Morgunblaðið - 22.06.1988, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 1988
Morgunblaðið/Einar Falur
Eðlisfraeðileg vandamál leyst undir handarjaðri dr. Einars Júlíusson-
ar. Frá vinstri eru Asta Kristjana Sveinsdóttir, Helga Þórhallsdótt-
ir, Agni Asgeirsson og dr. Einar Júlíusson. A myndina vantar Hákon
Asgrímsson og Stefán Hjörleifsson.
Olympíuleikar í eðlisfræði:
Islenskar stúlkur
með í fyrsta sinn
ÓLYMPÍULEIKARNIR í eðlis-
fræði verða haldnir í 19. sinn í
austurísku borginni Bad Ischl
dagana 23. júní til 2. júlí. Keppn-
islið frá 27 þjóðum leiða saman
hesta sína en keppendurnir eru
framhaldsskólanemar yngri en
tvítugir. Skilyrði fyrir þátttöku
er ennfremur að keppandi hafi
ekki hafið nám á háskólastigi.
Fyrstu leikamir fóm fram í Var-
sjá 1965 og voru þá fimm þjóðir
með, allar frá Austur-Evrópu en lið
þaðan hafa einmitt skarað fram úr
ásamt Vestur-Þýskalandi og Bret-
landi. Hver þjóð sendir fimm manna
lið og verða því alls 135 keppendur
sem spreyta sig á verkefnunum.
íslenska liðið er skipað tveimur
framhaldsskólanemum og þremur
nýstúdentum. Þau eru Agni As-
geirsson MR, Ásta Kristjana
Sveinsdóttir MR, Hákon Ásgríms-
son MA, Helga Þórhallsdóttir MR
og Stefán Hjörleifsson MR. Þetta
er í fyrsta sinn sem íslenskar stúlk-
ur taka þátt í keppninni. Hlutfall
kvenna í leikunum hefur hingað til
verið undir 5%.
Val keppenda í íslenska liðið fór
fram með landskeppni í eðlisfræði
sem haldin var í febrúar og mars
síðastliðnum. Landskeppnin var
haldin í samstarfi við Morgunblaðið
og var þátttaka meiri en nokkru
sinni fyrr. íslenska liðið hefur verið
í þjálfim hjá kennurum og farar-
stjórum undanfarnar vikur. Farar-
stjórar verða dr. Einar Júlíusson
og dr. Hans Kr. Guðmundsson. Auk
_ þeirra hefur Viðar Ágústsson eðlis-
fræðingur séð um undirbúning.
Hluti þátttökukostnaðar er
greiddur með styrk á fjárlögum en
auk þess hafa eftirtalin fyrirtæki
ákveðið að styrkja þátttöku íslenska
liðsins: Almenna verkfræðistofan,
Fjarhitun, verk- og kerfisfræðistof-
an Strengur, Verkfræðistofa Guð-
mundar og Kristjáns, Verkfræði-
stofan Hönnun, Verkfræðistofa
Stefáns Ólafssonar og verkfræði-
stofan Línuhönnun.
Pamfíll velur sér stúlku
Stoltz og Masterson í Einskonar ást, sem sýnd er í Háskólabíói.
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Einskonar ást
(„Some Kind of Wonderful").
Sýnd i Háskólabíói.
Bandarísk.
Leikstjóri: Howard Deutch.
Handrit: John Hughes.
Framleiðandi: John Hughes.
Helstu hlutverk: Eric Stoltz,
Mary Stuart Masterson, Craig
Sheffer, Lea Thompson og
John Ashton.
Man einhver eftir „Pretty in
Pink“ (Sæt í bleiku) með Molly
Ringwald? Einskonar ást („Some
Kind of Wonderful"), sem sýnd
er í Háskólabíói, er ekkert ósvip-
uð nema hvað núna heitir Molly
Eric Stoltz.
John Hughes, sem manni
fínnst stundum að hafi staðið að
baki öllum helstu unglingamynd-
um síðustu ára, gerir handritið
að þeim báðum og einkenni hans
leyna sér hvergi. Og það leynir
sér ekki heldur hvað Einskonar
ást er lík Sæt í bleiku. Það er
líka sami leikstjórinn að þeim
báðum, Howard Deutch. Honum
tekst aldrei betur en í hressilegu
upphafi myndarinnar þegar
kreditlistinn birtist undir dynj-
andi rokki og svipmyndum af
aðalleikurunum tveimur. Upp-
hafíð gefur því miður ekki vænt-
ingar um það sem koma skal.
Hughes fy’allar um unglinga-
ástir sem fyrr og uppbyggingin
er jafn nauðaeinföld og hún er
kunnugleg. Hann (Eric Stoltz,
Molly Ringwaldí„Sæt“) er frekar
fátækur (þarf að vinna fyrir sér
með náminu) en verður samt
skotinn í sætu og snyrtilegu
stelpunni, (Lea Thompson,
Andrew McCarthy í ,,Sæt“) sem
hangir með ríka liðinu. Oh, vá,
ótrúlegt, segja allir og klappa
pamfílnum á bakið. Sjálfur situr
maður ósnortinn.
