Morgunblaðið - 24.07.1988, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 24.07.1988, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 1988 Taipei. Reuter. MIKLAR breytingar voru gerðar á ríkisstjórn Taiwans á þriðju- dag. Skipt var um fimm ráðherra og athygli vakti að yngri embætt- ismenn tóku við. Forsætisráð- herrann Yu Kuo-hua hélt starfi sínu en reynsla hans er talin sér- staklega mikilvæg þegar svo margir nýir ráðherrar taka við embætti. Shirley Kuo hagfræðingur, sem er 58 ára gömul, gegnir nú emb- ætti fjármálaráðherra landsins. Lee Teng-hui, forseti Taiwan, setur nú flármál landsins á oddinn og leitar stuðnings við einkavæðingu ýmissa banka og fyrirtækja í eigu ríkisins. Frederick Chien er nú yfirmaður efnahagslegra áætlana og þróunar en litið er á það starf sem undirbún- ing fyrir forsætisráðherraembættið. Chen Li-an verkfræðingur og for- maður Vísindaráðsins mun verða efnahagsmálaráðherra. Yngri umbótasinnar innan Þjóð- emisflokksins höfðu hvatt Yu Kuo- hua til að láta af embætti forsætis- ráðherra en til þess kom ekki. Nokkur gagnrýni hefur komið fram á skipun Li-an og Chien þar sem þeir hafa ekki neina reynsiu af hagstjóm. í Kaupmannahöfn F/EST í BLAÐASÖLUNNI ÁJÁRNBRAUTA- STÖÐINNI, KASTRUPFLUGVELLI OGÁRÁÐHÚSTORGI sér, þeir eru almennt nægilega sannfærðir um yfírburði sína um flest. Og oft með réttu. Þegar hugað er að ferð til Jap- ans er mönnum nauðsynlegt að kynna sér hitt og annað um land og þjóð, svo að veran þar nýtist og margt sé skiljanlegra en ella. Og þessi Baedekers bók um Japan er ágæt aflestrar. Hún gef- ur skilmerkilega, en ekki of ítar- lega og þungmelta lýsingu á landi og þjóð, hefðum og arfleifð, gefn- ar upplýsingar fyrir almenna ferðamenn um hótel og ferðalög innan landsins, matargerðarlist þeirra. Og svo mætti lengi telja. Margir hafa unnið að bókinni og hún er til á ýmsum tungumálum. Kort af landinu fylgir með. Það er sjálfsagt að mæla með þessari bók fyrir ferðamenn til Japans. Og til þeirra sem einnig ferðast bara þangað í huganum. Þótt Japanir séu orðlagðir fyrir kurteisi og fágun í framkomu, kvarta margir undan því að þeir séu einnig fullkomlega óútreikn- anlegir og a.m.k. er ljóst að vest- rænir kvarðar eru ekki brúklegir í Japan. Talsvert margir íslendingar hafa lagt leið sína til Japans, ýmissa erinda, um stuttan eða langan tíma í senn og enda er þar ugglaust af mörgu að hrífast. Menn tala um menningarsjokk sem þeir verði fyrir, því að hvað sem öllum framförum og tækni Japana líður, eru þeir fyrst og fremst Austurlandaþjóð sem virðir hefðir sínar, ekki af skyldu, heldur af þeirri staðföstu vissu að þær eru bestar og réttastar. Það er kannski ofmælt að segja að Japan- ir líti niður á útlendinga, kannski þeir þurfi ekki að velta því fyrir Kápumynd JAPAN Erlendar bækur Jóhanna Kristjónsdóttir Baedeker’s Japan Útg. Prentice Hall Press, New York Japan er mikið furðuland, efna- hagsundur hefur þar orðið meira en annars staðar í heiminum síðustu áratugina og framleiðsla Japana hefur aukist svo að ýmsar stórþjóðir, eins og Bandaríkin hafa staðið á öndinni: Japanir virðast • w Skipt um ráðherra geta framleitt allt og selt allt og þeir þurfa nánast ekkert að kaupa. Þarna er náttúrlega alhæft nokk- uð, en samt hefur afkastageta Japana á því sem nær öllum svið- um síðustu áratugi verið með ólík- indum. Þó svo að Japanir hafi af skilj- anlegum ástæðum tileinkað sér sitthvað úr heimi Vesturlanda, halda þeir öðrum fastar í gamlar hefðir. Japanskt þjóðfélag er um margt lokað útlendingum og þótt útlendir menn búi allan sinn aldur í landinu eru þeir samt ekki gjald- gengir nema að hluta í japönsku samfélagi. í stjórn Taiwans HEFUR PU VITAÐ ÞAÐ BETRA? UEI IIIIIAIIB nEkmiiiviun ÚT OG RESTIN A12 MANUÐUM TOYOTA-BÍLASALAN býöur einstök greiðslukjör á notuöum bílum í eigu umboösins. 50% at kaupveröi greiðast viö samning en eftirstöövar eru lánaðar í 12 mánuöi, vaxta- og verötryggingarlaust! Og ekki nóg með þaö... Þeir sem staögreiöa fá 15% afslátt. // Hjá TOYOTA-BÍLASÖLUNNI er gott úrval notaöra bíla Veriö velkomin í Skeifuna og skeggræöiö viö sölu- menn okkar: Pétur, Jón Ragnar, Jóhann eöa Egil. Opiö milli kl. 9-19 virka daga og kl. 10-17 laugardaga. TOYOTA BÍLASALAN SKEIFUNNI 15.SÍMI 687120

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.