Morgunblaðið - 09.09.1988, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1988
B 5
Rás 1;
Hvíta rósin
■U Hvíta rósin
30 nefnist
dagskrá
sem verður flutt á Rás
1 í dag. Hún flallar
um andspymu syst-
kinanna Hans og
Sophie Scholl í Þýska-
landi nasismans.
Asamt fáeinum vinum
dreifðu þau Hans og
Sophie Scholl flugrit-
um til námsmanna í
Suður-Þýskalandi
árið 1942—43, þar
sem hvatt var til andspymu gegn ógnarstjóm nasista. Þau guldu
fyrir með lífi sínu. Þann 18. febrúar 1943 féllu þau í hendur Gestapo
og voru líflátin með fallöxi fjórum dögum síðar. Hvíta rósin var
dulnefni andspymuhópsins. Að loknu stríði hóf Inge Scholl að safna
saman munnlegum og rituðum heimildum um líf Hans og Sophie
og starf andspymuhópsins. Bók hennar um þetta efni, Hvíta rósin,
kom út í íslenskri þýðingu á síðasta ári. í þessum þætti segir Inge
Scholl frá síðustu mánuðum í lífi systkina sinna og starfí Hvítu rósar-
innar. Frásögn hennar var hljóðrituð á heimili hennar í Þýskalandi
í sumar. Sömuleiðis verður í þættinum lesið úr flugritum Hvítu rósar-
innar, bréfum og dagbókarbrotum Hans og Sophie. Ennfremur heyr-
ist úr samtímaupptökum í réttarsölum nasista. Einar Heimisson þýddi
og setti dagskrána saman en flytjendur auk hans eru Gerður Hjör-
leifsdóttir, Erla B. Skúladóttir og Hrafn Jökulsson.
Einar Heimisson með Inge Scholl, systur
Schollsystkinanna.
Ajfai
Kristnið allar þjóðir
■■H Kristnið
1 r 00 allar þjóðir
A ” nefnist
þáttur sem verður á
dagskrá útvarps-
stöðvarinnar Alfa í
dag. Þetta er fyrsti
þáttur af fjórum í
umsjá Sambands
íslenskra kristniboðs-
félaga. Hilmar E.
Guðjónsson verslun- Guðlaugur Gunnarsson sýnir mönnum
armaður les frásögu- mynd úr biblíusögunum.
þátt um Ólaf Ólafsson
sem var kristniboði í Kína í 14 ár. Guðlaugur Gunnarsson, kristni-
boði segir frá heiðnum siðum í Eþíópíu og Margrét Hróbjartsdóttir
hjúkrunarfræðingur flytur hugvekju, en Margrét hefur verið kristni-
boði í Eþíópíu. Kynnir er Benedikt Amkelsson. Þátturinn verður
endurtekinn nk. þriðjudagskvöld kl. 22.
Rás 2:
Tónleikar
■■■■ Á Rás 2 í dag eru tónleikar sem hljómsveitin Simple Minds
1 fí00 hélt í Glasgow árið 1985. Tónleikamir vom hljóðritaðir
A af breska útvarpinu og flytur hljómsveitin m.a. lög af plöt-
unum „New gold dream“ og „Sparkle in the rain“, og söngvaramir
Jim Kerr og Bono, söngvari U2, flytja eitt lag í sameiningu. Simple
Minds á rúmlega 10 ára langan feril að baki og hefur gefíð út
margar vinsælar plötur og lög, t.d. „Promised you a miracle", „Wat-
erfront", „Alive and kicking", „Don’t you forget about me“ og fleiri.
Kynnir er Skúli Helgason.
Sjénvarpið:
Myndlist
■IH í Ugluspegli í kvöld verður farið á myndlistasýningar. í
O A 45 þaettinum verður rætt við myndlistarmenn og ýmsa aðra
um möguleika listamanna að lifa af list sinni, einnig er
fjallað um það hverjir fari á myndlistarsýningar og reynt að skoða
hveijir það e'ru sem kaupa sér myndir á sýningum. Myndlistamennim-
ir sem fram koma í þættinum eru Messína Tómasdóttir, Brynhildur
Þorgeirsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Kristín María Ingimarsdóttir, Jó-
hannes Eyflörð og Guðrún Hrönn Ragnarsdóttir. Þá verður einnig
rætt við Ulfar Þormóðsson, stjómarformann Gallerís Borgar um það
hvemig gallerí-rekstur gangi og hveijir sæki málverkauppboð. Um-
sjón með Ugluspegli hefur Kolbrún Halldórsdóttir.