En stelpan er að nota strákinn
til að hefna sín á ríka gæjanum
sem hún hefur sparkað. Stoltz
er hins vegar fúlasta alvara —
eða er hann að reyna að komast
nær ríka og fallega liðinu og
nota stelpuna í þeim tilgangi?
Vá, maður, ótrúlegt.
Hann á druslulega vinkonu
(Mary Stuart Masterson, Jon
Ciyer í „Sæt"), sem er skotin í
honum, en hann gerir sér ekki
grein fyrir því. Ógoldnar ástir,
maður. Vá.
Eins og áður er ríka liðið líka
vonda liðið; ef þið sjáið einhvem
keyra Porche í Hughes-mynd þá
vitið þið að það er óþokkinn í
myndinni. Ef einhver keyrir
gamlan fólksvagn á maður að
halda með honum. Eins og áður
em samtöl Hughes skemmtilega
skrifuð; hann er alltaf að reyna
að skilja tilfínningar ungling-
anna og hann fer ansi liðlega
um veröld þeirra og vill skilja
hana og skýra, en hann er farinn
að herma fullmikið eftir sjálfum
sér.
Eric Stoltz (Gríman) ber höfuð
og herðar yfír hinn unga og efni-
lega leikarahóp, einlægur, vand-
aður, hófsamur og fjallmyndar-
legur, en kannski einum of sak-
leysislegur. Masterson verður að
beijast við tárvot augun mestan-
part myndarinnar og Thompson
að passa upp á útlitið og báðum
ferst þeim það vel úr hendi. John
Ashton (Löggan í Beverly Hills)
leikur ágætlega pabba Stoltz,
sem vill að sonur sinn fari í há-
skóla, en senuþjófurinn í þau
alitof fáu skipti sem hann birt-
ist, heitir Elias Koteas. Hann
leikur pönkforingja og minnir
mest á glettilega DeNiro frá því
í gamla daga.
radauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar
Veiðimenn
Út er komið 9. heftið af hinu vinsæla riti
Vötn og veiði, sem Landssamband veiðifé-
laga gefur út. í þessu hefti er kort og lýsing
á 40 ágætum veiðivötnum á Suð-vesturl-
andi. Getið er nýju vatnanna sem til urðu
við vatnsmiðlun í Tungnaá, en þau vötn eru
nú einhver bestu veiðivötn á landi hér.
Þessi rit fást í bóka- og sportvöruverslunum
og hjá Landssambandi veiðifélaga, Bolholti
6, 105 Reykjavík, sími 31510. Sendum í póst-
kröfu hvert á land sem er.
\ þjónusta |
Vantar verkef ni
í trésmíði, múrverki og málningu, t.d. glugga-
og þakviðgerðum, smíði á gluggum, innrétt-
ingavinnu á íbúðum og skrifstofum, múrvið-
gerðum á þakrennum og tröppum, flísalögn.
Einnig smíðum við sólstofur og grindverk í
garða, sumarhús og viðgerðir á þeim.
Verktakafyrirtækið Stoð,
símar 41070, 21608 og 985-27941.
atvinnuhúsnæði
Við Austurstræti
Til leigu 300 fm hæð á besta stað við Austur-
stræti. Húsnæðið er á annarri hæð og er til
leigu strax.
Upplýsingar gefa Kristinn Sv. Helgason og
Helgi Magnússon í síma 603060.
Austurstræti - til leigu
Skrifstofur - lagerrými
Til leigu um 100 fm skrifstofuhæð við Austur-
völl auk um 40 fm lagerrýmis. Laus nú þegar.
Upplýsingar í síma 21960 kl. 8.00-16.00.
Viljum kaupa eða leigja
200 fm - 500 fm húsnæði í hjarta borgarinn-
ar á götuhæð.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 24.
júní merkt: „Öruggar greiðslur - 2786.
Skrifstofuhúsnæði
Höfum til leigu 236 fm skrifstofu- eða þjónustu-
húsnæði á besta stað við Smiðjuveg í Kópa-
vogi. Góð bílastæði. Laust strax.
Upplýsingar í síma 46600.
Skrifstofuhúsnæði
Til leigu hluti af „penthouse" í Lágmúla 5.
Upplýsingar í síma 689911 eða á skrifstofu
okkar, Lágmúla 5, 7. hæð.
Birkir Baldvinsson hf.
Skeiðarás - Garðabæ
Ca 230 fm atvinnuhúsnæði á jarðhæð. Góð
lofthæð. Stórar innkeyrsludyr. Afhendist
strax tilbúið undir tréverk. Hagkvæmt verð
og greiðsluskilmálar.
Nánari upplýsingar hjá sölumönnum.
Verslunarhúsnæði
f miðbæ
Nýtt verslunarhúsnæði ca 230 fm á góðum
stað í miðbænum. Afhendist tilbúið undir
tréverk. Góðir greiðsluskilmálar.
Nánari upplýsingar hjá sölumönnum.