Morgunblaðið - 30.10.1988, Page 14

Morgunblaðið - 30.10.1988, Page 14
14 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 1988 Sérstök sýning’ á Leiðsögumanninum á vegum náttúruverndarsamtakanna Kaupmannahöfh. Norska kvikmyndin Leiðsögumaðurinn, sem nú hefúr verið nefiid til Óskarsverðlauna, var sýnd fyrsta sinni í Danmörku 26. október með hátíðarsýningu í kvikmyndahúsinu Palladium á Vest- erbrogade. Frumsýningin var á vegum Verdensnaturfonden og var Henrik prins, sem er forseti sjóðs- ins hér, heiðursgestur. Helgi Skúlason, sem nefndur er til Evrópukvikmyndaverðlaunanna í Berlín í nóvember fyrir leik sinn í Leiðsögumanninum og íslensku kvikmyndinni I skugga hrafiisins, var við- staðddur ásamt leikstjóra og framleiðanda myndarinnar. Framkvæmdastjóri Verdensnat- urfonden, Vibeke Skat Rördam, flutti ávarp, áður en sýningin hófst og lýsti ánægju sinni með, að frum- sýningin skuli tengjast nafni sjóðs- ins, en það var að undirlagi Nordisk Film og vegna einlægs áhuga Niels Gaup leikstjóra á störfum sjóðsins víða um heim. Fékkst þar tækifæri til að endurgjalda stuðningsmönn- um og félögum sjóðsins og sýna þeim kvikmynd, sem lýsir baráttu frumstæðrar þjóðar við náttúruöflin og næmleik og virðingu hennar fyr- ir umhverfí sínu. Framkvæmda- stjórinn kallaði Niels Gaup leik- stjóra, Helga Skúlason og John M. Jacobsen framleiðanda upp á svið og var þeim ákaft fagnað, en Niels Gaup þakkaði og sagði myndina koma í ræðu stað. Sem kunnugt er fjallar Leiðsögu- maðurinn um sama og er söguþráð- urinn byggður á fornri sögn, sem saminn Niels Gaup lærði af afa sínum. Gestimir horfðu djúpt snortnir á myndina og ríkti algjör þögn í salnum, svo að mátt hefði heyra saumnál detta, en fögnuðu síðan með lófataki. Á eftir var móttaka í sal kvikmyndahússins og ræddi fréttaritari þar við ýmsa að- standendur myndarinnar og nátt- úruvemdarsamtakanna. Leikstjór- inn var mjög ánægður með, hvemig staðið var að þessari viðhafnarsýn- ingu og John M. Jacobsen lagði áherslu á, að hugmyndafræði sama Hörður Helgason sendiherra, Niels Gauj Þeirsem hreyfa sig mikið viröast nýta kalkið úrfæöunni beturog hafa því meiri beinmassa á efhárum en þeirsem hreyfa sig lítið. 100 gr. af léttmjólk innihalda aðeins 46 hitæiningar. Og það eru verðmætar hitaeiningar, þvíað þeim fylgja mörg mikilvægustu næringarefnin. Efþú viltgrennast, þá erbetra að draga úrþýðingarminni hitaeiningum. Mjólk geturdregiðúr tannskemmdum við eðlilegar aðstæður. Hið háa hlutfall kalks, fosfórsogmagníum veitirtönnum vernd. Eftirneyslu sætinda eða sykurríkrar máltíðar er t.d. gott að skola munninn með mjólk. Beinin þroskast og styrkjast fram að fertugsaldri og þess vegna er mikilvægt að þau fái nægjanlegt kalk allan þann tíma tilþess að standa vel að vígi þegar úrkölkun hefst um miðjanaldur. Eftir fertugsaldurinn ernægjanlegt kalk úr fæðunni nauðsynlegt til þess að hamla gegn beingisnun. Tvöglös afmjólk á dag er góð regla. 8

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.