Morgunblaðið - 22.06.1988, Blaðsíða 63

Morgunblaðið - 22.06.1988, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 1988 63 U& fflH „Þurfum ekki lengur að burðast með minn- ingarnar frá 1974" - sagði Rinus Michels, þjálfari Hollendinga, eftir sigurinn á Vestur-Þjóðverjum. Hollendingar þar með komnir í úrslit gegn Sovétmönnum eða ítölum I Ð A 19 8 8 „ÞAÐ mikilvœgasta við þennan sigur er að nú þurfum við ekki lengur að burðast með minnin- garnar um ósigurinn frá 1974,“ sagði Rinus Michels, þjálfari hollenska landsliðsins, sem tryggði sér í gœr rétt til að leika til úrslita í Evrópukeppni lands- liða, með þvf að leggja Vestur- Þjóðverja að velii, 2:1.1974 töpuðu Hoilendingar, 2:1, fyrir Vestur-Þjóðverjum f úrslitaleik heimsmeistarakeppninnar. En nú náðu þeirfram hefndum — „það var erfitt en tókst,“ sagði Michels. Það var markaskorarinn mikli, Marco van Basten, sem tryggði Hollendingum sigur með marki á næst síðustu mínútunni. Það var kaidhæðnislegt að leikurinn í gær þróaðist á svipaðan hátt og úrslita- leikurinn 1974, nema hvað þá voru það Hollendingar sem komust yfír úr vítaspymu, V-Þjóðveijar jöfn- uðu, einnig úr víti og Gerd Muller jafnaði í lokin — en marki van Basten í gær svipaði einmitt mjög til marks Mflller fyrir 14 árum. Fallegt sigurmark Leikmenn beggja liða virtust vera famir að sætta sig við jafntefli þeg- ar Jan Wouters sendi fallega inn á vítateig Þjóðveija, van Basten snéri Jurgen Kohler af sér, renndi sér á boltann og skoraði í fjærhornið. Áður hafði Lothar Mattháus náð forystu fyrir Vestur-Þjóðverja og Ronald Koeman jafnaði úr víti. Þótti það mjög vafasamur dómur. Kohler reyndi að stöðva van Basten inni í teig og virtist ná knettinum áður en hann kom við andstæðing sinn. Sanngjam sigur Sigur Hollendinga var sanngjam, þeir léku mun betur en Þjóðverjam- ir. Michels, þjálfari Hollands, var í sjö- V-Þýskaland - Holland 1 : 2 Hamborg, Evrópukeppní lands- lióa, þridjudaginn 21. júní 1988. M&rk Vestur-Þýskalands: Lothar Mattháus (víti, 55.) Mörk Hollands: Ronald Koeman (víti, 74.), Marco Van Basten (89.) Gult spjald: Hans Van Breukelen, Hollandi. Áhorfendun 61.400. Dómari: Ion Igan, Rúmeníu. Lið Vestur-Þýskalands: Eike Immel, Jurgen Kohler, Matthias Herget (Hans Pflugier vm. á 45.), Uli Borowka, Andreas Brehme, Lothar Mattháus, Olaf Thon, Frank Mill (Pierre Litt- barski vm. á 85.), Wolfgang Rolff, Júrgen Klinsmann, Rudi Völler. Lið Hollands: Hans van Breukelen, Berrry van Aerie, Ronald Koeman, Frank Rijkaard, Adrie van Tiggelen, Gerald Vanenburg, Jan Wouters, Am- old Múhren (Wim Kieft vm. á 58.), Erwin Koeman (Wilbert Suvqjn vm. á 90.), Marco van Basten, Ruud GulliL unda himni að leik ioknum. „Sigur- mark van Bastens var glæsilegt og gat ekki komið á betri tíma.