HVAÐ
ER AÐO
GERAST í
Katel
í sal Verslunarinnar Katel er sölusýningu
á plakötum og eftirprentunum eftir
Chagall. Salurinn ertil húsa að Lauga-
vegi 29 (Brynju-portiö). Sýningin er opin
virkadaga kl. 10—18.
Kjarvalsstaðir
Ragna Róbertsdóttir heldur sýningu á
Kjarvalsstöðum á skúlptúrum úrtorfi og
grjóti sem hún hefur unnið að sl. tvö ár.
Ragna var valin Borgarlistamaður 1987
og er með þessari sýningu að þakka
fyrirsig. Hún stundaöi nám í Myndlista-
og handíðaskóla íslands og Konstfact,
Stokkhólmi. Sýningin er opin frá kl.
14—22 alla daga og stendur til 11 sept-
ember.
(Austurforsal Kjarvalsstaöa heldur
Sigríður Gyða Sigurðardóttir sýningu á
u.þ.b. 30 verkum. Þetta er fyrsta einka-
sýning hennar i Reykjavik en hún hefur
tvívegis tekið þátt í haustsýningu F(M á
Kjarvalsstöðum. SigríðurGyða stundaði
nám í myndlistarskólum hérlendisí 7 ár.
Sýningin er opin daglega kl. 14—22 og
stendurtil 11. september.
Krókur
I Gallerí Krók sýnir Bjarni Þórarinsson
mynd unna með bleki. Krókur er að
Laugavegi 37 og eropinn á verslun-
artíma.
Mokka
Halldóra Emilsdóttir sýnir pastel-myndir
í Mokka við Skólavörðustig. Verkin eru
unnin á þessu ári. Halldóra lauk námi frá
málaradeild Myndlista- og hándíðaskól-
anum 1987 og er við nám í Rietveld
Academie í Hollandi. Verkin á Mokka eru
til sölu. Sýning stendur út ágúst.
Nýhöfn
I Nýhöfn, Hafnarstræti 18, stendur nú
yfir sumarsýning á verkum ýmissa lista-
manna. Verkin eru öll til sölu og til af-
hendingar strax, en ætlunin er að þetta
form verðjá sýningum í sumar og standi
fram í september þegar einkasýningar
hefjast á ný. (Nýhöfn eropið alla virka
daga kl. 12-18. Lokað um helgar.
I innri sal Nýhafnareiga eftirtaldirlista-
menn verk til sölu: Ágúst Petersen, Borg-
hildurÓskarsdóttir, Bragi Ásgeirsson,
Daði Guðbjörnsson, Edda Jónsdóttir,
Guðrún Kristjánsdóttir, Gunnar Örn
Gunnarsson, Harpa Björnsdóttir, Haukur
Dór, HólmfríðurÁrnadóttir, Karl Kvaran,
Karólína Lárusdóttir, Magnús Kjartans-
son, Valgaröur Gunnarsson og Vignir
Jóhannsson.
Nýiistasafnið
(Nýlistasafninu standa yfir sýningar á
verkum Guðrúnar Hrannar Ragnarsdóttur
og Söru Pucci. Guðrún Hrönn nam við
Myndlista- og Handíðaskóla (slands
1974—1978 og útskrifaðist úr Nýlista-
deild. Einnig stundaði hún nám í Hol-
landi við Den Vrije Academie i Den Haag
og Jan van Eyck Academie í Maastricht
1978—1982. Guðrún Hrönn sýnirolíu-
málverk, akrílmyndirog skúlptúra. Sara
Pucci er á 85. aldursári og sýnir hún
persluskreytta og skrautlega hluti sem
hún býr til handa dóttur sinni listakon-
unni Dorothy lannone. Sýningamar
standa til 18. september og er opiö dag-
lega frá kl. 16—29 og kl. 14—20 um
helgar.
