Morgunblaðið - 22.06.1988, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 22.06.1988, Blaðsíða 62
62 MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 1988 KÖRFUKNATTLEIKUR / ÚRVALSDEILD Morgunblaöið/Björn Blöndal BandarfkJamaAurlnn Lee Nober, á miðri myndinni, undirritar samning til eins árs við körfuknattleiksdeild ÍBK í veitingahúsinu Brekku á sunnudaginn. Með honum á myndinni eru Stefán Kristjánsson varaformaður til vinstri og Skúli Skúlason formaður körfuknattleiksdeildarinnar til hægri. „Geta íslenskra körfuboftamanna kom mér á óvart“ - segir Bandaríkjamaðurinn Lee Nober nýráðinn þjálf- ari hjá Keflvíkingum KÖRFUKNATTLEIKSDEILD ÍBK hefur undirritað samning við Bandaríkjamanninn Lee Nober um að hann þjálfi meistara- flokk félagsins á næsta keppn- istímabili. Samningurinn ertil eins árs og mun Nober, sem er 29 ára, jafnframt þjálfa 2. og 3. flokk karla og aðstoða aðra þjálfara félagsins. Eftir að Nober hafði undirritað samn- inginn í Keflavík um helgina hélt hann til Englands þar sem hann mun starfa í sumar, en er væntanlegur aftur til lands- ins 1. september. Nober sagði í samtali við Morg- unblaðið að hann væri ákaf- lega spenntur að hefjast handa, sér litist vel á aðstæður og leikmenn ÍBK. „Ég hef horft á nokkra leiki með liðinu af myndbandi og geta íslenskra körfuknattleiksmanna kemur mér skemmtilega á óvart,“ sagði Nober sem hefur verið þjálf- ari hjá bandarískum háskólaliðum í 10 ár. Hann sagði að mest hefði komið sér á óvart hversu góðar skyttur væru í liðinu og þá sérstak- lega 3ja stiga skotmenn. „Það er vitaskuld erfítt að átta sig á getu liðs með því einu að sjá leiki þess af myndbandi, en mér sýnist Keflavíkurliðið og körfuknattleikur á íslandi mun betri en ég reiknaði með. Það er greinilegt að þeir þjálf- arar sem hafa lagt grunninn hjá IBK hafa unnið gott starf og þeir geta verið stoltir af árangrinum," sagði Nober ennfremur. „ÍBK-liðið hefur tvö síðastliðin keppnistímabil aðeins skort herslu- muninn á að vinna titla undir stjóm Gunnars Þorvarðarsonar sem ákvað að taka sér frí frá þjálfun. Hreinn Þorkelsson leikmaður með IBK hafði áhuga á starfínu, en hann hefur áðurþjálfað liðið. Skúli Skúla- son formaður körfuknattleiksdeild- arinnar sagði að ákveðið hefði verið að leita eftir manni með nýjar hug- myndir, sem ef til vill gætu gert gæfumuninn. KAPPAKSTUR / FORMULA 1 Sjötti sigur McLaren MCLAREN-liðið verður tæpast stöðvað úr þessu í heims- meistarakeppninni í Formula 1 kappakstri. Liðið með öku- mennina Alain Prost og Ayrton Senna hefur unnið öll mót árs- ins, sex talsins og náð öðru sæti í fjórum þeirra. Ökumenn- irnir Prost og Senna berjast innbyrðis um titil ökumanna, á meðan McLaren-liðið hefur svo gott sem tryggt sér titil framleiðenda. Það þurfa kraftaverk að gerast hjá öðrum liðum ef þau ætla að skáka veldi McLarens. Senna vann á sunnudaginn í bandaríska kappakstrinum, leiddi keppnina frá upphafí til enda án vandræða. Sem fyrr var það Prost sem veitti Gunnlaugur honum mesta Rögnvaldsson keppni, en hann skrífar varð síðan rúmri hálfri mínútu á eftir í endamark. Belginn