“ Hann sagði Basten hafa leikið jafnvel enn betur en gegn Englendingum, er hann skoraði þrennu. „Þegar mínir menn ientu undir urðu þeir að ein- beita sér enn betur. Ég var ekki mjög hress þegar Þjóðveijar skor- uðu, en það var senniiega það besta sem gat gerst fyrir mína menni" sagði Michels. Franz Beckenbauer, þjálfari Vest- ur-Þjóðveija, sagðist að vonum von- svikinn. „Við höfum ekki verið jafn óheppnir í áratugi. Vítaspyman sem þeir fengu var ekki sanngjöm og þegar sigurmark er skorað þegar svo stutt er til leiksloka er erfítt að kyngja tapi. Mér fannst við alls ekki eiga skilið að tapa. Lið mitt lék mjög vel og barðist vel allt til enda. Ég held því J)ó ekki fram að Hoilendingar hafí ekki átt skilið að sigra," sagði hann. Hollendingar í úrslit Hollendingar sigruðu Vestur-Þjóðverja og hefndu þar með loks fyrir tapið í úrslitaieik heimsmeistarakeppninnar fyrir 14 árum. Á efri myndinni syngur Ruud Gullitt fagnaðarsögn að leikslokum. Hann er einn margra frábærra leikmanna í liði Hollands, en liðið er einmitt mjög jafnt, þannig að Gullitt, knattspymumaður Evrópu, er ekki eins áberandi og margur hefði haldið. Á stærri myndinni sækir hetja Hollendinga, Marco Van Basten, að Immel markverði V-Þjóðveija. Van Basten fískaði vítaspymuna sem HoUendingar jöfnuðu úr og skoraði svo sigurmarkið i lokán. KNATTSPYRNA / ÍSLANDSMÓT 1. DEILD Guðmundur sá við fyrri félögumsínum VALSMENN, með alla sína stjörnuleikmenn, náðu ekki að að að leggja baráttuglaða Víkinga að velli og koma knett- inum fram hjá fyrrum félaga sínum íVíkingsmarkinu, Guð- mundi Hreiðarssyni, á Stjörnu- grófsvellinum í Fossvogi í gœr- kvöldi. Guðmundum varði þau fjögur skot Valsmanna, sem hittu rammann - tvisvar sinn- um í röð meistaralega undir lok leiksins. Leikurinn var ekki vel leikinn. Mest var um miðjuþóf. Bar- áttuglaðir Víkingar gáfii Vals- mönnum sjaldan frið, en þegar Valsmenn fengu Sigmunduró. faeri fóru þeir illa Steinarsson með þau. Aðeins skrifar ijögur skot hittu rammann á marki liðanna í leiknum. Valsmenn áttu þau öil, en Guðmundur Hreiðarsson, markvörður Vals og besti maður vallarins, sá alltaf við þeim. Fyrst varði hann skot af stuttu færi frá Atia Eðvaldssyni - í upphafí seinni hálfleiksins. Síðan langskot frá Magna Blöndal Péturssyni. Rétt fyrir leikslok varði Guðmundur meistaralega tvö skot á sömu sek- úndunum - fyrst skot af stuttu færi frá Jóni Grétari Jónssyni og síðan skot frá Guðmundi Baldurs- syni, sem lék sinn fyrsta leik með Val. Það var fátt annað í leiknum, sem gladdi augað. Morgunblaöiö/Júlíus Víkingur - Valur 0 : 0 Víkingsvöilur við Stjömugróf - íslands- mótið 1. deild. þriðjudagur 21. júní 1988. Dómari: Sveinn Sveinsson, 6 . Gult spjald: Þorgrimur Þráinsson. Áhorfendur: Fékkst ekki gefíð upp. Víkingur: Guðmundur Hreiðarsson, Jón Oddsson, Þórður Marelsson (Einar Einarsson 27. mín.), Stefán Halldórs- son, Atli Helgason, Andri Marteinsson, Jóhann Þorvarðarson, Hlynur Stefáns- son, Atli Einarsson, Lárus Guðmunds- son, Trausti Ómarrsson. Valur: Guðmundur Baldursson, Þorgrimur Þráinsson, Guðni Bergsson, Magni Blöndal Pétursson, Steinar Adolfsson, Ingnar Guðmundsson, Atli Eðvaldsson, Siguijón Kristjánsson (Jón Grétar Jónsson 78. mín.), Jón Gunnar Bergs, Tryggvi Gunnarsson (Guð- mundur Baldursson 73. mín.), Hilmar Sighvatsson. Atll Eðvaldsson, sem lék með Val i fyrsta sinn í níu ár, í baráttu um knöttinn við Stefán Halldórsson, til vinstri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.