stærsti komm-
únistaflokkur í Vestur-Evrópu,
kusu sér í gær nýjan formann
eftir nýlegan kosningaósigur
þeirra. Nýi formaðurinn heitir
Achillo Occhetto og er 52 ára
gamall. Hann leysir hinn sjötuga
Alessandro Natta af hólmi, en
sá sagði af sér hinn 13. júní.
286 flokksráðsmenn kusu hinn
nýja formann og vom þrír andvígir
honum, en fímm sátu hjá. Þeir eru
allir taldir til hægri arms flokksins.
Natta, sem nýlega fékk hjartaá-
fall, sagði af sér eftir að flokkurinn
beið afhroð í sveitarstjómarkosn-
ingum í maí síðastliðnum — hið
mesta í 35 ár. Þá fengu kommúnist-
Reuter
Búdapest:
Vilja að Imre Nagy
fái uppreisn æru
Búdapest. Reuter.
TVÖ hundruð menn komu saman
í Rakoskereczter-kirkjugarðinum
i Búdapest síðastliðinn fimmtu-
dag til þess að minnast þess að
30 ár voru liðin frá aftöku Imre
Nagy, fyrrum forsætisráðherra.
Fólkið hvatti til þess að Nagy, sem
hvílir í ómerktri gröf, og 324 önnur
fórnarlömb innrásar Sovétmanna,
sem grafín eru í garðinum, fengju
uppreisn æru. Nagy var forsætisráð-
herra þegar Sovétmenn réðust inn
i Ungvetjaland árið 1956. Var hann
í forystu umbótasinna sem vildu
losna undan sovézkri forsjá.
Nagy var líflátinn 16. júní 1958,
tæpum tveimur árum eftir að hann
sagði Ungveija úr Varsjárbandalag-
inu og skipaði sovézkum hersveitum,
sem staðsettar voru í Ungveijal-
andi, að hverfa heim, og lýsti yfir
því að tekið yrði upp lýðræðislegt
þingræði í landinu. Yfirlýsing Nagy
hratt af stað innrás Sovétmanna í
Ungveijaland 4. nóvember 1956.
Sovétmenn felldu eða líflétu um
3.000 Ungveija í innrásinni og þús-
undir voru fangelsaðir. Nagy var
handtekinrí og settu Sovétmenn Jan-
os Kadar til valda, en honum var
vikið úr starfi í síðasta mánuði. Fól
ið sem safnaðist saman við gr
Nagy krafðist þess að hlutdeild Ka
ars í innrás Sovétmanna og aðfö
inni að Nagy og umbótasinnum yr
dregin fram í dagsljósið.
Stuðningsmenn Nagy hugðu,
minnast aftökunnar með útifundi
Batthanyi-torginu í miðborg Búdí
pest en mörg hundruð lögreglumen
lokuðu götum, sem liggja að torg
inu, og komu í veg fyrir fundinr
Athöfnin í kirkjugarðinum var hin
vegar látin afskiptalaus.
ar aðeins um 22% atkvæða, sem
er 5% minna en flokkurinn fékk í
þingkosningunum í fyrra, en þá
höfðu kommúnistar þegar tapað
miklu fylgi.
Kommúnistaflokkurinn hefur
löngum verið stærsti kommúnista-
flokkur hins fijálsa heims og frá
lokum seinni heimsstyijaldar hefur
hann yfírleitt verið næststærsti
flokkur Ítalíu.
Undanfarinn áratug hefur fylgi
hans stöðugt minnkað, að hluta
vegna þiýstings af hálfu sósíalista
og fyrrverandi forsætisráðherra
þeirra, Bettinos Craxis, en stjóm-
málaskýrendur telja að ekki skipti
minna máli að kjósendr hans séu
orðnir fullsaddir af 40 ára stjómar-
andstöðu auk þess sem flokkurinn
hafi lítið sem ekkert breyst í takt
við tímann.
Ochetto er ekki talinn sérlega
hrífandi, en almennt viðurkenna
menn að hann sé fær stjómmála-
maður, sem sé ekki of fastur fyrir
til þess að þrífast í ítölskum stjóm-
málum, en þau hafa á stundum
þótt einkennast af ringulreið, mála-
miðlunum og ósætti.
Skoraðu með
JVC
JVC spólur
fást í Hagkaup