Morgunblaðið - 30.10.1988, Síða 12

Morgunblaðið - 30.10.1988, Síða 12
12 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 1988 IÞROTTIR UNGLINGA / KNATTSPYRNA „FH féllur ekki aftur" Sverrir Öm Þórðarson var fyrir- liði FH-liðsins í mörgum leikj- | um í sumar. Hann er sterkur vam- armaður og hefur æft fótbolta í tvö r ár. „Árangurinn í sumar hefur ver- [ ið mjög góður og það er góður 30 í | — segirfyrirliðinn SverrirÖrn Þórðarson manna kjami sem mætir alltaf á æfingar,“ sagði fyrirliðinn hreykinn á svip. Magnús Pálsson þjálfari hefur góða stjóm á þessum fjölda og æfíngamar eru mjög góðar hjá honum, tjáði Sverrir blaðamannin- um. „Það er alltaf mætt vel á allar æfíngar og samkeppnin um að kom- ast í liðið er mjög hörð,“ sagði Sverrir. Árangur meistaraflokksins hefur verið strákunum mikil lyftistöng í sumar og hefur ýtt undir áhuga á knattspymu í Hafnarfírði. Sverrir er þess fullviss að FH muni standa sig í 1. deildinni að ári og segir að liðið sé komið til að vera. Svarrlr Örn Þórðarson var fyrir- liði FH-liðsins í mörgum leikjum ( Gaman að vera í marki — segja markverðimir Baldur Þór Eyjólfsson og Freyr Gígja Gunnarsson Ekkert lið nær góðum árangri án þess að hafa góða mark- menn. Þegar markmaður bregst er ekki von á góðu og það er því mikil pressa á þá að standa sig. Hjá FH-liðinu æfa tveir frísklegir piltar að skutla sér á milli stang- anna. Þetta em þeir Baldur Þór Eyjólfsson og Freyr Gígja Gunn- arsson. Þeir gáfu sér tíma til að ræða stuttlega við blaðamanninn um íþróttina og ástæðuna fyrir því að þeir fóru að æfa í marki. „Ég bjó ( Danmörku með foreldrum mínum og þar fór ég að æfa í marki með dönsku liði. Þegar við fluttum heim aftur iá beinast við að halda því áfram,“ sagði Freyr Gígja. Baldur sagðist hafa farið að æfa í marki fyrir tilviljun: „Það vantaði mann í markið á einni æfíngunni og spilaði ég í þeirri stöðu. Ég stóð mig þokkalega og síðan þá hef ég verið í marki," sagði hann sposkur á svip. Þeir sögðust báðir hafa æft í þijú ár og ekki hefði komið til greina annað en að æfa með FH. MarkverAlr FH-lnga ! 6. flokki þeir Baldur og Freyr. „Það eru mjög fáir Haukar í mínum bekk,“ sagði Baldur, en Freyr minnti á að Haukamir væru með gott lið ( körfunni. „Það er bara af því að FH er ekki með körfuboltadeild," sagði Baldurþá. En að lokum voru þeir sammála að Hafnarfjörðurinn væri mesti íþróttabær landsins. Það var komið að því að piltam- ir færu í mark og því gat blaða- snápurinn pumpað drengina leng- ur og þakkaði fyrir viðtalið. Aðalatriðið er aðæfavel — segja þeir Arnar ÞórViðarsson og Guðmundur Sævarsson Tveir af máttarstólpunum í 6. flokks liði FH eru þeir fóst- bræður Amar Viðarsson og Guð- mundur Sævarsson. Þeir vom hressir með árangurinn í sumar og vildu þakka Magnúsi þjálfara og góðum mannskap þennan árangur. „Við hefðum nú átt að vinna Tommamótið líka,“ sagði Guð- mundur hugsandi, en Amar sagði að árangur sumarsins væri svo sem ekkert til að skammast sín fyrir. Amar og Guðmundur vom að sjálfsögðu hressir með árangur meistaraflokksins í sumar og sögð- ust vera sannfærðir um að þeir myndu standa sig ! 1. deildinni á næsta ári. „Þeir verða ekki neðar en 6. sæti," sagði Arnar ákveðið og Guðmundur samsinnti því. Það kom dálítið skrýtin svipur á piltana er þeir vom spurðir hver væri besti leikmaðurinn í meistara- flokknum. Þeir litu hvor á annan, flissuðu og sögðu síðan að það væri ömgglega Maggi þjálfari. Síðan viðurkenndu þeir að þeir segðu þetta mest til að fá prik hjá honum en sögðu að hann hefði svo gaman af því að honum væri hrós- að. Einnig sögðust þeir vilja hrósa Kristjáni Gíslasyni. Uppáhaldsleikmenn erlendis em Glenn Hoddle hjá Amari og Gary Lineker hjá Guðmundi. Besti íslenski leikmaðurinn er Amór Guðjohnsen að beggja dómi. Um framtíðina vildu piltamir spá sem minnstu. Þeir em báðir stað- ráðnir í því að halda áfram að æfa og vonandi að komast í meistara- flokkinn. FH næsta stór- veldi í knattspymu? Komið við í Kaplakrikanum ÍHafnarfírðinum er nú mikið fjör á fótboltasviðinu. Meistaraflokk- ur FH sigraði glæsilega í 2. deild- inni og leikur í 1. deild að ári. Pilt- amir í 4. flokki gerðu sér Ktið fyrir og urðu íslands- meistarar og árang- ur annarra yngri flokka var mjög glæsilegur. Einkum var það 6. flokkur félagsins sem stóð sig með prýði í sumar. Strák- amir þar sigraðu í Pollamóti Eim- skips í a- og b-liði, Hi-C mótinu á. Akranesi og vom einnig ofarlega á Tommamótinu í Vestmannaeyjum. Við litum við í Hafnarfirði og rædd- um við nokkra pilta úr þessum öfluga flokki. Að sögn Þóris Jónssonar, for- manns knattspymudeildar FH, er mikill hugur í FH-ingum að standa sig á næstu áram. Uppbygging íþróttasvæðisins hefur gegnið mjög vel og árangur yngri flokkanna lo- far góðu. Sagði Þórir að fallið í 2. deild í fyrra hefði hrist upp í mönnum og mikil samstaða hefði verið um að fara strax upp aftur. Það hefði tek- ist, en menn gerðu sér vel grein fyrir því að 1. deildin væri mun erfiðari og róðurinn yrði mun erfíð- ari en nú. Um 6. flokkinn sagði Þórir að þetta væri skemmtilegur og sam- hentur hópur. Magnús Pálsson þjáifari hefði náð vel til strákanna og nú þyrfti að halda vel utan um þessa stráka til þess að þeir myndu skila sér alla leið í meistaraflokkinn. Andrés Pétursson skrífar Arnar VIAarsson og Guðmundur Sævarsson. B-IIA FH í 6. flokki gefur A-liðinu Ktið eftir. A-IIA FH í 6. fíokk hefur staðið sig mjög vel.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.