Hafnarborg Hafnarfirði
(Hafnarborg, Strandgötu 34, Hafnarfirði
stendur yfir sumarsýning á verkum úr
safni stofnunarinnar. Sýningin er opin
daglega kl. 14—19.
Vinnustofa og
sýningarsalur
Rikey Ingimundardóttir hefur opnað
vinnustofu og sýningarsal að Hverfisgötu
59. Þar eru til sölu verk hennar; málverk,
postulínslágmyndir, stytturog minni hlut-
ir úr leir og postulíni. Ríkey málar og
mótar verk eftir óskum hvers og eins.
Opið er á verslunartima.
Hótel Selfoss
Ólafur Th. Ólafsson sýnir vatnslitamyndir
og teikningar i anddyri Hótels Selfoss í
september.
Stillholt
Akranesi
Bjarni Jónsson listmálari og Astrid Ell-
ingsen prjónahönnuðuropna sýningu í
veitingahúsinu Stillholt á Ákranesi á laug-
ardag. Astrid sýnir handprjónaða kjóla
og peysurog Bjarni sýnirolíumálverk,
akrýlmyndir og vatnslitamyndir. Sýningin
verðuropindaglega til 18. september
og verða þau Bjarni og Astrid við þar kl.
14—22 um helgar.
Hótel Blönduós
Rúna Gísladóttir sýnir á Hótel Blönduósi
verkfrá síöastliönum 2—3 árum, bæði
málverk og collage — eða samfellumynd-
ir. Rúna nam við Myndlista- og handíða-
skóla (slands i 4 ár, einnig stundaði hún
myndlistarnám í Noregi um tima. Hún
hefur starfað við myndlist á eigin vinnu-
stofu á Seltjarnarnesi og stundað mynd-
listarkennslu. Þetta erönnureinkasýning
Rúnu, þá fyrri hélt hún á Kjarvalsstöðum
í nóvember síðastliðnum. Sýningin er
sölusýning og stendurtil 1. október.
Opið er alla daga á opnunartíma hótels-
ins.
Gallerí Allrahanda
Akureyri
Galleri Allrahanda ertil húsa að Brekku-
götu 5 á Akureyri. í sumar er opið þriðju-
daga til föstudaga kl. 13.00—18.00 og
á miðvikudagskvöldum kl. 20.00—22.00.
Galleríið er á efri hæð og eru þar til sýn-
is og sölu leirmunir, grafík, textíl-verk,
silfurmunir, myndvefnaðurog fleira.
Leiklist
Alþýðuleikhúsið
Alþýðuleikhúsið sýnir leikritið Elskhuginn
eftirenska rithöfundinn Harold Pinter.
Sýningarnareru ÍÁsmunda'rsal við
Freyjugötu föstudaga kl. 20.30 og laug-
ardaga kl. 20.30 og sunnudaga kl. 16.00.
Leikendureru Viðar Eggertsson, Erla B.
Skúladóttirog Kjartan Bjargmundsson.
Leikstjóri er Ingunn Ásdisardóttir.
Ferðalög
Upplýsingamiðstöð
Upplýsingamiðstöð ferðamála er meö
aðsetur sitt að Ingólfsstræti 5. Þar eru
veittar allar almennar upplýsingar um
ferðaþjónustu á (slandi. Opið er mánu-
daga til föstudaga kl. 8.30—19.00, laug-
ardaga kl. 8.30—16.00 og sunnudaga
kl. 10.00-14.00. Síminner 623045.
Útivera
Hana nú
Vikuleg laugardagsganga Frístunda-
hópsins Hana nú í Kópavogi verður laug-
ardaginn 10. september. Lagtverðuraf
staðfrá Digranesvegi 12 kl. 10.00. Mark-
miðgöngunnarersamvera, súrefni og
hreyfing. Nýlagað molakaffi. Allir, ungir
og aldnir, eru velkomnir.
