Morgunblaðið - 16.09.1988, Síða 11

Morgunblaðið - 16.09.1988, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1988 B 11 Guðað á skjáinn Eyðni í sápuóperum Sápuóperur í bandarísku sjón- varpi eru þekktar af öðru en að fjalla um áríðandi þjóðfélags- vandamál. Þess vegna vakti það nokkra athygli vestra þegar þrjá vinsælar dagsápur, svokallaðar af því þær eru sýndar í eftirmið- daginn en ekki á kjörtíma, tóku allt f einu uppá því að blanda eyðnisjúkdómnum inní enda- lausan söguþráðinn. Sápurnar eru: „The Young and the Rest- less" hjá CBS; „All My Children" hjá ABC og „Another World" hjá NBC. Þær fjalla um sjúkdóminn á ólíkan hátt en eiga þó eitt sam- eiginlegt; allar þrjár eyðnisögurn- ar segja frá sjúklingum sem eru konur. Sjúkdómar hafa alla tíð séð handritshöfundum sjónvarps- mynda og þátta fyrir krassandi efni en sápuóperur eru ekki endi- lega þekktar fyrir að fara rétt með læknisfræðilegar stað- reyndir. Nýlega gaf t.d. einhver í einhverri sápunni blóð og reynd- ist vera í „G“-flokki. En sumir sápuhöfundar telja sig vera að gera skyldu sína þeg- ar þeir vefa alvarlega sjúkdóma eins og eyðni í söguþræði sína því þannig komi þeir á framfæri mikilvægum upplýsingum. Einn af handritshöfundum „The Yo- ung and the Restless", Kay Ald- en, segir að með eyðnisögunni í CBS-sápunni sé verið að reyna að „leiðrétta margan misskiln- inginn um fólk sem er svo óhepp- ið að hafa fengið sjúkdóminn". En af hverju eru sjúklingarnir konur? Það er einfalt eftir því sem Alden segir: Til að þjóna best áhorfendunum, sem flestir eru konur. „Það býður líka uppá meiri möguleika að nota konur vegna þess að flestir líta ekki á eyðni sem sjúkdóm er konur geta fengið og gera sér ekki grein fyrir að gagnkynhneigt fólk er í hættu," segir Alden. En, segir Deborah Rogers sem vinnur að bók um kvenlýsingar í sápuóperum, umfjöllun sápanna þriggja um eyðni er svo skrum- skæld til að ná fram auknum dramatískum áhrifum að áhorf- endur, samtals 60 milljónir á viku, gætu fengið ranga hug- mynd um sjúkdóminn. (tveimur af sápunum fengu sjúklingarnir eyðni af vændi — óbeint í öðru tilvikinu. Eyðnisjúklingurinn í „Another World", sem nú er lát- inn, fékk sjúkdóminn með blóð- gjöf — mögulegt en tölfræðilega ólíklegt. Það kemur í Ijós að gef- andinn — gleðikona — er móðir sjúklingsins sem þá drepur í rauninni dóttur sína. Ekki beint huggulegt efni fyrir 80 prósent áhorfenda sem eru annaðhvort mæður eða dætur. Eyðni í sam- bandi móður og dóttur er ekki bundin við „Another World". í „The Young and the Restless" er Jessica Blair fyrrum vændis- kona sem yfirgaf dóttur sína fyrir mörgum árum til að sinna „starfsferlinum" en hefurnú snú- ið til hennar aftur áður en hún deyr úr eyðni. I sjónvarpinu verður eyðni, sem aðallega tengist kynhverfu fólki og eiturlyfjaneytendum í veruleikanum, sjúkdómur gagn- kynhneigðra kvenna. Og eyðni, segir Rogers, er ekki aðeins not- uð til að fjalla um flókið samband móður og dóttur og krydda svol- ítið dagsápur heldur til að refsa konum fyrir léttlyndi í ástarmál- um. -ai. Einföldun: Úr þáttunum „All My Children11. Metsölublað á hverjum degi! IUIYIMDBÖND Sæbjörn Valdimarsson Velgja spennumynd Feel the Heat ★1/2 Leikstjóri Joel Silberg. Handrit Stirling Silliphant, Moshe Dia- mant. Aðalleikendur David Duk- es, Tiana Alexandra, Rod Steig- er. Bandarísk/argentínsk. Trans World Entertainment 1987. Laugarásbíó 1988. 90 mín. Atakamynd í slöku meðallagi. Til tilbreytingar er sögusviðið að hluta Suður-Ameríka, nánar til tek- ið Argentína, þó ekki bjargi það miklu. Eiturlyfjalögreglumar Duk- es og Alexandra eru sendar til Buenos Aires að hafa uppá þeim sem stunda stórfellt heróínsmygl til Bandaríkjanna. Sá gmnaði er umboðsmaðurinn Steiger, því er Alexandra litla dubbuð upp sem dansari og þannig kemst hún inní innsta hring umbans og þarf þá ekki að spyrja að leikslokum. Þeir félagar, Stéiger og handrits- höfundurinn Silliphant, mega svo sannarlega muna sinn fífíl fegri. Sú var tfðin að þeir voru dáðir lista- menn sem risu hæst fyrir tuttugu árum er þeir hlutu Óskarsverðlaun fyrir hluteild sína í í hita næturinn- ar. Steiger fyrir bestan leik í aðal- hlutverki og Silliphant fyrir óvenju meitlað og líflegt handrit þar sem einnig var komið við kynþátta- vandamál suðursins. Með hliðsjón af Feel the Heat, á fólk sjálfsagt bágt með að skilja að hér fara gömul stórmenni og Óskarshafar, en hún sýnir best að verðlaun eru víst engin trygging fyrir farsæld né ótæmandi hæfileik- um. Benni á tímaflakki Gamanmynd Biggles ★ ★ Leikstjóri John Hough. Handrit John Groves og Kent Waldwin, byggt á sögupersónum Capt. W.E. Johns. Kvikmyndatöku- sljóri Ernest Wincze. Tónlist Stanislas. Aðalleikendur Neil Dickson, Alex Hyde-White, Fiona Hutchinson, Peter Cushing. Bresk. Gerð 1986. 89 mín. Bönn- uð yngri en 12 ára. Þessi lauflétta ævintýramynd fjallar um sögupersónu sem er minni kynslóð að góðu kunn, flug- hetjuna Benna, sem Norðri gaf út við miklar vinsældir á þeim árum sem bókin var vinsælasti afþreying- armiðillinn. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og svo sannarlega á þessi mjmdbands-Benni lítið ann- að skylt við garp bemskuminning- anna en að hann er jú flugkappi. Því samkvæmt þörfum unglinganna í dag er hann nú orðin samsuða af Bennanum hans Johns kapteins og nýmóðins Spílberghetju sem geysist aftur til síðari heimsstytjaldarinnar — sögusviðs myndarinnar — úr nútímanum. Frambærilegt, undur- vitlaiiof Ekkert blávatn MARKAÐSÞEKKING ÚTFLUTNINGSKUNNÁTTA ✓ VILTU VERDA KUNNATTUMAÐUR í ÚTFLUTNINGIOG MARKADSSÓKN? Þér gefst færi á eins vetrar námi til aö ná því marki, -án þess að það komi niður á vinnunni. STJÓRNUNARFÉLAG ÍSLANDS UTFLUTNINGS OG MARKAÐSSKÓLI ÍSLANDS Ánanaustum 15-101 Reykjavík - Sími (91) 62-10-66 Dauer léttöl

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.