Thierry Bout- sen á Benetton Ford varð þriðji, en keppnisbfll hans var með vél án túrbóbúnaðar, þannig að árangur hans er góður. „Ég bíð spenntur eftir næsta ári þegar búið verður að banna túrbóvélamar. Þá verður spenna í þessum mótum," sagði Boutsen. Morgunblaöiö/Gunnlaugur Rögnvaldsson Belglnn Thlerry Boutsen varð þriðji í Detroit-kappakstrinum. Senna kvaðst sama þó enginn spenna væri milli liða, hann þráir heimsmeistaratitilinn meir en nokk- uð annað. Hann mun vafalaust beij- ast af hörku við Prost um titilinn, þó þeir séu í sama liði. Prost hefur 13 stiga forystu á Senna, en aðrir eiga nánast enga möguleika þó enn séu tíu mót eftir á keppnistímabil- inu. McLaren-liðið hefur lagt línum- ar íyrir árið. „Malbikið á brautinni í Detroit molnaði smám saman upp og það var orðið erfítt að halda bflnum á brautinni," sagði Senna eftir keppni. „Ég náði fljótlega tæplega mínútu forskoti, þannig að ég gat tekið þessu rólega í lokin." Enn þjaka vélarbilanir Williams keppnisbfla Riccardos Patreses og Nigels Mansells. Margir bflanna í keppninni biluðu og meðal þeirra Lotus-bíll heimsmeistarans, Nel- sons Piquets, sem enn hefur ekki komist á verðlaunapall. Eins og staðan er í dag í Formula 1 kapp- akstri, þá má segja að beðið sé eft- ir næsta keppnistímabili. McLaren hefur tögl og hagldir í keppninni og litlar líkur á því að það breytist á næstunni. Úrslit í bandaríska kappakstrinum Aksturstimi/klst. 1. Áyrton Senna, Lotus McLaren 1,54,56 2. Alain Prost McLaren 1,55,25 3. Thierry Boutsen Benetton hring á e. 4. Andrea de Cesaris Rial hring á e. 5. Jonathan Palmer Tyrell hring á e. 6. Pierluigi Martini Minardi hring á e. Staðan í heimsmeistara- keppni ökumanna Stig 1. Alain Prost, Frakklandi 45 2. Ayrton Senna, Brasilíu 33 3. Gerhard Berger, Austurríki 18 4. Nelson Piquet, Brasilíu 11 SJÓNVARP fslenska sjónvarpið sparar sér kr. 15.000 á EM-leik Islendingar horfa á sendingar, sem eru sendar til Svalbarða Bjami Felixson hefur aðeins lýst einum leik af tíu að kom engum knatt- spymuáhugamanni á óvart, þegar ljóst var að 50% að- spurðra, sem hringt var í kl. 18.30 10. júní, voru að horfa á beina útsendingu frá opnunar- leik Evrópukeppni landsliða í knatt- spymu i sjónvarp- inu. Aftur á móti hefur það komið knattspymuáhuga- mönnum á óvart, að landsliðin sem hafa leikið í beinni út- sendingu, hafí ekki verið kynnt fyrir leikina eins og tíðkast hefur. Einn- ig hefur komið á óvart hvað endir sendinganna er snubbóttur. Oft má sjá norskan þul koma á skjáinn, til að kveðja og síðan hefur komið stöðu- mynd. Það var aðeins í opnunarleiknum sem sjónvarpsáhorf- endur fengu að sjá liðin kynnt og þjóð- söngva leikna. Það er nýtt að þessi háttur sé hafður á, þegar sýnt hefur verið beint frá leikj- um í Evrópukeppni eða heimsmeistara- keppni. Það er sjálf- sögð þjónusta að kynna liðin sem leika fyrir áhorfendur. Hér er því um afturför að ræða. Það kom mér heldur betur á óvart þegar ég frétti hver ástæð- an væri fyrir því, að þetta hefur ekki verið gert. Islendingar sitja ekki við sama borð og aðrar Evrópuþjóðir, sem fá allar sama pakkann - með kynningu á borgum, sem leikið er { hverju sinni, með kynningu á liðum, leikmönnum og öðrum fróðleiks- molum um EM. Ástæðan? Jú, það er 15.000 kr. ódýrara á hvem Ieik, fyrir sjón- varpið, að fá beinar sendingar frá EM, sem eru sendar til Sval- barða - heldur en að vera í samfloti með öðrum Evrópu- þjóðum. Sjónvarpið hefur verið að spara sér 15.000 kr. á leik, með því að svipta menn, sem borga afnotagjald, sjálfsagðri þjónustu. Þetta er gert á sama tíma og stórgróði hefur verið á beinu útsendingunum vegna tekna af seldum auglýsingum í sambandi við leikina. Sjónvarpið hefur sett áhorfendur sfna undir sama hatt og fáeina menn norð- ur á Svalbarða. Menn í Noregi láta ekki bjóða sér sendingar til Svaibarða, þó að þær séu ódýr- ari. Þar horfa menn á Evrópu- pakkann. I sambandi við beinu útsending- arnar hefur komið á óvart, að þegar verið er að sýna mönnum atburði beint, þá eru þulir enda- laust að blaðra um leikmenn - hvaðan þeir koma, með hvaða félögum þeir hafa leikið, hvað þeir séu gamlir og hve marga landsleiki þeir hafa leikið. Þetta eru þeir að gera á sama tíma og texti með upplýsingar um leikmenn birtist á skjánum. Þá hefur það komið mönnum á óvart, að sá maður hjá sjón- varpinu, sem hefur mesta reynslu og þekkingu til að lýsa leikjum, hefur aðeins lýst einum leik af tíu. Það er Bjami Felix- son, sem hefur unnið mörg kraftaverk fyrir sjónvarpið í efnisöflun á undanfömum árum. Hver ástæðan er fyrir því, að Bjami hefur aðeins lýst einum leik, eiga menn erfítt með að skilja. Sá gmnur læðist óneitan- lega að mönnum, að ákveðnir menn séu að reyna að koma Bjama út í kuldann. Þeir sem þekkja Bjama, vita að hann hefur ekki boðið knatt- spymuunnendum upp á send- ingar ætlaðar mönnum á Sval- barða. Hann hefði boðið upp á sama pakka og aðrar Evrópu- þjóðir hafa fengið að sjá - leiki með tilheyrandi kynningum. Eftir að hafa horft á EM í sjón- varpinu, hefur það runnið upp fyrir mönnum að sjónvarpið þarf að fá samkeppni til að betri þjón- usta verði í framtíðinni. Sú sam- keppni kemur þegar Stöð 2 hef- ur gengið í Evrópusamband sjónvarpsstöðva. Þá verða sjón- varpið og Stöð 2 að skipta með sér leikjunum, eins og tíðkast í mörgum Evrópulöndum. Þegar það gerist, verður okkur ekki áfram boðið upp á sendingar ætlaðar Svalbarða. Margir telja að þá fyrst fái Bjami Felixson að njóta sín aft- ur í beinum útsendingum, því að það kæmi engum á óvart - sumir segja að það sé næsta , víst, að Bjami Felixson fylgi í kjölfar Ómars Ragnarssonar og fari til Stöðvar 2. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um það, hvað mikill liðs- styrkur það væri fyrir Stöð 2, að fá Bjama. Hann er eins og Ómar, með gífurlega mikla reynslu sem sjónvarpsmaður og mikil og góð sambönd. íslenskir íþróttaáhugamenn myndu fagna því að fá aftur að njóta krafta og þekkingar Bjama Felixsonar í beinum útsendingum frá fþróttaviðburðum hér heima, sem úti í heimi. Sigmundur Ó. Steinarsson. Bjarnl Fellxson Knattspyrnuáhugamenn hafa saknað hæfni hans í lýsingum á leikjum frá EM í V-Þýskalandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.