Morgunblaðið - 24.07.1988, Qupperneq 23
oonr í tt'tt ko ctt t r'\ arntt/t/tt9 nin a Tcn/TTrvíTOM
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 1988
__SS
B 23
Frægt fólk
berst
gegn alnæmi
Genf. Reuter.
LEIKARAR, söngrarar og
annað frægt fólk mun leggja
sitt af mörkum í baráttunni
gegn alnæmi í Sviss.
Þau hafa lesið inn stutt skila-
boð til hlustenda svissneskrar
útvarpsstöðvar, þar sem þau
vara við hættunni af alnæmi. Á
hverjum degi verða 3-4 skila-
boð leikin á hinni frönskumæl-
andi stöð. Á meðal þeirra sem
lesa eru söngvarinn Charles
Aznavour, breska leikkonan
Jane Birkin og kappaksturs-
maðurinn Alain Prost. Af lönd-
um Evrópu hefur Sviss næst
hæstu tíðni alnæmis, en Frakk-
land þá hæstu.
meginþorra
þjóðarinnar
daglega!
Auglýsinga-
síminn er 2 24 80
igl
DAGVIST BARIVA
Fóstrur - Þroskaþjálfarar
Dagheimilið Ösp hefur starfsemi sína að
nýju í haust. Starfrækt verður sér deild
fyrir fötluð börn og einnig almenn dag-
heimilisdeild.
Markmið okkar er markviss þjálfun og
blöndun barnanna.
Okkur vantar áhugasamt fólk til að vera
með frá byrjun.
Upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 73940
fyrir hádegi og á kvöldin,
og sálfrœði- og sérkennsludeild Dagvistar barna
sími 27277.
Landspítalinn - Kvennadeild
Göngudeild kvennadeildar
Skrifstofumaður óskast til starfa frá 1. septem-
ber nk. Um er að ræða hálft starf á dagvinnu-
tíma. Starfið eraðallega fólgið í símavörslu, mót-
töku göngudeildargjalds og skráningu tímapant-
ana.
Nánari upplýsingar veitir hjúkrunarframkvæmda-
stjóri í síma 601195.
RÍKISSPÍTALAR
LANDSPÍTALINN
Sumarútsalan hefst á morgun
í báðum búðunum.
Kápur — kjólar — buxur — pils
sloppar — náttfatnaður
Komið og gerið góð kaup.
lympi
Laugavegi 26, s. 13300 — Glæsibæ, s. 31300