Ferðafélag Islands
Áföstudagskvöld kl. 20.00 verðafarnar
tvær helgarferðir á vegum Ferðafélags-
ins. Önnurtil Þórsmerkur, þarsem gist
verður í Skagfjörösskála í Langadal og
farnar gönguferðir um Mörkina, hin ferð-
in er til Landmannalauga og í þeirri ferð
verður ekið inn Jökulgilið inn í Hattver
og gengið til baka í Laugar. Gist er í
sæluhúsi Ferðafélagsins í Laugum. Á
sunnudaginn verða tvær dagsferðir,
gönguferð og ökuferö. Gönguferðin hefst
kl. 10 og verður þá gengið um Ólafs-
skarð og síöan að Geitafelli og þeir sem
vilja ganga á fellið og endar svo gangan
á Þrengslavegi. Kl. 13 verður ökuferð um
nýju Óseyrarbrúna. Ekið verðurum
Þrengslaveg og yfir nýju brúna, komið
við á Eyrarbakka og Stokkseyri og ekið
þaðan um Selfoss og Hveragerði til
Reykjavík. Á Eyrarbakka verður komið við
í Alpan verksmiðjunni.
Á föstudag kl. 20 verður farin helgarferö
til Þórsmerkur og gist í Skagfjörösskála
í Langadal. Á laugardag er gengið yfir
Fimmvörðuháls frá Þórsmörk og að
kvöldi kemur bíll að Skógum og nær [
hópinn. Einnig verður farin helgarferö til
Landmannalauga og í þeirri ferð er ekið
i Eldgjá og gengið að Ófærufossi. Gist
í sæluhúsi Fl í Laugum. Á sunnudag
verða tvær dagsferðir. Sú fyrri kl. 10.00
en þá verður gengin gömul þjóöleið frá
Hellisheiöi í Grafningi. Kl. 13 verður ekið
í Grafning og gengið meðfram ölfus-
• vatnsáog aðölfusvatnsárgljúfri.
Útivist
Eftirfarandi ferðirverða á dagskrá Útivist-
ar um helgina: 1. Þórsmörk, haustlita-
ferð. Gist i skála. Skipulagðar gönguferð-
ir. 2. Löðmundur — Landmannalaugar.
Gengið m.a. um Rauöfossafjöllin og á
Krakatind austan Heklu. Sunnudags-
ferðir 11. september: Strandganga í land-
námi Ingólfs 21. ferð. a. Kl. 10.30: Sel-
vogur — Þorlákshöfn. b. Kl. 13.00 Flesjar
— Þorlákshöfn — Óseyrarbrú. Ganga
vestan Þorlákshafnar og litast um í pláss-
inu. Byggðasafnið skoðað. Á bakaleið
verður ekið um Ölfusárbrúna nýju sem
eflaust vekurforvitni margra. Brottförer
frá BSÍ, bensínsölu.
Viðeyjarferðir
Hafsteinn Sveinsson er með daglegar
ferðir út í Viðey. Fyrsta ferð er fariö kl.
13.00 og er farið á heila tímanum frá
Reykjavík og á hálfa tímanum frá Viðey.
Mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga
fer síðasta ferð frá Viðey kl. 18.30 en
aðra daga kl. 23.30. Aukaferðir eru farn-
ar með hópar sem panta sérstaklega.
Kirkjan í Viðey er opin og veitingar fást
í Viðeyjarnausti. Bátsferðin kostar 300
krónurfyrirfullorðna, 100 krónurfyrir
börn að 14 ára aldri en frítt er fyrir börn
5 ára og yngri.
Hreyfing
Keila
(Keilusalnum í Öskjuhlíð eru 18 brautir
undir keilu, á sama stað er hægt að
spila billjarö og pínu-golf. Einnig er hægt
að spila golf í svokölluöum golfhermi.
Sund
I Reykjavík eru útisundlaugar i Laugar-
dal, við Hofsvallagötu og við Fjölbrauta-
skólann í Breiðholti. Einnig eru útisund-
laugar á Seltjarnarnesi, á Varmá og við
Borgarholtsbraut í Kópavogi. Innisund-
laugar á höfuðborgarsvæðinu eru við
Barónsstíg og við Herjólfsgötu í Hafnar-
firði. Opnunartíma þeirra má sjá ídag-
bókinni.