Morgunblaðið - 24.07.1988, Qupperneq 1
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 1988
BLAÐ
FERÐIR FRÁ SKÓGUM UM FIMM V ÖRÐUHÁLS í ÞÓRSMÖRK:
Fjallareiö á Fimmvöröuhálsi.
Frá Strákagili til Eyjajjallajökuls i kvöldkyrröinni.
Fjallabændur undir Eyja-
fjöllum bjóða nú upp á
hestaferðir frá Skógum,
upp með Skógánni, yfir
Fimmvörðuháls og að
Þrívörðuskeri, en síðan
tekur við tveggja
stunda ganga niður í Bása í Þórsmörk
og þar bíður bíll sem flytur ferðalanga
í skála Austurleiðar í Húsadal. Á þess-
ari leið gefst einstakt tækifæri til þess
að komast í nána snertingu við þver-
skurðinn af íslenskri náttúru, jarð-
fræði, grasafræði, vatnaspil og ýmsa
aðra þætti á hálendi og láglendi. Leiðin
er ægifögur og rík ástæða til þess að
hvetja fólk til þess að fara hana, því
hún er greiðfær fólki á öllum aldri sem
á annað borð treystir sér til þess að
ganga þægilega gönguleið undan fæti
í tvær klukkustundir. Sama er að segja
um reiðtúrinn, menn fá hesta eftir því
hvort þeir eru vanir eða byrjendur, en
aldrei er farið hraðar en fetið upp
fjallshlíðina og alloft áð enda ægifegurð
í hveiju fótmáli. Fjallabændur buðu
blaðamönnum í Eyjafjallareið, en boðið
verður upp á þessar ferðir frá miðjum
júlí og fram í september og ferðaskrif-
stofan Saga annast pantanir.
Fossasyrpan i Skógánni frá Skógum upp aö Fimmvöröuhálsi er meÖ ólikindumfögur ogfjölbreytt.
RiðiÖ móti 20 fossum, yfir jökulsporð
oggengið iperluna Þórsmörk